Alþýðublaðið - 31.05.1995, Qupperneq 6
6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ1995
n n i
n
Þórey Friðbjörnsdóttir: Handhafi
bókmenntaverðlaunanna 1995.
■ Verðlaunabókin Epla-
sneplar eftir Þóreyju Frid-
bjömsdóttur komin út
„Verður
maður
piparsveinn
að eilffu?"
- spyr söguhetjan Breki Bolla-
son á ögurstundu í lífi sínu.
Vaka-Helgafell hefur gefið út bók-
ina Eplasnepla eftir Þóreyju Frið-
björnsdóttur. Algengt er að slíkar
bækur komi út á haustdögum og hefúr
lítið framboð því verið á lesefni af
þessu tagi í bókabúðum utan þess
tíma. Það er að segja: ef frá eru taldar
þær bækur sem hlotið hafa íslensku
barnabókaverðlaunin undanfarin tíu
vor.
Þórey hlaut einmitt fslensku bama-
bókaverðlaunin 1995 á dögunum og í
umsögn dómnefndar segir: „Sagan er
sögð á nýstárlegan hátt og skrifuð af
mikilli leikni. Höfundur hefur næman
skilning á reynsluheimi íslenskra
barna og unglinga [enda kennari í
Hlíðaskóla] og setur dagleg vandamál
og spurningar sem vakna í einkar
spaugilegt ljós.“
í kynningu útgefanda á bókarkápu
segir að Eplasneplar sé „fyndin og
bráðfjörug saga“ og smellfyndin fyrir
stráka og stelpur á öllum aldri. Þar er
jafnframt vitnað í söguhetjuna Breka
Bollason: „Afhverju má maður ekki
vaka fram eftir á kvöldin og kveikja í
flugeldum inní herbergi? Og hvað á
maður að gera þegar draumadísin tek-
ur ekki einu sinni eftir manni þótt
maður sé kominn með gel í hárið og
klæddur í gamla leðurjakkann hans
Ragga frænda? Verður maður pipar-
sveinn að eilífu?“
Þórey Friðbjömsdóttir hefur áður
skrifað unglingabækumar Aldrei aftur
árið 1993 og Þegar sálin sér ári síðar.
Eplasneplar er 136 blaðsíðu. Krist-
ín Ragna Gunnarsdóttir gerði kápu-
mynd bókarinnar og G.Ben-Edda
prentstofa hf. sá um prentvinnslu
hennar. Bókin kostar 1.490 krónur.
Minningardagskrá um Hauk Morthens var haldin í fyrrakvöld
í Þjóðleikhúskjallaranum og tókst hún vel. Varflytjendum vel
tekið eins og þessar myndir bera glöggt með sér. Það er lítil
hætta á því að Haukur og lögin hans gleymist. Valgeir Skag-
fjörð söng og spilaði á píanó og annaðist útsetningar á lögun-
um og aðlagaði þau að flytjendum, sem voru auk hans: Hinrik
Ólafsson, Vigdís Gunnarsdóttir (söngur og kynningar), Kor-
mákur Geirharðsson trommur og Einar Sigurðsson bassi.
Umsjón með dagskránni hafði Sigríður Margrét Guðmundsdóttir.
Einar Ólason, Ijósmyndari Alþýðublaðsins, lét sig ekki vanta.
Leikararnir og söngvararnir Hinrik Ólafsson og Vigdís Gunnarsdóttir lifðu
sig inn í lögin sem Haukur Morthens gerði fræg.
Það er ekki að efa að Ijúfar minningarnar hafi gert vart við sig á þessu
borði.
Dýrleif Örlygsdóttir klappar flytjendum iof í lófa, likast til ekki síst Kor-
máki sínum Geirharðssyni, sem sveiflaði burstunum yfir snerlinum alveg
eins og herforingi.
Og yngri kynslóðin lét sig ekki vanta heldur.
HÚSNÆÐISNEFND KÓPAVOGS
Umsóknir
Húsnæðisnefnd Kópavogs vekur athygli á, að umsóknar-
frestur um félagslegar eigna- og kaupleiguíbúðir rennur
út þann 6. júní nk.
Þeir einir koma til greina sem uppfylla eftirfarandi skilyrði:
1. Eiga ekki íbúð eða samsvarandi eign.
2. Eru innan eigna- og tekjumarka sem Húsnæðisstofnun
ríkisins setur.
3. Sýna fram á greiðslugetu sem miðast við að greiðslu-
byrði lána fari ekki yfir 30%.
Umsóknareyðublöð eru afhent á skrifstofu Húsnæðis-
nefndar Kópavogs að Fannborg 4, sem er opin frá kl. 9-15
alla virka daga.
Athygli er vakin á því, að ENDURNÝJA ÞARF ELDRI
UMSOKNIR og ef fólk óskar eftir að flytja sig til inn-
an kerfisins, þarf að leggja fram nýja umsókn.
Nánari upplýsingar veittar hjá Húsnæðisnefnd Kópavogs,
Fannborg 4, eða í síma 45140 frá kl. 11-12 alla virka daga.
Húsnæðisnefnd Kópavogs.
New York á þriðja áratugnum?
Regnboginn:
Bullets Over Broadway
Aðalhlutverk: John Cusack, Di-
anne Wiest, Jennifer Tilly
★ ★ ★ ★
Sjö tilnefningar til Óskarsverðlauna
hlaut mynd þessi í vetur og Dianne
Wiest verðlaunin fyrir besta leik konu
í aukahlutverki. Þykir myndin jafnvel
besta mynd Woody Allen. - Gerist
myndin í New York á þriðja áratugn-
um, eins og varðveist hefúr í þjóðsög-
um. Og er hún í raunsæisstíl - að
minnsta kosti á yfirborðinu.
Ungum leikritahöfundi býðst upp-
færsla á einu leikrita sinna, (en þá
upphefð hefur hann enn ekki hlotið).
Einn jöfur undirheima vill koma ást-
konu sinni upp á fjalirnar, en með
henni á æfingar sendir gæslumann, til
að ekki haldi hún framhjá honum. Sá
tekur að lifa sig inn í æfmgamar og að
stinga upp á texta-breytingum, sýni-
lega til bóta, en lítur þá af ástkonunni.
Mun ekki þurfa að rekja þá sögu.
Samtöl, leikur, sviðsetning, kvik-
myndun, - allt er þetta með mestu
ágætum. Stendur myndin undir til-
nefningum sfnum.
Kvikmyndir |
Ein hátíðar-
myndanna?
Borgarbíó: Ed Wood
Aðalhlutverk: Johnny Depp,
Martin Landau, Sarah Jessica
__________Parker_________
★ ★ ★
í Hollywood á eftirstríðsárunum
gerði Edward D. Wood við misjafnan
orðstír ódýrar spennumyndir. Urðu
ekki ófáar þeirra dregnar í dilk vísinda-
skáldskapar. Var hann (1974?) kjörinn
versti kvikmyndaléikstjórinn og varð
sá titill honum til nokkurs frama. - f
síðari heimsstyijöldinni gat Wood sér
gott orð, var sæmdur heiðursmerki fyr-
ir vasklega framgöngu upp strönd
gegn kúlum óvina. Þótt elskur væri að
Haraldur um Ed Wood: „...mun
hún einkum skírskota til hóps kvik-
myndaunnenda, en sumum þeirra
mun þykja hin frábæra kynningar-
runa í upphafi nægilegt tilefni til að
líta hana augum."
konum, hafði hann gaman af að ganga
í kvenklæðum. Og fyrsta vinsæla kvik-
mynd hans var Glen og Glenda, um
kynskiptinginn Christine Jörgensen.
Kvikmynd þessa hefur Tim Burton
gert um starfsár Woods í Hollywood
og þá jafnframt um vináttu hans við
Bela Lugosi síðustu æviár hans.
Myndin er svart-hvít, og þótt tíma-
skekkja virðist í fyrstu, nýtur hún þess
til að draga fram Hollywood sjötta og
sjöunda áratugarins. Og kann henni að
vera ætíað að minnast aðnokkru aldar-