Alþýðublaðið - 01.06.1995, Síða 1
Innfluttar landbúnaðarvörur verða 100 til 200 prósentum dýrari en innlendrar
vegna ofurtolla í GATT-frumvarpi ríkisstjórnarinnar
#r
Ég var blekktur
rr
- segir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytenda-
samtakanna, og kveðst hafa orðið fyrir jafn miklum
vonbrigðum og meginhluti þjóðarinnar.
,JÞað voru ýmsir sem létu blekkjast
af þeim upplýsingum sem höfðu kom-
ið ífam um hvað fælist í þessum jóla-
pakka um GATT. Ég lét blekkjast eins
og fleiri og tjáði mig um málið á
grundvelii þess sem fjölmiðlar höfðu
sagt. Þegar sannleikurinn kom í ljós
varð ég fyrir jafn miklum vonbrigðum
og meginhluti þjóðarinnar," sagði Jó-
hannes Gunnarsson formaður Neyt-
Jóhannes: Ýmsir sem létu blekkj-
ast af þeim upplýsingum sem
höfðu komið fram um hvað fælist í
þessum jólapakka um GATT.
- segir Halldór Guðmundsson,
í viðtali sem Alþýðublaðið átti ný-
lega við Einar Braga skáld, í tilefni
útgáfu hans á Ibsen-þýðingum sínum,
komu fram harkalegar skoðanir hans á
útgáfumálum í landinu. Hann segir
þau háskalega illa á vegi stödd og tel-
ur það vega að andlegu frelsi manna,
að ekki séu nokkur forlög á landinu
sæmilega á vegi stödd og geti keppt
við hvert annað. Einar Bragi segir Mál
og menningu algjörlega einoka mark-
aðinn.
Halldór Guðmundsson, útgáfu-
stjóri Máls og menningar, var spurður
hvort þessi fullyrðing skáldsins stæð-
ist. „Því fer fjarri. Það er að mínum
dómi allt of mikið upp í sig tekið að
segja að það séu engin önnur forlög til
í þessu landi. Það kom ífam í nýlegri
úttekt að til dæmis Vaka-Helgafell
hefur svipaða markaðshlutdeild og
við. Það er alveg óþarfi að láta eins og
við séum eina forlagið á landinu þó að
það sé tímabundin kreppa í faginu,"
Halldór Guðmundsson, útgáfu-
stjóri Máls og menningar: Það er
alveg óþarfi að láta eins og við sé-
um eina forlagið á landinu þó að
það sé tímabundin kreppa í faginu.
endasamtakanna í samtali við Alþýðu-
blaðið. Áður en frumvarp ríkisstjóm-
arinnar um GATT-samninginn var
lagt fram lýsti Jóhannes yfir ánægju
með að fallið hefði verið ffá ofurtoll-
um á innfluttar landbúnaðarvörur og
taldi að náðst hefði áfangasigur. Jó-
hannes sló þó þann vamagla að hann
hefði ekki séð ffumvarpið og því væri
margt óljóst. Nú liggur frumvarpið
hins vegar fyrir þar sem gert er ráð
fyrir 30 prósenta verðtollum að við-
bættum háum magntollum.
„Það lak út ffá-einhvetjum, stjóm-
mála- eða embættismönnum væntan-
lega, að það ætti að gefa þjóðinni jóla-
gjöf. Þetta átti að vera ffekar góð jóla-
gjöf. Síðan kom pakkinn í formi ffum-
varps og farið var að taka utan af hon-
um. Þá kom bara f ljós að pakkinn var
tómur. Miðað við það sem fjölmiðlar
höfðu getið um þá koma þessir tollar
mjög á óvart. Vissulega er farið úr
þessum himinháu tollum en þó er ekki
farið lengra en það að niðurstaðan hef-
ur enga þýðingu," sagði Jóhannes
Gunnarsson.
„Nú liggur fyrir að GATT mun hafa
sáralitla þýðingu fyrir íslenska þjóð.
Það er smáglæta hvað varðar kjúk-
útgáfustjóri Máls og menningar.
sagði Halldór. Ólafur Ragnarsson,
forstjóri Vöku-Helgafells og nýkjör-
inn formaður Félags íslenskra bókaút-
gefenda, undrast einnig hversu stór-
orður Einar Bragi er. „Mér þykir Einar
Bragi taka mikið upp í sig þegar hann
talar um að andlegt ffelsi landsmanna
sé í hættu. Það er auðvitað staðreynd
sem ekki hefur farið fram hjá mönn-
um að forlögum hefur fækkað á síð-
ustu árum. Eg tel vandann ekki vera
þann að það vanti fleiri bókaforlög. Ef
eitthvað er þá er offfamleiðsla á bók-
um á Islandi. Um það eru bókaffam-
leiðendur sammála. Það er verið að
gefa út fleiri titla en markaðurinn ræð-
ur við.“
- Siá fréttaskvringu á blaðsíðu 5.
Þegar viðauka við frumvarp ríkis-
stjómarinnar um GATT- samninginn
er flett kemur berlega í ljós að ætlunin
er að leggja ofurgjöld á innfluttar
landbúnaðarvörur. Má nefna sem
dæmi að á innfluttar nautalundir skal
Ieggja 30% verðtoll og síðan svokall-
aðan magntoll þar ofan á sem er 1.462
krónur á hvert kíló. Á innflutt smjör
leggst 623 króna magntollur ofan á
30% verðtoll. Óskar Magnússon, for-
stjóri Hagkaups, segir nær að kalla
ffumvarpið Gabb-ffumvarp í stað þess
að kenna það við GATT.
í samtali við Alþýðublaðið í gær
gagnrýndi Jón Baldvin Hannibals-
son alþingismaður GATT-frumvarp
ríkisstjórnarinnar harðlega. Hann
hnga og kalkún og ætti að vera gagn-
vart eggjum ef menn halda ekki uppi
tæknilegum viðskiptahindrunum. Ég
segi að það sé glæta varðandi þessar
vömr vegna þess að þær hafa verið
seldar á okurverði hér. Þetta er eina
glætan. Menn töluðu um að innflutta
varan ætti að vera 30 prósentum dýr-
ari en sú innlenda. Nú kemur í ljós að
hún verður allt upp í eitt til tvö hundr-
uð prósent dýrari eins og smjörið.
sagði að hér væri um að ræða dulbúið
frumvarp um ofurtolla. Fólk hefði
skilið þetta sem svo að innfluttar land-
búnaðarvörur yrðu 30% dýrari en inn-
lendar þar sem gert væri ráð fýrir 30%
verðtolli. Hins vegar bættist magntoll-
urinn við sem væri föst krónutala og í
mörgum tilfellum gríðarlega hár. Jón
Baldvin benti á að innfluttur kjúkling-
ur sem kostaði 100 krónur í innkaup-
um yrði seldur á 1.253 krónur kílóið í
verslun hér með öllum gjöldum. í
fféttum Stöðvar 2 í fyrrakvöld var haff
eftir Óskari Magnússyni forstjóra
Hagkaups að frumvarpið um GÁTT
væri raunar GABB- frumvarp. Lítið
sem ekkert væri hægt að flytja inn af
landbúnaðarvörum með þessum toll-
Þetta eru mikil vonbrigði.
Menn skulu hafa það í huga að það
verður ekki farið að flytja hingað inn
eitthvað þriðja flokks rusl. Það eru
kannski þær vörur sem eru á þessu
svokallaða heimsmarkaðsverði. Við
munum að sjálfsögðu gera kröfur til
þeirra vara sem verða fluttar inn á
sama hátt og íslendingar gera ríkar
kröfur til innlendra landbúnaðarvara,"
sagði Jóhannes Gunnarsson.
um. í viðaukanum með GATT- ffum-
varpinu er birtur listi yfir vöruflokka
og hvaða verðtoll og magntoll vörum-
ar bera.
Hér á eftir eru nokkur dæmi úr við-
aukanum um upphæð magntollsins
sem bætist ofan á 30% verðtoll í þess-
um dæmum.
Magntollur á nautahakk verður 510
krónur á kíló, á hryggvöðva nautakjöts
1.087 krónur og 703 krónur á hrygg-
sneiðar. Svínalundir bera 1.195 krónu
magntoll og hryggvöðvar 1.022 krónu
magntoll á kfló. Svo farið sé yfir í
kindakjöt skal greiða 390 króna magn-
toll af hakki, 947 krónur af lundum og
vöðvar af læri eru magntollaðir á 883
krónur. Vilji menn hins vegar flytja
Steingrímur J. Sigfússon: Gengur
ekki að undanskilja einhverja til-
tekna toppa frá endurnýjunarregl-
unni.
■ Frambjóðendur
til formanns
Alþýðubandalagsins
Vilja halda
endumýjunar-
reglunni
„Égnef verið ágætlega sáttur við
þær endumýjunarreglur sem við höf-
um haft. Það er ekki hægt að slíta
þetta varðandi formanninn úr sam-
hengi við þessa reglu sem gildir al-
mennt í öllum okkar stofhunum og til-
nefningum í stjómir, nefhdir og ráð á
okkar vegum," sagði Steingrímur J.
Sigfússon alþingismaður í samtali við
Alþýðublaðið.
í Alþýðubandalaginu gildir sú regla
að enginn er kjörgengur lengur en í
þrjú kjörtímabil í miðstjóm og fram-
kvæmdastjóm. Flokkurinn hefur yfir-
leitt skipt um fulltrúa srna í stjómum,
nefndum og ráðum eftir tvö fjögurra
ára kjörtímabil. í samræmi við þessar
reglur þarf Ólafúr Ragnar Grímsson
nú að láta af formennsku í Alþýðu-
bandalaginu en hann var kjörinn for-
maður árið 1987. Þær raddir hafa
heyrst innan flokksins að þessi ský-
lausa endurnýjunarregla sé ekki
heppileg og sjálfur hefur Ólafur Ragn-
ar dregið það í efa.
Steingrímur J. Sigfússon sagði ekki
ganga að undanskilja einhverja til-
tekna toppa frá þessari endumýjunar-
reglu. Hún ætti að gilda um helstu for-
ystumenn flokksins sem aðra meðan
hún væri við lýði sem almenn grund-
vallarregla. Þetta hefði marga góða
kosti og tryggði endumýjun og hreyf-
ingu. Hins vegar gæti verið veikt fyrir
flokkinn við vissar aðstæður að vera
með forystu sem væri í þann veginn
að missa umboð sitt. Það vandamál
mætti leysa og til dæmis koma í veg
fyrir að forystan væri fráfarandi í að-
draganda þingkosninga eins og var á
liðnu vori.
Margrét Frímannsdóttir alþingis-
maður sagðist vilja halda þessari end-
urnýjunarreglu sem nú gilti innan
flokksins.
Ekki tókst að ná tali af Ólafi Ragn-
ari Grímssyni.
r verðið
inn hrossakjöt eða kjöt af ösnum skal
greiða 256 krónur í magntoll. Kjúk-
lingar og kalkúnar bera 603 króna
magntoll en beinlausa kjúklingabita
skal magntolla upp á 900 krónur kíló-
ið.
Af ostum á að greiða 430 krónur í
magntoll en 500 krónur af gráðosti. Á
egg leggjast 243 krónur á kfló en 61
króna á jógúrt. Af tómötum skal borga
198 krónur í magntoll og 136 krónur
af gulrótum, en 197 krónur af gúrkum,
svo nokkuð sé nefht.
Þessar upphæðir leggjast ofan á
30% verðtoll eins og fyrr segir og því
lítil von til þess að neytendur fái að
njóta lægra matarverðs eins og vonir
stóðu til með þátttökunni í GATT.
■ Eru útgáfumál í landinu á háskabraut?
Því fer fjarri að við
einokum markaðinn
Látlaus fönkorgía framundan ■■■ Þennan
mann mátti sjá útí sólinni í gær þarsem hann var að hita upp fyrir föstu-
dagskvöldið, en þá mun hin goðumkennda Funkstratie halda stórtónleika
í Tunglinu ásamt fleiri dansguðum. Maðurinn heitir Prófessor P-imp sem
ku vera alter egó. Ef menn gá grannt má greina afgreiðslumann í bóka-
búð að baki. Prófessor P-imp lofar dansfestivali annað kvöld. En hvaða
kona er að flækjast þarna á myndinni? „Þetta er hún Madonna, eða
Maddí eins og ég kýs að kalla hana. Hún verður með okkur í anda þegar
fönkkeyrslan sprengir utan af okkur Tunglið." A-mynd: E.ÓI.
■ „GABB-frumvarp" ríkisstjórnarinnar
Magntollurinn margfalda
Fer upp í 1.462 krónur á nautalundum og 623 krónur á smjöri.