Alþýðublaðið - 01.06.1995, Blaðsíða 8
■ Félag áhugamanna um bókmenntir heldur vorþing sittá laugardaginn
og í ár verður fjallað um módernistann Thor Vilhjálmsson
„Eg erekki haldinn skúffubrjálæði eins-
og svo margir bókmenntafræðingar
//
- segir skáldið Sigurður
Pálsson, einn fyrirlesara
þingsins, í vægast sagt
harðsoðnu samtali við
Stefán Hrafn Hagalín.
Félag áhugamanna um bók-
menntir heldur árlegt vorþing sitt á
laugardaginn kemur í Listhúsinu í
Laugardal. Félagið hefur nokkur
undanfarin ár staðið fyrir málþing-
um um bókmenntir á vorin og venj-
an er, að einn höfundur sé tekinn til
umfjöllunar hverju sinni. f fyrra var
fjallað um verk Svövu Jakobsdótt-
ur og nú er röðin komin að einum
af samferðamönnum Svövu í mó-
dernismanum, Thor Vilhjálms-
syni. Alþýðublaðið sló á þráðinn til
eins af fyrirlesurunum, Sigurðar
Pálssonar, og ætlunin vitaskuld að
forvitnast um mál mannsins og
meiningar. Sigurður reyndist hins-
vegar nokkuð tregur til tals, en þó
tókst að draga uppúr honum orð
eða tvö. Allt í góðu samt. Svona
var stemmningin (les: ísland) með
semingi um kaffileytið í gær...
Hverju œtlarðu að Ijúga í liðið,
Sigurður?
„Það kemur bara í ljós á laugar-
daginn."
Ertu mikill Thors-aðdóandi?
„Já, já - og hef lengi verið. Ég er
hinsvegar ekki jafnhrifinn af öllu
sem Thor Vilhjálmsson hefur skrif-
að, ekki frekar en ég er jafnhrifinn
af öllu hjá öðrum meisturum; til
dæmis Einari Ben eða Albert
Camus. Hjartfólgnast verka Thors?
Ég er frekar hrifinn af heildinni, en
einstökum verkum og síðan bútum
og bitum úr þeim öllum. Til dæmis
kom Tvtlýsi mér alltaf meira og
meira á óvart og þegar upp var
staðið frá lestrinum var ég mjög
hrifinn. Einnig mætti í þessu sam-
hengi nefna Grdmosann, Fljótt,
fljótt og vitaskuld margar aðrar
bækur hans.“
Telurðu það einn af betri eigin-
leikum Thors, að geta komið sífellt
á óvart og prakkarast í lesendum
sínum?
„Jú, jú. Á hinn bóginn er stíll
Thors alltaf auðþekkjanlegur -
meira að segja eftir aðeins tvær lín-
ur. En innan þessa ramma hans má
samtsem áður alltaf sjá óvæntar
flugeldasýningar. Thor er ekki líkur
neinum í rauninni. Og það er
auðvitað það sem gerir hann
Thor Vilhjálmsson. A laugardaginn kemur ætla ekki færri en ellefu fræoi-
menn, rithöfundar og skáld að fjalla um Thor á árlegu vorþingi Félags
áhugamanna um bókmenntir.
svolítið skemmtilegan.“
Hvernig þá - er hann kannski al-
veg einstakur?
„Já, ég held að það megi segja
það. Hann er allavega mjög, mjög
sérstakur. Ég hef svosem ekkert
haldið á loft þeirri maníu, að ef
menn passi ekki ofaní einhverja
ákveðna kommóðuskúffu þá eigi
þeir að fara beint í ruslið. Ég er
ekki haldinn skúffubrjálæði einsog
svo margir bókmenntafræðingar."
Ýmsir hafa strítt Thor á því, að
hann hermi eftir Laxness...
„Alltsvo í skrifum sínum?“
Mmmm...
„Ég hef nú ekki tekið eftir því.
Ég held að menn séu þá aðallega að
tala um persónuna. Ánnars skil ég
eiginlega ekki pælingar af þessu
tagi.“
Geturðu ekki gefið okkur ein-
hverja mynd af því sem þú œtlar að
segja á laugardaginn ?
„Ég er nú enn að móta fyrirlest-
urinn. Þetta verða svona örfá orð
um stöðu Thors og einhver tilraun
til að átta sig þannig á heildarverk-
inu. En þetta verður ekki hálftíma
fyrirlestur einsog skilja má á dag-
skránni. Ég verð ekki svo lengi.
Samkvæmt því sem viðfangsefnið
býður upp á verða þetta annaðhvort
að vera tólf mínútur eða tólf tímar.
Allt þar á milli finnst mér vera hálf-
kák. Fyrirlesturinn felur í sér byrj-
un á vangaveltum um heildarverk-
ið.“
Og þessi yfirskrift fyrirlestursins
er væntanlega vísun í ákveðinn
hlut?
„Að sjálfsögðu: í fyrstu bók
Thors, Maðurinn er alltaf einn.“
...og heimurinn er alltaf einn...
„...já, mér finnst oft að menn
gleymi byggingunni eða heildinni í
bókum Thors: heildarverki hans.“
Áttu þá við gagnrýnendur?
„Já, þeir horfa gjarnan einungis á
þá bók sem þeir eru með í höndun-
um það skiptið. Ef maður fjallar um
Thor samkvæmt venjulegum að-
ferðum útþynntrar skólabókabók-
menntafræði þá kemur ekkert útúr
því oft og tíðum.“
Líta þá í einhverjar einstakar lín-
ur og...
„Ef þeir gerðu það nú bara. Mál-
ið er að annarsvegar gleyma menn
hinu smáa og hinsvegar gleyma
menn hinu stóra: eru sífellt á ein-
hverju róli þar inná milli. Ég skynja
texta Thors sem eina samfellu; eitt
samfellt flæði. Og svona heildar-
hugsun gengur náttúrlega þvert á þá
skáldsögu-anekdótu sem bæði les-
endur og útgefendur eru vanir: þar-
sem hver einstök bók stendur sem
heild. Það ber hinsvegar að líta á
öll verk Thors sem eina heild eða
jafnvel heilt úthaf. Menn mega
afturámóti ekki gleyma að skoða
dropann í úthafinu: að analýsera
rækilega eina línu eða eina máls-
grein eða eina síðu. í hverjum þess-
ara smáu hluta býr nefnilega hug-
mynd um heildarverkið, alveg ein-
sog í hverjum dropa býr hugmynd
allt úthafið. Þetta finnst mér oft
leiða menn á villigötur. Þessvegna
langar mig annaðhvort að tala í tólf
mínútur eða tólf tíma. Thor er ekk-
ert venjulegur og því þarf að taka
hann óvenjulegum tökum. Annars
kemur umfjöllunin út á svipaðan
hátt og ef maður færi og keppti í
hundrað metra hlaupi þegar maður
ætti í raun að keppa í stangar-
stökki... - eða þannig."
Er bókmenntafrœðin þá í ein-
hverri krísu?
„Nei, nei. Ég held að undanfarin
fimmtán til tuttugu ár hafi orðið
gífurlegar framfarir í þessum fræð-
um hér á landi. Mér finnst bók-
menntafræðingar af yngri kynslóð-
inni vera að gera mjög áhugaverða
hluti og það sést af listanum yfir
framsögumenn á þinginu, að þar
eru flestir í yngri kantinum. Það
sem ég er kannski meira að tala um
er eitthvað sem á betur við það sem
var viðtekin hefð hér á landi fyrir
svona tuttuguogfimm árum.“ ■
Sigurður Pálsson: Mig langar ann-
aðhvort að tala í tólf mínútur eða
tólf tíma. Thor er ekkert venjulegur
og því þarf að taka hann óvenju-
legum tökum.
Hin tilkomu-
mikla dag-
skrá Thors-
þingsins
Það eru ellefu fræðimenn, rithöfund-
ar og skáld sem sjá um að velta fyrir
sér og flytja erindi á laugardaginn
um ýmsa þætti í höfundaverki
Thors, en einnig verður leiklestur úr
verkum skáldsins og almennar um-
ræður. Þingið er öllum opið og að-
gangseyrir er þúsundkall með kaff-
inu inniföldu. Dagskrá þingsins er
sem hér segir:
■ 09:00 Þingsetning
■ 09:15 Ragnhildur Richter:
„Að tengja mig" (um Raddir í
garðinum)
■ 09:40 Eysteinn Þorvaldsson:
„Hugurinn reikar víða" (um
æskuverk Thors)
■ 10:05 Kristján Jóhann Jónsson:
„Afhverju var fuglinn að flýta
sér"
■ 10:30 Kaffihlé
■ 10:50 Friðrik Rafnsson: „Thor og
franska nýsagan"
■ 11:10 Þröstur Helgason: „Af
texta ertu kominn, að texta
muntu verða" (verk Thors sem
texti)
■ 11:30 Sigurður Pðlsson:
„Heimurinn er alltaf eirfri" (örfá
orð um Thor)
■ 12:00 Hádegishlé
■ 13:30 Ástróður Eysteinsson:
„í útlöndum"
■ 14:00 Silja Aðalsteinsdóttir:
„í spori mannsins" (snögg sýn á
Ijóð Thors)
■ 14:20 Aðalsteinn Ingólfsson:
„Ut pittura poesis"
■ 14:40 Kaffihlé
■ 15:00 Leiklestur úr örverkum
Thors
■ 15:30 Svala Þormóðsdóttir:
„Að sætta eðlin tvenn" (kafað í
Grámosinn glóir)
■ 16:00 Þorleifur Hauksson:
„Um stíl Thors Vilhjálmssonar"
■ 16:20 Almennar umræður
■ 17:00 Áætluð þingslit
Heitt, heitara, heitast: Erótískar píróettur ballettdansara íslenska dans-
flokksins ylja landanum í kvöld á fjölum Þjóðleikhússins. A-mynd: E.ÓI.
■ Heitir dansar Islenska
dansflokksins í Þjóðleik-
húsinu á síðasta snúningi
Endalaus
erótík
Nú fer hver að verða síðastur að
bregða sér á Heita dansa, hina ágætu
sýningu íslenska dansflokksins í
Þjóðleikhúsinu. Síðasta sýningin
verður í kvöld, 1. júní, klukkan 20:00.
Á efnisskránni eru verkin Carmen
eftir Sveinbjörgu Alexanders, Sól-
ardansar eftir Lambros Lambrou,
Adagietto eftir Charles Czarny og
77/ Láru eftir Per Jonsson við tónlist
Hjálmars H. Ragnarssonar. Car-
men er íburðarmesti ballettinn,
byggður á heimsfrægri skáldsögu eft-
ir Prosper Mérimée og hefur dansa-
höfundurinn Sveinbjörg samið hann í
klassísku flamengó-stíl. Verkið er
mjög auðskilið og áhorfandinn alltaf
vel með á nótunum, enda þekkja
flestir vel til sögunnar sem Elín
Edda Árnadóttir myndskreytir af
miklu listfengi með búningum sínum.
Til liðs við dansara íslenska dans-
flokksins eru komnir tveir dansarar
frá Joffrey-ballettnum í New York og
á síðustu stundu kom jafnframt inn
dansari frá Austin-balletmum í Tex-
as: Gina Patterson. Gina fyllir í
skarðið sem Sigrún Guðmundsdótt-
ir skildi eftir sig er hún slasaðist
skömmu fyrir frumsýningu. Sýning-
unni hefur verið vel tekið af áhorf-
endum. Hér er um fjögur verk að
ræða, þannig að allir ættu að fá eitt-
hvað við sitt hæfi. Þarsem ný verk-
efni eru nú í sjónmáli hjá íslenska
dansflokknum verður að láta staðar
numið eftir sýninguna í kvöld og
skulu dansunnendur því ekki bíða
boðanna heldur skella sér f Þjóðleik-
húsið í kvöld.