Alþýðublaðið - 16.06.1995, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 16.06.1995, Blaðsíða 2
2 ALÞÝÐUBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ1995 s k o ð a n MMDIBIIDII 20935. tölublað Hverfisgötu 8 -10 Reykjavík Sími 562 5566 Útgefandi Alprent Ritstjórar Hrafn Jökulsson Siguröur Tómas Björgvinsson Fréttastjóri Stefán Hrafn Hagalín Auglýsingastjóri Ámundi Ámundason Umbrot Gagarín hf. Prentun ísafoldarprentsmiðjan hf. Ritstjórn, auglýsingar og dreifing Sími 562 5566 Fax 562 9244 Áskriftarverð kr. 1.550 m/vsk á mánuði. Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk Dapurlegir hveitibrauðsdagar Þegar Alþingi var kallað saman, 17. maí síðastliðinn, tilkynntu oddvitar ríkisstjómarinnar að þinghald stæði í tvær vikur í mesta lagi. Þingið átti að afgreiða af einurð og festu vandlega unnin grundvallarmál á sviði sjávarútvegs og GATT. Reynslan af vor- þinginu gefur því miður ekki góð fyrirheit um stöif ríkisstjómar- innar: þinghald stóð í heilan mánuð og boðuð stjómarfrumvörp komu fram seint og um síðir. Það em þó ekki hin álappalegu vinnubrögð sem mesta athygli vekja, heldur málatilbúnaður og stefna ríkisstjómarinnar einsog hún birtist í mikilvægustu frumvörpunum sem afgreidd vom. Út- færslan á GATT er með þeim hætti, að trúlega er ísland eina landið í heiminum sem notar samning um aukið frelsi í milliríkja- viðskiptum til að hækka tollamúra og torvelda innflutning. Hlutskipti sjálfstæðismanna í Reykjavík og á Reykjanesi er ekki öfundsvert: þeir vom leiddir áfram í tjóðurbandi Egils á Seljavöllum, sem í landbúnaðarmálum er nú óumdeildur hug- myndafræðingur þess flokks sem kennir sig við frelsi og einstakl- ingsframtak. Útfærsla ríkisstjómarinnar á GATT vakti hvergi fögnuð, nema hjá harðsvíruðustu varðgæslumönnum hins úrelta landbúnaðarkerfís: eftir sitja neytendur og launþegar með sárt enni. Eftir að ljóst varð að Þorsteinn Pálsson sæti áfram sem sjávar- útvegsráðherra, og það í ríkisstjóm með Halldóri Ásgrímssyni, fylltust víst fáir ofurbjartsýni á að löngu tímabær uppstokkun færi fram í sjávarútvegsmálum. Andóf og mótmæli vestfirskra sjálf- stæðismanna og framsóknarmanna á Reykjanesi kveiktu hinsveg- ar veika von um að einhveijar úrbætur yrðu gerðar. Allar reynd- ust þær vonir mýrarljós þegar á reyndi: það var valtað yfir sjónar- mið sem vom öndverð hagsmunum sægreifanna í LÍÚ. Andófs- menn beggja stjómarflokkanna hafa staðið í ströngu síðustu vikur við að éta ofan í sig stóm orðin síðan fyrir kosningar. Um leið hafa þingmennimir rúið sig hverri tutlu pólitískrar æm og trú- verðugleika. Niðurstaðan í sjávarútvegsmálum er auðvitað stórsigur fyrir sægreifana. Þetta var sigur fyrir hina fáu og stóm á kostnað hinna mörgu og litlu, svo notuð séu orð Arthurs Bogasonar, formanns Landssambands smábátaeigenda. Á sama hátt ríkir nú fögnuður á höfuðbólum afturhaldsins í landbúnaðarmálum. Af hveitibrauðsdögum Davíðs Oddssonar og Halldórs Ás- grímssonar að dæma er morgunljóst að ríkisstjóm þeirra mun verða einhver hin afturhaldssamasta í lýðveldissögunni. Til höfuðs hérabeinsuppsuðu Davíðs og Halldórs Þegar Alþýðuflokkurinn fór úr ríkisstjóm, eftir að hafa setið við völd samfellt í átta ár, urðu margir til að spá því að flokkurinn yrði lengi að finna sig í stjómarandstöðu. En Alþýðuflokksmenn fóm hvorki í pólitískt orlof né tilvistarkreppu. Öðm nær: Frá fyrsta degi ríkisstjómar Davíðs og Halldórs hefur Alþýðuflokkur- inn verið í forystu stjómarandstöðunnar og haldið uppi mjög snarpri og málefnalegri gagnrýni. Á því þingi sem var að ljúka, kom glöggt í ljós að kröftugir talsmenn Alþýðuflokksins bjuggu að yfirburðaþekkingu í öllum málaflokkum sem tekist var á um. Málefnafátækt og stefnuleysi rfldsstjómarinnar var afhjúpað hvað eftir annað. í stjómarand- stöðu nýtist Alþýðuflokknum, rétt einsog í ríkisstjóm, að hafa skýra og mótaða stefnu. Og meðan núverandi stjórn situr að völdum verður áfram tekist á um stefnu Alþýðuflokksins og hérabeinsuppsuðu Davíðs og Halldórs. Ballið er rétt að byija. ■ Mávur í Feneyjum Að koma tU Ítalíu er að koma heim. Hér lyktar öðruvísi, af hita og raka. Móöurkviður, mömmuland! Fóstuijörð okkar sem erum vestræn. Feneyjar. Flugvélin lendir í kvöldverðarsól og 27 þægilegum gráðum og ítalir bregð- ast ekki við endumýjuð kynni. Samir við sig: Tvö hundruð létt pirraðir Frakkar og við íslensk feðgin stöndum saman á hafnarbakkanum við flugvöll- inn og bíðum báts að Markúsartorgi. Um síðir birtist h'tið kænukríli sem tek- ur 30 manns í sæti og farangri er staflað undir skipstjórastól. Það er líkt og hér séu Feneyingar að taka á móti ferða- mönnum í fyrsta sinn: Bátsferðin minn- ir um margt á ,jneð Baldri yfir Breiða- fjörð“ árið ’68; olíubræla, hávaði og þrengsli og heimsfrægt ftalskt kaos þennan klukkutíma sem hún tekur. Á leiðarstaumm og gondólapollum voma mávar... Mávur í Feneyjum. Er það ekki bókartitill? Hvað gerast marg- ar bækur í Feneyjum? 100 bóka borg. Kaupmaðurinn... Márinn... Dauð- inn... Comfort of strangers... Don’t lo- ók now... Casanova... Við stígum á land inn í undraveröld Vikupiltar | Hallgrímur Helgason skrifar Feneyja, tangóhljómsveit undir tyngld- um himni á opnu torgi þöktu dúfiim og setningum eins og .Actually I was bom in Canada...“: Túristar blettóttir af flugnabitum í bland við ódauðlega póst- kortasala og feneyskar fegurðardísir á flörtgöngu. (Með forendurreisnarhallir f baksýn öðlast þær beatrískan sjarma hver og ein, enda: Allar em þær undan Casanóva.) Og urnfiam allt þó: Listelíta heimsins er mætt á Armani-klæðum frá New York og Antwerpen með Nokia- símana fasta við eyrað; símalandi um borð og í landi eftir opnunum, kokteil- um, dinnemm og hótelum. Bíenallinn hefst á morgun. Stemmningin er ekki ósvipuð þeirri í „Pret-a-porter“ eftir Altman. Italir í hlutverki Frakka og Ameríkanar heims- ins að pirra sig á seinagangi og lókal- kækjum: Herbergjamgli og leigubílum með utanborðsmótor. Þegar ég hringi á hótelið í Bigga Andrésar fæ ég í staðinn samband við Barry Anderson: Kven- lega rödd listaheildsala ffá Minneapolis sem er þó kurteis í morgunsárið og næstum því kominn á frottesloppnum niður í lobbý tíl að reyna að redda þessu fyrir mig. „You parlere inglese... per favore...?“ Svo gengur maður fram á okkar mann við íslenska skálann á mótssvæð- inu: Biggi búinn að sitja þar á bekk í fjóra daga og orðinn sólrauður í framan af því að svara spumingum frá öllum sjónvarpsstöðvum á Norðurlöndum nema þeirri íslensku. Norskur sjónvarpsmaður: „Is the ice- landic TV going to do something on you?“ Biggi: ,No, they are only interested inpoets..." Okkar maður alltaf góður. Og stend- ur fyrir síhu. Sýningin kemur vel út og lenska skálann: Biggi búinn ad sitja þar á bekk í fjóra daga og orðinn sólrauður í framan af því að svara spurningum frá öllum sjónvarpsstöðv- um á Norðurlöndum nema þeirri íslensku. betur en flestir aðrir, tíl dæmis Skand- inavamir sem sitja á bamum og beija höfði við bjórglös á bömmer yfír slöku ffamlagi síns fólks. Og í heildina er Bí- enallinn (að venju) ein stór vonbrigði þar sem Bandaríkjamenn (með vídeó- listamanninn Bill Viola) gnæfa uppúr eins og ávallt, en nú ásamt svisslend- ingum: ,jslandsvinunum“ David Weiss og Peter Fischli sem í anddyri skálans ítreka áform sín um að sækja landið enn og aftur heim. Fast á hæla þessara fylgja síðan Lúxemborg (!) og ísland: Biggi sýnir, ásamt öðm, íslenska fána í sauðalitunum, handpijónaða og lopa- lega; þeir eru lúmsk snilld og vekja verðskuldaða athygli: Em eitthvað svo hárréttír (og minna á lummó landkynn- ingu) á þessari heimssýningu sem á köflum er hreinræktað Disney-land þar sem hver þjóð reynir sem best að „útf- ríka“ hinar með rafknúnum installasjón- um og undraveröldum, user-friendly verkum sem virka best á bömin. í heimspressunni eru vonbrigðin bergmáluð. Andleysi og úrræðaleysi nútíma myndlistar opinberast hér. ítölsku blöðin velta því fyrir sér hvort vídeó-mynd af berum manni í sturtu sé list. Sjálfír sýna ítalir einungis , jeal art“ eins og þreytt þýsk áhugahjón orðuðu það við mig á bekk undir sípmsviðartré, það er að segja málverk og skúlptúra, sem öll em byggð á hinni gömlu góðu hefðbundnu hugmynd um list, sem enn virðist assúrmm einum hugleikin. En hveijum þykir sinn fugl fagur (eins og mér kannski líka): Frönsku blöðin hala eigið ffamlag upp að hlið þeirra stóm: Svisslendinga og Bandaríkjamanna, og segja sig ásamt þeim standa upp úr lág- kúmnni: Týpisk ffönsk sjálfsblekking, þar sem samanþjappaðir bílar Césars em örugglega úldnasta hugmynd sýn- ingarinnar. Bresku blöðin hinsvegar, hampa sínum manni og segja hann ásamt Bandaríkjamönnum (gat nú ver- ið) rísa upp úr lágkúrunni og vorkenna Díönu prinsessu (sem var plötuð til að opna gillið og tókst einnig að stífla nokkur síki þessa daga með öllum sín- um lífvarðabátum) að þurfa að háhæla sig yfir þetta listræna drasl sem þama var á boðstólum. Eftir matinn er upplagt að fara að dæmi Goethes og ganga kortlaus og af augum útí síkisskorin völundarhverfm: Sýning sem alltaf er og verður betri en hver Bíenall. Reyna að rata eftir innri kompás og slá þarmeð skáldið gamla út (hann var með áttavita) í heilan hálf- tíma, þartil gondólastjóramir hafa sung- ið mann útí hom með bátsfermi af hol- lendingum á báðar hendur. Þá er ekki annað að gera en að kalla á mávinn. ■ Parfs 15. júni 1995. Atburðir dagsins 1815 Her Napóleons sigrar Prússa við Ligny. Prússar misstu 12 þúsund menn, Frakk- ar 8500. 1958 Imre Nagy, fyrr- um forsætisráðherra Ungveija- lands, hengdur. 1961 Rúss- neski ballett-dansarinn Rudolf Nureyev biður um pólitískt hæli í Frakklandi. 1963 Valent- ina Tereshkova verður fyrst kvenna til að fara út í geiminn. 1972 Þýska lögreglan hand- samar Ulrike Meinhof, forsp- rakka Baader-Meinhof hryðju- verkasamtakanna. Afmælisbörn dagsins Gustav V Svíakóngur, drottn- aði í 43 ár, 1858. Stan Laurel kvikmyndaleikari, annar hluti tvíeykisins Steini og Olli, 1890. Annáisbrot dagsins Komu ránsvíkingar með her- skip á Vestfjörðu, og gerðu stóran skaða. Þeir tóku Eggert Hannesson fanginn, og varð hann að leysast með miklu gjaldi og góðu silfri. Vatnsfjaröarannáll elzti, 1578. Gæska dagsins Ég held, að mér sé óhætt að fullyrða, að hann hafi verið óeigingjamasti maður, sem ég hef þekkt. Ég varð þess aldrei var, að hann óskaði neinna ver- aldargæða handa sjálfum sér. Höfðingsskap hans þekkja allir, sem kynntust honum eitthvað. Það, sem hann hafði handa millum, var hverjum heimilt, sem á því þurfti að halda. Hann elskaði sjálfan sig svo lítið. Þórbergur Þóröarson um Jón Thoroddsen skáld, sem lóst 1924, aöeins 26 ára aö aldri. Málsháttur dagsins Er illt ódreng að elska. Orð dagsins Hnigna tekr lieims magn. Hvarfinnur vin sinn? Fær margur falsbjörg, forsómar manndóm. Tryggðin er trylld sögð. Trúin gerist veik nú. Drepinn lield eg drengskap. Dygð er rekin í óbyggð. Jón Arason (1484-1550) biskup. Skák dagsins Cebalo er þéttingsgóður stór- meistari, enda sallafínn í reikn- ingi einsog Hulak fær nú að reyna. Cebalo hefur hvítt, drottningin er í uppnámi en hann sinnir því lítt. Hvað gerir hvítur? 1. Rxe5I! Hulak gafst strax upp enda ágætur í reikningi einsog Cebalo. Framhaldið hefði getað orðið: I. ... Hxd7 2. Rxd7 Dd8 3. Rf6+ Kf8 4. Rxh7+ Kg8 5. He8+! Dxe8 6. Rf6+ Kf8 7. Rxe8 Kxe8 8. h7 og hvímr vek- ur upp drottningu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.