Alþýðublaðið - 16.06.1995, Page 8

Alþýðublaðið - 16.06.1995, Page 8
MÐUBLÍBH Föstudagur 16. júní 1995 89. tölublað - 76. árgangur Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk ■ Breytt kvótafrumvarp er orðið að lögum. Sæmundur Guðvinsson kannaði viðbrögð við lagasetningunni Smábátamenn súrir en LÍÚ fagnar Stjórnarfrumvarpið um stjórn fiskveiða var samþykkt á Aiþingi í fyrrinótt með 33 atkvæðum, en 20 þingmenn greiddu ekki atkvæði. I þeirra hópi var einn stjórnarþing- maður, Guðjón Guðmundsson. Stjórnarflokkarnir féllu frá bann- dagaákvæðinu og iögin gera því ráð fyrir róðrardagakerfi með 86 sókn- ardögum sem skiptast í fjögur tíma- bil. Heildaraflinn verður 21.500 tonn. Sighvatur Björgvinsson lagði fram breytingartiliögu með Össuri Skarphéðinssyni og Guðnýju Guð- bjömsdóttur um að róðrardagakerf- ið yrði frjálst og sóknardagar 96 á næsta fiskveiðiári. Ennfremur að hámarksafli krókabáta verði auk- inn upp um tíu þúsund tonn eða upp í 31.500 tonn. Stjórnarliðar felldu tillöguna. Alþýðublaðið kann- aði undirtektir við hin nýju lög. Vinnufriður um stundarsakir - segir Arthur Bogason formaður Landssambands smábátaeigenda. „Það eru ákveðnir þættir sem ber að fagna að fóm inn í lögin en annað er miður og mjög miður. Það er mjög slæmt að tímabilaskiptingin skuli vera inni í frumvarpinu því hún stór- skemmir þessa hugmynd sem er að baki róðrardagakerfi," sagði Arthur Bogason formaður Landssambands smábátaeigenda. „Það á ekki að þvinga menn til sjó- sóknar á ákveðnum tímabilum eða dögum heldur eiga menn að ráða því sjálfir hvaða róðrardaga þeir velja inn- an ársins af þeim dögum sem þeir fá úthlutað. Að vísu kom inn á síðustu stundu að menn geta flutt sóknardaga milli tímabila. Arinu er skipt upp í fjögur tímabil að það er heimilt að Arthur Bogason: Það eru ákveðnir þættir sem ber að fagna að fóru inn í lögin en annað er miður og mjög miður. Kristján Ragnarsson: Það sem skiptir meginmáli fyrir okkur er að aflaheimildir smábátanna voru ekki aukn- ar og við fögnum því. Arnar Sigurmundsson: Við vorum meðmæltir því að festa róðrardagana. Steingrímur J. Sigfússon: Málið skánaði í meðförum þingsins en því miður er þetta róðrardagakerfi sem á að taka upp mjög í skötulíki. flytja alla sóknardaga af fyrsta og öðru tímabili yfir á þriðja og fjórða. En við það fækkar sóknardögunum mjög eða sendcir hafa nýlega verið settir upp á eftir- töldum stöðum: v";; Egilsstöðum Seyðisf irði Langholti í Hrunamannahreppi Hellu Hvolsvelli Selfossi Akranesi Borgarnesi Skálafelli Sandgerði PÓSTUR OG SÍMI niður í 60 daga á ári. Eins og Sighvat- ur Björgvinsson benti á í umræðun- um þá má vera góð fiskigengd til þess að menn hafi það af yfir árið. En það kom einnig inn á síðustu stundu að ráðherra getur með reglugerð leyft annars konar tiiflutning milli tímabila og það er lífsnauðsynlegt að hafa slíka heimild," sagði Arthur. Hann sagði jákvætt að búið væri að lögfesta daginn sem róðrardagakerfið tæki gildi, en það er 1. febrúar 1996. Hins vegar væri það mjög miður að þakinu á aflamarkinu var ekki lyft. Þessir bátar þyrftu meiri aflaheimildir vegna báta sem alltaf væri verið að hleypa inn í kerfið. „Það verður vinnufiiður um stund- arsakir með þessum lögum. Ráðherra hefur boðað nána samvinnu við okkur um nánari útfærslu á róðrardagakerf- inu og ég geri mér vonir um að ráð- herra útfæri þetta kerfi í samvinnu við okkur með þeim hætti að við verðum sáttir," sagði Arthur Bogason. Fögnum aflamarkinu - segir Kristján Ragnarsson formaður LÍÚ. „Það sem skiptir meginmáli fyrir okkur er að aflaheimildir smábátanna voru ekki auknar og við fögnum því. Mér finnst þessi umræða um að menn missi vinnuna heldur brosleg með hliðsjón af því hve margir sjómenn á okkar bátum hafa misst vinnuna vegna aflaskerðinga," sagði Kristján Ragnarsson formaður LIU. Hann sagði að ekki hefði verið hægt að una því ef smábátasjómenn hefðu fengið meiri aflaheimildir á sama tíma og aðrir væru að skera nið- ur. Það hefði verið með ólíkindum að fylgjast með mönnum standa fyrir framan Alþingishúsið og segja að ef lög yrðu sett myndu þeir hafa þau að engu. „Menn verða að aðlaga sig að því að ekki er lengur hægt að fjölga þess- um bátum. Það er broslegt þegar Art- hur Bogason er að tala um að þeir hafi verið á móti fjölgun smábáta. Þeir hafa beinlínis staðið fyrir fjölgun og alltaf ætlað sér að keyra yfir þetta kerfi. Það sem skilur á milli okkar og þeirra er að við viljum fara að ráðum fiskifræðinga en þeir segja bara að fiskifræðingar viti ekki neitt og það sé nógur fiskur í sjónum. Smábátamenn verða að fylgja settum markmiðum og það er ljóst að einhveijir bátar hverfa úr þessu og taka sér aflahámark. Hins vegar er miður að ekki var tekið á tvö- földun á línunni sem er mjög sóknar- og eyðsluhvetjandi kerfi. Það hefði verið betur ef kvótamir hefðu verið látnir í hendur þeim sem geta nýtt sér þessar heimildir," sagði Kristján Ragnarsson. Meðmæltir róðrardögum - segir Amar Sigurmundsson for- maður Samtaka fiskvinnslustöðva. „Við vorum meðmæltir því að festa róðrardagana og mátum þetta líka sem vinnslumenn þannig að með því færð- ist veiði smábátanna meira yfir á sum- artímann. Það er sá tími sem mest er farið að ganga á kvótana í vinnsluhús- unum,“ sagði Arnar Sigurmundsson formaður Samtaka fiskvinnslustöðva. Hann sagði að í heild ætti þessi breyting á lögum um stjóm fiskveiða mikinn rétt á sér. Með því að festa róðrardagana niður muni aðstreymi hráefnis til fiskvinnslunnar færast yfir á sumartímann sem væri af hinu góða. Kostir róðrardaga eyðilagðir - segir Steingrímur J. Sigfússon formaður sjávarútvegsnefndar. „Málið skánaði í meðfömm þings- ins en því miður er þetta róðrardaga- kerfi sem á að taka upp mjög í skötu- líki. Þeir meginkostir þessa kerfis að það gefi mönnum fijálst val til að ráða sókninni innan ársins em eyðilagðir með þessum tímabilum og gjaldfell- ingu á dögum sem fluttir eru milli túnabila," sagði Steingrímur J. Sig- fússon alþingismaður og formaður sjávarútvegsnefndar. „Ég er mjög ósáttur við að menn skyldu ekki manna sig upp í að taka skrefið til fulls og lögfesta almenni- legt róðrardagakerfi með 90 til 100 daga sem lágmark. Ég er þeirrar skoð- unar að breytingartillaga okkar minni- hlutamanna við aðra umræðu hafi ver- ið sú útfærsla sem allir hefðu getað sæst á,“ sagði Steingrímur. V I K I N <; A Vinn ngstölur 14. júní 1995 VINNiNGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING n6afe 3 15.757.000 5 af 6 LS+bónus 0 333.750 5a(6 0 43.700 H 4af6 202 2.060 n 3 af 6 Cfl+bónus 732 240 Aðaltölur: 22) (35) (41 BÓNUSTÖLUR Heildarupphæó þessa viku: 48.458.750 íísi, 1.187.750 UPPLYSINGAR, SÍMSVARI 91- 60 15 11 LUKKULlNA M 10 00 - TEXTAVARP 451 BIRT MEO FYRIRVARA UM ÞRENTVU.LUR r til Danmerkur (1) og Noregs (2)

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.