Alþýðublaðið - 21.06.1995, Side 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ1995
s k o d a n
MfflUBUDIB
20937. tölublað
Hverfisgötu 8 -10 Reykjavik Sími 562 5566
Útgefandi Alprent
Ritstjórar Hrafn Jökulsson
Sigurður Tómas Björgvinsson
Fréttastjóri Stefán Hrafn Hagalín
Auglýsingastjóri Ámundi Ámundason
Umbrot Gagarín hf.
Prentun ísafoldarprentsmiðjan hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 562 5566
Fax 562 9244
Áskriftarverð kr. 1.550 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Síldarhagsmunir
Ein jákvæðustu tíðindi úr sjávarútvegi íslendinga um langt
skeið er vaxandi styrkur norsk-íslenska síldarstofnsins. Stofninn
hefur nú tekið upp fyrra göngumynstur, og er farinn að leggja
leið sína á fomar slóðir innan núverandi efnahagslögsögu íslands.
Það styrkir óhjákvæmilega stöðu Islendinga í samningum um
framtíðarveiðar úr stofjúnum. Hitt verður að segjast, að íslenskir
ráðamenn hafa haldið illa á hagsmunum landsins í þeim samn-
ingum, sem þegar hafa átt sér stað.
Fjölmiðlar greindu frá því, að íslendingar hefðu í upphafi
samninganna við Norðmenn síðastliðið vor gert kröfu til að veiða
um 100 þúsund tonn, og síðan hækkað sig upp í 140 til 170 þús-
und tonn, eftir að íslenskir útgerðarmenn brugðust ókvæða við
þeim fregnum. Slík kröfugerð er vitaskuld í engu samræmi við
hagsmuni Islendinga, og þann rétt, sem við óhjákvæmilega eig-
um til veiða úr stofninum. Halldóri Ásgrímssyni utanríkisráð-
herra mistókst sem betur fer að ná samningum á þessum grund-
velli, enda hefði það stórskaðað hagsmuni landsins til frambúðar.
Hins vegar verður að vara sterklega við því þegjandi samkomu-
lagi sem utanríkisráðherra virðist hafa gert við Norðmenn um
veiðar úr síldarstofninum. Það liggur fyrir, að Alþjóða hafrann-
sóknaráðið hefur lagt blessun sína yfir að rösklega 900 þúsund
tonn séu veidd úr stofninum. Af því tóku Norðmenn sér einhliða
650 þúsund tonna kvóta. Með því voru þeir auðvitað að gefa til
kynna, að þeir gætu sætt sig við að íslendingar og Færeyingar
veiddu 250 þúsund tonn. En tvíhliða síldarsamningurinn milli ís-
lands og Færeyja, sem utanríkisráðherra átti lfumkvæði að, hljóð-
ar einmitt upp á 250 þúsund tonn. Þannig hefur hann í raun fallist
á kröfur Norðmanna. Þessi niðurstaða er hins vegar í engu sam-
ræmi við hagsmuni og sögulegan rétt íslands.
í umræðum á Alþingi kom berlega í ljós að utanríkisráðherra
og sjávarútvegsráðherra höfðu hvorki þekkingu á sögu né fiski-
fræði stofnsins. Eftirfarandi staðreyndir verða menn að þekkja:
• Stofninn tekur upp ætisgöngur á slóðina norðan og austan ís-
lands af þeirri ástæðu einni, að hann hefur ekki nóg æti á upp-
vaxtar- og hrygningarstöðvunum við Noreg. Dvölin við ísland er
því forsenda þess, að hann vaxi í íyrri stærð.
• Sumargönguna á ætisslóðina við ísland notar síldin til að safna
orku, það er að segja fita sig, áður en hún heldur aítur til hrygn-
ingar við Noreg. Á örskömmum tíma bætir hún miklu fitumagni
við sig, og það er hin aukna fita af íslandsmiðunum sem eykur
stórlega verðmæti hennar.
• Það voru Norðmenn, sem drápu stofninn niður síðla sjöunda
áratugarins með stórfelldri rányrkju á ungsfld. Sum árin var rán-
yrkjan svo gríðarleg, að aðeins örfá prómill seiðanna náðu full-
orðinsaldri. íslendingar bera enga ábyrgð á hruni stofnsins á sín-
um tíma.
• Þegar stofninn er í eðlilegri stærð dvelur fullorðna stórsfldin
aðeins 2 mánuði á ári hveiju í lögsögu Noregs. Hún er hins vegar
7 til 8 mánuði á miðum við ísland, og hefur þar vetursetu.
• Við vissar aðstæður getur norsk-íslenska sfldin haft mjög nei-
kvæð áhrif á viðgang loðnustofnsins, sem nú er orðinn afar mikil-
vægur í efnahagslífi íslendinga. Þetta ber einnig að meta okkur í
vil, þegar samið er um kvóta.
Þessar staðreyndir, ásamt sögulegri veiðireynslu á stórsfld eftir
að veiðamar höfðu náð hámarki, ber að nota sem grundvöll að
samningum við Norðmenn. Það hafa íslenskir ráðherrar því mið-
ur ekki gert. Sú tala, sem samið var um í tvíhliða samningnum
við Færeyjar, getur ekki annað en skaðað stöðu íslands til fram-
tíðar. Sömu mistök má ekki gera að ári. ■
Davíð á sauöskinnsskónum
„Jónas kunni ísland að meta, segir Davíð
[Oddsson] og við skulum kunna það einnig.
Hann gleymir því óvart að fáir voru jafn gagn-
rýnir á þjóð sína og Fjölnismenn ... Fyrr og
síðar hefur þjóðernishyggja verið notuð til að
kveða niður gagnrýni og efasemdarmenn litnir
hornauga sem óþjóðlegir. Þessi hefð er nú
notuð með góðum árangri á þá sem vilja aðild
landsins að Evrópusambandinu. í raun hafa
fáir jafn mikla trú á möguleikum þjóðarinnar
og fylgismenn aðildar."
Hinn 17. júní tók Davíð Oddsson,
formaður hins frjálslynda flokks allra
landsmanna, óumdeilda forystu í
flokki þjóðlegra íhaldsmanna - hvar í
flokki sem þeir annars skipa sér að
öðru leyti. Enginn vafi leikur á að
ræða hans á Austurvelli féll í góðan
jarðveg meðal stórs hluta þjóðarinnar,
enda afbragðsgott dæmi um orðræðu-
hefð sem á sér djúpar rætur meðal
þjóðarinnar. Þjóðernishyggja er og
hefur verið ráðandi hugmyndafræði
hér á landi - og í raun sett annarri orð-
ræðu miklar skorður. Þetta skilur Dav-
íð og kann að notfæra sér, enda næm-
ur á skáldskap, sem ávallt hefur verið
stór hluti af retorik þjóðernishyggj-
unnar.
Ekki er ólíklegt að forsætisráðherra
ætli sér að veita ríkisstjórn forystu
^^orðið |
lengur en aðrir á lýðveldistímanum í
krafti hinnar þjóðlegu íhaldssemi.
Forysta hans við afgreiðslu GATT-
málsins bendir sannarlega til þess,
enda bú landstólpi, eins og Davíð
vitnaði til með velþóknun í ræðu
sinni.
I ræðu sinni útilokar Davíð f raun
aðild íslands að Evrópusambandinu.
Hann gerir það ekki á forsendum sjáv-
arútvegsstefnu ESB,sem er tæknilegt
úrlausnarefni, heldur á hefðbundnum
forsendum íslenskrar þjóðemishyggju.
Málið snýst í hans huga um sjálfstæði
þjóðarinnar og fullveldi ríkisins.
Andstaðan við Evrópusambandið er
því tengd hinni dýrlegu sjálfstæðisbar-
áttu þjóðarinnar og víglínurnar þar
með dregnar á milli þeirra sem vilia
vemda sjálfstæðið og hinna sem vifja
skerða það.
Davíð leggur þannig málið upp á
furðu líkan hátt og Svavar Gestsson
gerir í nýrri bók sinni, en samkvæmt
hans framtíðarsýn mun sjálfstæðisbar-
áttan vera afar mikilvæg í framtíðinni.
Evrópusinnar hafna þessum for-
sendum að sjálfsögðu: sjálfstæðisbar-
áttunni lauk í raun 1918 og endanlega
1944. Spumingin um aðild íslands að
Evrópusambandinu er spurning um
viðbrögð þjóðar við nýjum aðstæðum;
hvernig hagsmunir okkar eru best
tryggðir til lengdar. Sjálfstæðisbarátt-
an eða utanríkisstefna Fjölnismanna
kemur Evrópusambandinu ekkert við:
hún var viðbrögð við öðmm aðstæð-
um en ríkja í dag.
Eitt af mælskubrögðum andstæð-
inga Evrópusambandsins er að gefa í
skyn að fylgismenn aðildar séu haldn-
ir vanmetakennd fyrir hönd þjóðar
sinnar. Jónas kunni Island að meta,
segir Davíð og við skulum kunna það
einnig. Hann gleymir því óvart að fáir
voru jafn gagnrýnir á þjóð sína og
Fjölnismenn og átrúnaðargoð þeirra
Eggert Ólafsson (sem var ekki einu
sinni þjóðemissinni).
Fyrr og síðar heíúr þjóðemishyggja
verið notuð til að kveða niður gagn-
rýni og efasemdarmenn litnir horn-
auga sem óþjóðlegir. Þessi hefð er nú
notuð með góðum árangri á þá sem
vilja aðild landsins að Evrópusam-
bandinu. í raun hafa fáir jafn rnikla trú
á möguleikum þjóðarinnar og fylgis-
menn aðildar.
I okkar huga er full aðild í raun for-
senda þess að möguleikar framtíðar-
innar séu nýttir. Til lengdar er einung-
is full aðild sæmandi sjálfstæðri þjóð,
en ekki sú áhrifalausa aukaaðild sem
felst í Evrópska efnahagssvæðinu.
Davíð fagnaði því sérstaklega að
litlar deilur stæðu um Evrópusam-
bandið hér á landi. Þetta kann að vera
óskhyggja hjá honum, enda skorturinn
á umræðu meðal annars afleiðing af
skoðanakúgun innan Sjálfstæðis-
flokksins. Fyrir kosningar var á víxl
höfðað til flokkshollustu og beitt hót-
unum til að menn héldu sig á mott-
unni. Ekki hafa bolabrögðin neitt
minnkað eftir kosningar. Ládeyðan
þessa dagana er væntanlega lognið á
undan storminum, enda vandséð að
menn láti kúga sig til lengdar.
Höfundur er stjórnmálafræðingur.
Atburðir dagsins
1527 Italski rithöfundurinn
Niccolo Machiavelli, höfundur
Furstans, deyr. 1788 Stjómar-
skrá Bandaríkjanna gengur í
gildi. 1791 Lúð-
vík XVI Frakka-
kóngur gerir mis-
heppnaða tilraun
til að flýja en er
færður fanginn
aftur til Parísar. 1959 Sigur-
bjöm Einarsson verður biskup
íslands. Embættinu gegndi
hann í 22 ár. 1982 Díana prins-
essa elur son, sem gengur næst-
ur Karli prins að ríkiserfðum.
Afmælisbörn dagsins
Jón Helgason biskup, 1866.
Jean-Paul Sartrc franskur rit-
höfundur og heimspekingur,
kunnastur fyrir kenningar sínar
um existentialisma, 1905.
Mary McCarthy bandarískur
rithöfundur, 1912.
Annáisbrot dagsins
Maður týndi sér í Hraunhrepp,
hét Þorsteinn; fannst dauður í
læk nokkrum, setti fyrir sig
efnaskort og bágindi sín.
Grímsstaöaannáll, 1702.
Galdur dagsins
I einn tíma, höfðu þessi verk,
sem eingin verk voru, meiri
áhrif á okkur nánustu vini hans
en nokkrar bókmentir. Og
maðurinn Jóhann Jónsson var í
augum okkar sjálfur skáldskap-
urinn holdi klæddur.
Halldór Kiljan Laxness um Jóhann
skáld Jónsson, höfund Saknaðar.
Vilji dagsins
Við verðum að trúa á frjálsan
vilja. Við höfum ekkert val.
Isaac Bashevis Singer,
rithöfundur.
Máisháttur dagsins
Eitt sverð dregur annað úr
skeiðum.
Orð dagsins
Stuttir eru morgnar
íMöðrudal.
Þar eru dagmól, þd dagar.
Þjóðkvæöi.
Skák dagsins
Hollendingurinn van dcr Wicl
er skemmtilegur skákmaður
þegar sá gállinn er á honum,
einsog skák dagsins er til vitnis
um. van der Wiel hefur hvítt og
á leik gegn Þjóðverjanum
Bischoff. Svartur var að enda
við að leika Ke5, og ekki verð-
ur annað séð en hvíta hróksins
bíði grimm örlög þarsem hann
er innilokaður á d6. En
Hollendingurinn bregst við af
hörku og knýr Bischoff til upp-
gjafar í næsta leik. Hvað gerir
hvítur?
1. Hxd7!! Bischoff gafst upp
enda mát óumflýjanlegt: I. ...
Hxd7 2. f4+ Kd6 3. e5 mát.