Alþýðublaðið - 21.06.1995, Side 6

Alþýðublaðið - 21.06.1995, Side 6
6 ALÞÝÐUBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ1995 ■ Hinir gröfnu fjársjóðir Afríku Dreymir þig um jarðsetningu í fíls- eða y fiðrildislikkistu? - Ef svo er þá er Ga-ættbálkurinn í Ghana rétta fólkið til að ræða við. Fyrir rúmlega hálfa milljón króna geturðu keypt af þeim lista- vel handsmíðaða líkkistu í líki þess hlutar sem helst tákngerir drauma þína. Allt hófst þetta árið 1947 þegar öfundsjúkur höfð- ingi lét smíða fyrir sig yfirbyggðan burðarstól í líki kakó-fræbelgs til að slá við kollega sínum í næsta þorpi, en sá átti burðarstól í arnarlíki. Hinsvegar dó öfundsjúki höfðinginn og var jarðsettur af hagsýnum ættingjunum í smíðisgripnum. Þarmeð var hafið æði sem enn ekki sést fyrir endann á og hefur teygt arma sína inná mörg helstu söfn veraldar. Hér á eftir verður saga þessa stór- furðulega fyrirbæris sögð. Það eru ekki allir diplómatar sem hafa tæplega tveggja metra langa lík- kistu í borðstofu sinni. Kenneth Brown, bandaríski sendiherrann í Ghana, er þó einn af þeim. Og ekki lét hann þarvið sitja því útá veröndinni við húsið gefur á að líta aðra slíka. Brown viðurkennir fúslega að ,,margt fólk er lítt hrifið af þessari hugmynd." Umrædd hugmynd felur í sér stórfeng- legar líkkistur sem smíðaðar eru af innfæddum meðlimum Ga-ættbálks- ins í sem hkastri mynd og við þekkj- um hversdagslega hluti og eru nú órjúfanlegur hluti þjóðlegrar listar í landinu; í reyndinni bæði skúlptúrar Viðskiptajöfrar eru gjarnan stór- tækir menn og þessum dugði ekk- ert minna en breiðþota (að því er sýnist frá hinu hollenska KLM) sem fararskjótur fyrir hinsta ferðalagið. og smíðisgripir ætlaðir til greftrunar. Líkkistumar í eigu Brown em skær- rauður chili-pipar og fíll. Smiðir Ga- ættbálksins smíða hinsvegar einnig líkkistur í birtingaimynd grænmetis, ávaxta, ama, fiðrilda, bifreiða, flug- véla - allt nema hefðbundnu femings- laga kistumar blíva hér um slóðir. Á undanfömum ámm hafa söfn víðsveg- ar um veröldina sýnt líkkisturnar á fjölmennum sýningum óg eftir því sem hróður þeirra eykst og berst víðar þeim mun álitlegri verða gripimir til útflutnings. Þannig fjárfesti Rosalynn Carter, eiginkona Bandaríkjaforsetans fyrr- verandi, í tveimur slíkum þegar hún var á ferðalagi um Ghana í marsmán- uði síðastliðnum. Frú Carter valdi sér pipar og öm; kistur sem munu vera einna vinsælastar um þessar mundir meðal höfðingja Ga-ættbálksins. Jólagjafalisti snobbverslunarinnar Neiman Marcus (er höfuðstöðvar hef- ur í New York) mun ennfremur hafa þijár líkkistur frá Ghana innanborðs í ár. Jólagjafalisti þessi er geftnn út ár- lega og talinn einn ömggasti markaðs- vísir bandarískrar ofurágimdar. Kar- en Gladding. markaðsfulltrúi fyrir- tækisins í Ghana lét hafa eftir sér af þessu tilefni: ,,Ef fólk getur komist yf- ir og jafnað sig á þeirri staðreynd að þetta em alvöru líkkistur, þá mun það komast að raun um að kistumar em virkilega líflegir og hressilegir gripir.“ Fólkið sem smíðar og notar þessar líkkistur komst í öllu falli yfir þessa staðreynd málsins fyrir allmörgum ár- um. Saga þessa undarlega fyrirbæris (eða réttara sagt: æðis sem nú gengur yfir hluta Afríku - og kannski um gjörvalla New York í kringum næst- komandi jól) er sögð í stórskemmti- legri nýrri 127 blaðsíðna bók, Haldið inní myrkríð: Ævintýralegar líkkistur frá Afríku, eftir franska ljósmyndarann og blaðamanninn Thierry Secretan sem hefur mestmegnis starfað í Ghana frá árinu 1979. Rætur þessarar stórfurðulegu al- þýðulistar sem leitt hefur til greftrana fólks í öllum sköpuðum hlutum (allt frá kjúklingum til utanborðsmótora) er - svo ótrúlegt sem það kann nú að virðast - ekki hægt að rekja lengra aft- ur en til miðbiks þessarar aldar, sam- kvæmt mjög sannfærandi rökum sem Secretan færir fyrir máli sínu í bók- inni. Að vísu voru framieiddar líkkist- ur í Zaíre í lagi hnífa og fuglsgogga í kringum aldamótin síðusíu, en þær munu víst engan þátt eiga í hinum hugmyndaríkum smíðisgripum Ga- ættbálksins. Allt hófst þetta árið 1947 við upp- haf góðæris í Ghana sem fylgdi eftir- stríðsárunum - þar einsog víðast hvar annarsstaðar. Vinkonumar öfundsýki og hugmyndaauðgi spila hér báðar lykilhlutverk. Málavextir voru sem- sagt þeir, að höfðinginn í þorpinu Tes- hi hóf að ferðast hvert sem hann fór í yfirbyggðum burðarstól sem smíðaður var í mynd arnarins Sakumo, aðal- guðs Ga-ættbálksins. Leiðtogi í nágrannaþorpi einu fyllt- ist vitaskuld afbrýðissemi og tók til sinna ráða: hann réði einfaldlegá besta smið þorpsins Teshi, mann að nafni Ata Owoo, til að srníða fyrir sig burð- arstól sem bera ætti af öðmm og vera í formi fræbelgs af kakó-tré. (Þess ber að geta að Ghana var á þessum tíma langstærsti kakóútflytjandi veraldar- innar.) Hinsvegar lést þessi ættflokkshöfð- ingi skömmu áður en burðarstóllinn fíni var tilbúinn til notkunar og í skyndilegu hagsýniskasti ákvað fjöl- skylda hans að grafa manninn bara í fræbelgsburðarstólnum sem hvort eð er svo mikið hafði verið lagt í. Innblásinn af þessari hugdettu hófst annar snilldarsmiður Teshi þorpsins, Kane nokkur Kwei, þegar í stað handa við að gera ömmu sinni greiða sem ná myndi útfyrir mörk lífs og dauða. Ga-fólkinu er ekki hlátur í hug þeg- ar meðlimir ættbálksins eru bornir til grafar í skrautlegum líkkistun- um, enda tákna þær hvorki meira né minna en æðstu drauma við- komandi. Sú gamla var nefnilega gjörsamlega heilluð af bandarísku flutningavélun- um í síðari heimsstyrjöldinni sem not- uðu Accra, höfuðborg Ghana, sem eldsneytisstöð á birgðaflugi sínu til Norður-Afríku. En amman dó Fiskimaður einn valdi sér hvílu í stíl Jónasar. Ekki amalegt fyrir sjó- sækna íslendinga að hverfa yfir á hin eilífu fiskimið með slíkan smíð- isgrip í fórum sínum. ALÞÝÐUFLOKKURINN - JAFNAÐARMANNAFLOKKUR ÍSLANDS Sumarferð 1995 Sumarferð Alþýðuflokksins - Jafnaðarmannaflokks íslands - verður farin laugardaginn 1. júlí. Að þessu sinni verður farið í Viðey og í sjóstangveiði um sundin blá. Dagskráin verður í stórum dráttum þessi: Klukkan 13:00 - Brottför frá Sundahöfn með Maríusúðinni til Viðeyjar. - Grillað á staðnum undir vökulum augum Jónasar Þórs kjötmeistara. - Gos og nammi handa börnunum. - Gönguferð um Viðey í fylgd leiðsögumanns. -Leikir, uppákomur og skemmtiatriði. - Þeir sem óska ekki eftir að taka þátt í sjóstangveiðinni geta sleppt henni og farið heim með Maríusúðinni þegar þeim hentar. Klukkan 19:00 - Vélbáturinn Andrea leggst að bryggju í Viðey og tekur þá sem vilja í sjóstangveiði. - Veiðin matreidd um borð eftir kúnstarinnar reglum og borðuð með bestu lyst. - Söngur og gleði meðan siglt er um sundin. - Verði verður haldið í lágmarki og má reikna með 1.000 krónum fyrir þá sem aðeins fara í Viðey, en 4.500 krónum fyrir þá sem fara að auki í sjóstangveiðina. Matur er innifalinn. Skráning og nánari upplýsingar eru í höndum Kolbrúnu Högnadóttur á skrifstofum Alþýðuflokksins í síma 552-9244. - Mikilvægt er að þeir sem ætla í sjóstangveiðina skrái sig sem fyrst. Látið ykkur ekki vanta! Sumarferðir Alþýðuflokksins eru rómaðar fyrir rífandi stemmningu, frábæra skemmtun og góðan félagsskap. Takið alla fjölskylduna með! Kýr eru með vinsælustu líkkistum Ga-ættbálksins. Þessi var smíðuð fyrir kjötheildsala sem kaus að yfir- gefa liðið með stíl. Sú jarðarför mun sjálfsagt seint gleymast. afturámóti áður en henni gafst tæki- færi til að setjast um borð í slíka ma- skínu og fljúga líktog fuglinn um loft- in blá. Þessvegna var Kwei staðráðinn í að smíða henni líkkistu með vængi - og^gerði það. I dag er líkkistusmíðin orðinn að blómlegum og listrænum heimilisiðn- aði sem Ga-ættbálkurinn er í dag þekktastur fyrir um allan heim. Auðugir og áhrifamiklir Ghana- menn fréttu fljótlega af fyrirbærinu og tóku að láta grafa sig í maísstönglum, fiskveiðibátum, ljónum, vorlaukum eða hverjum þeim hlut sem þeim fannst einna best endurspegla uppruna auðs síns og æðstu drauma. í dag eru sex vinnuflokkar smiða (sem öllum er stjómað af ættingjum eða fyrrverandi nemendum fyrmefnds Kwei) vinnandi hörðum höndum við að framleiða þær eitt hundrað líkkistur sem notaðar eru árlega í Ghana og einar þrjátíu til viðbótar sem seldar eru erlendum aðilum í Evrópu og Norður-Ameríku. Mercedes Benz-líkkistur em gríðar- lega vinsælar og biblíur em stöðugt að sækja í sig veðrið - sennilega til mik- ils hugarléttis fyrir þá kristnu presta sem þungbærar áhyggjur höfðu af því að smíðisgripimir væm famir einum of að þróast í áttina að skurðgoðadýrk- un fortíðarinnar. Borðstofulíkkista bandaríska sendi- herrans Kenneth Brown er komin í eigu hans þarsem prestur hafði neitað að jarðsetja sóknarbam sitt í chili-pip- ar og Brown segir umburðarlyndið af- ar breytilegt frá einni sókn til annarrar. Sífellt fleiri em þó tilbúnir til að sam- þykkja, „að þessir hlutir eiga rétt á sér sem hjartnæm og elskuleg hinsta kveðja til viðkomandi manneskju,“ segir hann. En stærsta hindrunin í veginum er alls ekki af guðfræðilegum toga held- ur fjárhagslegum. Jafnvel tiltölulega hefðbundnar og hógværar líkkistur úr mjúkum viði kosta 400 þúsund cedris - eða sem nemur tæplega 260 þúsund krónum. Verkamaður í einhverjum bæja eða borga Ghana þarf að strita í heilt ár til að fá slíkar fjárhæðir í launaumslagið. Mahóný-tegundirnar sent aðallega eru ætlaðar til útflutn- ings kosta síðan að minnsta kosti tvö- falda þá upphæð. Þrengingatímar snertu þó aldrei nokkum tímann líkkistuviðskipti Kane Kwei. Það er einsog hann var vanur að segja: „Líkkistan er eini hluturinn _sem dauður maður á.“ Þegar franski ljósmyndarinn - og nú rithöfúndurinn - Thierry Secretan spurði Kwei eitt sinn í hverju hann ætlaði að láta jarð- setja sig svaraði sá gamli: „Ég mun fara í hveiju því sem þeir láta mig í.“ Brautryðjandinn Kane Kwei lést ár- ið 1992 og frændi hans og uppáhalds- nemandi, Paa Joe, smíðaði fyrir meistara sinn líkkistu sem var svo íhaldssöm í sniðinu að hún hlaut að fá samþykki hins stranga meþódista- prests þorpsins. Þetta var hefðbundin og femingslaga kista með aðalverk- færi iðnar Kwei grafin á homin; ham- - ar, sög, meitil og rétthyming. Synir Kwei höfðu hinsvegar nýlok- ið við smíðar á nokkmm kistum sem ætlaðar voru bandarísku safni sem staðsett er í Kalifomíu. Og því þótti það mjög við hæfi, að frá kirkju til kirkjugarðs fylgdi sérkennileg fylking líkkistu Kwei; kú, krabbi, tígrisdýr, humar, fiskveiðibátur og Mercedes Benz með hlébarðaskinnsáklæði. ■ ■hh / Byggt á Newsweek

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.