Alþýðublaðið - 21.06.1995, Qupperneq 8
Miðvikudagur 21. júni 1995
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
mnwiimni
91. tölublað - 76. árgangur
■ Á næstunni heldur bandaríski söfnuðurinn Spirit Life Christian Center kristilegt unglingamót í Reykjavík. Ásgeir Páll Ágústsson,
24 ára meðlimur í Veginum, er einn af þeim sem sjá um skipulagninguna. Efasemdamaðurinn Stefán Hrafn Hagalín og hinn frelsaði
Ásgeir Páll tóku hraðfleygt spjall saman í gær um guð, Veginn, Perinchief, djöfulinn, Hinn, himnaríki, Jesú Krist, Ólympíuleika frels-
ingja og hvernig í ósköpunum maður fer að því að komast inní himnaríki! Athyglisvert er að á dagskrá kristilega mótsins er flutningur
villtrar og kröftugrar tónlistar. Hvað er eiginlega í gangi?
„Við ætlum að ná rokkinu
tilbaka frá Djöflinum'
- því það er jú Guð sem alla tónlist hefur skapað, segir hinn eldhressi Ásgeir Páll.
Asgeir Páll Ágústsson, 24 ára, frelsaður og himinlifandi með guð, Jesú
Krist, Richard Perinchief, rokkið - og vitaskuld Veginn. A-mynd: E.ÓI.
Dagana 23.-25. júní verður haldið
kristilegt unglingamót í Reykjavík.
Það er bandaríski söfnuðurinn Spirit
Life Christian Center sem stendur fyr-
ir mótinu og af því tilefni kemur til
landsins 20 manna hópur frá Flórída
undir forystu hirðis hans, Richard
Perinchief - lærisveins Benny Hinn.
Asgeir Páll Agústsson, 24 ára með-
limur í Veginum, er einn af þeim sem
séð hafa um skipulagningu mótsins og
í samtali sem Stefdn Hrafn Hagalín
átti við hann í gær ræddi Ásgeir Páll
um allt á milli himins og jarðar...
Segðu mér til að byrja með fró
þessu kristilega unglingamóti...
„Það er bandaríska kirkjan eða
söfnuðurinn Spirit Life Christian
Center í Flórída sem stendur fyrir því
og af þessu tilefni er 20 manna hópur
á leiðinni til landsins undir forstöðu
hirðis hans, Richard Perinchief. Þau
hafa sent hópa til íslands nokkrum
sinnum og ég held að þau séu núna að
koma í sjöunda skiptið."
Er Spirit Life Christian Center stórt
og mikið batteríþama úti?
„Já, töluvert myndi ég segja. For-
stöðumaðurinn, Richard Perinchief er
fyrrverandi samstarfsmaður Benny
Hinn. Perinchief byijaði sína þjónustu
hjá Hinn.“
Þessum sem var þama í Kaplakrik-
anum ífyrra?
,Já, akkúrat og Benny Hinn verður
einnig í Laugardalshöllinni í júlí með
samkomu. Spirit Life Christian Center
hefur það að meginmarkmiði að ná til
unga fólksins og hafa starfað við gríð-
arlega góðan árangur. Ég man til
dæmis eftir því að fyrir tveimur árum
voru þau fyrir fullu húsi í skóla einum
í Garðabæ með fyrirbænir og töluðu
við fólkið. Það hljóta að hafa verið í
kringum 250 manns sem þar mættu til
að hlýða á boðskapinn."
Bara venjulegir krakkar úr Garða-
bœnum?
, Já, já... Nemendur í þessu skóla.“
Og hvað œtlið þið að gera d þessu
kristilega móti?
„Það byggist þannig upp að kristnir
unglingar allsstaðar af landinu - úr
öllum kimum hins kristna heims, ef
þannig má taka til orða - koma sam-
an. Þama er til að mynda fólk úr Þjóð-
kirkjunni, Ungu fólk með hlutverk,
Fíladelfíu, Hjálpræðishernum, Orði
lífsins, Veginum, Krossinum og‘ svo
framvegis."
Þetta er þá ekki svona sértrúarsöfn-
uðamót?
„Nei, fólk kemur allsstaðar af eins-
og ég sagði áðan og það sýnir vel hví-
lík virðing er borin fyrir þessum
manni, Perinchief, og þeim hópi sem
honum fylgir til landsins. Mótið er í
rauninni fyrir alla þá sem telja sig
kristna. Samkomur verða haldnar fyrir
alla sem áhuga hafa og einnig stönd-
um við fýrir með bænaskóla. Á laug-
ardeginum verðum við síðan með
Ólmypíuleika frelsingja - íþróttamót á
léttu nótunum - og við ætlum að fara
niður í miðbæ Reykjavíkur að nætur-
lagi, hitta fólkið þar og vera með smá
show á Ingólfstorgi."
Hefur Richard Perinchief komið til
fslands áður?
,Já, Richard hefur komið nokkrum
sinnum áður til landsins í sömu er-
indagjörðum og heimsóknirnar hafa
skilað miklum árangri. Hann hefur í
hópnum sérþjálfað fólk sem ýmist
sýnir drama eða flytur villta og kröft-
uga tónlist, dansar predikar og svo
framvegis."
Mikiðfjör í gangi?
, Já, já. Föstudags- og laugardags-
kvöld verður hópurinn til dæmis með
leiksýningu, danssýningu og tónleika
sem hefjast í bæði skiptin klukkan
23:00. Sýningarnar eru sniðnar að
þörfum ungs fólks og við leggjum
mesta áherslu á að ná til unglinganna
með fagnaðarerindið á áhugaverðan
hátt; sýna þeim fram á að kristindóm-
urinn getur verið skemmtilegur. Þetta
verður þarafleiðandi alls ekki byggt
uppá einhvem eldgamlan kirkjulegan
hátt.“
Þið haldið ykkur semsagt ekki á
einhverju upphöfnu plani og talið ská-
hallt niður til fólks í umvöndunartóni?
„Nei, við erum einfaldlega einsog
unglingamir - bara venjulegt fólk og
nálgumst þá á þeirra forsendum."
Þessi „villta og kröftuga tónlist" er
það gamla góða rokk & rólið?
,Já.“
Eruð þið þá ekkert á þeirri línu að
rokk & ról sé tónlist djöfltlsins?
„AHs ekki. Guð skapar alla tónlist,
en Djöfullinn hefur bara misnotað
hana. Við ætlum að ná rokkinu tilbaka
frá Djöflinum."
Ég sé t' fréttatilkynningu frá ykkur
að hópurinn sé hingað kominn til að
létta neyð íslenskra unglinga. Er ein-
hver meiri neyð ríkjandi meðal þeirra
nú en endranœr?
„Já, neyðin er mikil og við sjáum
það einna best á því að sjálfsmorðs-
tíðni meðal ungs fólks hefur aldrei
verið hærri og áfengisvandamálið er
sömuleiðis að færast stöðugt neðar og
neðar í aldri. I dag em uppi stórfeng-
leg vandamál meðal mjög ungra
krakka; allt niður í tólf ára aldurinn.
Heimilislausum unglingum fer einnig
fjölgandi. Við sem erum í Veginum
höfum rekið starf í Loftsstofu - kaffi-
húsinu okkar í Veltusundi við Ingólfs-
torg - og höfum þar verið að gefa
fólki að borða sem fær ekki að borða
nema kannski einu sinni í viku; ungu
fólki. Kaffihúsið höfum við rekið um
nokkurt skeið og boðið þar uppá kakó
og svoleiðis - afgangsbakkelsi frá
bakaríinu - og nýtt síðan húsnæðið í
trúboð á laugardagskvöldum."
/ tilkynningunni segir ennfremur að
ungt fólk sé alltaf að leita að „ein-
hverri lífsfyllingu og leitin er mjög
víða orðin mjög örveentingarfull. “ Afl
hverju erþað?
„Astandið er að sjálfsögðu þannig
að fólk er alltaf að leita að andlegri
fyllingu og sú fylling - segjum við -
er Jesús Kristur. Hann er sá eini sem
getur gefið því varanlega lausn; lausn
sem unga fólkið finnur ekkert annars-
staðar. Varanlega lausn er þannig alls
ekki að fínna í áfenginu sem leiðir
einungis til eiturlyfja og sjálfsmorða
vegna þess að það finnur engan til-
gang með lífinu."
En það er nú varla algilt?
„Nei. Ég er alveg sammála þér í
því, en engu að síður er það algilt að
allir þurfa á Jesú Kristi að halda."
Er þessi neyð sem þið talið um ef til
vill komin til vegna einhverskonarfor-
eldravandamáls ?
„Jú, þeir hafa kannski ekki sinnt
sínu uppeldishlutverki sem skyldi
margir hverjir - þótt það sé heldur
ekki algilt. En þeir foreldrar
þekkja heldur ekki Jesú.“
En ef maður kemur frá hamingju-
sömu heimili þarsem allt er í góðu
standi - þarf þá einhvern Jesú Krist
innt'það dcemi?
, Já, ég vil meina það. Til hvers lifir
þú lífinu og hvað gerist síðan eftir
dauðann? - skilurðu? Jesús Kristur
sagði: Ég er vegurinn, sannleikurinn
og lífið. Enginn kemst til Föðursins
nema í gegnum mig. Hans boðskapur
byggist á því að ef þú vilt eignast eilíft
líf á himnum hjá Guði þá verðurðu að
taka á móti Jesú sem lifandi og per-
sónulegum frelsara. En við í Veginum
emm ekkert að byggja þetta upp sem
einhvem hræðsluboðskap - eða áróð-
ur - og segja við þig: Þú ferð til hel-
vítis ef þú ffelsast ekki. Miklu frekar
erum við að benda fólki á að Jesú
Kristur getur gefið þér lausnina í dag.“
Kemst maður þá ekki til himnaríkis
efmaður trúir ekki á Jesú Krist?
„Nei, nei. Og ég segi það við þig ef
þú spyrð þannig - en hinsvegar er það
ekki aðferðin sem ég nota til að ná til
fólksins."
Þið eruð þá ekkert að troða ykkar
boðskap uppá fólk?
„Nei, ekki þanniglagað. Guð gefur
öllum mönnum frjálst val og hann
þröngvar engu uppá fólk. Og við í
Veginum forum sömu leið.“
En afhverju kemst maður ekki til
himna ef maður er góður og gegn við
allt og alla en trúir samt ekki á þenn-
anJesú?
„Ég vildi svo sannarlega óska þess,
að allir kæmust til himna, en þetta er
nú einu sinni boðskapur Biblíunnar -
hreinn og klár.“
Ég hélt að allir menn vceru jafnir
frammi fyrir guði...
,Ja, það fá allir sama tækifærið til
að taka afstöðu með eða á móti.“
Og það er semsagt algjört skilyrði
að fara í gegnum Jesú Krist til að
komast þama upp, eða hvað?
„Allir menn hafa syndgað og laun
syndarinnar em dauði. Jesús Kristur er
milligöngumaður Guðs og manna;
það var Jesú sem dó fyrir syndir okk-
ar. Ef þú vilt ekki þurfa að taka út
þessa refsingu syndarinnar - sem er
dauði - þá verðurðu að taka á móti
Jesú Kristi og gera hann að lifandi
frelsara þínum. Það er auðvitað stór-
kostlegt."
Áfram með tilkynninguna ykkar. Ég
sé að Perinchief þessi var „kallaður
til þjónustu við Guð árið 1987“.
Hvemig gengur slíkt fyrir sig?
„Maðurinn er náttúrlega búinn að
vera trúaður og ffelsaður í lengri tíma
og svo upplifir hann einfaldlega að
Drottinn sé að kalla á hann til að gera
ákveðna hluti fyrir Guð. Hann hlýðir
því. Það er ekki það, að hann hafi
heyrt raustu Drottins segja: Þú átt að
gera þetta - eða eitthvað þannig."
Nú... Er það ekki svoleiðis sem
þetta gerist?
„Kannski í einhverjum örfáum til-
fellum - en yfirhöfuð ekki. Ég á alla-
vega óskaplega bágt með að sjá það
fyrir mér og hef ekki heyrt slfkt sjálf-
ur. En þetta hefur semsagt verið eitt-
hvað sem Richard upplifði; að Drott-
inn væri að leiða sig til vinnu í gegn-
um Benny Hinn. Á þennan hátt vinnur
Guð með menn á náttúrulegan hátt en
ekki alltaf með einhverju rosalegu
súperman-showi.“
Og Perinchief er svona ungur, en
hefur samt lengi verið íþjónustunni...
,Já, já - hann er ekki nema 35 ára.
Þetta er léttgeggjaður ungur maður.“
Þú ert sjálfur frelsaður - er það
ekki - hvemig gerðist það?
„Ég er búinn að vera frelsaður frá
því að ég var tólf ára gamall."
Tólfára...?
, Já, en það er búið að ganga á ýmsu
síðan. Ætli við getum ekki sagt að ég
hafi heilshugar gengið þennan veg
með Guði í lifandi trú í um það bil
þijú til fjögur ár.“
Þú hefur þá svona stöku sinnum
hrasað á leiðinni...
„Málið er að þegar ég var tólf ára
gamall og ffelsaðist þá vissi ég ekkert
meira, hafði enga aðstöðu til byggja
mig upp á einn eða neinn hátt og gat
ekki sótt fundi í kristnu samfélagi.
Þessvegna pældi ég ekkert meira í því
og við erum náttúrlega breysk og óg-
urlega auðvelt að falla."
Nú er ituxður annaðslagið að heyra
skrýtnar sögur afVeginum; af stelpum
sem þvo ekki á sér hárið sökum þess
að guð búi í því og svo framvegis.
Hvað segirðu um svonafurðusögur?
,,Ég veit hvaðan þetta er komið og
vil svara því til, að stelpumar í Vegin-
um þvo á sér hárið og gera allt það
sem venjulegt fólk gerir hversdags.
Vitaskuld hefur maður sjálfur heyrt
sögur af stelpum í einhveijum söfnuð-
um sem klippa ekki á sér hárið, en ég
vísa öllum skrípasögum af Veginum á
bug.“
Þannig að það er ekkert undarlegt í
gangi hjá ykkur; trúarofstœki og þess-
háttar?
„Nei, ég hef í öllu falli ekki heyrt
það eða lesið í Biblíunni minni að
Guð búi í hárinu."
Ekkert sérstaklega þar frekar en
annarsstaðar?
„Akkúrat."
Margir þungarokkarar eru til dœm-
is með afar sítt hár og enginn hefur
haft á orði að það sé vegna þess að
guð búi í hárinu á þeim...
„Einmitt. Enginn.“
En afhverju koma annars svona
ýkjusögur upp í kringum söfnuði sem
ykkar - er fólk eitthvað smeykt við
ykkur?
„Ætli það sé ekki málið. Það eru
náttúrlega alltaf ákveðnir fordómar í
gangi og menn dæma sífellt eitthvað
og einhverja sem þeir þekkja ekki.
Verið getur að þetta byrji alltaf frá
einhverri rót því ég hef - einsog ég
sagði þér - heyrt að það séu til konur í
söfnuðum sem klippa ekki á sér hárið.
En afturámóti eru líka til konur sem
mála sig ekki og konur sem þekkja
ekki Jesús, en fara samt aldrei í bað.
Ég veit ekki hvort við eigum eitthvað
að ræða þetta frekar. Það er gömul
saga og ný að við umtal magnast
svonalagað upp.“
Hvað með strangar reglur sem
maður þarf að fylgja sem meðlimur
safnaðar - eru einhverjar slíkar regl-
ur fyrir félaga í Veginum?
„Við hvetjum að sjálfsögðu okkar
fólk til að fylgja lögum Guðs óg
manna.“
Manni er þá ekkert kastað útúr
Veginum þó að maður fái sér rauð-
vínsglas með kjötinu eða bjór yfir
boltanum?
„Blessaður vertu... Ég veit um fullt
af fólki sem fær sér rauðvín með kjöt-
inu eða einn bjór fyrir framan vídeóið
og þessháttar."
Éruð þið ekki með neitt svona stíf-
elsi og reglur í gangi einsog Vottamir,
Mormónamir og þessháttar söfnuðir?
„Nei, við höldum að minnsta kosti
uppá jól og afmæli. Við erum ákaflega
venjulegt fólk flestöll; fólk sem á að
vísu einn ákveðinn hlut sem margir
eiga ekki: lifandi trú á Guð og Jesú
Krist - hans einkason.“B