Alþýðublaðið - 01.09.1995, Qupperneq 4
4
ALÞÝÐUBLAÐID
FOSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1995
ó r n m á I
■ Hægrisinnaði öfgamaðurinn Patrick Buchanan er sjúklega tortrygginn útlendinga- og kynþáttahatari. Þetta
er maður sem vill senda femínistana aftur í eldhúsið, hefur lýst aðdáun sinni á McCarthy og Franco og kallað
Hitler „snilling". Hann ætlar sér að verða næsti forseti Bandaríkjanna og nýtur til þess dyggs stuðnings
efnahagslega óöruggrar millistéttar og trúaðra hægrimanna. Buchanan þykir ólíklegur til að hreppa hnossið, en
er samt sem áður maður sem vert að fýlgjast með; framgangur skoðana hans hefur verið mikill uppá síðkastið
N ú situ r æðstiprestur
ofsóknarbrjálæðisins
um Hvíta húsið...
1995 hefur verið einstaklega gott ár
hingaðtil fyrir ofsóknarbijálæði - sjúk-
lega tortryggni í garð alls og allra - í
Bandaríkjunum. Almenningi til mikill-
ar skelfingar kom það kom til dæmis í
ljós, að það voru ekki óðir hryðju-
verkamenn múslima sem sprengdu
bygginguna í Oklahómaborg í lofit upp
heldur þungvopnaðir furðufuglar frá
Mið-Vesturríkjunum; menn sem trúa
einlæglega á yfirburði hins göfuga,
hvíta kynstofns.
Við höfum síðan uppgötvað að lykil-
vitni lögreglunnar í réttarhöldunum
gegn O J. Simpson er í raun og vem
ósamsetti kynþáttahatarinn sem veij-
endur ruðningshetjunnar göldmðu upp-
úr hatti sínum. Og svo var það hinn há-
æmverðugi séra Pat Robertson, efitir-
lætispredikari trúaðra hægrimanna,
sem viðurkenndi að hafa ritað bækur
sem á óhugnanlegan hátt líkjast viður-
styggilega andgyðinglegum áróðri
þriðja áratugarins.
Hvað meira? Til að mynda sá at-
burður þegar Alríkisstjómin viður-
kenndi: Jú, það vissulega fiamkvæmd-
um við kjamorkutilraunir í vísinda-
skyni á þúsundum óvitandi fórnar-
lamba í Bandankjunum á fimmta og
sjötta áratugnum. Eitthvað meira er
einnig hægt að tína til: nýlega birtar
skýrslu rússnesku leyniþjónustunnar
KGB sanna meðal annars að Julius og
Ethel Rosenberg, hinir hylltu sakleys-
ingjar sem Eisenhower lét miskunnar-
laust taka af lífi, vom stórtækir og
hættulegir njósnarar á vegum sovéskra
kommúnista.
Og FBI-forstjórinn J. Edgar Hoo-
ver gekk sannarlega í kjólum, hvað
sem hver segir.
Hinn fullkomni frambjóðandi
ofsóknarbrjálæðisins
Gríðarlegur fjöldi tilgáma, sem eitt
sinn mátti helst búast við að heyra af
vörum þeirra allramest ofsóknarbijál-
uðu. hefur þannig reynst dagsannur.
Því skylduð þið ekki vera furðulostin
þó að hiniím fullkomna ffambjóðanda
ofsóknarbijálæðisins í bandarísku for-
setakosningunum á næsta ári gangi
mun betur en búist hefur verið við
framtil þessa.
Þama er auðvitað átt við Patrick
Buchanan, hinn alþýðlega leiðtoga -
æðstaprest ef vill - hægrisinnaðra öfga-
manna. Hann var einmitt frambjóðand-
inn sem veitti Georg Bush „banvæn"
Laugardagurinn
2. september
„langur
laugardagur“
^ Á laugardögum býður Bflastæða-
sjóður frían aðgang að bílahúsum
í miðborginni. Tilgangurinn er að
kynna húsin og kosti þeirra.
Laugardaginn 2. september verður
ungt fólk á vegum Hins Hússins í
og við öll húsin, reiðubúið til
aðstoðar og leiðbeiningar þeim
sem það vilja.
Nú er tækifæri til að læra að
nota bflahúsin.
Notaðu tækifærið
Lærðu á húsin
Það er
einfaldara
að nota bílahús
en þig grunar
Bflahúsin eru þægilegasti kostur þeirra sem eiga erindi í miðborgina.
Þar er skjól og þurrt og ekki þarf að hafa neinar áhyggjur af því að falla
á tíma. Þú greiðir einungis fyrir þann tíma sem þú notar.
-| Ekið inn. Ýtið á hnapp á innvél við innkeyrslu, takið við miða. Akið
• inn þegar hliðið opnast. Takið miðann með þegar bflnunt hefur verið
lagt. Munið að hafa skiptimynt tiltæka þegar bfllinn er sóttur!
2Bfllinn sóttur. Setjið miðann í lesara greiðsluvélar. Greiðið tilskylda
• upphæð (með 5,10 eða 50 króna niynt) og takið miðahn aftur.
3Ekið út. Setjið miðann í lesara við úthlið og akið út þegar hliðið
• opnast.
Bflahúsin í miðborginni eru sex talsins og þannig staðsett að hvergi
er meira en þriggja mínútna gangur frá bflahúsi eða miðastæði til
flestra staða í miðborginni.
BÍLASTÆÐASJÓÐUR
Bílastceði fyrir alla
sár í New Hampshire fyrir fjórum árum
og sýnist nú þess albúinn að veita
keppendum repúblikana um forseta-
skrifstofuna í Hvíta húsinu enn harðari
keppni en þá.
Þrautreyndur stjórnmála-
maður sem alla klæki kann
Sem maður er aldrei hefur verið
kjörinn í nokkuit embætti og hvers að-
alkrafa til fiama og frægðar hefur verið
sem dálkahöfundur í slúðurblöðum og
sjónvarpspersónuleiki, virðist Buchan-
an í augum fréttaþyrstra vera ólíkleg-
astur af öllum ólfldegum til að hreppa
hnossið. Hann á hinsvegar býsna lang-
an feril að baki í stjómmálum á lands-
vísu; maður sem alla klæki kann.
Buchanan er fæddur og uppalinn í
Washington, af frskum uppruna og svo
heittrúaður að rómversk-kaþólskum
hætti að það nálgast árásargirni á
stundum. Fyrstu skref sín í stjómmál-
um steig hann sem ræðuhöfundur fyrir
Richard Nixon sem var í framboði í
forsetakosningum.
Grimmdarlegar árásir á
„frjálslyndu fjölmiðlana"
Ræður Buchanan fyrir Nixon vom
harðar og á köflum grimmdarlegar í of-
stæki sínu. Hann sérhæfði sig í öflug-
um breiðsíðuorrustum gegn „frjáls-
lyndu fjölmiðlunum" og dekkri hliðin á
Nixon hafði sérstakt yndi af þessum
hæfileikum Buchanan. ,J>etta skrapar
hrúðrið vandlega ofanaf sárinu, er það
ekki?“ sagði Nixon eitt sinn um tiltak-
anlega óvægna árás á fjölmiðlana sem
Buchanan hafði hannað í ræðuform
fyrir ffambjóðandann árið 1969.
Buchanan var ennfremur mikilvæg
lykilpersóna fyrir Nixon þegar þeir
tóku að nota baráttuaðferð sem kölluð
var Suðrœna hemaðartœknin, en hún
byggðist á því að ná til þeirra fjöl-
Fimmfaldur 1. vinningur!
1. vinningur stefnir í
20 milljónir króna
Fáðu þér miða fyrir kl. 20$ á laugardagirm.