Alþýðublaðið - 01.09.1995, Page 5
FOSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1995
ALÞÝÐUBLAÐtÐ
5
ó r n m á I
mörgu hvítu kjósenda sem höfðu orðið
fyrir vonbrigðum vegna kraftmikils
stuðnings Demókrataflokksins við
mannréttindahreyfinguna í Suðurríkj-
unum.
Á ofsafenginn hátt fyrirleit Buchan-
an mannréttindahreyfinguna af öllu
hjarta. Hann varði háskóla þarsem að-
skilnaðarstefnunni var beitt og gekk
einu sinni svo langt að lýsa Martin
Luther King sem „hringsnúandi
sunudurlyndisfjanda".
Buchanan lét aldrei af stuðningi síh-
um við Nixon og efldist ef eitthvað var
á hinum dimmu dögum Watergate.
Auðvitað.
Maður sem dýrkar Richard
IMixon og Oliver North
Uppúr 1980 réði Ronaid Reagan
síðan Buchanan í þjónustu sína og
veitti honum æðsta yfirvald yfir sam-
skiptum og nýtti manninn einnig sem
magnaðan tengilið við hægrisinnaða
öfgamenn. Buchanan sinnti nýja starf-
inu af áberandi mikilli orku.
Sem heitfengur andstæðingur
kommúnista - faðir Buchanan kenndi
honum að hata kommúnista og innrætd
syni sínum að kommúnisminn væri
bókstaflega af djöfullegum rótum
sprottinn - varð Buchanan einn þekkt-
asti stuðningsmaður aðstoðar fyrir
Kontra-skæruliðanna í Nikaragúa og
varði ólöglegar fjárveitingar til þeirra í
trássi við ályktanir Bandaríkjaþings.
Hann lítur á skúrkinn Oliver North
sem hetju og í miðju Íran/Kontra-
hneykslinu - þegar gagnrýnendur Re-
agan helltu sér yfir mistök hans af öllu
afli - hvikaði hann hvergi, afstaða Patr-
ick Buchanan var alltaf skýr og klár:
„Þegar trylltur Iýður mætir í garðinn
manns og heimtar höfuð húsbóndans
þá neyða synimir ekki pabba gamla til
að setjast niður, játa syndir sínar og
skrifa það á blað. Maður hefur skothríð
af efstu hæðinni án þess að hika.“
Buchanan tók að blómstra
þegar kalda strfðinu lauk
Hinn ofursmáborgaralegi fjandskap-
ur Buchanan gagnvart Bush fór aldrei
leynt. En nokkuð mun djúpstæðara og
alvarlegra gerðist með pólitískar hug-
sjónir hans þegar kalda stríðið tók loks-
ins enda. Rætur stjómmálahugsjóna
Buchanan - þjóðemisleg einangmnar-
stefna repúblikanisma áranna fyrir síð-
ari heimsstyijöldina - fóm að sjást æ
glögglegar.
I endurminningum sínum lýsir Bu-
chanan því afar stoltur yfir, að hetjur
föður síns hafi verið Charles Lind-
bergh, stjómarmaður í einangmnar-
sinnuðu þingnefndinni America First
Committee, hinn spænski Franco og
andkommúnistinn Joe McCartliy.
Buchanan á líka býsna margt sam-
eiginlegt með þessum mönnum. Þeir
vom vemdar- og einangrunarsinnar,
íjandsamlegir gagnvart innflytjendum,
samúðarfullir í garð evrópsks fasisma,
fullir heiftarlegri andúð í garð Bret-
lands og hatrammir andstæðingar vel-
ferðarríkisins.
Tveir sjúklega tortryggnustu
hópar samfélagsins
Málflutningur Buchanan á árinu
1995 höfðar einkum og sérílagi til
tveggja mest viðkvæmu og ofsóknar-
brjáluðu hluta bandaríska samfélagsins.
í fyrsta lagi beinir hann orðum sín-
um að trúuðum hægrimönnum sem
standa staðfastlega í þeirri meiningu að
stjóm Bandaríkjanna hafi í grundvallar-
atriðum verið tekin yfir af trúarlegum
efahyggjumönnum - jafhvel vantrúar-
hundum - sem myndað hafi etítur eða
útvalda hástétt útaf fyrir sig og ráðskist
nú með örlög venjulegra landa sinna.
Algengt er að þessir trúuðu hægrimenn
tengi þennan sjálfsútvalda hóp við gyð-
ingdóm á einhvem hátt.
Buchanan færir rök fyrir því að gera
fóstureyðingar ólöglegar, að samkyn-
hneigð verði bæld niður af meiri kráfti,
að skilnaðarlöggjöfin verði hert til mik-
illa muna og að reglulegt bænahald
verði á ný tekið upp í skólum landsins.
í þessum stíl hefúr Buchanan meira að
segja gengið svo langt að segja AIDS
vera „guðdómlega hefnd“ gagnvart
samkynhneigðum.
Hinn hópurinn sem Buchanan hefur
valið sér sem markhóp er hin efnahags-
lega óörugga millistétt. Hann barðist
harkalega gegn NAFTA, GATT og Al-
þjóða viðskiptastofnuninni. Hann er
hlynntur stíffi tollalöggjöf og vemdar-
tollum gagnvart innflutningi frá Evr-
ópu og Japan.
Gamla slagorðið „Bandaríkin fyrst“
hefur verið tekið ofanaf hillunni þar-
sem það hefur legjð síðan á þriðja ára-
tugnum, dustað af því rykið og sett á
fullt skrið í umræðuna.
Flest baráttumálin eru lituð
stæku kynþáttahatri
í samfellu við þennan málflumingi
Buchanan er hin vandlega hannaða
andstaða hans við innflytjendur: að
ólöglegir innflytjendur verði sendir aft-
ur til uppmnalands síns; að umfangs-
miklar lögregluaðgerðir verði settar í
gang til að stöðva fólksflóttann frá
Mexíkó yfir landamærin til Bandaríkj-
anna; að ólöglegir innflytjendur verði
hreint út sagt stöðvaðir og snúið heim.
Flest af þessum helsm baráttumálum
hans eru limð af stæku kynþáttahatri.
Útlendingahatur Buchanan teygir
óútreiknanlega anga sína alla leið til
Bretlands.
Repúblikanískir forfeður hans frá
þriðja áratugnum litu á samband
Franklin D. Roosevelt við hina að-
þrengdu Breta sem höfuðorsökina fyrir
því að Bandarfkin drógust inní fyrri
heimsstyijöldina og jafhframt að þama
væri sömuleiðis að finna ástæðuna fyrir
því að útlit var fyrir að ríkið drægist
fyrr en ella inní þá seinni.
írskur uppruni Buchanan felur jafh-
ffamt í sér að maðurinn er að upplagi
Englendingahatari. Hann hefur einnig
gripið til fomra slagorða úr sjálfstæðis-
stríði Bandaríkjanna málflurnmgi sín-
um til stuðnings. Buchanan títur svo á
að bandaríska þjóðemisvitundin hafi
fæðst og sprottið uppúr höfhuninni á
Bretlandi og að örlög Bandaríkjanna
hafi verið neydd í óvænta átt þegar rík-
ið sá sitt óvænna og tók upp heims-
veldishlutverk Bretlands til að halda
uppi lögum og reglum í veiöldinni.
Bretland var nytsamur bandamaður
gegn heimskommúnismanum á meðan
kalda strfðið stóð yfir og sú barátta
faldi ýmislegt í eðli Buchanan sem nú
hefur brotist rækilega fram.
Hinir veikburða og breysku
andstæðingar Buchanan
Meðal andstæðinga og samkeppenda
Buchanan innan Repúblikanaflokksins
er engan að finna sem höfðað getur
bæði til þeirra sem orðið hafa fyrir
menningarlegum og efnahagslegum
vonbrigðum með heimaland sitt,
Bandaríkin. Bob Dole nýtur hvorki
trausts trúaðra íhaldsmanna né efna-
hagslegu lýðskrumaranna; Phil
Gramm á enn í megnustu vandræðum
með að sannfæra trúaða hægrimenn
umað hann sé einn af þeim.
Á fjölmennri samkomu stuðnings-
manna Ross Perot sem haldin var fýrir
skemmstu í Dallas hlaut Buchanan
gríðarlegt lófatak að launum fyrir ræðu
sína þarsem hann lýsti svo gott sem
stríði á hendur innflytjendum.
Þessar viðtökur era skýrt merki þess
að meðal andstæðinganna innan Repú-
blikanaflokksins á hann einna bestan
möguleika á að ná til hinnar róttæku
stjóramálamiðju Bandaríkja samtím-
ans.
Hugsanlega fær almenningur
nóg af brjálæðinu
Svo gæti síðan allteins farið þannig
að dekkstu hliðar hins fordómafulla
Buchanan eigi eftir að fæla frá jafnvel
hina mest ofsóknarbijáluðustu.
Ferill Buchanan hefur að geyma
ótrúlegustu ummæh um gyðinga og sú
staðreynd setur hann framá ystu nöf al-
menningsálitsins. Hann hefiir til dæmis
látið í ljós efa um útrýmingarbúðir nas-
ista í Treblinka hafi verið færar um að
slátra jafhmörgum gyðingum og skrá-
setjarar helfararinnar hafa sagt og til að
bæta gráu ofaná svart hefur hann enn-
ffemur lýst Adolf Hitler sem „snill-
ingi“.
Einu viðbrögð hans við Balkan-
skagastríðinu hafa verið að ýta á íhlut-
un til vemdar Króatíu vegna kaþólskrar
samstöðu með Frapjo Tudjman.
Hann kallaði þá blaðamenn af gyð-
ingauppruna sem studdu Persaflóa-
stríðið gegn Saddam Hussein hluta
„amen- bekknum" sem situr og stendur
að höfði ríkisstjómar fsraels. Ef hann er
ekki andgyðingur, þá er hann altént
hættulega nálægt þvf.
Getur slíkur maður orðið
næsti forseti Bandaríkjanna?
Gæti slíkur maður í raun og veru
orðið næsti forseti Bandaríkjanna? Ef
svo færi þá myndi það þýða - ef við
gefum okkur það að repúblikanar haldi
meirihlutastöðu sinni á Bandaríkjaþingi
- valdaafsal Bandaríkjanna sem ein-
hverskonar „heimslöggu", brotthvarf
frá NATÓ og sennilega Sameinuðu
þjóðunum einnig. Að öllum líkindum
myndi það sömuleiðis þýða algjört við-
skiptastríð við Evrópu og Japan. Á
þriðja áratugnum leiddi framgangur
skoðana á borð við þessar til heim-
skreppu og valdatöku fasista víða um
Evrópu.
Það er affarsælast og best að veðja á
að Bandaríkjamenn muni hverfa frá
þeim valkostum sem Patrick Buchanan
býður uppá þegar þeim er leitt í ljós
hvaða afleiðingar valdataka slíks
manns myndi hafa í for með sér.
Hættan liggur hinsvegar í því, að það
fyrirfinnast ekki nema örfáir stjórn-
málaleiðtogar í Bandaríkjunum í dag
sem hafa til að bera það sambland af
þrautseigju og mælskusnilld sem nauð-
synlegt er til að kveða niður þann herfi-
lega draug þröngsýni sem Buchanan
Er þetta
vísdómur
við hæfi Banda-
ríkjaforseta?
Um Watergate
„Andstæðingar okkar vilja ekki ein-
ungis reyna sýna framá að Nixon sé
flæktur í málið, heldur ætla þeir sér
að gelda forsetann til að snúa á lýð-
ræðislegan úrskurð almennings í
kosningum ... Ef okkur hefur rekið í
áttina til múgæsingarstarfsemi, gott
og vel-við skuldum þeim nokkra."
Um Hitler
„Þrátt fyrir að Hitler hafi sannarlega
verið kynþáttahatari og andgyðing-
legur í innsta eðli, þá var hann jafn-
framt einstaklingur sem bjó yfir
miklu hugrekki... pólitískur skipu-
leggjandi af bestu gerð."
Við æsingamenn gyðinga
„Þetta er samkoma Bandaríkja-
manna um Bandaríkjamenn og fyrir
Bandaríkjamenn."
Eftir uppþotin í Los Angeles
„Á sama hátt og þessir drengir náðu
aftur valdi á götum Los Angeles,
hverfi fyrir hverfi, verðum við, vinir
mínir, að ná valdi aftur á borgum
okkar og ná tilbaka menningu okkar
og landi okkar."
Um utanríkismól
„Mexíkó? Hverjum er ekki sama?
Bandarískur forseti á ekkert með það
að hafa áhyggjur af Mexíkó."
Um femínista
„Við ættum að senda þessar skvísur
aftur í eldhúsið þarsem þær eiga
best heima."
Um barsmíðar
á samkynhneigðum
„Það eru ekki allir fordómar sprottnir
uppúr fáfræði; flestir eiga þeir sér
rætur í erfðafræðilegum vísidómi
kynstofns síns. Kröftuglegt brott-
hvarf og andspyrna gegn samkyn-
hneigð eru fullkomlega eðlileg við-
brögð heilbrigðs samfélags."
kynnir dl sögunnar til að fást við skil-
greiningu á hlutverki Bandaríkjanna í
samfélagi þjóðanna.
Ronald Reagan er löngu horfinn af
stjómmálasviðinu; Jack Kemp er dott-
inn útúr kapphlaupinu; Dole og
Gramm keppa nú hvað þeir geta við
Buchanan um „Vonda-karls- verðlaun-
in“ meðal harðlínumanna Repúblikana-
flokksins. Og meðal demókratanna er
Bill Clinton skelfilega dræmur til að
berjast harðlega gegn hinni sjúklega
tortryggnu einangranarstefnu sem nú
nær stöðugt betri haldfestu í hjarta
Bandaríkjanna. Einungis AI Gore virð-
ist hafa til að bera þann kraft, kjark,
sannfæringu og viljastyrk sem þarf til
að kveða Buchanan í kútinn. En Gore
verður hinsvegar að nota til þess eitt-
hvað annað en eldmessustílinn því á
því sviði snýst enginn Buchanan snún-
ing.
Hefur dregið stjórnmálaum-
ræðuna útá hættubrautir
Hver sem útkoman verður á endan-
um er það glögglega ljós staðreynd, að
Buchanan hefúr náð að draga banda-
ríska stjómmálaumræðu niður á illvíg-
ara og dekkra svið en nokkur hefði get-
að ímyndað sér að mögulegt væri á of-
anverðri tuttugustu öldinni. Og það er
stórháskalegt að taka hann ekki með í
reikninginn - þó ekki væri nema fyrir
þann mikla stuðning sem hann á vísan
meðal stórs hluta Bandaríkjamanna.
f prufúforkönnun með repúblikana í
Iowa fyrir skömmu - sem telja verður
fyrsta raunveralega prófið í keppninni
um hver það verður sem þá náð hlýtur
að verða ffambjóðandi flokksms í for-
setakosningunum á næsta ári - kom
Buchanan sterkur inn á hæla Phil
Gramm og Bob Dole sem urðu því sem
næst jafnir í efsta sætinu. Það er sann-
arlega þess virði að fylgjast með firam-
gangi Patrick Buchanan um þessar
mundir. Ekki sfst vegna þess að hann
er tákngervmgur þess sem stjómmála-
ffæðingurinn Richard Hofstadter hef-
ur nefnt „ofsóknarbrjálæðisstflinn f
bandarískum stjómmálum". Og það er
ennfremur hyggilegt að kynna sér
frama Buchanan þarsem skuggi of-
sóknarbijálæðisins teygir sig langt út-
fyrir landamæri Bandaríkjanna. ■
shh / Byggt á The Sunday Times
V í K I N G A
I0TT9
Vinningstölur
mbvikudaginn:
30
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆ< Á HVERN VINNING
n63,6 2 20.750.000
5 af 6 LÆ+bónus 0 1.042.317
tcl 5 af 6 3 90.480
0 4af6 192 2.240
ra 3 af 6 ESfi+bónus 841 220
ágúst 1994
BONUSTOLUR
Heildarupphæ> flessa viku:
43.428.857
á ísi.: 1.928.857
UPPLtSINOAB, SÍMSVARI 01- 68 15 11
LUKKULINA 99 10 00 - TEXTAVARP «51
BIRT UE< FYRIRVARA UU PRENTVILLUR
I fór til Danmerkur og Noregs
BORGARSKIPULAG REYKJAVIKUR
BORGARTÚNl 3.105 REYKJAVÍK . SÍMI563-2340. MYNDSENDIR 562-3219
Endurskoöun á Aöalskipulagi
Reykjavíkur 1990-2010
Lýst eftir ábendingum og tillögum.
Á Borgarskipulagi er hafin endursko&un á Abalskipulagi Reykjavík-
ur 1990-2010, sem samþykkt var í borgarstjórn 17. okt. 1991 og
stabfest af umhverfisráöherra 20. febr. 1992.
Abalskipulag er stefnumörkun borgarstjórnar varbandi landnotk-
un, umferbarkerfi og þróun byggbar næstu tvo áratugina. Þessi
endurskobun er í samræmi vib stefnumörkun borgarstjórnar um
ab abalskipulag Reykjavíkur verbi tekib til endurskobunar f upphafi
hvers kjörtímabils, þ.e. á 4 ára fresti.
Eftir áramót verba tillögurnar kynntar almenningi meb ýmsum
hætti, s.s. sýningum og kynningarfundum, og óskab eftir ábend-
ingum vib þær. Abaláhersla er lögb á framtíbarbyggbasvæbi og
umferbar-, umhverfis- og mibbæjarmál.
Allar ábendingar, sem borgarbúar og abrir hagsmunaabilar vilja
koma til Borgarskipulags nú á frumstigi skipulagsvinnunnar, eru vel
þegnar. Þab má gera bréflega eba meb því ab hafa beint samband
vib starfsfólk Borgarskipulags, Borgartúni 3, í síma 563-2340.