Alþýðublaðið - 05.09.1995, Side 4

Alþýðublaðið - 05.09.1995, Side 4
4 ALÞÝÐUBLAÐH) ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 1995 ó r n m á I Ríkisstjórnin, Alþýðuflokkurinn & sameiningin Haustvertíð í pólitík Haustvertíð í landsmálapólitíkinni er að hefjast. Alþingi verður senn kallað saman og þar verður tekist á um mörg stórmál. En hvað er um hina fjögurra mánaða gömlu ríkisstjórn Davíðs Oddssonar og Halldórs Ásgrímssonar að segja? Og hvernig er staða Alþýðuflokksins, sem nú er í stjórnarandstöðu, eftir átta ár í ríkisstjórn? Hver eru brýnustu verkefni flokksins? Hrafn Jökulsson ræddi við alþýðuflokksmenn vítt og breitt um land og flokk og leitaði svara við þessum spurningum. Sameiningarmálin bar líka talsvert á góma... ■ Gunnar Gissurarson borgarfulltrúi í Reykjavík Nýjan flöt á sam- einingarumræðu „Ég veit ekki hvar maður á að byija þegar þessi ríkisstjóm er annarsvegar. Það sem af er, þá sýnist manni að það sé tómur vandræðagangur á þessari ríkisstjóm. Það á ekki síst við í fisk- veiðimálunum. Blessaður sjávarút- vegsráðherrann virðist ekki hafa stað- ið sig betur núna en hingað til; hann er ófær um að taka ákvarðanir og veit ekki í hvom fótinn hann á að stíga. Framsóknarflokkurinn er teymdur áfram af bændum í landbúnaðarmál- um, og þar virðast litlar breytingar í sjónmáli. Það er líka einkennandi að stjómarflokkamir virðast sáttir við að deila milli sín yfirráðum í viðskipta- og fjármálalífinu, og einhvernveginn ná þeir saman um jafna skiptingu milli armanna sem styðja hvorn flokk um sig. Þeir em ánægðir ef hvor um sig fær sína þjónustu og sinn skerf: Sam- komulagið byggir á því að báðir haldi sínu. Alþýðuflokkurinn þarf að taka af- gerandi forystu í stjórnarandstöðu. Svo virðist sem sáralítil stjómarand- staða hafi verið til þessa, en það er ósköp skiljanlegt: litlir fjölmiðlar standa að stjómarandstöðuflokkum og erfitt að koma málflutningi okkar áleiðis til almennings. En það þarf að finna leið til að gera stjómarandstöð- una ákveðnari, þannig að til hennar heyrist vítt og breitt meðal lands- manna. Sameiningarmálin era góðra gjalda verð, og sjálfsagt að loka engum möguleikum í því sambandi. En þau hafa verið svo lengi í deiglunni að það þarf að vinna nýjan flöt á þessum mál- um. Menn hafa talað um sameiningar- mál áram saman, án árangurs, svo nú þarf að taka þetta frá einhveiju öðra sjónarhorni. Yfirlýsingar einstakra forystumanna flokkanna virka ekki á almenning, og þær leiða ekki til sam- einingar. Þetta endar bara á einhveij- um persónulegum nótum forystu- mannanna, sem koma sér ekki saman um einhveija hluti vegna þess að hver hugsar um eigið skinn - mismikið að vísu. Hinsvegar er sjálfsagt að kanna sameiningarmálin til hlítar." ■ Kristján Möller bæjarfulltrúi á Siglufirði Segjum þeim stríð á hendur, ef... , J>að má kannski svara með því að spyrja: Hveijir era í ríkisstjóm núna? Er einhver ríkisstjóm í landinu? Þeir era ekki famir að gera nokkum skap- aðan hlut, þessir nýju ráðamenn. Mað- ur kennir hálfpartinn í brjósti um þennan ágæta Sjálfstæðisflokk vegna þess að þar er fullt af mönnum sem ég hef trú á. Ég man eftir gömlum manni sem átti hest. Klárinn var alltaf á tún- inu hérna fyrir ofan. Mér fannst skringilegt að hesturinn var alltaf á sínum stað, þótt hann væri ekki geymdur innan girðingar. Astæðan reyndist vera sú, að gamli maðurinn hafði einfaldlega sett haft á framlapp- imar á hestinum, svo hann komst ekki neitt. Hann var bara fastur, bundinn á sínum stað. Mér sýnist hlutskipti sjálf- stæðismanna eitthvað svipað og þessa ólánsama hests: þeir komast ekki mik- ið um. Ég vara stjómarflokkana, einkum heilbrigðisherrann, alveg sérstaklega við því, að standa fyrir frekari skerð- ingu á heilbrigðisþjónustunni og litlu sjúkrahúsunum útum allt land. Ef eitt- hvað gerist í þá veru munum við landsbyggðarmenn safna liði og segja þessu fólki stríð á hendur. Við skulum vona að með haustinu fari Alþýðuflokkurinn að braggast, og hann veiti þessari svokölluðu ríkis- stjórn eitthvert aðhald og flytji góð mál sem snerta fólkið í landinu. Ég vona líka að þingmenn og forystu- menn flokksins gleymi öllu ESB-tali, því það verður ekkert á dagskrá á næstunni, held ég að sé óhætt að segja. Það era ýmis önnur mál nær- tækari okkur Islendingum sem þarf að taka á. Sameiningarmál? Ég hef alltaf verið þeirrar skoðunar, að ef á að búa til stóran jafnaðarmannaflokk, þá verður það ekki gert án Framsóknar- flokksins." ■ Petrfna Baldursdóttir varaþingmaður í Grindavík Menn farnir að sakna Alþýðuflokksins „Mér leist auðvitað ekkert á þessa ríkisstjórn þegar hún var mynduð, enda er nú komið á daginn að þetta er stjóm afturhalds og stöðnunar. Það er næstum grátlegt að hlusta á margar yfirlýsingar félagsmálaráðherrans, og ég held að margir séu famir að sakna Alþýðuflokksins, hvað svo sem fólki hefur fundist um hann áður. Menn era líka famir að meta störf og stefnu Al- þýðuflokksins, nú þegar þeir hafa samanburð við nýju ríkisstjómina. Mér finnst að Alþýðuflokkurinn eigi að nota vel þennan tíma í stjómar- andstöðu. Mér finnst að menn eigi ekkert að vera að kaffæra sig í um- ræðu um sameiningu vinstrimanna; menn eiga að láta hlutina ráðast og sjá hver framþróunin verður. Mér sýnist á öllu, að ef ríkisstjómin heldur áfram á sömu braut, þá þurfi Alþýðuflokkur- inn engu að kvíða. Við höfum svo margt að segja í pólitík, þessvegna þurfum við að snúa bökum saman og rífa flokkinn upp. Þessi flokkur hefur alla burði til að verða stór og sterkur, en við höfum því miður tilhneigingu til okkar vera sjálfum okkur verst. Við þurfum að læra af reynslunni í þeim efnum.“ ■ Ægir Hafberg varaþingmaður á Flateyri Parf að efla flokksstarf á landsbyggðinm „Mér finnst þessi ríkisstjórn vera frekar blönk af nýjum ráðum. Hveiti- brauðsdagar hennar era senn liðnir og við vildum nú fara að sjá einhvem ár- angur. Það stefnir allt í það, að árang- ur í endurreisn landbúnaðar verði lítill, og manni finnst einhvernveginn að ríkisstjómin hafi gaman af að draga úr áhrifum GATT-samningsins og Evr- ópusamstarfs. Við alþýðuflokksmenn þurfum að fara yfir málefnastöðú okkar, halda áfram Evrópuumræðunni og hamra á henni. Starf flokksins útum lands- byggðina þarf að efla og ég treysti þingmannaliði okkar vel til þess að veita hæfilega stjómarandstöðu og til að sýna ábyrgð og framsýni í verkum og gjörðum. Það þarf að eíla og halda lifandi umræðu um atvinnumálin og Evrópumálin. Víst þurfum við að hafa augun opin í sameiningarumræðunni, en við eig- um að flýta okkur hægt. Við yrðum að gera kröfu um að vera þar afgerandi aðili - ég held að við tækjum ekki þátt í sameiningu uppá önnur býti.“ ■ Helga E. Jónsdóttir formaður Landssambands alþýðuflokkskvenna Nú æmtir enginn eða skræmtir „Ég er svartsýn á þessa ríkisstjórn og finnst almennt í kringum mig að fólk sé ekki með neinar væntingar. Mér finnst lfka sérkennilegt, í ljósi þess hvað fjölmiðlar voru á síðasta kjörtímabili uppteknir af Alþýðu- flokknum, að nú æmtir enginn eða skræmtir yfir aðgerðum þessara manna - eða kannski aðgerðaleysi öllu heldur. Fréttir af flokknum uppá síðkastið eru nú aðallega úr Sjónvarpinu og Helgarpóstinum. Ég kann illa við það. Mér fannst hinsvegar skynsamlegt af flokknum að taka það rólega í sumar, og finnst að nú í haust eigum við að bretta upp ermamar og byggja okkur upp innan ffá. Miðað við hvemig Jón Baldvin stóð sig á fundinum á Kom- hlöðuloftinu höfum við ekkert að ótt- ast, mér fannst hann alveg stórkost- legur. Hvað sameiningarmálin varðar, þá held ég að við eigum að taka stutt skref í einu, en ég treysti okkar for- ystumönnum fullkomlega í þessum efnum. Það er mikið sem skilur okkur og Alþýðubandalagið að, það er ekki bara einhver lækjarspræna einsog Lúðvík Bergvinsson benti á í Alþýðu- blaðinú í síðustu viku. Ég Var einu sinni stuðningsmaður Alþýðubanda- lagsins; mér fannst þeir veruleikafirrtir þá og finnst það ennþá.“ ■ Sveinn Þór Elínbergsson varaþingmaður í Ólafsvík Sett í bakkgír „Flest er komið á daginn sem menn óttuðust: Það er ekki horft til framtíðar og lítið um stefnumörkun hjá ríkis- stjóminni. Stjómin er fyrst og fremst afskapléga litlaus, einsog mig granaði nú að hún yrði. Framsóknarmenn gagnrýndu okkur fyrir ofurraunsæi í heilbrigðismálum á síðasta kjörtíma- bili en nú eru þeir komnir með hm'finn á loft. Þá fer ekki mikið fyrir þessum 12 þúsund nýju störfum sem Fram- sókn lofaði. Én auðvitað er stutt liðið á kjörtímabilið; við munum dæma stjórnina af verkunum. Mér finnst hinsvegar einsýnt að hún ætli að setja í bakkgír, að minnsta kosti spá þeir lít- ið í framtíðina, þessir menn. Alþýðuflokkurinn er búinn að vera í einhverri værð. Það er kannski ekki að marka í sumar, en ég held að ungt fólk í Alþýðuflokknum vilji að öll mál verði skoðuð uppá nýtt: Innri mál flokksins og möguleikar á samfylk- ingu. Ef við eigum að koma stefnu okkar í framkvæmd eigum við að fylkja liði með öðram. Það er svona framtíðarsinfónía. Þangað til það ger- ist á flokkurinn að byggja sig upp. Við eigum að efla sem mest samstarf við Alþýðubandalag, Þjóðvaka og Kvennalista. Ef við eigum stefnulega samleið næstu fjögur ár, þá er komin einhver ný sjónarrönd, sem ég og aðrir af minni kynslóð í Alþýðuflokknum viljum stefna að. Ég vænti þess að nú- verandi forysta flokksins taki mið af þessu. Stefna flokksins er góð, og við eigum að láta á það reyna, hvort við getum átt samleið með hinum stjóm- arandstöðuflokkunum þremur. Ef það kemur á daginn að fólk nær saman um stefnumörkun, þá leiðir af sjálfu að við spyrjum hvort við getum ekki stækkað fylkinguna. Mér finnst við vera í þeirri aðstöðu, með tilliti til

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.