Alþýðublaðið - 05.09.1995, Side 7

Alþýðublaðið - 05.09.1995, Side 7
ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 1995 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7 ■ Friðriksmótið í skák hófst um helgina. í glerbúri í Þjóðarbókhlöðunni sitja tólf meistarar, sá yngsti ekki orðinn tvítugur, sá elsti 74 ára. Hrafn Jökulsson var á vettvangi „Þetta var djö’s grís,“ sagði Jóhann Hjartarson við Sævar Bjarnason, alþjóðameistara í skák, þegar Jóhann stóð upp írá tafli við Bent Larsen í 1. •umferð Friðriksmótsins á laugardag- inn. Danski stórmeistarinn, sextugur á þessu ári einsog Friðrik Olafsson, gafst upp eftir að hafa leikið hroðalega af sér. Daginn eftir sagði Jóhann í samtali við Alþýðublaðið: „Laisen var búinn að rúlla mér upp eftir öllum kúnstarinnar reglum. Hann lék illa af sér í 40. leik, síðasta leik fyrir tíma- mörkin." Fyrir þá sem ekki þekkja hin fínni blæbrigði skáksálfræðinnar: 40. leikurinn er ekki ósvipaður „marka- mínútunni" í fótbolta; þegar leiktím- inn er að renna út sofna menn einatt á verðinum. Spenna hjá Helga og Smyslov Ungverski skákmeistarinn Lajos Portisch sagði einu sinni að heppni og óheppni jöfnuðust upp í skák. Jó- hann var sannarlega lúsheppinn á móti Larsen en í 2. umferð þurfti hann enn- þá minna að hafa fyrir hlutunum: Vas- sily Smyslov fyrrum heimsmeistari í skák lék af sér manni einsog hver ann- ar byrjandi eftir stutta taflmennsku. Jóhann Hjartarson var þessvegna maður helgarinnar. Friðrik Ólafsson settist á laugardag að tafli á alvöru skákmóti í fyrsta skipti í tæpan áratug. Andstæðingur- inn var Þröstur Þórhallsson sem um daginn náði þriðja og síðasta áfanga að stórmeistaratitli, og skortir aðeins tilskilin skákstig til að verða níundi stórmeistari íslendinga. Friðrik hafði hvítt og snaraði e-peðinu ffam um tvo leiki. Þröstur, sem skrifar að jafnaði um skák í Alþýðublaðið, hugsaði sig talsvert lengi um áðuren hann kaus að beita Sikileyjarvörn. Skákinni lauk stuttu síðar með jafntefli án þess að til ófriðar kæmi. Hannes Hlífar Stef- ánsson vann Jón L. Ámason snyrti- lega í 1. umferð en öðrum skákum lauk með jafntefli. Gligoric, sem í áratugi var sterkasti skákmaður Júgó- slavíu, og Margeir Pétursson tefldu án verulegra tilþrifa ,og slíðruðu sverð- in snemma. Helgi Olafsson lenti í kröppum dansi gegn Vassily Smyslov en hélt jöfnu með nákvæmri tafl- mennsku. Helgi Áss Grétarsson, heimsmeistari tuttugu ára og yngri á síðasta ári, lenti í hremmingum gegn Zsofiu Polgar en náði jafntefli. Zsofia er ekki jafnfræg - eða snjöll - og syst- ur hennar, Judit og Zsuzu, en hún er nú samt alþjóðlegur skákmeistari með 2485 stig. Zsofía hefur reyndar náð einhverjum besta árangri sem sögur fara af: Á skákmóti í Róm 1989 sigr- aði hún með fáheyrðum yfirburðum, fékk átta og hálfan vinning af níu mögulegum. Sá árangur jafngilti 2930 ELO-stigum. Friðrik og Larsen Þegar Friðrik Ólafsson var uppá sitt besta var hann þekktur fyrir að lenda í æsispennandi tímahraki. Það var ekki laust við að hrollur væri tekinn að fara um áhorfendur í Þjóðarbókhlöðunni á sunnudag þegar Friðrik hafði notað eina klukkustund og 18 mínútur á lyrstu 15 leikina í skák - gegn Larsen. Danski stórmeistarinn hefur ennþá lifibrauð af skák og þessvegna í ólíkt betri æfingu en gamli keppinauturinn. Larsen býr í Suður-Ameríku og teflir mest á þeim slóðum í seinni tíð. Sól hans er nokkuð tekin að hníga, einsog við er að búast, en keppnisharkan er söm við sig. Hann lét ekki klaufalegt tapið gegn Jóhanni daginn áður slá sig útaf laginu, heldur tefldi af festu og einurð til vinnings gegn okkar manni. Þröstur Þórhallsson spennti bogann til hins ítrasta gegn Polgar en hún varðist fimlega og jafhtefli varð niður- staðan. Jóhann og Larsen voru einu sigurvegarar sunnudagsins: Jóhann þurfti lítið að hafa fyrir hlutunum gegn 74 ára gömlum Smyslov. Þrátt fyrir þetta klaufaskapinn skyldi enginn afskrifa Smyslov: Hann er næststiga- hæstur á mótinu (Jóhann er hæstur) og hefur náð góðum árangri að undan- fömu. Gamli og nýi tíminn Líklega hefur aldrei verið haldið skákmót hérlendis þarsem aðstaða jafnt keppenda sem áhorfenda er jafn- góð. Teflt er í glerbúri, og staðan í skákunum birtist jafnóðum á sjón- varpsskermum. Þá er sérstakur skák- skýringasalur þarsem fylgst er með þeirri skák sem býður uppá mesta spennu og tilþrif hveiju sinni. Skák- sambandið leggur sitt af mörkum til þjóðarsáttarinnar með því að hafa ókeypis inn, og því ættu skákáhuga- menn að íjölmenna á staðinn. Það er þess virði að sjá goðsagnir á borð við Friðrik, Gligoric, Smyslov og Larsen etja kappi við yngri meistara: Jóhann Hjartarson, Jón L. Ámason, Margeir Pétursson, Helga Áss Grétarssonr Helga Ólafsson, Hannes Hlífar Stef- ánsson, Þröst Þórhallsson og Zsofiu Polgar. Gamli og nýi tíminn mætast í glerbúrinu: Komið og sjáið. Glæsileg taflmennska - óvænt tap Við skulum nú h'ta á skák Jóhanns Hjartarsonar og Bents Larsens úr 1. umferð. Larsen teflir af stakri kúnst - en svo kemur einn afleikur og þarmeð rennur allt út í sandinn. Hvítt: Jóhann Hjartarson. Svart: Bent Larsen. 1. d4 Rf6 2. c4 c5 3. d5 e5 4. Rc3 d6 5. e4 g6 6. RO Bg7 7. Be2 0-0 8. 0-0 Rg4 9. a3 f5 10. b4 Ra6 11. Hbl Rf6 12. Rd2 h5 13. exf5 Bxf5 14. Hb3 Hf7 15. Rb5 b6 16. Rf3 Rh7 17. Be3 e4 18. Rel Rc7 19. Rxc7 Dxc7 20. Dd2 De7 21. bxc5 bxc5 Larsen hefur byggt svörtu stöðuna upp eftir öllum kúnstarinnar reglum, meðan aðgerðir hvíts virðast fremur ráðleys- islegar. Nú hefur hvítur hinsvegar náð yfirráðum á b-línunni, og þótt í því séu, þegar hér er komið, aðeins fólgn- ar fáfengilegar hótanir, þá rœður það miklu þegar fram í sœkir. En sókn Larsens heldur áfram. 22. Rc2 Haf8 23. Hfbl Bc8 24. Hb8 Be5 25. Bfl Rf6 26. h3 Rd7 27. H8b3 Bf4 28. Rel Rb6 29. Hlb2 Ba6 30. Hc2 h4 31. Bxf4 Hxf4 32. De3 Df6 33. a4 Rd7 34. a5 Re5 35. Hbc3 Hvi'tur berst núfyrir Iffi sínu enda eykst sókn- arþungi svarts stöðugt. Kh7 36. Hb3 g5 37. Be2 Hxf2 38. Dxe4+ Kh6 39. Rd3 Bxc4 40. Hb7 Rg6 Þetta afieikurinn ör- lagaríki sem Jóhann minntist á. Fram til þessa hafði Larsen teflt óaðfinnan- lega og vinningur var í sjónmáli. Nú — Þröstur Þórhallsson íbygginn á svip. Nái hann góðum árangri á Friðriksmótinu fer að styttast í að hann nái tilskyldum skákstigum til að fá stórmeistaratitil sinn stað- festan. Goðsagnir mætast. Friðrik Olafsson og Bent Larsen voru langbestu skákmenn Norðurlanda og meðal þeirra bestu í heiminum. Larsen hefur ennþá at- vinnu af skákinni en Friðrik stýrir starfsemi Alþingis. Jóhann byrjar með glæsibrag Smyslovyfirbugaður í 16 leikjum og Larsen glutraði niður sigri. Daninn harðskeytti hefndi ófaranna - á sjálfu afmælisbarninu, Friðrík Ólafssyni. Fullkomin aðstaða. Tölvutæknin er notuð til hins ítrasta í Þjóðarbók- hlöðunni og áhorfendur geta fylgst með skákum meistaranna á sjón- varpsskermum. A-myndir: E.ÓI. hrynur spilaborgin. 41. Hxc4 Dal+ 42. Hcl Da3 43. Rxf2 Dxcl+ 44. Bfl— Larsen gafst upp. Sóknin er runnin út í ' sandinn og maður tapaður. Dapurleg- ur endir á vel tefldri skák af Larsens hálfu. Zsofia Polgar verður 21 árs í nóv- ember. Hún er snjall skákmaður þótt hún skáki ekki systur sínni, Judit Polgar, sem er meðal bestu skákmanna heims nú um stundir. 13.... Rxf3+ 14. Bxf3 Df6 15. Bg2 Dxc3 16. e5 Rd4 Smyslov gafst upp. Á löngum ferli hefur hann áreiðanlega afar sjaldan verið knúinn til uppgjafar í aðeins 16 leikjum. Byrjendamistök Smyslovs Lítum nú á endalok skákar Smyslovs og Jóhanns í 2. umferð. Gamli heimsmeistarinn var að leika hroðalega af sér, 13. b4. Einn afleikur býður öðrum heim, einsog þar stend- ur, og Smyslov heldur áfram að leggja Jóhanni vopn í hendur. En hvað gerir svartur í þessari stöðu? Gligoric. Hann var einu sinni í hópi tveggja til þriggja bestu skák- manna heims utan Sovétríkjanna. Þótt hann sé orðinn 72 ára er hann ennþá skeinuhættur.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.