Alþýðublaðið - 03.10.1995, Page 1

Alþýðublaðið - 03.10.1995, Page 1
■ Vigciís Finnbogadóttir gefur ekki kost á sér til endurkjörs Er efst í huga þakklæti til íslensku þjódarinnar Við setningu Alþingis tilkynnti Vigdís Finnbogadóttir að hún gæfi ekki kost á sér til endurkjörs til emb- ættis forseta Islands á næsta ári. A blaðamannafundi á Bessastöðum síð- ar um daginn sagði forsetinn að sér væri nú efst í huga þakklæti til ís- lensku þjóðarinnar fyrir það mikla traust sem hún hefði sýnt sér með því að fela sér embættið þessi ár. Vigdís sagðist ekki síst vera þakklát því fólki sem undanfarið hefði lagt að sér að breyta þessari ákvörðun, með við- tölum, bréfum og undirskriftalistum. Einnig sagðist hún meta mikils já- kvæða afstöðu þejrra sem lýst hefðu skoðun sinni í könnunum. Þegar Vigdís var spurð að því hvað hún ætlaði að taka sér fyrir hendur sagði hún: „Ég hef mikinn áhuga á margmiðluninni og langar til að líta til framtíðar og skoða hana vel og fleyta henni áfram, sem ég hygg að ég geti gert betur sem einkaaðili haf- andi áður gegnt þessu embætti, en í þeim erli sem ég bý við við embætt- isstörfm." Þegar Vigdís var spurð hvað stæði upp úr á embættisferlinum svaraði hún: „Ég verð nú frekar að spyrja ykkur um það. Mér hefur ekki legið lágt rómur um ýmis málefni. Ég verð helst að biðja mína þjóð að svara því eftir hvetju hún hefur tekið á þessum árum sem ég hef verið hér við störf.“ Vigdís nefndi síðan tvennt sem henni ■ Forseti Alþingis um kj^ramál þingmanna Ovönduð um- fjöllun fjölmiðla I ræðu við setningu Alþingis vék forseti þingsins, Ólafur G. Einarsson að kjaramálum þingmanna og umræð- um um þau. Þingforseti sagði að lík- lega hefðu þingmenn aldrei sætt jafn harðri gagnrýni og síðustu vikur. Mál- flutningur sumra hefði farið út fyrir velsæmismörk og Ólafur ræddi þátt fjölmiðla í umræðunni. „Verst er þó að fjölmiðlar, sem hafa meiri áhrif á skoðanamyndun í þjóðfé- laginu en aðrir og bera því mikla ábyrgð, hafa ekki greint nægilega vel frá og stundum ýtt undir rangfærslur með óvandaðri umfjöllun um málið,“ sagði forseti Alþingis. Ólafur G. Einarsson sagði að þeir sem mest hefðu farið í þessari um- ræðu ættu að íhuga að Alþingi væri ekki kjarafélag. Þau starfskjör sem lög ákveða alþingismönnum, og kjara- dómur og forsætisnefnd ákvarða nán- ar, væru ekki sérstaklega miðuð við hvað þeim kæmi sem nú sitja á þingi. Þau væru almennur rammi um þá lýð- ræðislegu starfsemi sem þingmennsk- an væri. væri sérlega kært, málræktina og ræktun landsins. Vigdís var spurð að því hvort gagnrýnin sem hún varð fyrir vegna Kínafarar sinnar hefði haft áhrif á ákvörðun hennar. Hún sagði: „Það hafði engin áhrif. Það var erfitt fyrir mig að kveða upp úr um þessa ákvörðun fyrr en eftir að ég hafði lokið skyldustörfum við opinberar heimsóknir. Það hljóta allir menn að sjá að það er erfitt að ganga um í op- inberum heimsóknum þegar allir við- staddir hugsa sem svo þegar maður gengur í salinn: „Þama kemur hún og hún er að hætta." Vigdís var spurð að því hvort hún vildi sjá starf forsetans í svipuðu fari og það hefði verið. Hún sagðist telja að gott væri fyrir ekki stærri þjóð að á forsetastóli sæti karl eða kona sem væri hlutlaus í frásögn sinni af mönn- um og málefnum og bætti við, „eins hlutlaus og kostur er, því það er aldrei hægt að vera alveg skoðana- laus.“ Vigdís á Bessastöðum í gær: Ég hef mikinn áhuga á margmidluninni og langar til að líta til framtíðar og skoða hana vel og fleyta henni áfram. A-mynd: E.ÓI. ■ Að vera eða ekki vera - í Norrænu mannkyni Guðni veit sjálfur að hann var í félaginu - segir Einar S. Jónsson formaður félags sem berst fyrir því að nýbúar og flótta- menn verði reknir úr landi. Guðni neitar að hafa verið félagsmaður. ,JÉg hef engan áhuga á því að vera stimplaður lygari þegar ég er það ekki,“ sagði Einar S. Jónsson for- maður félagsins Norrænt mannkyn að- spurður um þá yfirlýsingu Guðna Ág- ústssonar alþingismanns á Rás 2 á föstudagsmorgun að hann hafi aldrei verið meðlimur í félaginu. Á fundi Vöku í Háskólanum á fimmtudag sagði Einar S. Jónsson meðal annars að félagar í Norrænu mannkyni vildu reka nýbúa og flótta- rnenn úr landi og banna ættleiðingar bama frá þriðja heiminum. Jafnífamt sagði Einar að ýmsir áhrifamenn væru í félaginu, meðal annars Guðni Ág- ústsson. Guðni hefði þó „einhverra hluta vegna“ ekki alltaf viljað kannast við það opinberlega. í morgunþætti Rásar 2 sagði Guðni alrangt að haxm væri félagi í Norrænu mannkyni. Jafnframt sagði hann að Alþýðublaðið legði sig í „einelti". Af þessu tilefni hafði Alþýðublaðið samband við Einar S. Jónsson og bað um skýringar á misvt'sandi yfirlýsing- um hans og Guðna Ágústssonar. Einar sagði: „Guðni hringdi í mig á laugardaginn. Ég sagði honum að hann hefði verið skráður í félagið í mörg ár. Er ég skráður, viltu þá ekki gjöra svo vel að strika mig út, sagði hann. Ég sagðist myndu gera það, þótt mér þætti það nú leitt.“ Einar hafði eftir Guðna að hann hefði verið skráður í félagið án þess að hafa leitað eftir því sjálfur. „Hann stendur fastur á því að hann hafi verið settur í félagið að honum forspurðum. Það er ekki rétt,“ sagði Einar. Að- spurður hvort Guðni hefði sótt félags- fundi hjá Norrænu mannkyni sagði Einar: „Að sjálfsögðu. Hann hefur ekki gert það síðustu árin en félagið er 15 ára gamalt. Þetta er merkilegt fé- lag, sem stofnað var af sunnlenskum bændum.“ En hvaða ástæðu gaf Guðni Einari fyrir úrsögn sinni úr félaginu? „Ég veit það ekki. Hann segir mér að hann hafi verið að berjast við það í tvö ár að komast úr félaginu, og vera hreinsaður af því að hann sé í félaginu. Ég hef nú aldrei orðið var við það, að hann hafi staðið í einhverju basli með það,“ sagði Einar. Einar kvaðst standa við það sem haft var eftir honum í Alþýðublaðinu á föstudaginn. „Hvemig Guðni tekur því er náttúrlega hans mál. Ég sagði honum að ég skildi láta það ganga að hann væri ekki í félaginu lengur, en einsog hann vissi þá hefði hann verið f félaginu. Guðni sagði þá, að hann hefði verið settur í félagið á fölskum forsendum. Ég sagði honum að hann ætti þá allan aðgang að fá þau mál upplýst, ef honum sýndist. En þetta breytist ekkert frá minni hendi. Ég veit alveg hvað ég er að segja.“ Einar S. Jónsson: Hef aldrei orðið var við að Guðni stæði í einhverju basli með að segja sig úr félaginu. Hefur sótt félagsfundi. ■ Nýr búvörusamn- ingur kostar ríkissjóð 12 milljarða króna og útflutningsbætur teknar upp á ný Fjármunir út um gluggann -segir Sighvatur Björgvinsson alþingis- maður. „Mér skilst að það eigi að fara að taka upp útflutningsbætur á nýjan leik og þeim fjármunum verður bara hent út um glugg- ann. Eftir því sem fjármálaráðu- neytið hefur upplýst er búið að kasta í slíkar tilraunir um 48 þús- und milljónum króna á 40 árum án þess að nokkur árangur hafi orðið af þvi til markaðsleitar er- lendis,“ sagði Sighvatur Björg- vinsson alþingismaður í samtali við blaðið um nýjan búvöru- samning. Fulltrúar ríkisins og bænda skrifuðu undir nýjan búvöru- samning á lokuðum fundi í land- búnaðarráðuneytinu á sunnu- dagskvöld. Fjölmiðlum var bann- að að festa þennan atburð á filmu og aðilar málsins neituðu að tjá sig um samninginn að undirritun lokinni. Samningurinn gildir til aldamóta og kostar ríkissjóð um 12 milljarða króna, en gert er ráð fyrir að framleiðsluheimildir dragist saman á tímabilinu. Gert er ráð fyrir aj) selja eitt þúsund tonn af núverandi dilkakjöts- birgðum til útlanda og að um 150 milljónir fari úr ríkiskassanum til að greiða þann útflutning niður. Þingflokkarnir fengu samninginn til skoðunar í gærdag. „Sú ríkisstjórn sem hefur efni á að gera svona samning er ekki í vandræðum með ríkisfjármál. Hún á hins vegar erfitt með að rökstyðja frekari niðurskurð í heilbrigðismálum og öðrum við- kvæmum málaflokkum þegar hún er að bæta hag sauðkindar- innar með þessum hætti,“ sagði Sighvatur Björgvinsson. ■ ASS um íslenskan her Fáheyrð hugdetta Á 13. þingi Alþýðusambands Suðurlands var samþykkt ályktun þar sem segir að þingið fordæmi „þá fáheyrðu hugdettu Björns Bjarnasonar, að stofna beri 500 - 1000 manna herlið í landinu.“

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.