Alþýðublaðið - 03.10.1995, Side 4

Alþýðublaðið - 03.10.1995, Side 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 1995 f ó r n m á I Sýndarmennsku- gáfur Sten Nadolny: Göngulag tímans Arthúr Björgvin Bollason þýddi Mál og menning 1995 Þegar þýski rithöfundurinn Sten Nadolny fékk þá hugmynd að setja lífshlaup enska 19. aldar sæ- farans John Franklins í skáldsögu hafði hann úr nógu að moða því ævi Franklins var viðburðarík, í fáu hversdagsleg og sjaldnast leið- inleg. Svo einkennilega vill til að Nadolny tekst að gera skáldsöguna að öllu því sem lífshlaupið var ekki. Sagan silast áfram í hæga- gangi án verulegra tilþrifa. Dálítið eins og söguhetjan sjálf, sem er ekki einungis afar hæg í tali og hugsunum, heldur einnig í við- brögðum og gjörðum. Siðferðilegi vinkillinn er reyndar hjá hinni dauflegu og heldur leiðinlegu söguhetju, sem stendur flest af sér, meðan aðrar persónur ramba í dauðann eða ógæfuna vegna þess GÖNGUU Bð&ku jt Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar um bókmenntir að þeim liggur alltaf svo mikið á og gæta ekki að sér. Söguhetjan er flestum stundum á ferðalögum, fer um víðan völl og heimsins höf og væri allt með felldu hefði það gefið höfundi hið besta tilefni til að skrá fjörlega og blæbrigðaríka frásögn, en það ger- ist aldrei. Fólk er sífellt að deyja eða hverfa úr sögunni, en þar sem höfundi er ekki sérlega lagið að gæða þær persónur lífi áður en til brotthvarfs þeirra kemur, er erfitt að sakna þeirra. Það er einfaldlega eins og ekkert hafi gerst. Á meðan er söguhetjan sífellt á sveimi, virð- ist ósköp góðhjörtuð en skelfing óáhugaverð, og gildir þá einu hvort hún myndast við að kanna kalt heimskaut eða heit skaut kvenna. I stílinn skortir áberandi hraða, fjör og blæbrigði og öll veruleg listræn tilþrif. Það er engan veginn hægt að halda því fram að textinn sé meinlega vondur. Hann siglir einfaldlega aldrei fram úr meðal- mennskunni. Niðurstaðan er slétt, fellt og einkar dauflegt verk. Það er auðveldara fyrir rithöfund að sýnast gáfaður en vera skemmtilegur. Og algengara er að verðlauna menn fyrir það fyrr- nefnda fremur en hið síðastnefnda. Freistandi er að ætla að svo hafi einnig verið í þetta sinn, en bók Nadolny hefur hlotið einhverjar viðurkenningar, ásamt góðri sölu. Ekki fer á milli mála að höfundur ætlaði sér að skrifa spakvitra bók um eðli tímans um leið og hann amast við ofurvaldi hraðans. Nið- urstaða mín er hins vegar sú að þarna sé á ferð fremur grunn speki sem haldið er á floti af sýndar- mennskugáfum sem samanstanda af sögulegri þekkingu og duldu nöldri. En það er vitanlega blekkk- ingarblanda sem margir taka góða og gilda, þótt hér sé fremur mælt með því að menn láti sér fátt um finnast. Þessi bók er óravegu frá því að vera jafn góð og hún þykist Alþýðublaðið -fyrir geníin Vinningstölur laugardaginn: 30. sept. 1995 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING Aöaltölur: @@ @@@ BÓNUSTALA: © Heildarupphæð þessa viku: [kr. 13.763.120 [ UPPLÝSINQAR, SlMSVARl 91-68 15 11 LUKKULlNA 99 10 00 - TEXTAVARP 451 stað Jphönnu Sig ístjómmálui Það hefur mikið vatn runnið til sjávar síðan í lok nóvem- ber í fyrra og sama má segja um fylgi Þjóðvaka. í skoðana- syni, samkvæmt skoðanakönnun blaðsins. Á þe reis stjama Þjóðvaka og Jóhönnu hæst. Þegar ta könnun sem DV birti 28. nóvember var fylgi Þjóðvaka 23,4% og var samkvæmt því orðinn næst stærsti stjóm- málaflokkur landsins með 15 þingmenn inni. Þá kom íram í DV daginn eftir að Jóhanna Sigurðardóttir væri næst vinsælasti stjómmálamaður landsins á eftir Davíð Odds- úr kjörkössunum eftir þingkosningamar 8. aprfl inn kom í ljós að Þjóðvaki hafði fengið 7,1% kvæða og ijóra þingmenn kjöma. Aðeins Kv< fékk minna fylgi af þeim framboðum sem náðu Samkvæmt skoðanakönnunum sem síðan hafa v Svanfríður Jónasdóttir Ahrifavaldur í pólitík , Jóhanna Sigurðardóttir verður áhrifa- valdur í íslenskri pólitík hér eftir sem hingað til. Staða hennar nákvæmlega núna endurspeglast ef til vill best í umfjöllun Alþýðublaðsins. Það er; mikið er gert með viðhorf hennar hvort sem er í ræðu eða riti og fyrir- ferðin á síðum blaðsins í takti við það. En á sama tíma er keppst við að telja landsmönnum trú um að hún hafi eng- in áhrif,“ sagði Svanfríður Jónas- dóttir alþingismaður. „Staða Jóhönnu í pólitík og samhljóm- ur með þjóðinni annars vegar og gengi Þjóðvaka í skoðanakönnunum hins vegar þarf ekki að ríma saman. Það sér maður vel nú þegar Jóhanna talar tæpitungulaust máli fólksins í umræð- unni um kjör alþingismanna og æðstu embættismanna, en Þjóðvaki nýtur á sama tíma takmarkaðs fylgis í skoð- anakönnunum," sagði Svanfríður Jónasdóttir. Hannes Hólmsteinn Gissurarson Jóhanna gerði mikil mistök ,,Ég held að staða Jóhanna Sigurðar- dóttur sé mjög veik og Þjóðvaki skipti engu máli fremur en önnur ff amboð sem komið hafa fram síðustu áratugi á vinstri vængnum og telja það sigur- stranglegast að stofna enn einn vinstri flokk. Eg hef aldrei skilið þá logik,“ sagði Hannes Hólmsteinn Gissurar- son dósent , Jóhanna gerði mikil mistök með þvr að kljúfa Alþýðuflokkinn og stofha eigin flokk. Hún hefur ekki fram að færa neina sjálfstæða stjómmálastefhu sem fólk fylkir sér um til lengdar. Jó- hanna hefur ekki sama póhtíska að- dráttaraflið og Hannibal Valdimars- son og Vilmundur Gylfason höfðu þrátt fyrir að þeir væru líka ekki mjög stefhufastir. Hver er jafnaðarstefna Jó- hönnu Sigurðardóttur? Jafnaðarmenn um allan heim eru að leitast við að sætta markaðskerfrð og það sem þeir kalla félagslegt réttlæti en hún glímir ekkert við það. Hún gerir út á óánægj- una. En það er stundarfyrirbrigði og það getur enginn flokkur verið lengi byggður á óánægju. Þá hverfur flokk- ur um leið og tdefni óánægjunnar hverfur. Það er ekki til neitt sem er al- menn og varanleg óánægja. Það er alltaf óánægja með eitthvað og þegar þetta eitthvað verður fyrirferðarminna þá bresta forsendur fyrir óánægju- flokk,“ sagði Hannes Hólmsteinn Gissurarson. Pólitískt myndaalbúm Á þing 1978 Jóhanna var einn af 14 þingmönnum sem Alþýðuflokkur- inn fékk kjörna í stórsigrinum 1978. Auk hennar eru aðeins tveir aðrir þingmenn úr þeim hópi enn á Alþingi: Sighvatur Björgvinsson og Ágúst Einarsson, sem nú er samflokksmaður hennar í Þjóðvaka. Ráðherra í sjö ár Jóhanna Sigurðardóttir varð félagsmálaráðherra 1987 og gegndi embættinu samfleytt í sjö ár, til 1994. Hér er Jóhanna ásamt Jóni Baldvin Hannibalssyni og Jóni Sigurðssyni. Þau voru ráðherr- ar flokksins 1987-91. Óskoraður stuðningur Jóhanna var fyr konan sem kjörin var á þing fyrir Alþýðuflo inn og sú fyrsta sem valin var til setu í ríl stjórn. Hún naut alla tíð óskoraðs stuðnir kvenna í Alþýðuflokknum. Hér kemur Jóhar á fund ásamt Rannveigu Guðmundsdóttur.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.