Alþýðublaðið - 05.10.1995, Síða 8
* *£>
'mtVFILL/
4 - 8 farþega og hjólastólabílar
5 88 55 22
Fimmtudagur 5. október 1995
151. tölublað - 76. árgangur
'm&FILL/
4 - 8 farþega og hjólastólabflar
5 88 55 22
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
■ Fjárlagafrumvarpið
Á skjön við staðreyndir
- segir Kristín Halldórsdóttir þingkona.
„Við mjög fljótlegan yfirlestur er
margt við forsendur frumvarpsins sem
ég set spumingarmerki við. Menn em
að gefa sér ýmislegt sem ekki er stutt
sterkum rökum,“ sagði Kristín Hall-
dórsdóttir þingkona Kvennalistans.
„Ég bendi sérstaklega á þennan
bjartsýnistón sem er nokkuð á skjön
við staðreyndir um stórauknar skuldir
heimilanna og landflóttann. Mér
finnst vanta rökstuðning fyrir þeirri
staðhæfingu að atvinnulífið muni taka
þann kipp að það bæti upp samdrátt-
inn sem verður hjá ríkinu, meðal ann-
ars í fjárfestingum. Það mun að sjálf-
sögðu hafa í för með sér fækkun
starfa. Þetta er alveg óskýrt í frum-
varpinu. Ég hef heldur ekki fundið
neitt í fjárlagafrumvarpinu sem hleyp-
ir krafti í atvinnumálin," sagði Kristín.
„Það á að lækka útgjöld til vega-
framkvæmda um fimm hundruð millj-
ónir og út af fyrir sig hef ég ekkert við
það að athuga því einhvers staðar þarf
að draga saman. Hins vegar kæmi mér
ekki á óvart þótt þessar milljónir birt-
ust aftur, til dæmis í vor í sambandi
við eitthvert átak vegna krafha ffá að-
ilum vinnumarkaðarins. Það læðist
því að mér sá grunur að öðrum þræði
vilji menn eiga þama skiptimynt uppi
í erminni. Með frumvarpinu er verið
að sauma að ýrnsum velferðarmálum
sem skipta konur mjög miklu máli og
því ekki ólíklegt að það verði nokkur
átök um áherslur. Því miður sér mað-
ur afskaplega lítil merki þess í frum-
varpinu að eitthvað eigi að aðhafast
sem geti rétt hlut kvenna. Þar vil ég
nefha ýmsar tilfærslur sem eru áform-
aðar í almannatryggingakerfinu og
skattkerfmu. Það er nokkuð flókið að
átta sig á því hvað ýmsar tilfærslur
þýða. En það á að fella niður mæðra-
og feðralaun og ekkjubætur og maður
spyr hvemig þetta komi út fýrir ein-
stæðar mæður. Skattffelsi á lífeyrisið-
gjöld launafólks eru í raun tekið til
baka og það er ekki í fyrsta sinn sem
ávinningur á einu sviði er tekinn til
baka á öðm sviði,“ sagði Kristín Hall-
dórsdóttir.
■ Nýr bæklingur
Kynferðis-
leg áreitni
í unairbúningi er umfangsmikil
könnun á kynferðislegri áreitni,
umfangi hennar og eðli. Til að opna
umræðu um þetta mál og koma til
móts við þörfina á fræðsluefni á
þessum vettvangi hefur Skrifstofa
jafnréttismála gefið út bækling um
kynferðislega áreitni á vinnustað.
í bækiingi þessum eru stuttar
skiigreiningar á kynferðislegri
áreitni og leiðbeiningar fyrir þol-
endur og vinnuveitendur um hvem-
ig bregðast skuli við. Að gerð bæk-
lingsins komu einnig fulltrúar ASÍ,
BSRBogVSÍ.
■ Fjárlagafrumvarpið
Engar kerfis-
breytingar
-segirÁgúst Einarsson alþingismaður.
„í þessu Ijárlagafrumvarpi er ekki
um að ræða neinar kerfisbreytingar.
Þetta er gamaldags ffumvarp en það
er hins vegar ráðist á garðinn þar sem
hann er lægstur og af því mátti búast
af þessari ríkisstjórn," sagði Agúst
Einarsson þingmaður Þjóðvaka um
fjárlagaffumvarpið.
„Bætur til ellilífeyrisþega eru
skertar og það er fhugunarefni að það
gerist á sama tíma og allar greiðslur
eru verðtryggðar í nýgerðum búvöru-
samningi. Þetta sýnir forgangsröðun-
ina hjá þessari ríkisstjórn. I frum-
varpinu er ekki gert ráð fyrir neinum
tekjum af fjármagnstekjuskatti og
það má benda á að eignaskattur er
ekki nema þrjú prósent af tekjum
fjárlaga. ísland er eina landið í Evr-
ópu þar sem ekki er skattur á fjár-
magnstekjur og enn dregur ríkis-
stjómin lappimar í því máli. Það em
ekki neinar hugmyndir um lækkun á
jaðarsköttum nema fögur orð um að
gera eitthvað í framtíðinni. Fjárfest-
ingar dragast verulega saman sem
hefur bein áhrif á atvinnu," sagði Ag-
úst. „Fjárlagafrumvarpið mótast af
þeim forsendum sem em gefnar og
homsteinninn hlýtur að vera kjara-
samningar. Ríkisstjómin er sjálf búin
að stefna þeim málum í stórhættu og
því ekki gott að segja hvort þarna
stendur steinn yfir steini þegar árið er
liðið. Við bendum á að halli á núver-
andi fjárlögum er níu milljarðar og
gert er ráð fyrir fjögurra milljarða
halla á næsta ári. Það er ómögulegt
að sjá hvort það stenst með tilliti til
þeirrar óvissu sem ríkir í launamál-
um. Þá er ekki tekið á okkar stærsta
vanda sem er lítil framleiðni í fyrir-
tækjum sem skilar sér líka í litlum
tekjum til ríkisins. Umfang hins op-
inbera er miklu minna hér á landi en
annars staðar sem segir okkur það að
til velferðarþjónustu og menntamála
er varið miklu minna fé en á Norður-
löndunum. Niðurskurður í heilbrigð-
ismálum er mjög erfiður og sér illa.
En sex milljarðar renna til styrkja í
landbúnaði sem er jafn mikið og fer
til allra grunnskóla í landinu. Það örl-
ar ekki á efndum á loforðum fram-
sóknarmanna um 12 þúsund ný störf
og annað er eftir því. Þetta er að
mörgu leyti vont frumvarp," sagði
Agúst Einarsson.
Gott kvöld
Það verður áreiðanlega stútfullt útúr dyrum á Kaffi List í kvöld þegar skáld
og tónlistarmenn efna til samkomu. Þar verður mikið einvalalið: skáldin Haraldur Jónsson, Ólafur Stefánsson,
Didda, Elísabet Kristín Jökulsdóttir, Magnúx Gestzzon, Mikki Pollock, Ingunn Kristjana Vilhjálmsdóttir Snædal,
Bragi Óiafsson og Sigfús Bjartmarsson. Þá mun laga- og textasmiður Gímaldin troða upp, sömuleiðis Arnar
Gunnar tenórsöngvari. Sem fyrr sagði: í kvöld. Klukkan 20.30 til 23. Og það sem meira er: Ókeypis aðgangur.
Eitt að lokum: Á myndinni má sjá þá skáldbræður Braga Ólafsson og Harald Jónsson. A-mynd: e.ói.
Neytendasamtök
Skrifstofa
á ísafirði
Neytendafélag Vestfjarða og Neyt-
endasamtökin hafa opnað neytenda-
skrifstofu á ísafirði. Þetta er mögulegt
með stuðningi þriggja sveitarfélaga,
ísafjarðar, Tálknafjarðar og Árnes-
hrepps og verkalýðsfélaga á Vest-
tjörðum. Hlutverk skrifstofunnar er að
starfa í þágu neytenda á öllum Vest-
fjörðum. Meðal annars verður kvört-
unar- og upplýsingaþjónusta opin og
starfsmaður skrifstofunnar mun gera
markaðs- og verðkannanir hjá seljend-
um vöru og þjónustu um alla Vest-
firði. Starfsmaður skrifstofunnar verð-
ur Aðalheiður Steinsdóttir, formaður
Heildarskuldir Flugstöðvar Leifs
Eiríkssonar nema nú á fimmta
milljarð króna. Rekstrarhalli Flug-
stöðvarinnar er áætlaður 144 millj-
ónir á næsta ári að meðtöldum 130
milljón króna afskriftum og hækk-
ar um rúmar 20 milljónir frá áætl-
un fyrir þetta ár. Þetta kemur fram
í athugasemdum með fjárlagafrum-
Neytendafélags Vestfjarða. Skrifstof-
an er í húsakynnum verkalýðsfélag-
anna að Pólgötu 2 og er opin virka
dagaklukkan 13-16.
Ráðgjöf um
krabbamein
Krabbameinsfélagið hefur aukið
þjónustu sína við almenning með þvx
að taka upp grænt símanúmer, 800
4040, fyrir þá sem vilja fá upplýsingar
eða ráðgjöf um krabbamein. Áðeins er
greitt fyrir innanbæjarsímtöl hvaðan
sem hringt er af landinu. Hjúkrunar-
fræðingamir Bryndís Konráðsdóttir
og Guðbjörg Jónsdóttir svara í sí-
mann klukkan 9-11 virka daga en utan
þess tíma er símsvari. Símaþjónusta af
þessu tagi hefur gefist vel erlendis og
varpinu. Rekstrargjöld Flugstöðv-
arinnar eru áætluð 572 milljónir
króna á næsta ári og hækka um
12% frá fjárlögum 1995. Hækkunin
liggur að hluta í hækkuðum laun-
um vegna kjarasamninga svo og því
að snjómokstur og snjóbræðsla á
hlaði byggingarinnar, átta milljónir,
reiknast nú til gjalda Flugstöðvar-
verið mikið notuð. Hægt er að spyija
um einkenni, meðferð, lyf, varnir,
þjónustu og fleira. Hjá Krabbameins-
felagi Akureyrar er Brynja Óskars-
dóttir félagsráðgjafi með símatíma
klukkan 13-15 virka daga í síma 461
1470.
Norræna húsið
Ofbeldi og
karlmenn
Á sunnudaginn klukkan 14 mun
Ingólfur V. Gíslason flytja fyrirlestur
í Norræna húsinu sem ber yfirskriftina
Ofbeldið og karlmexmskan.
f fyrirlestrinum verður vikið að þró-
un ofbeldis hérlendis, hlutverkum
kynjanna við beitingu ofbeldis og
innar. Vaxtakostnaður hækkar um
9% og verður samtals 252 milljónir.
Á næsta ári gjaldfalla lán í yenum,
14,5 milljónir og í ECU, 292 millj-
ónir. Tekið verður 340 milljóna
króna lán til að endar nái saman.
Utanríkisráðherra hefur skipað
starfshóp til að endurskoða fjár-
reiður Flugstöðvarinnar.
hvort ástæða sé til að ætla að karlar
séu á einhvem hátt ofbeldishneigðari
en konur. Þá verður sagt frá hreyfing-
um karla gegn ofbeldi í Kanada, Nor-
egi, Svíþjóð og hér á landi og mögu-
leikum á að „lækna“ ofbeldiskarla.
Loks verður fjallað um orsakir ofbeld-
is og þá sérstaklega vikið að því hvort
skortur á körlum við uppeldi og um-
önnun bama sé þáttur í vaxandi of-
beldi og þá jafhframt hvað unnt sé að
gera til að breyta því.
Allir eru velkomnir og aðgangur
ókeypis.
Eignarhaldsfélag
Alþýðubankans
Góður
hagnaður
Árshlutareikningur Eignarhaldsfé-
lags Alþýðubankans hf. hefur verið
birtur og sýnir hann 36 milljóna króna
hagnað fyrstu átta mánuði ársins.
Hagnaður á sama tíma í fyrra nam 80
milljónum.
Eigið fé félagsins samkvæmt efna-
hagsreikningi nemur 972 milljónum
og hlutafé 706 milljónir. Innra virði
félagsins hefur hækkað úr 1,2 í 1,38 á
undangengnum 12 mánuðum og eig-
infjárhlutfall úr 75% í 83%. Félagið
greiddi út arð á árinu vegna ársins
1994 að upphæð 42 milljónir króna.
„Hinn dyggð-
um prýddi
blaðamaður"
Fimmtudagskvöldið 5. októ-
ber heldur Siðfræðistofnun
málþing undir yfirskriftinni
Siðferði fjölmiðla. Frummæl-
endur verða fjórir: Séra Hall-
dór Reynisson aðstoðarprestur
í Neskirkju flytur erindi sem
hann nefnir Um siðferði í fjöl-
miðlum; Páll Þórhallsson lög-
fræðingur og fyrrverandi
blaðamaður nefnir sinn fyrir-
lestur Hinn dyggðum prýddi
blaðamaður; séra Irma Sjöfn
Óskarsdóttir flytur erindi sem
hún nefnir „Milli skers og
báru“ - að taka siðferðilega
réttlætanlegar ákvarðanir við
fréttaöflun og fréttabirtingu.
Þá mun Sigurjón Baldur Haf-
steinsson flytja fyrirlesturinn
Vin í eyðimörk fátæktarinnar?
Siðferði og kvikar myndir.
Málþingið verður haldið í
Odda, stofu 101, og hefst
klukkan 20.00. Aðgangur er
ókeypis og öllum heimill með-
an húsrúm lcyfir.
■ Leifsstöð
Skuldar yfir 4 milljarða