Alþýðublaðið - 10.10.1995, Blaðsíða 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTOBER 1995
s k o ð a n i r
nmmiDiB
20998. tölublað
Hverfisgötu 8 -10 Reykjavík Simi 562 5566
Útgefandi Alprent
Ritstjóri Hrafn Jökulsson
Umbrot Gagarín hf.
Prentun ísafoldarprentsmidjan hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 562 5566
Fax 562 9244
Áskriftarverð kr. 1.500 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Lokað, því miður
í frétt Alþýðublaðsins á forsíðu er skýrt ffá þeirri kaldranalegu stað-
reynd að á alþjóðadegi geðheilbrigðis er skrifstofa Geðhjálpar lokuð
vegna fjárskorts, rétt einsog alla daga í heilt ár. Vel mætti það verða þeim
ráðamönnum umhugsunarefni sem nú halda tyllidagaræður. í viðtali við
blaðið segir Magnús Þorgrímsson formaður Geðhjálpar, að margt gott sé
gert fyrir geðfatlaða og alltaf sé verið að stíga skref í rétta átt. En Magnús
segir ennfremur: ,J>að vantar samt mikið uppá ýmsa þætti. Þeir sem em
mest fatlaðir þurfa meiri þjónustu en veitt er í dag. Það er ekki nóg gert til
að hlusta á þá sem standa þeim næst sem leggjast inná geðdeildir. Fólk er
útskrifað alltof fljótt af deildunum og lokunin sem var í sumar olli mörg-
um mildum erfiðleikum.“
Hin síðari ár hefur orðið aukin umræða um geðheilbrigði og geðsjúk-
dóma. Þannig hefúr tekist að uppræta ýmsa fordóma sem einkum stafa af
vanþekkingu. Staðreyndin er sú, að ótrúlega margir lenda í geðrænum
erfiðleikum einhvemtíma á ævinni og þurfa að leita sér hjálpar. Mikil
.ippbygging hefúr oröið í þjónustu á þessu sviði á allra síðustu áratugum,
þótt enn sé langt í land einsog Magnús Þorgrímsson bendir á. Handahófs-
kenndur niðurskurður og lokanir deilda bitna harkalega á þeim sem síst
skyldi. Sú var því miður raunin í sumar þegar deildum var lokað, meðal
annars með þeim afleiðingum að öll önnur starfsemi raskaðist og ekki var
nægt að veita nauðsynlega þjónustu. Nýtt fjárlagafrumvarp ber þess held-
ur ekki mörg merki, að núverandi valdhafar hafi mikinn eða djúpan skiln-
ing á aðstæðum þeirra sem minna mega sín. Ennþá er það hinsvegar svo,
að það em mannréttindi að fá að aðhlynningu við meinum sínum, hvort
sem þau em andleg eða líkamleg.
Skósveinar
og glæpamenn
Nú em að hefjast réttarhöld sem gætu ýtt lítillega við hinni sofandi
samvisku Evrópu: Til stendur að draga fyrir alþjóðlegan dómstól þá sem
gerst hafa sekir um stríðsglæpi á Balkanskaga. Að vísu er lítil von til þess
að nema hluti hinna seku fái makleg málagjöld, meðal annars vegna þess
að stjómvöld á þessum slóðum halda hlífiskildi yfir glæpamönnunum.
Það er mjög að vonum: Helstu leiðtogar Serba em þannig sjálfir eftirlýstir
fyrir voðaverk. Forsprakkar Bosmu-Serba, Radovan Karadzic og Ratko
Mladic, og Slobodan Milosevic forseti Serbíu em meðal þeirra sem form-
lega hafa verið sakaðir um stríðsglæpi. Ekkert bendir til að þeir verði
nokkm sinni látnir svara til saka.
í kjölfar síðari heimsstyrjaldar efndu Bandamenn til réttarhalda í
Númberg yfir leiðtogum nasista. Ekki nema nokkrir „útvaldir“ vom látnir
svara fyrir glæpi Þjóðveija á þessum vettvangi. Nú, réttri hálfri öld síðar,
er hinsvegar allt útlit fyrir að einungis skósveinar og smáfiskar verði
dæmdir vegna mestu stríðsglæpa sem framdir hafa verið í Evrópu eftir
lok seinni heimsstyrjaldar. Leiðtogar heimsins munu hinsvegar halda
áfram að ræða við og funda með hinum raunvemlegu stríðsglæpamönn-
um.
✓
Islensk brjóst og útlensk
Getur verið að íslensk bijóst séu dónalegri en útlensk bijóst? Er hroða-
legra að sjá einn íslenskan leikara falla í valinn en þúsund ameríska? Fjal-
ar Sigurðsson varpaði ffam þessum spumingum þegar hann kynnti nýj-
ustu íslensku kvikmyndina, Nei er ekkert svar, á fimmtudagskvöldið. Til-
efni þessara spuminga Fjalars var vitanlega sú fúrðulega ákvörðun Kvik-
myndaeftirlitsins að banna myndina fólki yngra en 16 ára. Meðlimir
Kvikmyndaeftirlitsins hafa átt í mesta basli með að rökstyðja afhveiju stór
hluti bíógesta er útilokaður með þessum hætti.
Vissulega em mergjaðri ofbeldissenur í Nei er ekkert svar en flestum
íslenskum kvikmyndum, en það þarf reyndar ekki mikið til. Hinsvegar
em mýmörg dæmi um erlendar kvikmyndir þarsem ofbeldið er aðalhlut-
verki án þess að Kvikmyndaeftirlitið hafi beitt þyngstu viðurlögum. Því er
óhjákvæmilegt annað en að komast að þeirri niðurstöðu, að sérstakar regl-
ur gildi um íslenskar kvikmyndir: það er vitanlega blóðugt fyrir kvik-
myndagerðarmenn sem hafa lagt mikið undir. Kvikmyndaeftirlit ríkisins
hefur einatt verið mönnum ráðgáta enda lítið samræmi í ákvörðunum
þess; en það er fullkomlega óviðunandi að það setji beinlínis íslenskum
kvikmyndagerðarmönnum stólinn fyrir dymar með þessum hætti. Alltjent
þurfa hinir virðulegu meðlimir eftirlitsins að útskýra hvað það er, sem
gerir íslensk bijóst dónalegri en útlensk. ■
|„í þessari sýningu virdist mér kristallast allt þad sem verst er um starf leik-
hússins undanfarin ár. í fyrsta lagi er verkið engan veginn sýningarhæft."
Vegvilltar sæöisfrumur
Verkefni:
Tvískinnungsóperan
Höfundur leikrits,
söngva og söngtexta:
Agúst Guðmundsson
Leikstjóri:
Ágúst Guðmundsson
Meðleikstjóri:
Arni Pétur Guðjónsson
Utsetning tónlistar
og hljómsveitarstjóni:
Rfltharður Öm Pálsson
Söngstjóm og þjálfún:
Óskar Einarsson
Leikmynd:
Stígur Steinþórsson
Búningar:
Þórunn Eh'sabet Sveinsdóttir
Dansar og hreyfmgar:
Helena Jónsdóttir
Lýsing:
Ögmundur Þór Jóhannesson
Leikhús
Stundum, hvort sem mönnum er
ljúft eða leitt, verður að segja hlutina
eins og þeir em. Það er eitthvað mikið
að í Borgarleikhúsinu. Auðvitað vant-
ar þá peninga, en það skýrir þó engan
veginn þá listrænu flatneskju sem þar
ríður nú húsum. Aftur og aftur er boð-
ið upp á sýningar sem standast ekki
lágmarkskröfur sem gera verður til at-
vinnuleikhúss nú á ofanverðri tuttug-
ustu öldinni. Skiptir þar engu máli
hvort litið er til verkefnavals, leik-
stjórnar, vinnu leikara, leikmynda-
gerðar eða hverra þeirra tæknilegu
þátta sem nauðsynlegir eru til að
skapa eitt stykki leiksýningu. Þetta
ástand hefur verið að skapast undan-
farin ár og er nú svo komið að það er
raunar ekki hægt að leggja sama
mælikvarða á sýningar í Borgarleik-
húsinu og Þjóðleikhúsinu. Annars
vegar fer mikill og vaxandi metnaður,
leikhópur sem eflist og þroskast ár frá
ári, samfara frjórri og skapandi list-
rænni stjórnun. Hins vegar virðist
meðalmennska og andleg deyfð ráða
ferðinni, reyndar er svo langt gengið
að maður hefur á tilfinninguiini að
einstakir listamenn leikhússins séu
ekki aðeins staðnaðir í þroska, heldur í
hreinni og beinni afturför. Um þetta er
hvíslað í skúmaskotum leikhúsheims-
ins en tímabært verður að teljast að
þeir sem ntálið er skylt setjist niður og
leiti lausna á vandanum. Þær em ekki
fólgnar í því að draga örfáa einstak-
linga til ábyrgðar og hengja. Það væri
bara að endurtaka söguna um bakar-
ann og smiðinn einu sinni enn. Heldur
verður að spyrja grundvallarspuminga
eins og hvort verjandi sé að fela fá-
mennum hópi, eins og Leikfélag
Reykjavíkur er í raun, ráðstöfunarvald
yfir fjármagni skattborgaranna eins og
nú er? Eða hvort líta eigi til Þjóðleik-
hússins um stjómunarform? Eða eitt-
hvað allt annað? Eitt er víst að marg-
yfirlýstur vilji Leikfélagsmanna til að
flytja andann úr Iðnó með sér í Borg-
arleikhúsið hefur ekki tekist. I það
minnsta virðist honum líða þar eins og
húsviltum draug. Því verður hins veg-
ar ekki lengur unað að starfsemi Borg-
arleikhússins líkist helst drögum að
leikhússtarfi.
Kveikja þessara hugleiðinga er
frumsýning Borgarleikhússins á Tví-
skinnungsóperunni eftir Ágúst Guð-
mundsson. I þessari sýningu virðist
mér kristallast allt það sem verst er
um starf leikhússins undanfarin ár. I
fyrsta lagi er verkið engan veginn sýn-
ingarhæft. Hugmyndin að karl og
kona hafi sáluskipti er ekki einu sinni
nýstárleg, en efalaust mætti vinna úr
henni áhugavert verk. En svo er ekki
hér. Eftir að sálnaskiptin hafa átt sér
stað upphefst gegndarlaus neðanþind-
arhúmor kryddaður með illa sömdum
og andlausum söngvum og hvorki
höfundur né leikstjóri virðast vita
hvert stefna skuli.
Örlítið dæmi: Því A vill B, sem
bara þráir C, sem er ólmur, í engan
nema D.
Tónlistin gerir hér enga bragarbót.
Moðsuðuleg og tilfinningalaus líður
hún hjá og minnir helst á kaffihúsa-
músík sem hefur það helst érinda að
tmfla ekki samræður gestanna.
Stígur Steinþórsson hefur gert
margar góðar leikmyndir en hér dreg-
ur hann dám af umhverfinu. Leik-
mynd sem skapa á hávísindalegt um-
hverfi virkar amatörleg og í stíl við
annað í sýningunni em vegviltar sæð-
isfmmur mest áberandi í myndskreyt-
ingum. Eg trúi ekki að hin margróm-
aða tækni stóra sviðsins bjóði ekki
upp á snjallari lausnir en hér em sýnd-
ar.
Búningar Þórunnar Elísabetar
Sveinsdóttur em svosem glanslegir en
ekki verður séð að við gerð þeirra hafi
ráðið neinn einn ákveðinn stíll. Og er
varla von.
Helena Jónsdóttir hefur verið kölluð
til að hafa umsjón með dansi og hreyf-
ingum verksins. Ekki er mér ljóst
hvað ræður því vali en eitt er víst að í
dans og hópatriðum sýningarinnar rís
þjáning áhorfandans hæst.
Leikarahópur sýningarinnar er sam-
ansettur af átta atvinnuleikurum og
sex gestum þar sem dægurlagasöngv-
aramir Daníel Ágúst Haraldsson og
Guðrún Gunnarsdóttir fara fremst í
flokki. Ekki veit ég hvað hefpr ráðið
þessum samsetningi en sé þetta gert í
spamaðarskyni væri betur heima setið
en af stað farið. Af atvinnuleikara-
hópnum er það að segja að þar leika
allir undir getu nema þau sem mest
mæðir á, Felix Bergsson og Margrét
Vilhjálmsdóttir. Einkum á Margrét
góða spretti og sýnir enn einu sinni að
þar fer leikkona sem verðskuldar gjö-
fulli jarðveg að þroskast og dafna í.
Niðurstaða: Vond leiksýning sem á
ekki fremur erindi við leiklistargyðj-
una en Pamela Anderson og Strand-
verðimir. ■
o k t ó b e r
Atburðir dagsins
1970 Auður Auðuns tók við
ráðherraembætti, fyrst kvenna
á íslandi. 1972 Helgi Hóseason
slettir skyri á þingmenn. 1973
Spiro Agnew, varaforseti Ri-
chards Nixons, segir af sér
vegna ákæru um skattsvik.
1975 Elísabet Taylor og Ri-
chard Burton ganga í hjóna-
band f annað sinn. 1985 Leik-
stjórinn og leikarinn Orson
Welles deyr. 1985 Bandaríski
leikarinn og töffarinn Yul
Brynner deyr.
Afmæiisbörn dagsins
Antoine Watteau 1684.
franskur listmálari. Guiseppe
Verdi 1813, ítalskur tónsmið-
ur, kunnastur fyrir óperur.
Thelonius Monk 1920, banda-
Annálsbrot dagsins
Þá byrjaðist það sárablóðuga
svenska stríð og stóð yfir til
þess 27. Maii Anno 1660, hvar
í íslenzkir sýndu og mannskap
góðan, sem utanlands voru
studiosi. Grímsstaöaannáll 1658.
Líf dagsins
Það eru ekki mennirnir í lífi
mínu sem skipta máli heldur
lífið í mönnunum mínum.
Mae West kynbomba
og karlaflagari.
Málsháttur dagsins
Ekki komast allir upp á kram-
búðarloftið.
Gangur dagsins
Eg geng hægt - en ég geng
aldrei aftur á bak.
Orð dagsins
Oft mig dreymir ást og vor
einskis þá ég sakna,
en mig skortir einatt þor
aftur til að vakna.
Hulda.
Skák dagsins
Tafllok dagsins ættu ekki að
vefjast fyrir neinum. Hollend-
ingurinn Kuijf hefur hvítt og á
leik gegn Frakkanum Andruet
■í þessari tfu ára gömlu skák.
Svörtu mennirnir eru aðeins
áhorfcndur að endalokunum,
enda geta þeir ekki komið
kónginum til bjargar, svo ræki-
lega cru þeir fastir bakvið eigin
peðamúr.
rískur jazz- píanóleikari.
Abraham Lincoln.
Hvítur leikur og vinnur.
1. Hh7+! Andruet gafst upp. 1.
... Kxh7 2. Dh2+ Kg7 3. Dh7+
Kg8 4. Hhl og mát á næsta
leiti.