Alþýðublaðið - 10.10.1995, Qupperneq 7
ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 1995
ALÞÝÐUBLAÐID
7
e k t
■ í síðustu viku sendi Sigurður Tómas Björgvinsson bréf til flokks-
stjórnarmanna í Alþýðuflokknum. Bréfið var komið í fjölmiðla áður en
það barst flokksstjórnarmönnum. Hrafn Jökulsson fór yfir efni bréfsins
og rakti aðdraganda þess
Trúnaðarbréf til þjóðarinnar
f síðustu viku barst hátt í tvöhundruð
flokksstjórnarmönnum í Alþýðu-
flokknum sex síðna bréf frá Sigurði
Tómasi Björgvinssyni, fyrrverandi
framkvæmdastjóra Alþýðuflokksins.
Bréfið íjallar um starfslok hans hjá Al-
þýðuflokknum, auk þess sem Sigurður
Tómas reynir sitt ítrasta til að gera fjár-
mál flokksins tortryggileg - einkum í
því skyni að koma höggi á Guðmund
Oddsson formann ffamkvæmdastjómar
og Sigurð E. Arnórsson gjaldkera
flokksins. Bæði í upphafi bréfsins og
niðurlagsorðum brýnir Sigurður Tómas
lesendur þess til að fara með „þessar
upplýsingar sem algert trúnaðarmál því
öll neikvæð umræða um flokkinn okk-
ar getur skaðað hann mjög.“ í ljósi
þessara orða er harla athyglisvert að
ijölmiðlar vom byrjaðir að vitna orðrétt
í bréf Sigurðar Tómasar áður en það
barst flokksstjómarmönnum.
Mótsagnakenndar
yfirlýsingar
Bréfið sem Sigurður Tómas Björg-
vinsson sendir til flokksstjómarmanna
er efnislega í algerri andstöðu við bréf
sem hann stflaði á Jón Baldvin Hanni-
balsson, formann Alþýðuflokksins, 20.
ágúst síðastliðinn. Þar vísar Sigurður
Tómas í samtöl við Jón Baldvin, þar-
sem hann kveðst hafa sagt að hann hafi
ekki ætlað sér að vera í starfi á flokks-
skrifstpfunni um aldur og ævi. Þá segir
Sigurður Tómas orðrétt: „Það er ekki
óeðlilegt að eftir ftögurra ára staif, og
að afloknum kosningum, komi nýjar
áherslur í flokksstarfið. Þess vegna
óska ég eftir því að fá að láta af störf-
um fyrir Alþýðuflokkinn fljótlega ef þú
og framkvœmdastjóm flokksins getið
sœtt ykkur við það.“
í bréfinu til flokksstjórnarmanna,
sem dagsett er 1. október - sex vikum
eftir að Sigurður Tómas bað um að
vera leystur frá störfum - segir hann
hinsvegar fullum fetum: ,,Það var ekki
ég sem óskaði eftir að láta af störfum í
vor, heldur var ég neyddur til þess í
haust.“
Um samskiptamálin
Nokkur aðdragandi var að því að
Sigurður Tómas Björgvinsson léti af
störfum fyrir Alþýðuflokkinn. Það hef-
ur lengi verið á margra vitorði innan
flokksins að áhrifamiklir forystumenn
hafa verið óánægðir með störf hans.
Ekki var laust við að þeim sem til
þekktu þætti nokkuð kátlegt að lesa eft-
irfarandi í bréfi Sigurður Tómasar til
flokksstjómarinnar: „...einsog flokks-
mönnum er kunnugt hef ég átt mjög
gott samstarf við Jón Baldvin Hanni-
balsson, þingmenn flokksins og flokks-
fólk almennt."
Jón Baldvin Hannibalsson hefur ver-
ið í útlöndum að undanfömu, og því
var ekki unnt að bera undir hann stað-
Anm'W STJÓftWAH OC rRAMKVÆMDAJtSTJÓRA
Undirritaðir reikningar. Hér má sjá
áritun stjórnar og framkvæmda-
stjóra Alþýðuflokksins á ársreikn-
ingi fyrir tímabiiið 1. september
1992 til 31. ágúst 1994. Sigurður
Tómas Björgvinsson skrifaði undir
ársreikninginn án fyrirvara - þvert
á fullyrðingar í bréfinu til flokks-
stjórnarmanna.
hæfingu Sigurðar Tómasar um að þeir
hefðu átt mjög gott samstarf. Öllurn
sem til þekkja ber hinsvegar saman um
að samstarf þeirra hafi nánast frá upp-
hafi verið takmarkað, og að formaður-
inn varð æ óánægðari með störf fram-
kvæmdastjórans - eða öllu heldur skort
á störfum hans. Sömu sögu er að segja
af fleiri forystumönnum flokksins.
Reyndar var það svo, að Jón Baldvin
hélt framan af hlífiskildi yfir Sigurði
Tómasi þegar ákveðnir forystumenn
yildu að honum yrði sagt upp störfum
vegna óánægju með frammistöðu hans.
„Furðuleg stefna"
í bréfi sínu til flokksstjómarmanna
minnist Sigurður Tómas ekki á áður-
nefnt bréf sitt til Jóns Baldvins Hanni-
balssonar. Hann lætur að því liggja að
hann hafi verið flæmdur úr starfi og
skellir allri skuld á tvo menn: Guð-
mund Oddsson og Sigurð Amórsson.
Hann segir líka að hinn 12. ágúst hafi
hann verið kallaður á fund Amórs Be-
nónýssonar og Sigurðar Amórssonar,
þarsem „þeir hótuðu mér að ef ég féll-
ist ekki á að gera við þá starfsloka-
samning yrði framkvæmdastjóm köll-
uð saman næstkomandi mánudag og
mér sagt upp störfum.“ Sigurður Tóm-
as fullyrðir að hann viti ekki enn í
hvers umboði þeir „höfðu uppi þetta
gerræði, því er enn ósvarað."
Því er hinsvegar fljótsvarað og ekk-
ert bendir til annars en Sigurður Tómas
Björgvinsson viti svarið: Amór og Sig-
urður Amórsson áttu fundinn með Sig-
urði Tómasi samkvæmt beiðni for-
manns Alþýðuflokksins í því skyni að
komast að samkomulagi um starfslok
hans hjá flokknum.
í beinu framhaldi af þessu segir Sig-
urður Tómas að málið hafi tekið „enn
furðulegri stefnu“ þegar „fréttir tóku að
berast í fjölmiðlum þess efnis að Sig-
urður Amórsson hefði brotið gegn bók-
un ffamkvæmdastjómar og gert starfs-
lokasamning um þriggja rnánaða biðla-
un við sjálfan sig eða Guðmund Odds-
son.“
Það má með sanni segja að þetta hafi
verið fúrðulegar fréttir - enda var það
staðfest að enginn starfslokasamning-
ur hafði verið gerður við Sigurð
Arnórsson. Hér var um hreinan tilbún-
ing að ræða. „Fréttir" um hinn ímynd-
aða starfslokasamning birtust einkum í
Helgarpóstinum. Sá sem þetta skrifar
hefur fengið staðfestingu á því að
heimildamenn „fféttarinnar" um starfs-
lokasamninginn vom - Sigurður Tóm-
as Björgvinsson og félagar.
Reikningar þegar birtir
opinberlega
f bréfinu til flokksstjómarmanna ver
Sigurður Tómas löngu máli í að reyna
að gera fjármál Alþýðuflokksins tor-
tryggileg. Staðreyndin er hinsvegar sú,
að fjármál flokksins hafa Ifldega aldrei
verið í betra horfi og Alþýðuflokkurinn
hefur, fyrstur stjórnmálaflokka, birt
reikninga sína opinberlega.
Sigurður Tómas segir að í lok nóv-
ember 1994 hafi gjaldkeri og endur-
skoðandi flokksins beðið sig um að
undirrita reikninga flokksins fyrir tíma-
bilið september 1992 til ágúst 1994.
Það hafi hann gert, en sagt að það væri
„með þeim fyrirvara að ég fengi að
skoða alla færslulista og fylgiskjöl sem
tilheyrðu tékkareikningi sem Sigurður
Amórsson hefði einn haft aðgang að.“
Þetta er rangt. Endurskoðandi Al-
þýðuflokksins, Friðþjófur Eyjólfsson,
segir að engin slík beiðni eða skilyrði
hafi komið ffam. Reyndar hafi Sigurð-
ur Tómas Björgvinsson framkvæmda-
stjóri flokksins aðeins tvisvar sinnum
haft samband við sig þau fjögur ár sem
hann starfaði sem framkvæmdastjóri
flokksins - í bæði skiptin vegna alls
óskyldra mála.
Tilbúningur um
leynireikninga
Sigurður Tómas lætur að því liggja
að Sigurður Arnórsson hafi nánast
skammtað sér peninga að vild útaf
reikningum sem Sigurður Tómas hafi
ekki haft vitneskju um né fengið að-
gang að. Með öðmm orðum: Fyrrver-
andi framkvæmdastjóri flokksins ýjar
að því að um misferli sé að ræða og
hefur í ffammi dylgjur til þess að laska
æru Sigurðar Arnórssonar. Sigurður
Tómas færir engin rök fyrir aðdróttun-
um sínum, enda virðist hann einkum
knúinn áfram af persónulegri heift og
biturð. Fjármál flokksins fara í gegnum
■ Sigurður Tómas í bréfi til Jóns Baldvins fyrir sex vikum
„Oska eftir að láta af störfum"
Fyrir sex vikum skrifaði Sigurður Tómas Björgvinsson bréf til Jóns Baldvins Hannibalssonar
þarsem hann kveðst vona að formaður og framkvæmdastjórn geti „sætt sig við“ að hann láti af
störfum. Bréfið í heild fer hér á
Reykjavík 20. ágúst 1995
Kæri félagi!
Eins og stundum hefur komið í sam-
tölum okkar á milli, þá hef ég ekki hugs-
að mér að vera í staifi á flokksskrifstof-
unni um aldur og ævi. Það er ekki óeðli-
legt að eftir fjögurra ára starf, og að af-
loknum kosningum, komi nýjar áherslur
í flokksstarfið. Þess vegna óska ég eftir
því að fá að láta af störfum fyrir Alþýðu-
flokkinn fljótlega ef þú og ffamkvæmda-
stjóm flokksins getið sætt ykkur við það.
Miðað verði við að uppsögn mín taki
gildi 1. nóvember 1995 og þá fari í hönd
þriggja mánaða uppsagnarfrestur sem
ljúki 1. febrúar 1996. Ég væri þakklátur
ef við gætum heyrst fljótlega og rætt um
starfslok mín.
Ég vil taka það fram að þrátt fyrir að
stundum hafi verið uppi átök og deilur í
flokknum undanfarin ár, þá hafa þær
ekki tengst minni persónu og því mun ég
skilja fullkomlega sáttur við forystu og
stofnanir flokksins. Á þessum fjórum ár-
um, sem ég hef verið framkvæmdastjóri
og ritstjóri, þá hef ég öðlast dýrmæta
starfsreynslu og fengið tækifæri til þess
að kynnast heimi stjómmálanna á þann
hátt sem mjög fáum hlotnast. í starfi
mínu hef ég kynnst mörgu góðu fólki í
Alþýðuflokknum og ég á von á því að
þau tengsl muni halda áfram þátt fyrir að
ég muni hverfa af flokksskrifstofunni.
Auðvitað hefðum við viljað vera laus-
ir við þau átök sem einkennt haf'a flokk-
inn undanfarin tvö ár og auðvitað hefð-
um við viljað ná betri árangri í kosning-
unum í vor. Ég er hins vegar viss um að
andbyrinn hafi líka gert það að verkum
að fólkið í fiokknum hafi snúið bökum
saman og ég er viss um að okkar sam-
starf hafi einnig eflst á þessu tímabili.
Við höfum til dæmis oft rætt um það að
kosningabaráttan í vor hafi í mörgum
þáltum verið vel heppnuð og þarf verið
brotið blað hvað varðar skipulag og að-
ferðir. Þá megum við ekki gleyma því
að á þessum fjórum árum hefur okkur
tekist að efla starfssemi flokksskrifstof-
unnar, blása lífi í flokksstarfið við erfið-
ar aðstæður og gera Alþýðublaðið að
verðugu málgagni jafnaðarmanna svo
eitthvað sé nefnt.
Þrátt fyrir að ég hyggist hætta sem
starfsmaður flokks og blaðs á næstunni,
þá má alls ekki skilja það sem svo að ég
sé alfarinn frá flokknum. Þess vegna vil
ég taka það fram að lokum að þú og aðr-
ir flokksmenn geta leitað til mín hvenær
sem er varðandi verkefni og störf sem
þarf að inna af hendi fyrir flokkinn. Þar
sem ég mun nú fara að huga að öðrum
verkefnum og nýju starfi þá væri ég
þakklátur ef þú gætir útbúið meðmæla-
bréf sem kæmi mér vel á vinnumarkaðn-
um. Vonandi heyri ég frá þér sem fyrst.
Kærar kveðjur
Sigurður Tómas Björgvinsson
Upphafið. Myndin var tekin þegar Sigurður Tómas Björgvinsson var ráð-
inn framkvæmdastjóri. Með honum eru Jón Baldvin Hannibalsson og Guð-
mundur Oddsson.
framkvæmdastjóm og ekki eru til nein-
ir „leynireikningar“. Sigurður Amórs-
son vann að undirbúningi sveitastjóm-
arkosninga í fyrra og alþingiskosning-
anna í vor. Allar greiðslur hafa farið í
gegnum formann framkvæmdastjómar
og engar athugasemdir verið gerðar
í framkvæmdastjóm. Reyndar þvert á
móti: framkvæmdastjórn hefur lýst
ánægju með störf Sigurðar Amórssonar
og það horf sem íjármál Alþýðuflokks-
ins em í eftir að hann tók við umsjón
þeirra.
Hér virðist því sáma uppi á teningn-
um og þegar hinn ímyndaði starfsloka-
samningur var annarsvegar. Það er að
segja: Tilbúningur.
Stormur í vatnsglasi?
Þegar á allt er litið virðist um að
ræða stórfelldan storm í vatnsglasi. Það
athyglisverðasta í þessu máli er
kannski tvískinnungur fyrrverandi
framkvæmdastjóra: I bréfinu til Jóns
Baldvins fyrir sex vikum bað hann um
að fá að hætta, virtist sáttur við guð og
menn, og lýsti yfir því að hann myndi
áfram vinna í þágu flokksins þótt á öðr-
um vettvangi væri. Þar vom engar at-
hugasemdir gerðar við íjármál flokks-
ins, starfsmannahald eða tiltekna ein-
staklinga.
I ffamhaldi af bréfi Sigurðar Tómas-
ar Björgvinssonar til Jóns Baldvins var
gerður starfslokasamningur þarsem
gengið var að ítrustu kröfum fram-
kvæmdastjórans. Samningurinn var
undirritaður af Sigurði Tómasi, Guð-
mundi Oddssyni og Guðmundi Áma
Stefánssyni. Þess má geta, að Sigurður
Tómas fór fram á að Sigurður Amórs-
son ábyrgðist persónulega, í eigin nafni
en ekki flokksins, allar greiðslur vegna
starfslokasamningsins. Þannig virtist
full sátt um starfslok Sigurðar Tómas-
ar, þótt samningurinn væri Alþýðu-
flokknum talsvert dýr.
Menn hljóta því að spyrja hverra
hagsmunum það þjónar að heija stór-
fellda Ijölmiðlahríð, þarsem reynt er að
grafa undan ákveðnum einstaklingum
og gera fjármál Alþýðuflokksins tor-
tryggileg. Og eins hefur þeirri spum-
ingu verið varpað fram, í hvers þágu
það sé að senda út „trúnaðarbréf‘ í
næstum tvöhundmð eintökum, eftir að
starfslokasamningur hafði verið undir-
ritaður. Og menn gætu líka spurt um
trúnaðinn sem að baki býr, þegar ijöl-
miðlar em komnir með bréfið á undan
hinum tilætluðu viðtakendum. ■
Verkakvennafélagið Framsókn
Allsherjar-
atkvæðagreiðsla
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæða-
greiðslu um kjör fulltrúa á 18. þing Verkamannasam-
bands íslands sem haldið verður á Hótel Loftleiðum
dagana 24.-27. okt. 1995. Frestur til að skila listum er til
kl. 12.00 á hádegi föstudaginn 13. okt. 1995.
Hverjum lista þurfa að fylgja meðmæli eitt hundrað full-
gildra félagsmanna. Listunum ber að skila á skrifstofu
félagsins, Skipholti 50a.
Stjórnin
|p Útboð
F.h. byggingadeildar borgarverkfræðings, er óskað eftir
tilboðum í jarðvinnu við viðbyggingu Hamraskóla.
Útboðið nærtil aðstöðusköpunar og jarðvinnu.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, að Fríkirkju-
vegi 3, Reykjavík, gegn kr. 10.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 19.
október 1995, kl. 11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
Menningarsjóður
útvarpsstöðva auglýsir
Stjórn Menningarsjóðs útvarpsstöðva hefur lokið úthlut-
un styrkja eftir umsóknum sem bárust 1994 og 1995.
Umsækjendur, sem ekki var úthlutað styrkjum, geta
nálgast umsóknir sínar á skrifstofu Bjarna Þórs Óskars-
sonar hdl. Laugavegi 97, Reykjavík, fyrir 20.10.1995. Þeir
sem hyggjast sækja umsóknir sínar eru vinsamlega
beðnir að tilkynna það með eins dags fyrirvara í síma
552-7166.