Alþýðublaðið - 19.10.1995, Síða 1
■ Dagsbrún greiðir í dag atkvæði um uppsögn kjarasamninga
Misréttið hrópar í himininn
- segir Guðmundur J. Guðmundsson sem man ekki eftir öðru eins ástandi síðan 1978.
„Ef félögin eru nógu samhent og
einbeitt þá breyta engar lögbækur þvf.
Þetta misrétti hrópar í himininn og
særir réttlætiskennd fólks. Eg á ekki
von á að fundurinn í dag standi lengi
yfir. Menn eru fullir af reiði og sár-
indum,“ sagði Guðmundur J. Guð-
mundsson formaður Dagsbrúnar í
samtali við Alþýðublaðið.
Dagsbrún heldur félagsfund í Bíó-
borginni við Snorrabraut klukkan
13.15 í dag. Fundarefnið er aðeins
eitt; uppsögn kjarasamninga. Það er
ekki annað á Guðmundi að heyra en
uppsögnin verði samþykkt í almennri
atkvæðagreiðslu og hún muni koma
til framkvæmda, hvað sem líður
■ Vestmannaeyjar
Ný sjón-
varpsstöð
með 32
rásum
Sjónvarpsstöðin Fjölsýn í Vest-
mannaeyjum verður formlega
tekin í notkun á laugardaginn
klukkan 17. Tilraunaútsendingar
hafa staðið yfir síðan um miðjan
júlí og gengið vel. Afruglarabún-
aður stöðvarinnar getur afruglað
32 stöðvar í einu og er sá fyrsti
sinnar gerðar sem settur er upp í
Evrópu.
Þetta þýðir að hægt er að horfa
á 32 sjónvörp á sitthverri rásinni
en ekki eina í eina eins og Islend-
ingar þekkja best. Fjölsýn endur-
varpar sjónvarpsefni fimm er-
lendra sjónvarpsstöðva. Sjötta
rásin hefur fram að þessu verið
notuð undir ýmsar stöðvar en fyr-
irhugað er að senda út á henni
kvikmyndir með íslenskum texta,
ýmislegt efni úr Eyjum og skjá-
auglýsingar. Fyrsta eigið efnið
sem stöðin sendir út verður bein
útsending frá opnuninni á laugar-
dag.
Útsendingarsvæði sjónvarps-
stöðvarinnar er Heimaey og
næstu mið. Möguleiki er á að út-
víkka það frekar. Sent er út á ör-
bylgju en til að ná sjónvarps-
merkinu sem best þarf helst að
vera sjónlína frá sendi að mót-
töku. Fjölsýn selur áskrift að
stöðinni og er afnotagjaldið 1.790
krónur á mánuði.
ákvæðum kjarasamninga.
„Það er ekki gott að prédika þenn-
an stöðugleika yfir mönnum sem eru
á mjög lágum launum meðan þeir sjá
að flestir þeir sem eru á mun hærri
launum hafa stórhækkað. Stöðugleik-
inn virðist vera fólginn í því í reynd
að lágu launin séu áfram lág. Svo er
það kjaradómur sem sprengir allt
saman með því að úrskurða um stór-
hækkanir til manna. Það er hins vegar
villa að beita þessu eingöngu gegn
þingmönnum. Þetta á að vera dómur
sem byggir á einhvetjum forsendum.
En hvað á fólk að segja þegar það sér
að einhver embættismaður fær kanski
fimmtíu þúsund króna hækkun á
mánuði ffá þessum dómi?
Það er komin svo mikil gremja í
fólk að ég man ekki eftir öðru eins
ástandi síðan 1978. Það endaði með
skelfingu þá og nú er allra veðra von.
Eg held að menn ættu frekar að sjá
hvað þeir geta gert til úrbóta heldur
en að lesa lögbækur," sagði Guð-
mundur.
Formaður Dagsbrúnar sagði mik-
inn fjölda fólks eiga við mikinn fjár-
hagsvanda að etja. Menn gætu ekki
lengur eignast fbúðarhúsnæði með
mikilli yfirvinnu eins og á árum áður.
Það væri vonlaus hlutur.
„Það er komið svo að í þessu fé-
lagslega íbúðarkerfi, sem hét einu
sinni verkamannabústaðir, er búið að
hækka vexti og fólk hefur ekki einu
sinni efni á að standa í skilum þar.
Hér í Reykjavík er fjöldi fólks í þessu
kerfi sem samkvæmt stífum reglum
ætti að vera búið að bera út þar sem
það hefur ekki getað staðið við sínar
skuldbindingar. Það hefur hins vegar
verið hikað við útburð. En staðreynd-
in er bara sú að fólk ræður ekki leng-
ur við þetta. Kaupmáttur er orðinn
svo lítill, vinna hefur dregist saman
og menn jafnvel án vinnu mánuðum
saman. Síðan kemur þessi skerðing á
lífeyri öryrkja og gamals fólks. Það er
ráðist á fólk úr öllum áttum,“ sagði
Guðmundur J. Guðmundsson.
Guðmundur: Ráðist á fólk úr öllum
áttum.
■ Málþing á Borginni
Framtíð
miðborg-
arinnar
Reykjavíkurborg efnir til mál-
þings um miðborg Reykjavíkur-
framtíðarsýn á Hótel Borg á laug-
ardaginn klukkan 10 til 15.
Tilgangurinn með málþinginu
er að skapa umræðu um framtíð-
armöguleika í þróun miðborgar-
innar og um hlutverk hennar sem
menningar- og þjónustumiðstöðv-
ar landsins. Borgarstjórinn í
Reykjavík, Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir setur málþingið og síð-
an verða fram að hádegi flutt stutt
erindi um einstaka þætti miðbæj-
armála, svo sem húsvernd, þróun-
armöguleika, atvinnulífið, mannlíf
og menningu. Eftir hádegi verða
kynntar í máli og myndum svip-
myndir frá miðborgum í Bret-
landi, það er frá kynnisferð skipu-
lagsnefndar Reykjavíkur til Bret-
lands í september.
Aðal erindið á málþinginu flyt-
ur hinn þekkti danski arkitekt
Jan Gehl og mun hann fjalla um
hvernig hægt er að skapa lifandi
miðbæ. Þátttökugjald á málþing-
inu er 1.500 krónur fyrir hádegis-
verð og kaffi. Tilkynna þarf þátt-
töku til veitingadeildar Hótel
Borgar ekki síðar en í dag,
fimmtudag. Vakin er athygli á því
að fundarsalurinn tekur aðeins
120 manns í sæti þannig að þeir
sem fyrstir skrá sig tryggja sér
rétt til þátttöku á málþinginu.
Afmælisbarn dagsins er Benjamín H.J. Eiríksson hagfræðingur, sem er áttatíu og fimm ára í dag. í tilefni þess
birtir Alþýðublaðið viðtal við Benjamín og formaður Alþýöuflokksins, Jón Baldvin Hannibalsson, heiðrar hann
með afmælisgrein. a -mynd: EVÓI.
Miðstöð fólks í atvinnuleit í gang á ný
Opnar Smiðju í Hafnarhúsinu
Á morgun mun Miðstöð fólks í at-
vinnuleit verða opnuð að nýju í
Reykjavík eftir nokkurt hlé. Miðstöð-
in verður til húsa í Hinu húsinu að
Aðalstræti 2. Jafnframt verður opnuð
Smiðja fyrir atvinnulausa í Hafnar-
húsinu sem er handverks- og tóm-
stundaaðstaða. Smiðjan verður opin
alla virka daga frá klukkan átta á
morgnana.
Markmið Miðstöðvar fólks í at-
vinnuleit er að koma til móts við
margvíslegar þarfir fólks sem er án
atvinnu með því meðal annars að
veita fólki upplýsingar, bjóða upp á
námskeið og útvega viðtöl við sér-
fræðinga.
Húsnæði Smiðjunnar í Hafnarhús-
inu er rúmgott og býður upp á marga
möguleika, svo sem til að smíða,
sauma, gera upp gömul húsgögn,
vinna að skartgripagerð, leirmuna-
gerð og margt fleira. Einnig stendur
til að halda ýmis styttri námskeið í
Smiðjunni sem verða þátttakendum
að kostnaðarlausu fyrir utan efnis-
kostnað. Starfsemin kemur til með að
mótast af óskum og þörfum notenda.
í Smiðjunni liggja frammi ýmsar
upplýsingar fyrir atvinnuleitendur og
þar er jafnframt hægt að fá sér kaffi-
sopa. Búið er að koma upp barna-
homi sem er búið ýmsum leikföng-
um.
Miðstöð fólks í atvinnuleit er rekin
af Þjóðkirkjunni, Reykjavíkurborg,
Dagsbrún, Félagi bókagerðarmanna,
Sókn, SFR, SÍB, Starfsmannafélagi
Reykjavíkurborgar og VR. Auk þess
em ASÍ og VSÍ aðilar að Miðstöð-
inni. Framkvæmdastjóri er Sigrún
Harðardóttir.
AEG AEG AEG AEG AEG AEG AEG AEG AEG AEG AEG AEG AEG AEG AE<
_ L LVEG INSTÖK ÆDI
HAUSTTILBOÐ
Þegar gamla ryksugan sýgur sitt síðasta,
þá er kominn tími til að endurnýja.
Er þá ekki tilvalið að skoða AEG möguleikana.
AEG AEG AEG AEG AEG AEG AEG AEG AEG AEG AEG
i ng r » ■■■ | mmm-o
............. Sui
<
|o
■ Ui
Kt«
. o
I
Ryksuga Vampyr 7200 1300 w.
Stillanlegur sogkraftur. Fjórföld míkrósía.
PokastærS 4 L. Inndraganleg snúra, lengjanlegt rör.
Haust tilboftsverð kr. 14.632,-
eða 13.900,- stgr.
Lágmúla 8, Sími 553 8820 1