Alþýðublaðið - 19.10.1995, Blaðsíða 6
6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1995
■ Bresk heimildamyndaröð um
starfsemi Sameinuðu þjóðanna
Sameinuðu þjóðirnar
- Vonin sem brást
■ Þjóðleikhúsið
Kardemommubærinn í 5. sinn
Mánudaginn 23. október tekur
Ríkissjónvarpið til sýningar breska
heimildarmyndaröð um Sameinuðu
þjóðirnar en hinn 24 október er
liðin hálf öld frá stofnun þeirra.
Þegar endi hafði verið bundinn á
óhugnað seinni heimsstyrjaldar-
innar komu fulltrúar 50 þjóða sam-
an í San Fransisco í þeim tilgangi
að koma á fót aiþjóðasamtökum
sem hefðu það markmið að hlífa
komandi kynslóðum við stríðs-
hörmungum. Allt frá stofnun Sam-
einuðu þjóðanna hamlaði kalda
stríðið starfi þeirra, en um leið og
starfsemi þeirra hlóð utan á sig og
jókst að umfangi virtust forsvars-
menn Sameinuðu þjóðanna og
hinna ýmsu sérstofnana þeirra
áhugasamari um að treysta sjálfa
sig í sessi en að breyta heiminum.
í myndunum er fjallað um brostnar
vonir, gríðarlega spillingu sem
reynt hefur verið að breiða yfir, og
um yfirgengilega skriffinnsku sem
virðist vera forsvarsmönnum Sam-
einuðu þjóðanna kærara hugðar-
efni en hjálparstarf og umbætur.
Litið er gagnrýnum augum á starf-
semi og stofnanir Sameinuðu þjóð-
anna og raktar ástæðurnar fyrir því
að vonirnar sem bundnar voru við
samtökin eru að litlu orðnar vegna
margsannaðs getuieysis þeirra.
Dæmin úr samtímanum eru mý-
mörg. Hraksmánarlegir tilburðir
friðargæslusveita í Sómalíu, blóð-
baðið í Rúanda meðan forsvars-
menn Sameinuðu þjóðanna tvístigu
og hummuðu fram af sér hvort
þangað bæri að senda friðargæslu-
lið, og síðast en ekki síst hið full-
komna ráðleysi frammi fyrir
stríðsglæpunum í Bosníu.
■ Gallerí Greip
Mann-
Ia u sa r
my n d i r
Á laugardaginn verður opnuð
sýning á verkum Birgis Snæ-
bjarnar Birgissonar í Gallerí
Greip við Hverfisgötu. Birgir hef-
ur í nokkur ár máiað frásagnar-
kenndar mundir af börnum og
unglingum, en segist í þessum
verkum nálgast upphaf eða núll-
punkt frásagnar. Þar er ýmist
eitthvað í vændum eða hefur þeg-
ar gerst, en frásögn af því er ekki
hafín. Myndimar, sem em mann-
lausar, em allar unnar með olíu á
striga á þessu ári. Birgir hefur
stundað nám hérlendis og erlendis
og á að baki fjölda einkasýninga
og samsýninga hér heima og er-
lendis.
Þjóðleikhúsið frumsýnir hið sívin-
sæla bamaleikrit Kardemommubæinn
eftir Thorbjörn Egner á laugardag-
inn. Þetta er í fimmta sinn sem verkið
er sýnt í Þjóðleikhúsinu og eru fyrri
sýningar orðnar 233 talsins og tæplega
130 þúsund gestir hafa séð leikritið.
Leikendur í Kardemommubænum
eru Róbert Amfinnsson, Öm Árna-
son, Pálmi Gestsson, Hjálmar
Hjálmarsson, Ólafía Hrönn Jóns-
dóttir, Árni Tryggvason, Anna
Kristín Arngrímsdóttiiy Magnús
Ragnarsson, Hinrik Ólafsson,
Kristján Franklín Magnús, Bene-
dikt Erlingsson, Sveinn Þ. Geirsson,
Bergur Þór Ingólfsson, Agnes Krist-
jónsdóttir, Guðbjörg Helga Jó-
hannsdóttir, Þorvaldur Davíð
Kristjánsson, Jónas Óskar Magnús-
son, Þorgeir Arason og fleiri.
Leikritið þýddi Hulda Valtýsdóttir
og söngtextar eru eftir Kristján frá
Djúpalæk. Leikstjóri er Kolbrún
Halldórsdóttir og Klemens Jónsson
er listrænn ráðgjafi.
Samtök sveifarffélaga
á höffuðborgarsvæðinu
Dagskrá
samgönguráöstefnu SSH 1 995
í Félagsheimili Kópavogs föstudaginn 20. október 1995
I Setning
10.00 Jónas Egilsson, framkvæmdastjóri SSH.
Ávarp: Sigur^ur Geirdal, bæjarstjóri í Kópavogi.
II Framkvæmdir/uppbygging
10.15 Umferð á höfuðborgarsvæðinu: Baldvin E. Baldvinsson, Reykjavik.
10.30 Skipulag, uppbygging stofnbrautakerfis á höfuðborgarsvæðinu og næsta nágrennis:
Þórarinn Hjaltason, Kópavogi og Guðmundur Arason, Vegagerðin.
10.45 Kröfur til stofnbrauta: Rögnvaldur Jónsson, Vegagerðín.
11.00 Framkvæmdaáætlun fyrir þjóðvegi á höfuðborgarsvæðinu: Sbefán Hermannsson,
borgarverkfræðingur.
11.15 Fyrirspurnir og umræður.
11.45 Hádegisverður.
III Þáttur almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu
13.00 Pétur Fenger, framkvæmdastjóri AV.
13.15 Lilja Ólafsdóttir, forstjóri SVR.
13.30 Fyrirspurnir og umræður.
IV Umhverfismál og frágangur
13.45 Nýjar aðferðir í samgöngumálum: „Car free Cities", tilraunir m. breytt fyrirkomulag/nýjan
hugsunarhátt: Ingibjörg R. Guðlaugsdóttir, Borgarskipulagi Reykjavíkur.
14.00 Leiðir til að draga úr umhverfisáhrifum umferðar: Gunnar Ingi Ragnarsson og Reynir
Vilhjálmsson, arkitekt.
14.15 Fyrirspurnir og umræður.
14.30 Kaffihlé.
V Sjónarmið
14.45 Guðrún Ágústsdóttir, forseti borgarstjórnar Reykjavikur.
Gunnar Ingi Birgisson, formaður bæjarráðs KópaVogs.
VI Pallborðsumræður
15.15 Þátttakendur: Halldór Blöndal, samgönguráðherra, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgar-
stjóri í Reykjavík, Helgi Hallgrímsson, vegamálastjóri, Ingvar Viktorsson, bæjarstjóri í
Hafnarfirði og Sigurður Geirdal, bæjarstjóri í Kópavogi.
16.15 Ráðstefnuslit.
Ráðstefnustjóri: Ingimundur Sigurpálsson, bæjarstjóri.
Ráðstefnugjald kr. 4.000.
(matur, kaffi og gögn innifalin).
Þátttökutilkynningar berist til skrífstofu SSH fyrir kl. 15.00 fimmtudaginn 19. óktóber.
Sími 564 1788, fax 564 2988, E mail: jonase-ssh@ismennt.is
■ Kjarvalsstaðir
Hversdagsrómantík
Á laugardaginn klukkan 16 verður
formlega opnuð í Vestursal Kjarvals-
staða sýning á íslenskri samtímalist
sem ber yfirskriftina Eins konar
hversdagsrómantík.
Á síðast liðnum árum hefur verið
lögð áhersla á að veita samtímalist inn
í sýningarsali Kjarvalsstaða. Nú er
efnt til umfangsmikillar myndlistar-
sýningar þar sem sýnd eru verk eftir
þá listamenn sem teljast til yngstu
kynslóðar íslenskra myndlistarmanna.
Hér em á ferðinni 16 ungir listamenn
sem eru í þann mund að skapa sér
rými í íslensku listalífi og margir
þeirra eiga eflaust eftir að marka djúp
spor í íslenska listasögu þegar fram í
sækir, segir í frétt ffá Kjarvalsstöðum.
Þeir listamenn sem eiga verk á sýn-
ingunni em: Birgir Snæbjörn Birgjs-
son, Eygló Harðardóttir, Finnur
Arnar Arnarsson, Guðbjörg Hjart-
ardóttir Leaman, Gústaf Bollason,
Hlynur Helgason, Hulda Hrönn Ág-
ústsdóttir, Lilja Egilsdóttir, Pétur
Örn Friðriksson, Ragna Sigurðar-
dóttir, Sigtryggur Bjami Baldvins-
son, Steinunn Helga Sigurðardóttir,
Valgerður Guðlaugsdóttir, Victor
Guðmundur Cilia, Þorbjörg Þor-
valdsdóttir, Þorri Hringsson. Sýn-
ingarstjóri er Auður Olafsdóttir
listfræðingur.
Sýningin verður opin daglega frá
21. október til 6. desember frá klukk-
an 10 tíl 18. Kaffistofan og safnversl-
un er opin á sama tíma.
§Aðalfundur
FUJ í Reykjavík
verður haldinn 31. október næst komandi klukkan 20.
Fundarstaður: Ingólfskaffi.
Dagskrá: 1. Hefðbundin aðalfundarstörf
2. Kosning stjórnar
3. Önnur mál
Nánar auglýst síðar.
Stjórnin
Ungir jafnaðar-
menn athugið!
Fundur í umhverfisnefnd SUJ í kvöld kl. 20.30.
Fundarefni: Farið yfir niðurstöðu málefnaþinga.
Fundarstaður: Alþýðuhúsið, Hverfisgötu 8-10.
Fjölmennum.