Alþýðublaðið - 19.10.1995, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 19.10.1995, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1995 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7 ■ Norræna húsið Gullsmiðir sýna Á morgun, föstudag, verður opnuð sýning í anddyri Norræna hússins á verkum eftir sex gullsmiði írá Gauta- borg. Hópurinn á það sammerkt að hafa stundað nám í listiðnaði við list- iðnaðarskóla í Gautaborg með gull- og málmsmíði sem sérgrein. Gullsmiðimir sex heita Cecilia Jo- hansson, Margareta Selander, Charlotte Skaiegard, Tore Svens- son, Mona Wallström og Lars As- ling. Á sýningunni eru skartgripir úr ýmsum málmum og segja má að gull- smiðir fari ekki troðnar slóðir í list- sköpun sinni og er margt nýstárlegt að sjá. Sýningin stendur til 5. nóvember og er aðgangur ókeypis. ■ Verðlaunaafhending Gegn kyn- þáttafor- dómum Á morgun verða afhent verðlaun í ritgerðarsamkeppni ungs fólks sem efnt var til í tilefni af átaki Evrópu- ráðsins, Norrænu ráðherranefndarinn- ar og menntamálaráðuneytisins gegn kynþáttafordómum og útlendingaótta. Samkeppnin er liður í samnorrænu verkefni og er hún haldin samtímis á öllum Norðurlöndum. Landsnefnd fs- lands sem stendur að verkefninu fyrir hönd ráðuneytisins og Æskulýðssam- band íslands sem hefur annast þetta tiltekna verkefni standa fyrir verð- iaunaafhendingunni sem fram fer í Norræna húsinu klukkan 16. Formað- ur dómnefndar, Einar Már Guð- mundsson rithöfundur mun gera grein fyrir starfi nefndarinnar. Björn Bjarnason menntamálaráðherra af- hendir verðlaunin, en veitt verða sjö verðlaun. ■ íþrótta- og tómstundaráð Fatlaðir á hestbak íþrótta- og tómstundaráð Reykja- víkur býður fólki sem þarf á sérstakri aðstoð að halda að stunda hesta- mennsku í Reiðhöllinni í Víðidal í vet- ur. Hestamennska og reiðþjálfun hefur margvíslegt gildi fyrir fatlað fólk og má þar nefna jafnvægi, viðbrögð, samhæfingu og styrk vöðva. Gert er ráð fyrir að hver þátttakandi komi í einn eða fleiri tíma í viku til áramóta. Kennslufyrirkomulag verður miðað við getu þátttakenda. Kennsla fer aðal- lega fram í Reiðhöllinni en þó er möguleiki á reiðtúrum úti þegar veður leyfir. Nánari upplýsingar veitir Anna Sigurveig Magnúsdóttir umsjónar- maður námskeiðanna í síma 551 3117. ■ Hörpuútgáfan Draumarn- ir þínir Hörpuútgáfan á Akranesi hefur sent frá sér nýja draumaráðningabók sem ber heitið Draumamir þínir. Það var Þóra Elfa Björnsson sem tók saman efni bókarinnar. Þar er að finna svör við spumingum um merkingu drauma svo sem ást og hamingju, gleði og sorg, liti, tákn og mannanöfn. I formála segir höfundur meðal annars. „Draumar geta verið heillandi og gefið sterka þæginda- og öryggis- tilfinningu. En draumar geta líka verið ógnvekjandi" Bókin er 176 blaðsíður. Bjarni Jónsson listmálari teiknaði kápu og titilsíðu. Oddi annaðist prentvinnslu. Bókin kostar 1.990 krónur. ■ Alþjóðaþingmanna- sambandið Geir vara- forseti Á þingi Alþjóðaþingmannasam- bandsins 12. október í Búkarest var Geir H. Haarde, formaður fs- landsdeildar sambandsins, kjörinn v'araforseti. í september var Geir kjörinn í 13 manna framkvæmda- stjórn sambandsins til fjögurra ára og er fyrsti íslendingurinn til að taka þar sæti. Framkvæmdastjórnin velur varaforseta úr sínum röðum til eins árs í senn. Tillaga um Geir var flutt af fulltrúum Ungverja- lands og Túnis og var hún sam- þykkt einróma. Varaforseti sam- bandsins er aðeins einn og mun ■ Ásgeir Guðmundsson Endurkjör- inn forseti ICEM Á aðalfundi ICEM, International Council for Educational Media, var Ásgeir Guðmundsson for- stjóri Námsgagnastofnunar endur- kjörinn forseti samtakanna til tveggja ára. Hann hefur gengt því embætti frá árinu 1993. ICEM eru alþjóðleg samtök sem vinna að því að efla kennslutækni í skólum og eiga um 30 þjóðir aðild að samtökunum. Þátttaka Náms- gagnastofnunar í samtökunum hef- Ásgeir Guðmundsson ur gert stofnuninni kleift að eiga viðskipti við helstu framleiðendur og dreifiaðila á fræðslumyndaefni á mjög hagkvæmum kjörum. Gleymum ekki geðsjúkum Kiwanismenn selja lykil til styrktar geðsjúkum um allt land 19. til 21. október. Þeir safna að þessu sinni pen- ingum til að kaupa íbúð nálægt Barna- og unglingageðdeild Landspítalans við Dalbraut fyrir foreldra af landsbyggð- inni sem fylgja og taka þátt í meðferð barna sinna. íbúðin verður afhent Geðverndarfé- lagi íslands til eignar og rekin í sam- ráði við geðdeild Landspítalans. Hún kostar um 10 milljónir króna. Það sem kann að safnast umfram það verður notað til að styrkja tvo verndaða vinnustaði á landsbyggðinni. Þar er um að ræða nýja vinnustofu réttargeð- deildarinnar að Sogni og Plastiðjuna Bjarg á Akureyri til að kaupa ný steypumót fyrir fjármerki úr plasti og tölvugrafvél. Kiwanishreyfingin selur nú K-lykil- inn í áttunda sinn. Fé sem safnast hefur fyrri K-daga hefur meðal annars verið notað til að kaupa sambýli fyrir ein- staklinga sem dvalið hafa á geðdeild- um, til uppbyggingar unglingageð- deildar og til Bergiðjunnar. Geir H. Haarde Geir H. Haarde því gegna störfum forseta þegar nauðsyn krefur. Alþjóðaþingmannasambandið hefur starfað frá 1889 og eiga 135 þjóðþing aðild að sambandinu. Al- þingi hefur tekið þátt í starfi þess um áratuga skeið. Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands keypti fyrsta K- lykilinn til styrktar geðsjúkum. Með henni eru á myndinni Kiwanisfélagarnir Guðmundur Péturs- son, Grétar Magnússon og Sverrir Kristjánsson. ■ K-lykill Kiwanis ■ Sýning á Kjarvalsstöðum Einar Sveinsson arkitekt E Á laugardaginn verður opnuð í miðrými og forsölum Kjarvals- staða yfirlitssýning á verkum Ein- ars Sveinssonar arkitekts (1906- 1973). Sýningin er samvinnuverk- efni byggingardeildar borgarverk- fræðings og byggingarlistardeildar Listasafns Reykjavíkur. Fáir einstaklingar hafa með verkum sínum og hugmyndum^átt jafn mikinn þátt í mótun Reykja- vfkur á þessari öld sem arkitektinn Einar Sveinsson. Sérstæð höfund- areinkenni bygginga hans eru í huga margra orðin samgróin hluti af ásýnd höfuðborgarinnar. Hann sótti menntun sína til Þýskalands og árið 1934 var hann ráðinn húsa- meistari Reykjavíkur og gegndi því starfi til æviloka. Auk þess að gera uppdrætti af byggingum hafði Einar yfirumsjón með skipulags- málum Reykjavíkur á árunum 1934 til 1949 og skipulagði ásamt samstarfsmönnum sínum flest bæj- arhverfi sem byggðust upp á þeim tíma. Fyrsta byggingin sem Einar teiknaði á vegum bæjarins var Laugarnesskólinn sem var tekinn í notkun fyrir 60 árum. Af öðrum opinberum verkum má nefna Melaskóla, Langholtsskóla, Heilsuverndarstöðina, Borgarspít- alann, Vogaskóla og Sundlaugarn- ar í Laugardal. Auk þess að teikna opinberar byggingar var Einar Sveinsson merkur brautryðjandi í hönnun íbúðarhúsa. Hann teiknaði fyrstu fjölbýlishúsin með nútíma- sniði við Hringbraut árið 1942 og rúmum áratug síðar hannaði hann fyrsta íbúðarháhýsið í Reykjavík á vegum Byggingarsamvinnufélags prentara. Einar Sveinsson naut alla tíð virðingar fyrir fagmennsku og tæknilega þekkingu en var um- deildur sem listamaður og mátti oft sæta harðri gagnrýni fyrir verk sín. Á sýningunni að Kjarvalsstöðum er leitast við að gefa sem gleggsta heildarmynd af starfi Einars. Sýn- ingarstjóri er Pétur H. Ármannsson arkitekt.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.