Alþýðublaðið - 31.10.1995, Side 1

Alþýðublaðið - 31.10.1995, Side 1
Þridjudagur 31. október 1995 Stofnað 1919 165. tölublað - 76. árgangur ■ Björgun verðmæta er hafin á Flateyri Framkvæmdin til fyrirmyndar -segir Sighvatur Björgvinsson alþingismaður. Sighvatur: Þetta var skelfileg aðkoma. 5, J>að sem ber hæst núna á Flateyri er að það er hafinn annar kafli í þessari björgunarsögu, það er að segja björgun verðmæta. Sú framkvæmd er til mikill- ar fyrirmyndar en tekur auðvitað nokk- um tíma því þetta er mikið verk þar sem húsin em illa farin,“ sagði Sig- hvatur Björgvinsson alþingismaður í samtali við Alþýðublaðið. „Jafnframt þessu er sveitarfélagið farið að huga að framtíðinni. Útgerð hefst nú að nýju og að minnsta kosti einn bátur sendur á sjó í dag (mánudag) en það verður einhver bið á að hinir bátamir fari út. Það er hins vegar lögð mikil áhersla á það af hálfu heima- manna að atvinnulífið komist sem fyrst í gang til þessa að skapa’ sem eðlileg- astar aðstæður. Síðan hefur verið rætt um hvað eigi að gera fyrir það fólk sem missti húsin sín og eins em þama hús á yfirlýstu hættusvæði sem örugglega verður aldrei flutt í. Við erum að tala um tæp- lega helminginn af byggðinni. Flóðið féll á svæði sem var ekki talið hættu- svæði en utar á eyrinni vom hús á skil- greindu hættusvæði sem fólk var flutt úr og ég held að það verði enginn byggð þar. Við emm því að tala um mjög stórt vandamál fyrir þetta litla sveitarfélag," sagði Sighvatur. Hann sagði að þegar væri búið að móta stefnu um að þétta byggðina niðri á eyrinni. Þar væri talsvert af óbyggð- um lóðum sem hægt væri að nýta. Einnig væm nokkrar íbúðir í eldra hús- næði sem hefðu staðið auðar og reynt yrði að gera þær íbúðarhæfar. Því mætti búast við að talsverður hópur fólks gæti fengið búsetu niðri á eyrinni. Hins vegar væri byggingarland þar mjög takmarkað. Aðrir möguleikar hefðu verið ræddir og þar á meðal að fólk, alla vega til bráðabirgða, fengi sér búsetu í nágrannabyggðum. Vandinn við það væri sá að vegurinn um hlíð- ina, ffá vegamótum við Garða og út á Flateyri væri snjóflóðahættusvæði. Ef eitthvað væri að veðri væri veginum lokað og þá væri byggðin á Flateyri einangmð á landi. Þetta ætti einnig við um ef íbúar á Flateyri vildu byggja í landi Holts þar sem væri mikið undir- lendi. Ef fólk þyrfti að sækja vinnu til Flateyrar lokaðist vegurinn í snjóum. Sighvatur fór til Flateyrar á laugar- daginn og var spurður hvemig aðkom- an hefði verið. „Þetta var skelfileg að- koma. Bæði kom það á óvart hvað flóðið hafði fallið langt niður eftir og hvað vamarvirkin fýrir ofan byggðina hafa dugað lítið. Húsin er mjög illa brotin og lfldegt er talið að loftbylgjan á undan flóðinu hafi splundrað húsun- um og flóðið síðan fært þau í kaf. Þetta var eins og sprenging." Sighvatur Björgvinsson sagðist hafa orðið var við ugg í bijóstum Vestfirð-" inga í kjölfar snjóflóðsins á Flateyri. „Ég var veðurtepptur á Patreksfirði þegar þetta dundi yfir. Fólk sem á ætt- ingja á Patreksfirði en býr annars staðar hringdi þangað miður sín af hræðslu. Þessir atburðir hafa mikil áhrif á fólk á öllum Vestfjörðum og ég er hræddur um að margir í þessum byggðarlögum verði órólegir næst þegar snjór byijar að falla,“ sagði Sighvatur Björgvins- son. nuna Ljóðlmuskip er heiti á áttundu ljóða- bók Sigurðar Pálssonar, en hún kom nýlega út hjá Forlaginu. Alþýðublaðið náði tali af skáldinu og forvitnaðist um þessa nýju ljóðabók. Að hvaða leyti þessi bók er ólík fyrri Ijóðabókum þfnum, eða er hún kannski ekki ólík þeim? „Eg vona að hver og ein þeirra sé sérstök, en jafnframt vona ég að með þeim sé einhver ættarsvipur. I stuttu máli vona ég að annars vegar verði vart þróunar og hins vegar að þróunin sé óslitin. Það er að segja að þar ríki sí- breytileiki en jafnframt staðfesta, eins og mér skilst að sé nauðsynlegt við siglingar. Allar öldur em einstakar, en samt er hafið bara eitt. Eg dái og dýrka margbreytileikann, hreyfinguna, en jafnframt eininguna, heild heimsins. Annars rakst ég nýlega á skilgreiningu spænska ljóðskáldsins og Nóbelsverð- launahafans Vicente Aleixandre á eig- in ljóðagerð. Ég æpti upp yfir mig, vegna þess að þetta er eins og talað út úr mínu hjarta: „Ljóðagerð mín er þrá eftir ljósinu. Hún er viss aðferð, hún er stfll á hreyfmgu. I henni er órofin þró- un“. Betur get ég ekki sagt þetta.“ Þú varst að tala um hafið. Kemur það mikið við sögu íIjóðunum? , Já, þar er tilfmning fyrir hafinu og siglingu, kannski eins konar úthafstil- finning. Annars er grunnur bókarinnar stöðug sigling, frá landi og að landi í nýja höfn, sigling frá fæðingu til kveðjustundar, sigling sem jafnframt er eih'f leit mannsins að merkingu, til- gangi, ást.“ En er þig ekki farið að langa til að skrifa skáldsögu? , J>að getur vel farið svo að ég gangi frá því sem hefur verið að mótast í þeim efnum, og geri það fyrr en síðar.“ ■ Sigurður Pálsson gerir út Ljóðlínuskip Leit að merkingu, tilgangi, ást Milli minningar og vonar er þetta líf Ljóðagerð mín er þrá eftir Ijósinu", segir Sigurður Pálsson. Bláar dyr inn í nafn þitt I draumrofunu Bláir gluggahlerar Perlufesti ljósastaura út með umlandi strönd sem liggur í mjúkri sveigju Mjúk er sveigjan Ljós verður hörund Pcrluhvítt bros I Verkamannasambandið samþykkir uppsögn kjarasamninga Samningar lausir um áramót segir Bjöm Grétar Sveinsson formaður VMSÍ. „Þingið samþykkti einróma að skora á launanefnd og verkalýðs- félögin að segja kjarasamningum upp. Það voru engin mótatkvæði á þessu 150 manna þingi þannig að viljinn leyndi sér ekki. Menn hafa nóvembermánuð til að ganga frá uppsögn þannig að samningar verði lausir um árarnót," sagði Björn Grétar Sveinsson formað- ur Verkamannasambands íslands í samtali við blaðið. Á 18. þingi VMSÍ sem lauk um síðustu helgi voru kjaramál mjög til umræðu. í ályktun um þau mál segir að grundvallarkrafa við nýja samningagerð eigi að vera sú að krefjast verulegrar hækkunar lægstu launa, ásamt fullri trygg- ingu fyrir því að sá kaupmáttur haldi sem samið verði um. Bregð- ist ríkisstjórn og atvinnurekendur ekki við sanngjörnum kröfum verkalýðshreyfingarinnar um end- urskoðun kjarasamninganna beri þeir ábyrgð á því sem kunni að gerast á vinnumarkaði næstu vik- ur. Þingið lýsir furðu sinni á því hvað atvinnurekendur og stjórn- völd leggja litla áherslu á barátt- una gegn atvinnuleysi eins og sjá megi í fjárlagafrumvarpinu. Þá er bent á þá augljósu staðreynd að laun hér á landi eru mun lægri en í nálægum löndum. Lág laun og afkomuvandi heimilanna sé orð- inn slíkur að vaxandi fjöldi fólks telji einu undankomuleiðina að flytjast búferlum til nágranna- landa. Þess er krafist að íslenskir atvinnurekendur greiði jafn há laun fyrir dagvinnu og sams kon- ar fyrirtæki í nágrannalöndum. „Auk kjaramála risu umræður um atvinnumálin hátt á þinginu eins og undanfarin ár. Við eigum ákveðin auðæfi í þessu landi og viljum vinna sem mest úr þeim áður en þau eru send úr landi. Með því að auka fullvinnslu af- urða og markaðssetningu er hægt á tiltölulega skömmum tíma að auka verðmætasköpun innanlands verulega og fjölga þannig störfum og auka kaupmátt," sagði Björn Grétar. I ályktun um skattamál segir meðal annars að hækka beri skatt- leysismörk í 70 þúsund krónur. Afnema eigi tekjutengingar í skattkerfinu og skattleggja eigna- tekjur eins og aðrar tekjur. Björn Grétar Sveinsson var ein- róma endurkjörinn VMSÍ til næstu tveggja ára og Jón Karls- son á Sauðárkróki var endurkjör- inn varaformaður til sama tíma. Hervar Gunnarsson á Akranesi var kjörinn ritari og Sigríður ÓI- afsdóttir í Dagsbrún var kjörin gjaldkeri. Þau fjögur skipa veiga- mestu embættin í níu manna framkvæmdastjórn VMSÍ. Birgir Hermannsson um biðstofuliðið Jón Kjartansson um húsnæðiskerfið Hrafnkell Ásgeirsson um fertugan Guðmund Árna Kolbrún Bergþórsdóttir um kynlega kynórabók

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.