Alþýðublaðið - 01.11.1995, Blaðsíða 6
6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 1995
■ Ráðstefna í Murmansk
Fjölmenni frá
íslandi
Nú stendur yfir í Murmansk í Rúss-
landi fjögurra daga fjárfestinga- og •
viðskiptaráðstefna þar sem lögð er
megináhersla á þau tækifæri sem eru
til staðar á Kolaskaga. I framhaldi af
boði Andrei Kozyrevs utanríkisráð-
herra Rússlands höfðu utanríkisráðu-
neytið og Útflutningsráð forgöngu um
þátttöku 26 fulltrúa fyrirtækja.'hags-
munaaðila, Útflutningsráðs og opin-
berra aðila í þessari ráðstefnu. Einnig
verða til staðar þrír fulltrúar sendiráðs
íslands í Moskvu.
Þetta mun vera ein fjölmennasta
viðskiptasendinefnd frá íslandi sem
sótt hefur slíka ráðstefnu. Fyrir sendi-
nefndinni fara þeir Helgi Ágústsson
ráðuneytisstjóri og Jón Ásbergsson
framkvæmdastjóri Útflutningsráðs. Á
ráðstefnunni gefst fulltrúum fyrirtækja
kostur á að stofna til viðskiptasam-
banda, að kynna sér sjávarútveg, mat-
vælaframleiðslu, fyrirkomulag vöru-
flutninga með skipum og margt fleira
á Kolaskaga.
■ Víkingalottó
Tvöfaldurog
aukapottur
Það verður mikið um dýrðir í Vík-
ingalottóinu í kvöld. Fyrsti vinningur
er tvöfaldur og er hann áætlaður vel
yfir 120 milljónir króna. Auk þess
verður dregið um aukapott sem verður
58 milljónir króna.
Fyrirkomulagið verður þannig að
fyrst verður dregið í venjulega pottin-
um sem nú er tvöfaldur. Að þeim út-
U.S.A. IMMIGRATION VISA
(GREEN CARD) LOTTERY 1997
If you have not been selected in the past, this
is your chance to be registered in the next Green Card
Lottery for the year 1997.
Only the first 3000 applicants, will receive a
registration form. Your name will be regestered for the
coming 3 consecutive years or until your native country
is exduded from the program, which ever comes first.
ILA is also offering FREE airfine tickets to America to a
number of selected winners.
For more information about the Permanent
Resident Visa Lottery (Green Card) and registration
form, send your name and address to:
IMMIGRANTS LOTTERY AGENCY
6220 LAGUNA PARK DRIVE
ELK GROVE, CALIFORNlA 95758
PHONE: (916)684-7241 FAX: (916)684-7340
Your name and address must be written clearly in English.
TÓNLEIKAR
í Háskólabíói fimmtudaginn 2. nóv. kl 20.00
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSIANDS
OG IB LANZKY-OTTO
Þorkcll Sigurbjörnsson kynnir efnis-
’\y/CÍA/ skránna kl. 19.00 í tónleikasalnum
JosefHaydn: Sinfónía nr. 103
W. A. Mozart: Hornkonsert nr. 2
Þorkell Sigurbjörnsson: Rúnir,
konsert fyrir horn og hljómsveit
Béla Bartók: Dansasvíta
SÍNFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS
Háskólabíói vib Hagatorg, sími 562 2255
MIÐASALA Á SKRIFSTOFU HL]ÓMSVEITARINNAR 0C VlÐ INNGANGINN
drætti loknum verður dregið aftur en
þá eingöngu um aukapottinn. I auka-
útdrættinum verður aðeins einn vinn-
ingsflokkur, það er sex réttar tölur. Ef
enginn á Norðurlöndum er með sex
tölur réttar verður dregið aftur um
aukapottinn miðvikudaginn 8. nóvem-
ber. Mögulegt er að vinna í báðum út-
dráttum á sama miðann. Framlagið í
aukapottinn er sameiginlegt framlag
norrænu fyrirtækjanna sem standa að
rekstri Víkingalottósins. Fyrri útdrátt-
ur verður sýndur í Sjónvarpinu klukk-
an 20.45 í kvöld og sá seinni strax á
eftir.
Tár úrsteini í
Óskarinn
Tár úr steini, kvikmynd Hilmars
Oddssonar, hefur verið vaiin fram-
lag ísiands til bandarísku Óskars-
verðiaunanna, það er þess hluta
þeirra sem kýs bestu erlendu kvik-
myndina. Atkvæðagreiðslan fór á
sérstakri samkomu allra félaga ís-
lenskra kvikmyndagerðarmanna.
Tiikynnt verður um endaniegar til-
nefningar bandarísku kvikmynda-
akademíunnar í febrúar. Tár úr
steini er sýnd í Stjörnubíói og hafa
yfir 12.500 manns sótt sýningu
myndarinnar.
■ Jólabækur Hóla á Akureyri
Þjóðlegur fróðleikur
og prestasögur
Tvær sögur úr Þeim varö á ímessunni
Séra Sigurður Pálsson vígslubiskup hafði mjög ákveðnar skoðanir á pól-
itík og var dálæti hans á framsóknarmönnum lítið. Einhverju sinni kom Sig-
urður Einarsson í Holti í heimsókn til nafna síns og gekk Pálsson þá sem
ákafast um gólf og úthúðaði framsóknarmönnum. Fór svo að séra Sigurði í
Holti ofbauð og spurði: „Heyrðu nafni, heldurðu annars að framsóknar-
menn geti orðið sálu-
hólpnir?"
„Ég veit það ekki,"
svaraði Hraungerðis-
klerkur, „en guðs mis-
kunn er óendanleg."
Magnús Oskarsson
lögmaður mætti
Baldri Vilhelmssyni
prófasti í Vatnsfirði,
eitt sinn í skeifunni fyr-
ir framan Háskóla Is-
lands en þeir voru þar
báðir við nám. Það var
asi á Baldri og mátti
hann ekkert vera að
því að ræða við Magn-
ús.
Ég er að fara upp í
kapellu að fá mér
eina bæn," sagði
Baldur óðamála og
hraðaði för sinni.
Sigurbjörn Einarsson biskup, en sagt er frá
heimsókn hans í Þingeyjarsýslu í bókinni Þeim
varð á í messunni.
Bókaútgáfan Hólar á Akureyri
sendir frá sér tvær bækur um þessi
jól.
Falsarinn og dómari hans eru
fimm þættir úr fortíð eftir Jón
Hjaltason sagnfræðing. I fyrsta þætt-
inum leitar Jón sannleikans um Þor-
vald Schovelin, sem Björn Th.
Björnsson gerði víðfrægan í bók
sinni Falsaranum.
Annar þáttur bókarinnar nefnist
Biddu Guð að gera þig blindan, en
það er saga hins vellauðuga Jóns Sig-
urðssonar á Böggvistöðum, manns-
ins sem treysti konu sinni betur en
sjálfum sér. Engu að síður óskaði hún
bónda sínum þess að guð slægi hann
blindu.
Trippin d Grjótlækjarskdl segir frá
ógnþrungnum atburðum er urðu
haustið 1870 þegar hestastóð úr
Skagafirði týndist. Fljótlega voru
tveir Öxndælir handteknir, grunaðir
um að hafa drepið hrossin - en vom
þeir sekir eða SEÚdausir?
Þegar Snorra var bannað að veiða
þorsk segir hina stórfurðulegu sögu af
því þegar Snorri Pálsson, hinn fram-
farasinnaði verslunarstjóri á Siglu-
firði, viidi efla þorskveiðar Eyfirð-
inga en mátti fyrir vikið sæta ákæru
ríkisvaldsins.
Fimmti og síðasti þátturinn Hd-
karlinn er ekki hörundsár er nánast
sálfræðitryliir og fjallar um sálarang-
ist frægasta skálds Islendinga, séra
Matthíasar Jochumssonar, og
hvemig hún sumarið 1888 þrýsti hon-
um til að segja þjóðinni ósátt.
Seinni bókin sem bókaútgáfan
Hólar senda frá sér um þessi jól nefn-
ist Þeim varð d ( messunni. Er það
safn hundruða gamansagna um ís-
lenska presta. Efni hefúr verið dregið
að úr öllum fjórðungum með þeim ár-
angri að landsmönnum mun hér birt-
ast annars konar sýn á klerka sína en
þeir hafa haft hingað til. Prestarnir
Birgir Snæbjörnsson á Akureyri,
Hannes Örn Blandon í Laugaiands-
prestakalli, Hjálmar Jónsson þing-
maður og Pétur Þórarinsson í Lauf-
ási keppast við að gera grín að sjálf-
um sér. Óborganleg tilsvör prestanna
Péturs. Þ. Ingjaldssonar í Húna-
vatnssýslu, Arnar Friðrikssonar á
Skútustöðum og Baldurs Vilheims-
sonar í Vatnsfirði lífga upp á hvers-
dagsieikann. Hinar bráðsnjöllu sögur
af Bjarna Jónssyni dómkirkjupresti
eru hér loks aðgengilegar á einum
stað, sumar þeirra hafa aldrei fyrr
birst á prenti. Fjölmargir aðrir klerkar
eru í brennipunkti. Má þar nefna
doktor Jakob Jónsson, Pétur Magn-
ússon í Vallanesi, Róbert Jack,
Björn Jónsson á Húsavík, þá Kol-
beins feðga; Halldór og Gísla, og
biskupsfeðgana; Sigurgeir og Pétur,
að ógleymdum Skagafjarðarklerkum;
séra Hallgrími í Glaumbæ og séra
Lárusi á Miklabæ. Hér segir af heim-
sókn herra Sigurbjörns Einarssonar
biskups norður í Þingeyjarsýslu, af
séra Jakobi. Á Hjálmarssyni dóm-
kirkjuklerki, séra Karii V. Matthías-
syni, séra Sigurði Ægissyni, séra Ár-
elíusi Níelssyni og af svarfdælskum
klerkum; fer þar fremstur séra Stefán
Baldvin Kristinsson á Völlum. Og
eru þá ekki taldir nema örfáir af þeim
mikla sæg íslenskra klerka sem sagð-
ar eru sögur af.
•AMHUGUR
ÍVERKl
Leggðu þitt al ntörkum
inn á bankareikning nr.
1183-26-800
í Sparisjóði Önundaríjarðar
á Flateyri.
tlægt cr að leggja inn á rcikninginn í öllum
bönkuni, sparisjóðum og pósthúsum á latidinu.
LANDSSÖFNUN
VEGNA
NÁTTÚ RUHAMFARA
Á FLATEYRI
Allir fjölmiðlar landsins. Pöstur og sími.
Hjálparstofnun kirkjunnar og Kattði kross íslands.