Alþýðublaðið - 08.11.1995, Page 1

Alþýðublaðið - 08.11.1995, Page 1
■ Amnesty á Islandi minnist 12 ára baráttumanns sem var myrtur í Pakistan Akall gegn barnaþrælkun Félagar í fslandsdeild Amnesty Int- emational, sem starfað hafa að máli Iq- bal Masih um nokkurt skeið, hafa látið prenta póstkort með mynd af honum ásamt ákalli til ríkisstjóm- ar Pakistans. Foreldrar drengsins seldu hann í þrældóm árið 1986, en þá var hann fjögurra ára gamall. Árið 1992 fræddist Iqbal um rétt- indi sín og í framhaldi af því neitaði hann að snúa aftur til „eig- enda sinna“ og gerðist baráttumaður gegn þræla- haidi barna. Sunnudaginn 16. apríl var Iqbal skot- inn til bana. Að mati Amnesty Intema- tional ber morðið keim af samsæri voldugra viðskiptafjölskyldna, stjóm- málahópa og lögregluyfirvalda staðar- ins, enda er að finna önnur fordæmi um hótanir og morð frá þessum aðil- um. Amnesty International skorar á ríkisstjóm Pakistans að vinna að vemd- un bama og allra þeirra sem berjast gegn bamaþrælkun og draga þá sem myrtu Iqbal Masih fyrir rétt svo og þá sem skipulögðu morðið. Þeir sem vilja leggja Amnesty International lið í þessu máli em hvattir til að koma mót- mælum sínum á framfæri við forsætis- ráðherra Pakistans, Benazir Bhutto. Kortin er hægt að nálgast á skrifstofu íslandsdeildar Amnesty Intemational, Hafnarstræti 15, Reykjavík. Einnig liggja kortin frammi á ýmsum kaffi- húsum borgarinnar. ■ Virkjanir vegna stækkunar álversins Iqbal litli var seldur í þrældóm, fjögurra ára gamall. Tíu ára hóf hann baráttu gegn barnaþrælkun en var myrtur í vor. Kosta 2,5 milljarða Með ákvörðun Alusuisse-Lonza um að ráðist verði í stækkun álversins í Straumsvík er ljóst að öll umframorka í kerfi Landsvirkjunar fullnýtist þegar stækkunin verður gangsett. Landsvirkj- un hefur því ákveðið að hefja virkjunar- ffamkvæmdir sem kosta munu 2,5 millj- arða króna og kalla á 440 ársverk til aldamóta. Þar af eru 260 ársverk á næstu tveimur ámm. Þær ífamkvæmdir sem Landsvirkjun ræðst í vegna stækk- unar ISAL em stækkun Blöndulóns, 5. áfangi Kvíslaveitu og 35 MW aflaukn- ing í núverandi Búrfellsstöð, auk þess sem settir verða upp raðþéttar í há- spennulínur. Orkuþörf hins nýja ker- skála álversins verður um 947 GW stundir á ári og aflþörfm um 110 MW. Til samanburðar má geta þess að heild- arraforkusala Landsvirkjunar í fyrra nam um 4.250 GW stundum. Á fundi í gær samþykkti stjóm Landsvirkjunar þær breytingar á orkusölusamningi milli Landsvirkjunar og ISAL sem gera á vegna stækkunar álversins. Gert er ráð fyrir að orkusala vegna stækkunarinnar hefjist í árslok 1997 og að samningurinn gildi til ársins 2014, en þá verði til stað- ar gagnkvæm heimild til framlengingar um 10 ár til viðbótar. Umsamið orku- verð úl stækkunarinnar ræðst á hveijum tíma af verði áls á alþjóðamarkaði. Gert er ráð fyrir að það orkuverð gildi einnig fyrir verksmiðjuna í heild ffá 1. október árið 2004. Samkvæmt frétt frá Lands- virkjun er samningurinn mjög hagstæð- ur jafhvel þótt heimsmarkaðsverð á áli verði mun lægra í framtíðinni en nýjustu álverðsspár gera ráð fyrir. ■ Landsfundur Kvennalistans um næstu helgi Skiptar skoðanir - segir Kristín Ástgeirsdóttir alþingismaður. ,,Ef það verður rifist um eitthvað á landsfundinum þá verður það helst um þessi framtíðarmál. Það eru ákaf- lega skiptar skoðanir á því hvernig beri að halda áfram. Hvort Kvenna- listinn eigi að halda áfram með óbreyttum hætti, taka upp samstarf við aðra eða breyta um baráttuaðferð- ir,“ sagði Kristín Ástgeirsdóttir al- þingismaður í samtali við blaðið. Landsfundur Kvennalistans verður haldinn að Nesjavöllum um næstu helgi undir yfirskriftinni: Kvennapól- itík - hvað nú? Búist er við að hátt í eitt hundrað konur sæki fundinn en rétt til setu þar hafa allar konur sem skráðar eru félagar í Kvennalistanum. „Við munum meta stöðuna. Hvar íslensk kvennabarátta er stödd, hvar Kvennalistinn er staddur í þeirri bar- áttu og hvemig eigi að halda áfram. Ég á von á að það verði mikil og fijó umræða um þetta allt saman. Þá er ákveðinn hópur sem vill ræða út- skiptaregluna því umræðum um hana lauk ekki á síðasta kjörtímabili. En ég lít nú svo á að það sé ekki 'mál sem brennur á okkur. Það er miklu um framtíðamnál brýnna að ræða hvar við stöndum og hvemig við viljum halda áfram. Þessi samvinnu- og sameiningarmál verða án efa upp á borðinu en hins vegar á ég ekki von á að ákvarðanir teknar um þau mál á landsfundinum. Ég reikna með að við tökum okkur góð- an tíma í að skoða þetta, enda höfum við tíma fram að næstu sveitarstjóm- arkosningum," sagði Kristín Ást- geirsdóttir. Kristín: Ræðum um hvar við stöndum. ■ Norðmenn og Rússar herða kröfurnar í Smugudeilunni ■ Stækkun álversins í Straumsvík - Iðnaðarráðu- neytið tók frumkvæði að viðræðum í febrúar Ólöf Kolbrún Harðardóttir í hlutverki hinnar ógæfusömu Madame Butterfly sem að lokum kýs að deyja fremur en lifa án mannsins sem hún elskar. íslenska óperan frumsýnir þessa há- dramatísku óperu Puccinis á föstudagskvöld. mynd E.ÓI. - segir Sighvatur Björgvinsson fyrrverandi iðnaðarráðherra. „Ég fagna þessari niðurstöðu um stækkun álversins. Þetta sýnir að það var kórrétt sú ákvörðun sem við tók- um í febrúar að íslendingar hefðu frumkvæðið að því að reyna að knýja þessa lausn fram, sagði Sighvatur Björgvinsson fyrrverandi iðnaðarráð- herra í samtali við blaðið um stækkun álversins. „Þá tók ég þá ákvörðun lfka að láta þá menn vinna að þessu sem hafa mesta reynslu í þessum samningum og eru vel þekktir meðal álmanna, einkum og sér í lagi þeir Jóhannes Nordal og Geir Gunnlaugsson. Nú- verandi ráðherra hefur haldið áfram eftir sömu línum og það hefur borið árangur. Ég er mjög ánægður með það“, sagði Sighvatur. Þegar Sighvatur ákvað í febrúar að Islendingar tækju frumkvæðið í við- ræðum um stækkun álversins var hann mjög varkár í öllum yfirlýsingum um hvort af stækkun yrði. En var hann þá strax vongóður urn að málið gengi upp? „Það gat maður aidrei vitað. Það voru vangaveltur í gangi um hvort þeir meintu þetta í alvöru eða hvort þeir væru að hugsa um að varðveita sína stöðu sem fyrstir í biðröðinni. Þetta gat því brugðið til beggja vona og gat það allan tímann. En það er enginn vafi á að þessi kostur að stækka ÍSAL er hagkvæmasti kostur sem til er í heiminum núna um aukna álífamleiðslu ef menn leggja út í það á Sighvatur: Gat brugðið til beggja vona. annað borð. En ég þakka þessa lausn ekki síst þeim embættismönnum sem hafa verið í þessum samningum fyrir iðnaðarráðuneytið bæði í minni tíð og nú. Þeir hafa unnið mjög gott verk. Ég taldi það rétt og tel það einnig rétt af Finni Ingólfssyni, að ráðherrar væru heldur til hlés meðan embættismenn væru að vinna að málinu. Finnur var mjög varkár í yfirlýsingum meðan unnið var að málinu og ég tek ekki undir gagnrýni á að hann opinberaði þetta á ríkisstjórnarfundi fyrir skömmu. Það er eðlilegt að ráðherra geri ríkisstjórn grein fyrir því þegar samningar eru að nást,“ sagði Sighvat- ur Björgvinsson. Þetta var kórrétt ákvörðun Litlar líkur á samn Svo virðist sem mikil tregða sé hjá Rússum og Norðmönnum að veita Is- lendingum veiðiheimildir svo nokkru nemi í Smugunni. Samkvæmt heim- ildum Alþýðublaðsins reyna fulltrúar íslenskra stjórnvalda að toga veiði- heimildir upp fyrir 10 þúsund tonn á ári í samningaviðræðum embættis- manna landanna, en árleg veiði ís- lenskra togara f Smugunni hefur ver- ið um 30 þúsund tonn á ári. í fréttum Sjónvarpsins í fyrrakvöld sagði að samkvæmt heimildum fréttastofunnar vildu Rússar ekki veita Islendingum nema átta þúsund tonna kvóta í Smugunni auk viðbótar að uppfylltum vissum skilyrðum. Þá yrði íslenskum togurum bannað að nota flottroll við veiðamar. Þegar Alþýðublaðið bar þessa frétt undir Kristján Ragnarsson formann LÍÚ kvaðst hann ekkert hafa um mál- ið að segja. Honum hefði verið skýrt frá gangi samningaviðræðna í trún- aði. „Það er enginn samningur kominn og þær tölur sem menn hafa verið að þreifa fyrir sér með eru alls ekki end- anlegar. Mér fannst þessi frétt Sjón- varpsins skot út í loftið en menn hafa verið að kasta milli sín tölum sem engin sérstök innistæða hefur verið á bak við. Um tíma voru menn með tölur sem er ljóst að voru langt frá því sem Norðmenn og Rússar geta samþykkt," sagði Steingrímur J. Sigfússon alþingismaður og fulltrúi í sjávarútvegsnefnd Alþingis í samtali við blaðið. En þurfum við að semja við Rússa og Norðmenn um þessar veiðar? „Það er auðvitað spurningin. Menn geta vissulega deilt um það. Alla vega hljóta að vera einhver neðri mörk í því sem borgar sig tyrir okkur ingum að fara frekar en að gera þá bara eng- an samning og halda þessum veiðum áfram. Hvert árið sem við eru að veiða þarna fyrir marga milljarða króna skiptir miklu máli. En menn hafa kannski verið að velta fyrir sér möguleikum að ná heildarsamkomu- lagi um þessi deilumál,“ sagði Stein- grímur J. Sigfússon. Samkvæmt heimildum Alþýðu- blaðsins er talið ólíklegt að samning- ar náist um Smuguveiðar fslendinga eins og staðan í viðræðunum fulltrúa íslendinga, Norðmanna og Rússa er nú.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.