Alþýðublaðið - 08.11.1995, Qupperneq 5

Alþýðublaðið - 08.11.1995, Qupperneq 5
MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 1995 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5 gismann engur il? „Aftur og aftur kemur það fram að Jón Baldvin virðist hafa haft fest trú á þetta kerfi, sov- étkerfið á ung- um aldri. Það eru athyglis- verðar upplýs- ingar," segir Svavar Gests- son í öðrum hluta greinar sinnar. Hvor er betri/verri, Marx eða Crosland? Hann segir að háskólaár hans hafi farið mestan part í að aflæra hindur- vitnin sem menningarvitar íslenskra sósíalista höfðu innrætt ungum fslend- ingum í nafni háleitra hugsjóna og rót- tækni. Aumingja kallinn! Hann segir að hann hafi bjargast í land af því að hann las bók eftir C.A.R. Crosland um framtíð jafnaðarstefnunnar. Eftir því sem Jón lýsir bókinni þá dreg ég það mjög í efa að hann hafi nokkun tíma lesið hana. Ég lagði það hins vegar á mig að lesa hana. Jón Baldvin er skemmtilegri rit- höfundur en Crosland. Gallinn við bók Croslands er meðal annars sá að hann taldi að þjóðfélag hins blandaða hag- kerfis væri end- anlega fullkomið þjóðfélag með velferðarkerfi sem myndi stöð- ugt fara vaxandi á næstu árum og áratugum með stórvaxandi tekj- um og að aðal- vandi þessa þjóð- félags yrði ekki atvinnuleysi heldur stórvax- andi verðbólga. Svona sá Crosland fram- tíðina: „Full at- vinna hefur kom- ið í stað atvinnu- leysis. óstöðugleiki er minni, hagvöxt- ur er meiri... Og það er mín skoðun að vöxturinn muni halda áfram og að framtíðin muni fremur einkennast af verðbólgu en af atvinnuleysi." Cros- land telur kenningar Marx úr sér gengnar þá strax fyrir fjörutíu árum; einkum kenningar hans um hmn kap- ítalismans. Sú kenning byggðist, eins og kunnugt er, á því að með þróun hins kapítalíska þjóðfélags yrði fjöld- inn stöðugt fátækari og fátækari uns aðstaða hans yrði óþolandi og hann væri neyddur til þess að grípa til þess að gera byltingu, beita valdi fremur en að bíða eftir þeim úrræðum sem unnt væri að knýja fram með kosningum. Það hefur komið í ljós að kenninga- smiður Jóns Baldvins hefur semsé að flestu leyti haft rangt iyrir sér. I fyrsta lagi viðurkenna allir í dag að vöxtur- inn getur ekki haldið áfram óhindrað- ur, eins og Crosland spáði. Afram- haldandi hagvöxtur í heiminum eins og sá hagvöxtur sem verið hefur síð- ustu áratugi mun kaffæra heims- byggðina í mengun og umhverfis- vanda. I öðru lagi liggur fyrir að at- vinnuleysið hefur farið vaxandi en verðbólgan minnkandi og að atvinnu- leysið hefur ekki minnkað þó að hag- vöxturinn hafi aukist. Kapítalisminn hefur að vísu ekki hrunið eins og Marx spáði, en hann hefur molnað niður hægt og bítandi. I dag er kapítal- isminn hvergi í framkvæmd hreinn og ómengaður. Alls staðar hafa mennimir gripið inn í og lagað umhverfið með félagslegum aðgerðum af einhverju tagi. Það viðurkenna allir að hreinn kapítalisminn er ekki framkvæman- legur. Það er jafnframt ljóst að haldi at- vinnuleysið áfram að vaxa er hætta á því að samfélag okkar farist sem slfkt hvaða merkmiða sem það hefur á sér - kapítalisma eða eitthvað annað. Sú þjóðfélagsgerð sem byggist á því að helmingur þjóðar lifi í vellystingum en hinn helmingurinn sé á hungurstig- inu - sú þjóðfélagsgerð hlýtur að hrynja. Þetta við- urkenna allir. Þess vegna er næsta víst að þjóðir Vestur- landa verða fyrr en seinna að grípa til sértækra aðgerða sem trufla framrás markaðarins til þess að halda uppi atvinnu. Einn aðalvandi Alþýðuflokksins á seinni árum er að mínu mati einmitt sá að hann hefur gert of lítið til þess að halda niðri at- vinnuleysinu. Hann var of kærulaus gagn- vart atvinnuleys- inu og atvinnu- leitendum. Hann fæst ekki til að viðurkenna þá staðreynd að at- vinnuleysið er glæpur sem við berum öll saman ábyrgð á en ekki bara hinn atvinnulausi. f kverinu bendi ég á þennan veru- leika og á ýmsar leiðir til þess að draga úr atvinnuleysi. Ég segi ekki að það sé auðvelt að afnema atvinnu- leysi. Atvinnuleysi er að einhverju leyti óhjákvæmilegur fylgifiskur markaðshagkerfisins. Sem andsvar við því em tvær leiðir færar; önnur er virk atvinnustefna stjórnvalda og hin er gott þjónustukerfi við atvinnulaust fólk sem gerir því kleift að standa upprétt á hverjum tíma. Hvorugu sinnti Alþýðuflokkurinn í síðustu rík- isstjóm. Og að lokum til skemmtunar um Crosland sem segir ennfremur í bók sinn, bls. 7: „í dag hefur kapítalíska viðskiptastéttin tapað stjórnunarað- stöðu sinni.“ Hvílfk blinda: Aldrei hefur kapítalíska viðskiptastéttin haft önnur eins völd og um þessar rnundir því að hið almenna kapítalíska samfé- lag árið 1995 er borið uppi af við- skiptastéttinni. Er vandséð hvor er fjær raunveruleikanum í dag Karl Marx eða Anthony Crosland; nema Marx sé frekar vorkunn af því að hann var uppi á síðustu öld, en Crosland er lærifaðir Jóns Baldvms Hannibalsson- ar að hans eigin sögn seint á tuttug- ustu öldinni. Mér sýnist þetta allt sýna að Jón Baldvin hafi á ungum aldri fest trúnað á kenningar sem voru að minnsta kosti jafnvitlausar og þær sem hann þykist hafa yfirgefið. Bók Croslands er ágæt greining á þjóðfélagi og þjóðfélagsviðhorfum breskra sósíalista og margt í þeirri bók er þannig að ég er sammála því en ég dreg hins vegar í efa, eins og áður seg- ir, að Jón Baldvin Hannibalsson hafi nokkurn tíma lesið þessa bók. Auk þess em sumar kenningar bókarinnar arfavitlausar eins og sýnt hefúr verið fram á. Það skiptir hins vegar ekki máli. Núna er Jón Baldvin þeirrar skoðunar að þessi bók, sem hann las kannski aldrei eða að minnnsta kosti illa, hafi bjargað honum úr andlegum hafvillum. Ég, segir hann, var komm- únisti; ég var félagi í Alþýðubandalag- inu. En ég skipti um skoðun. Og hann talar eins og nýfrelsaður heilagsanda- hoppari: „Það er deginum ljósara að lífsskoðun og sannfæring íslenskra kommúnista og jafnaðarmanna voru eins og dagur og nótt. Merkingarlaust hugtakamoð eins og „sameining vinstrimanna" og „félagshyggjuafla" gat ekki breitt yfir það. Jón Baldvin átti ekkert erindi í flokkinn með Magnúsi Kjartanssyni, né með Svav- ari Gestssyni ritstjómarfulltrúa hans.“ Ó, hallelúja. Þökk sé Kjartani Ólafssyni Hérna er óhjákvæmilegt að gera nokkrar sögulegar athugasemdir. Jón Baldvin Hannibalsson sótti það af mikilli hörku að verða þingmaður þessa vonda Alþýðubandalags 1967; eftir að sinnaskiptin höfðu átt sér stað að hans sögn í dag. Ég tel því að greinar Jóns upplýsi ekki aðeins að hann hafi lesið Anthony Crosland illa heldur hafi hann kosið að gleyma sinni eigin sögu því hann og félagar hans sóttu það mjög fast að Jón Bald- vin yrði meðþingmaður hins vonda Magnúsar Kjartanssonar á Alþingi 1967. Um það varð mikill ágreiningur í Alþýðubandalaginu í Reykjavík á þeim tíma. Andstæðingar Jóns Bald- vins Hannibalssonar í þeim átökum vom ekki Magnús Kjartansson, Guð- mundur Hjartarson né Lúðvfk Jóseps- son. Þeir vom allir hlynntir því að Jón Baldvin yrði í öðm sæti framboðslist- ans. Að ekki sé minnst á Guðrúnu Helgadóttur sem henti frá sér flokks- skírteininu þegar hún sá hvað verða vildi á Tónabíósfundinum fræga. Nei, staðreyndin er sú að þeir Jón Baldvin og félagar sóttu það af miklum ákafa að hann yrði einmitt þingmaður þeirr- ar hreyfingar sem hann segist núna hafa verið orðinn á móti á þeim tíma. Það vom hins vegar minni spámenn eins og til dæmis ég sem vom andvíg- ir því að Jón Baldvin yrði þingmaður okkar. I þeim hópi var einnig maður eins og Guðmundur J. Guðmundsson, maður eins og Jón Snorri Þorleifsson og í þeim hópi var þó fremstur meðal jafningja Kjartan Ólafsson. Ráð hans og þrautseigja, skipulagshæfni og pól- itískt innsæi réðu úrslitum um það að þessum hugmyndum um Jón Baldvin sem þingmann Alþýðubandalagsins var hafnað. Jón Baldvin var ekki boð- inn fram í það skiptið. Til að hefna sín stofnaði Jón Félag Alþýðubandalags- manna í Reykjavík og nágrenni. Hann varð sjálfur formaður þess. Hann er sennilega formaður þess ennþá. Mikið má Jón Baldvin vera þakklát- ur Kjartani Ólafssyni. Fornaldarfnykur í greinum Jóns Baldvins kemur fram ótrúlegt magn af snjöllum stór- yrðum sem ástæða er að halda til haga. Hins vegar er kannski líka ástæða til að spyrja sig að því hvort slíkur stóryrða/fúkyrðaflaumur geti kallast gott sameiningartilboð jafnað- armanna og/eða vinstrimanna á ofan- verðri tuttugustu öld? Það eru bara tuttugu ár í þá nýju öld sem kemur þegar hundrað ár em liðin ffá því að Jónas frá Hriflu lagði gmnninn að því, sem hann síðar kallaði í grein árið 1919, nýjan landsmálagmndvöll. Þann nýja landsmálagmndvöll þurfum við Jón Baldvin að finna helst báðir sam- an, áður en við verðum hættir í pólitík eða dauðir nema hvort tveggja sé. Stóryrðin í greinum Jóns Baldvins Hannibalssonar em með ólíkindum og það er vert að halda þeim til haga þó að það sé ekki nema af málsögulegum ástæðum. Hann talar um þá hreyfingu sem hann vill hafa samstarf við núna, þannig að hreyfingin hafi verið „úrelt hugmyndagóss nítjándu aldar marx- isma“, hann segir að af þessari hreyf- ingu hafi lagt „nálykt“, hún hafi „stundað hjáfrœði“, hafi verið „les- blind á samtiðina". Hún var í þokka- bót „sovéttrúboð“ og lagði sér til munns „hugmyndafræðilega nagla- súpu“ og af henni var „fortíðarfnyk- ur“, enda stefnan byggð á „óheiðar- leika og fáfræði“, félagarnir voru „ uppfullir af kiljönskum sjálfsbirg- ingi“, „ólu á tortryggni t garð vest- rænna ríkja“ og „voru einskonar end- urómur rómantískrar þjóðemishyggju sem samanstóð af Danahatri og þjóð- rembu“ enda lifðu þeir „við andlegan skrínukost við að viðhalda sjálfslyg- inni.“ Ef það er fortíðarfnykur af ein- hverju, þá er það af svona málflutn- ingi, minni kæri Jón. Evrópskur, klassískur eða raunverulegur? Þetta stóryrðagóss nítjándu aldar- innar sem Jón Baldvin Hannibalsson skreytir greinar sínar með, segir kannski allt sem segja þarf um líðan hans. Jón Baldvin gefur sér það svo til hægðarauka að sá sem hér heldur á penna hafi haft allt aðrar skoðanir en hann hefur nokkurn tíma haft. Jón Baldvin hann segir til dæmis: „Hvers vegna er jafnaðarstefnan svona mikil- væg fyrir tuttugustu og fyrstu öldina fyrst Svavar sjálfur, samstarfsmenn hans og forverar hafa verið við fátt jafnuppteknir á tuttugustu öldinni og að vara við og berjast gegn jafnaðar- stefnunni sem svikum og undanbrögð- um frá hugsjón sósíalismans?" Þessi spurning Jóns Baldvins er byggð á grundvallarmisskilningi. I lyrsta lagi er það þannig að bæði ég og samstafsmenn mínir hafa á und- anfömum árum og áratugum verið að beijast fyrir framkvæmd og hugsjón- um jafnaðarstefnu meðan Alþýðu- flokkurinn hefur gengið á svig við þær - svo pent sé til orða tekið - á stórum tímabilum ævi sinnar. I því sambandi bendi ég á viðreisnarárin sem enduðu með landflótta og atvinnuleysi. Og það sem nærtækara er: Ég bendi á síð- asta kjörtímabil þegar Alþýðuflokkur- inn hafði hlaupið frá vinstri stjóm sem hafði meirihluta 1991 og kaus að vinna með Sjálfstæðisflokknum, með- al annars við að spilla verulega ís- lenska velferðarkerfinu. Þá kom það í okkar hlut að safna liði til stuðnings velferðarkerfinu og hugsjónum jafn- aðarstefnunnar í raun. Það varð líka hlutverk okkar þrátt fyrir andstöðu mjög margra að reyna að halda uppi og koma á nútúna velferðarkerfi á Is- landi á ámnum eftir 1980 og á áranum 1971-74 oft í fullri andstöðu við Al- þýðuflokkinn. Staðreyndin er sú að Alþýðuflokkurinn á svo að segja ekk- ert í velferðarkerfinu á íslandi ffá síð- ustu áratugum ef frá eru skilin þau mál sem Magnús H. Magnússon beitti sér fyrir meðan að hann var félags- málaráðherra. Jón Baldvin spyr í grein sinni hvort hægt sé að taka svona menn trúanlega eins og Svavar Gestsson sem að segist vera allt í einu orðnir jafnaðarmenn. Staðreyndin er auðvitað sú að þessi spuming Jóns er byggð á þeim grand- vallarmisskilningi sem svarað var hér áðan, en þessar spumingar hans era endurteknar aftur og aftur í greinum hans og þessi spuming er á einum stað orðuð svona: „Hvers vegna skilur hann það allt í einu núna að jafnaðar- stefnan sé skásta „vegahandbókin"? Era sinnaskiptin trúverðug?" Hér er bersýnilega ekki einasta um að ræða grundvallarmisskilning af hálfu Jóns Baldvins. Hann skilur ekki að við höfum haldið uppi merki jaíh- aðarstefnunnar en ekki hann sem ráð- herra í átta ár. Það þurfti einlægt að fljúgast á við hann um félagsleg mál- efni þegar við vorum saman í annars skemmtilegri ríkistjóm landsins. Sér- staklega var honum uppsigað við framlög til menntamála. Og er honum kannski sérstaklega illa við að sá armi Svavar Gestsson skuli hafa skrifað greinar um jafnaðarstefnuna? Heldur hann að Alþýðuflokkurinn hafi öðlast einkarétt á orðinu jafnaðarstefha \ egar hann lét breyta nafni Alþýðuflokks- ins? Ég er satt best að segja obbolítið montinn af því að hafa tekið örlítinn þátt í því að spilla þessum einkarétti Alþýðuflokksins til orðsins jafnaðar- stefna. Það er reyndar næstum að segja hlægilegt þegar sumir Alþýðu- flokksmenn reyna að gera jafnaðar- stefnu Sjónararandar tortryggilega. Ein aðferðin er sú að halda því fram að ég sé ekki „raunveralegur" jafnaðarmaður. Önnur er sú að halda því fram að ég sé ekki „evrópskur“ jafnaðrmaður. Og enn önnur aðferðin er sú að halda því fram að ég sé ekki „klassískur" jafnaðarmaður. Og hvað með það? Mín vegna má það vera svo að ég sé hvorki evrópskur jafnað- armaður né klassískur jafhaðarmaður. Ég efast reyndar um að Jón Baldvin geti skreytt sig með hinu síðamefnda. En það er ekki aðalatriðið. Aðal- atriðið er það að í Sjónarröndinni er sett fram tillaga um leið jafnaðar- stefnu út úr ógöngum og vanda ís- lenska þjóðfélags. Spurningin er: Hvaða tillögu hafa aðrir sett fram í þessum efnum? Og að lokum þessa greinarhluta er spumingin : Hvað gengur Jóni til? Af hverju þessi fúkyrðaflaumur? Af hverju að reyna að bera fyrir sig bæk- ur til að sanna að hann hafi aflært hindurvitnin? Af hveiju að sveija allt af sér? Af hverju að þykjast ekki muna Tónabíósfundinn? Af hveiju viil hann ekki ræða þá jafnaðarstefnu sem ég reyni að gera grein fyrir í bók minni? Vill hann enn ráða dagskránni sjálfur? Þeinar spumingar spurði ég í 1. hlutanum og spyr nú enn. ■ Það eru bara tuttugu ár í þá nýju öld sem kemur þegar hundrað ár eru liðin frá því að Jónas frá Hriflu lagði grunninn að því, sem hann síðar kallaði í grein árið 1919, nýjan lands- málagrundvöll.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.