Alþýðublaðið - 08.11.1995, Blaðsíða 8
Miðvikudagur 8. nóvember 1995 170. tölubiað - 76. árgangur Verð í lausasölu kr. 150 m/vsfc
k
Andrés: Ég hélt að menn hefðu fyr-
ir löngu lært þá iexíu að þeir eiga
ekki að kveikja í bókum, plötum
eða öðrum verkum.
■ Andrés Magnússon
um geisladiskabrennu í
Vestmannaeyjum
Guð hefur
hingað til
ekki þurft á
umboðs-
mönnum
að halda
Eins og kom fram í Alþýðublaðinu í
gær brenndu ungir meðlimir Betel-
safnaðarins í Vestmannaeyjum geisla-
diska með hljómsveitinni Kiss ásamt
öðru efhi sem þeir töldu ekki samrým-
ast kristilegu lífemi og flokkuðu sem
siðspillandi. Sérstaklega mun Bete-
lingum vera uppsigað við þungarokk,
og mun það hafa verið borið á bál í
stórum stfl. Andrés Magnússon veit-
ingamaður, sem mikið hefur unnið að
því að kynna íslendingum þungarokk,
hafði ýmislegt við brennuna að at-
huga. ,JÉg skil ekki af hveiju þeir vom
að brenna þessa diska. fannst þeim
tónlistin svona léleg? Af hverju eru
þeir þá ekki fyrir löngu búnir að
kveikja í öllum plötum Gylfa Ægis-
sonar?“ sagði Andrés. „Mér hefur
alltaf fundist mjög einkennilegt þegar
menn fara út í svona ráðstafanir því
um leið em þeir að taka sér vald sem
fólk ætti ekki að taka sér. Ef á að taka
mark á ritningunni þá hefur Guð sjálf-
ur verið óhræddur að láta í sér heyra
þegar hann hefur haft skoðanir og
hingað til ekki þurft á umboðsmönn-
um að halda. Eg vitna í orð Gamalíels
í Postulasögunni: „Látið þessa menn
eiga sig og sleppið þeim. Sé þetta ráð
eða verk frá mönnum verður það að
engu, en sé það frá Guði, þá megnið
þér ekki að yfirbuga þá. Eigi má það
verða, að þér berjist við sjálfan Guð.“
Niðurstaðan er sú að það hljóti að vera
Guðs að dæma en ekki manna. Ég hélt
að menn hefðu fyrir löngu lært þá lex-
íu að þeir eiga ekki að kveikja í bók-
um, plötum eða öðmm verkum. Menn
eiga bara að lifa við það að ef þeim
líkar ekki varningurinn þá geta þeir
látið vera að kaupa hann. Fyrir utan
það er ekki svo undarlegt að trúarhóp-
ar telji að plötumar með Kiss falli illa
að kristilegum hugsunarhætti því
meðlimir Kiss em allir Gyðingar. Ég
hef hitt meðlimi Kiss. Þeir em reyndar
óvenju lítið vitlausir miðað við það að
þeir em rokkarar."
■ Rekstur sveitarfélaga á síðasta ári
Sjö milljarða halli
Halli á rekstri sveitarfélaga landsins
nam nær sjö milljörðum króna í fyrra
eða um 20% af tekjum. Sambærilegur
halli ríkissjóðs komst hæst í 12,5% af
tekjum árið 1991. Hreinar skuldir
sveitarfélaga hafa vaxið hratt eða úr
2,5% af landsframleiðslu árið 1992 í
rúm 5% í árslok 1994.
Þessar upplýsingar má lesa úr
greinargerð Seðlabankans um þróun
og horfur í peningamálum. Þar kemur
fram að athugun á reikningum 11 af
stærstu sveitarfélögunum fyrir árið
1994 og fjárhagsáætlunum fýrir 1995
leiði í ljós áform um að draga stórlega
úr hallarekstri. Þessi áform em raunar
svo stórtæk að þau miða að því að
snúa samanlögðum halla þessara
sveitarfélaga, 5,8 milljörðum, í örlít-
inn afgang, fyrst og fremst með sam-
drætti útgjalda. Seðlabankinn telur að
það hljóti að vera erfitt að ná slíkum
markmiðum. Hins vegar megi sjá ým-
is merki um aðhadd í rekstri sveitarfé-
laganna varðandi framkvæmdir og á
lánamarkaði. Erfitt sé að segja til um
horfur í fjármálum sveitarfélaga á
næsta ári. Framkvæmdir hafi verið
miklar á árunum 1988-94. Skulda-
byrðin sem hlaðist hafi upp á síðustu
árum geri enn mikilvægara en ella að
veija þá áfanga sem nást á þessu ári.
■ Kvikmyndaklúbbur Hvíta tjaldsins og Regnbogans
Kvikmyndahátíð
í Regnboganum
í þessum mánuði verður haldin kvikmvndahátíð í Regnboganum. í til-
efni af 100 ára afmæli kvikmyndarinnar verður sérstaklega vandað til há-
tíðarinnar og verður hún einnig lengri að þessu sinni en venja hefur verið.
Sýndar verða nýjar og nýlegar myndir sem vakið hafa mikla athygli, ásamt
sígildum perlum. Kappkostað er að bjóða myndir sem samcina vönduð og
athyglisverð vinnubrögð, skemmtun og afþreyingu og áleitin viðfangsefni
og efnistök. Helstiunyndir á hátíðinni eru:
Un Cæur en Hiver
Ástarþríhyrningur og forboðnir
ávextir. Myndin vakti mikla athygli á
kvikmyndahátíðinni í Cannes 1994
og hefur hlotið góða aðsókn víðs-
vegar í Evrópu. Aðalhlutverk: Em-
manuelle Béart og Daniel Auteu-
il. Leikstjóri: Claude Sautet.
Kids
Umtalaðasta og umdeildasta kvik-
mynd Bandaríkjanna í seinni tíð.
Óhuggulega raunveruleg samtíma-
lýsing. Leikstjóri: Larry Clark.
Rickshaw Boy
Glóðvolgur sigurvegari kvik-
myndahátíðarinnar í Feneyjum í
haust. Segir af ungum munaðarlaus-
um leigukerrustjóra í Saigon. Mu-
núðarfullur og óhefðbundin spennu-
þryllir.
Picture Bride
Ung japönsk stúlka giftist vinnu-
manni á Hawai en lífið á sælueyj-
unni reynist erfiðara en draumar
stúlkunnar hugðu. Um síðir rennur
það upp fyrir henni að ástin er það
eina sem máli skiptir.
Clerks
Margverðlaunuð frumraun leik-
stjórans Kevin Smith. Leikstjórinn
byggir myndina á eigin reynslu af af-
greiðslustörfum og segir sérstaka og
gamansama sögu.
Mrs. Parker & the Vicious
Circle
Á þriðja áratugnum vakti athygli
litríkur og uppivöðslusamur hópur
ungra rithöfunda og blaðamanna í
New York en síðar náðu sumir með-
limir hópsins umtalsverðum frama á
ritvellinum. Ókrýnd drottning þessa
hóps var Ijóðskáldið og smásagna-
höfundurinn orðheppni Dorothy
Parker. Jennifer Jason Leigh sýn-
ir stórkostlegan leik í hlutverki henn-
ar. Leikstjóri: Alan Rudolph.
Younger and Younger
Afar sérstök og athyglisverð mynd
full af skrýtnum persónum og hlægi-
legum uppákomum með fjölda stór-
leikara í aðalhlutverkum: Donald
Sutherland, Lolita Davidovich,
Julie Delpy og Sally Kellerman.
Leikstjóri: Perci Adlon.
And The Band Played On
Þessi stjörnum prýdda og áhrifa-
ríka kvikmynd er í raun leikin heim-
ildamynd um alnæmi. Aðalhlutverk:
Matthew Modine, Phil Collins,
Alan Alda, Richard Gere, Steve
Martin, lan McKellan, Anjelica
Houston. Leikstjóri: Roger Spott-
iswoode.
Yvonne's Perfume
Hér er á ferðinni rómantísk, kómísk
og dulúðug mynd sem gerist á 7.
áratugnum. Myndin er gerð eftir
bókinni Villa Triste eftir Patrick
Hjartaknúsari nútímans Hugh
Grant, en ný mynd hans An Aw-
fully Big Adventure verður sýnd á
kvikmyndhátíð í Regnboganum.
Modiano. Aðalhlutverk: Jean- Pi-
erre Marielle, Híppolyte Girardot.
Leikstjóri: Patrice Leconte.
The Escort
ítölsk spennumynd eins og þær
gerast bestar. Leikstjórinn Ricky
Tognazzi lýsir hér sögunni af fjór-
um ólíkum lífvörðum sem fá það erf-
iða hlutverk að gæta hæstaréttar-
dómara í landi mafíunnar.
An Awfully Big Adventure
Ný kvikmynd frá tvíeykinu á bak
við velgengni gamanmyndarinnar
Fjögur brúdkaup og jarðarför. Leik-
stjórinn Mike Newell stýrir hjarta-
knúsaranum Hugh Grant sem leik-
ur taugaveiklaðan leikstjóra í litlu
leikhúsi í Liverpool um miðja öldina.
Frábær leikur, ensk kímni og indæl
umgjörð.
Un Deux Trois Soleil
Þessi mynd leikstjórans Bertrand
Blier, sem hlotið hefur fjölda viður-
kenninga, fjallar um unga móður
sem berst fyrir lífi sínu í hörðum
heimi þar sem myndbandstæki eru
varin með afsöguðum haglabyssum
og mæður slegnar af til að einfalda
hlutina.
Le Fils Du Requin
Umtöluð mynd um útigangsbörn í
smábæ í Frakklandi. Hrollvekjandi
og áleitin saga um harðsoðna, rugl-
ingslega og þversagnakennda ver-
öld. Leikstjóri: Agnes Merlet.
Delicatessen
Veröldin er að líða undir lok en
undarlegu leigjendurnir yfir kjötbúð-
inni vita að þeir munu ekki líða skort.
Svo er smekk húseigandans fyrir
mannakjöti að þakka. Ein umtalað-
asta kvikmynd síðustu ára. Sannar-
lega engri lík.
Henry
Einhver umtalaðasta „undergro-
und" mynd sem komið hefur frá
Bandaríkjunum og lýsir á ágengan
og opinskáan hátt blóðugri slóð ein-
hvers ruddafengnasta fjöldamorð-
ingja sögunnar. Leikstjóri: John
McNaughton. Aðalhlutverk: Mi-
chael Rooker
Les Patriotes
Spennumynd sem vakti mikla at-
hygli á Cannes hátíðinni 1994.
Myndin fjallar öðrum þræði um
vinnuaðferðir Mossad, leyniþjón-
ustu Ísraelsríkis, þar sem tilgangur-
inn helgar meðalið.
Somebody to Love
Rosie Perez leikur sýningarstúlku
á næturklúbbi sem rétt hefur í sig og
á. En hún á leyndan aðdáanda sem
einn góðan veðurdag breytir lífi
hennar. I öðrum aðalhlutverkum eru
Harvey Keitel og Anthony Quinn.
Leikstjóri: Alexandre Rockwell.
Leikhústónlist
eftir Þorkel
Miðvikudaginn 8. nóvember kl.
21.00 verða fyrstu tónleikar í tónleika-
röð Kaffileikhússins sem helguð er ís-
lenskri leikhústónlist. Þá mun Þorkell
Sigurbjörnsson tónskáld kynna leik-
hústónlist sína og félagar úr Caput-
hópnum flytja úrval hennar. Flutt
verða lög úr Atómstöðinni eftir Hall-
dór Laxness, Kaj Munk eftir Guð-
rúnu Ásmundsdóttur, Jóni Arasyni
eftir Matthías Jochumsson og Ljóni í
síðbuxum eftir Björn Th. Björnsson.
Þorkell mun kynna tónlistina og segja
frá tilurð hennar. Flytjendur úr Caput
eru þeir Daníel Þorsteinsson, píanó,
Eggert Pálsson, slagverk og söngur,
Guðni Fransson, klarinett og söngur,
Kolbeinn Bjarnason, flauta, Sigurð-
ur Halldórsson, selló og söngur og
Sverrir Guðjónsson, söngur.
Framhjáhald
og þjóðtrú
Félag íslenskra fræða boðar til
fundar með Gísla Sigurðssyni í
Skólabæ við Suðurgötu miðviku-
dagskvöldið 8. nóvember, kl.
20.30. Gísli Sigurðsson er sérfræð-
ingur á Árnastofnun. Hann mun
tala um Kötludraum, eitt vinsæl-
asta sagnakvæði síðari alda. I
kvæðinu segir af Kötlu sem er
ófrísk þegar Már eiginmaður henn-
ar kemur heim af Alþingi. Hún
gefur þá skýringu að hún hafi ver-
ið leidd fyrir huldumann í draumi.
Gísli mun velta fyrir sér ástæðum
þess að kvæðið var svo vinsælt
þegar það kemur fyrst fram í hand-
ritum, tengja það við raunverulega
trú fólks á huldufólk og skoða það
í tengslum við helstu ógn þessa
tíma. Stóradóm sem vofði yfir
þjóðinni frá 1564 og bauð dauða-
refsingu fyrir „glæp“ Kötlu. Fund-
urinn er öllum opinn.
Hönnun á
Vesturlöndum
Tinna Gunnarsdóttir listhönnuð-
ur flytur opinn fyrirlestur á vegum
Myndlista- og handíðaskólans mið-
vikudaginn 8. nóvember kl. 16.30-
17.30 í Barmahlíð, Skipholti 1. Fyr-
irlesturinn nefnist Hvað er hönnun?
Þar mun Tinna fjalla um hönnun á
Vesturlöndum tuttugustu aldar og
skoða þjóðareinkenni og forsendur
hönnunar. Tinna er menntuð í Bret-
landi sem þrívíddarhönnuður með
áherslu á málm. Hún rekur nú Gall-
erí Greip og starfar auk þess að
hönnun.