Alþýðublaðið - 09.11.1995, Page 7
FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7
Sýning í Ráðhúsinu
íslenskt
handverk
f dag, fimmtudag, verður opnuð
sýning á íslensku handverki og listiðn-
aði í Ráðhúsinu í Reykjavík. Á sýn-
ingunni eru sýnishom af framleiðslu
66 aðila af öllu landinu.
Það er Handverk - reynsluverkefni
sem hefur skipulagt þessa sýningu.
Allir hlutir á sýningunni em til sölu í
verslunum, galleríum, handverkshús-
um eða beint frá framleiðenda. Sýn-
ingarskrá með upplýsingum um þessa
sölustaði mun liggja frammi. Mark-
miðið með sýningunni er að aðstoða
handverks- og hstiðnaðarfólk að koma
framleiðslu sinni á framfæri og að
benda neytendum á nýjan valkost í
gjafainnkaupum.
Sýningarnefnd er skipuð Ástþóri
Ragnarssyni iðnhönnuði, Elísabetu
Haraldsdóttur leirlistarkonu og
Helgu Melsted prjónrjíennara.
Nefndin valdi hluti á sýninguna og
þetta er í raun fyrsta handverkssýning-
in þar sem ákveðið gæðamat er hluti
af þátttökuskilyrðum.
Sýningin verður opnuð af forsætis-
ráðherra klukkan 17 í dag.
Réttvísin
gegn Láru
miðli
framhald af bls. 5.
... Kristjáns sem hjálparkokks Lám var á
senn á enda, og inná sviðið steig þriðji
maðurinn sem síðar var dæmdur með
henni fyrir svik.
Þriðji maðurinn
Óskar Þórir Guðmundsson fæddist
1920 og var því 21 ári yngri en Lára
miðill. Árið 1938-þegarhann var 18
ára en hún 39 - tók hann að sækja fundi
að staðaldri og grunaði ekki að nein
brögð væm í tafli. „Hann tók svo að
venja komur sínar til ákærðu og eiga
vingott við hana,“ segir í dómsskjölum,
„og í októrber 1938 fluttist hann á heim-
ili hennar og bjó með henni þar til í
september 1940, að hann fór frá henni
og trúlofaðist annarri stúlku. Meðan
hann bjó með ákærðu, hafði hann sjálfur
engar tekjur, heldur lifði hann á fé
ákærðu, er hún aflaði með þvf að selja
aðgang að miðilsfundum sínum. Er
meðal annars upplýst, að ákærða lagði
honum til fé til allmikilla fatakaupa,
meðan þau bjuggu sarnan."
Vitnisburðum Lám og Óskars um
hlutdeild hans í svikastarfseminni bar
ekki saman. Hún sagði að hann hefði
beinlínis aðstoðað sig við svikin og „-
hvatt sig mjög til fundahalda og verið
mjög frekur til tekna af fundunum en
ekkert viljað vinna sjálfur fyrir sér.“
Óskar neitaði þessu, kvaðst hafa tekið
við aðgangseyri á fundum, en eftir að
honum urðu svikin ljós hafi hann dregið
vemlega úr fundasókn.
Svikamyllan afhjúpuð
Sem fyrr sagðiyfirgaf Óskar Lám í
september 1940.1 október dundu hins-
vegar ósköpin yfir: svik Lám miðils
vom afhjúpuð.
Það segir sína sögu um hversu Lára
miðill var umtöluð og kunn, að fféttin af
afhjúpuninni mddi tíðindum af seinni
heimsstyijöldinni af forsíðum blaðanna.
Alþýðublaðið lagði næstum alla forsíð-
una undir málið og birti auk þess stóra
mynd af Lám, sem tekin var á miðils-
fundi árið 1934. Við hlið Lám er meint-
ur „líkamningur“ en iíkist reyndar frem-
ur illa gerðri brúðu, einsog sagt er í
myndatexta.
Alþýðublaðið skýrir svo frá tildrög-
um þess að svik Lám komust upp:
„Það var Sigurður Magnússon, kenn-
ari og lögreglumaður, sem raunvemlega
afhjúpaði svik frúarinnar. Hann fór stöð-
ugt að sækja fundi til frúarinnar vegna
þess að hún sendi honum skilaboð um
að látin kona Sigurðar, Anna Guð-
mundsdóttir hjúkmnarkona, vildi tala
við hann, en þau Sigurður og kona hans
höfðu oft, meðan hún lifði, rætt um
þessi mál, og taldi hún Lám vera svika-
miðil.
Sigurður hefur sótt marga fundi til frú
Lám undanfarið á Hverfisgötu 83
íslenskir ostar
Fengu
verðlaun í
Danmörku
Islensku mjólkursamlögin tóku þátt
í viðamikilli mjólkurvömsýningu sem
fram fór í Heming í Danmörku í byrj-
un mánaðarins. Samfara vömsýning-
unni fór fram gæðamat og þóttu ís-
lensku mjólkurvörurnar standa sig
með miklum sóma.
Á sýningunni voru 1.100 tegundir
af osti, smjöri og ferskvömm. Islend-
ingar sýndu 72 gerðir osta frá átta
mjólkursamlögum og 44 afbrigði af
ferskvöm, jógúrt, skyri og þess háttar,
(Bjamaborg), og bar upp á hana svikin,
því að hann taldi hana svikamiðil.
Rannsakaði hann lengi allar aðstæður
og var loks talinn vera orðinn svo „góð-
ur fundarmaður“, að hann fékk að sitja í
stól nr. 1, það er næst stól frúarinnar,
þegar á fundi stóð.
Síðastliðið föstudagskvöld var hald-
inn fundur. Kom Sigurður á fundarstað,
laust áður en fundur hófst, frúin sat í
stofu og rabbaði við kunningjakonu
sína, en Sigurður gekk í fundarherbergið
og rannsakaði það hátt og lágt, að sjálf-
sögðu án vitundar frúarinnar. f fyrstu
fann hann ekkert athugavert. Hann
skoðaði stól frúarinnar og inn í skáp,
sem var rétt hjá stólnum og fann ekkert.
En undir þessum skáp fann hann bögg-
ul. í bögghnum var gardínuefni yst en
innan í geysistór gasslæða. Nokkrir
gestir vom komnir í herbergið, þar á
meðal Ásmundur Gestsson gjaldkeri og
Engilbert Guðmundsson tannlæknir,
kona hans og önnur kona til. Sýndi Sig-
urður þeirn pakkann og bað þau að
leggja sér vel í minni, hvemig um hann
væri búið. Lét hann pakkann síðan með
sömu ummerkjum undir skápinn, en þó
þannig að rétt sá á hann.
Fundurinn hófst síðan. Hinir venju-
legu kunningjar komu þama fram en
fundurinn þótti þó ekki merkilegur,
enda sögðu andamir að ftúin væri kvef-
uð og illa fyrir kölluð. Lauk svo fundin-
um og ljósið var kveikt. Gestimir fóm
að tínast út, en Sigurður bað þá sem séð
höfðu pakkann áður en fundur hófst að
doka við og sömuleiðis frú Lám. Er allir
vom famir, nema þeir, hann og Lára
ætlaði hann að taka pakkarm þar sem
hann hafði látið hann, en pakkinn var þá
ekki á sínum stað heldur kominn alveg
upp að þih innst inn undir skáp. Sigurð-
ur benti vitnum sínum á þetta, tók síðan
pakkann, sýndi vimunum og var þá allt
öðm vísi um hann búið en áður, gard-
fnuefnið var nú innst en gasslæðan vafin
utan urn það. Lára neitaði því er Sigurð-
ur spurði hana, að vita nokkúð um þenn-
an pakka.
Það skal tekið fram að á rneðan á
fundi stendur er miðillinn í algeru
myrkri, en svolítil draugaleg ljósglæta
skín á gesúna, svo að óglöggt má greina
andlit og hendur.“
I frétt Alþýðublaðsins er sagt að þús-
undir manna hafi sótt miðilsfundi frú
Lám og fjöldi fólks trúað statt og stöð-
ugt að hún hefði milligöngu um sam-
band við aðra heima, en aðrir talið hana
svikamiðil eftir að hafa sótt hjá henni fá-
eina fundi. Fullyrt er að hún hafi haft
miklar tekjur af fundahöldunum, enda
vom á stundum nokkrir fundir í viku og
þurftu menn ævinlega að greiða að-
gangseyri. Alþýðublaðið telur upp hvað
menn fengu fyrir peningana sína: „Lík-
amningafyrirbrigði, afholdgunarfyrir-
brigði, skyggnilýsingar, útfiymi, samtöl,
bréfaskriftir og fleira, allt „yfimáttúm-
legt“ með frú Lám sem miðil og ýmsa
stjómendur. Aðalstjómandinn var „syst-
ir Clementia", en auk hennar ýmsir aðr-
ir, meðal annars smáböm. Fuglar flugu
jafnvei um fundarherbergið, tístu og
sungu og Abessimumenn gengu þar um
Frá vinstri:
Oddur Sigur-
jónsson osta-
meistari KEA,
Þórarinn E.
Sveinsson
mjólkursam-
lagsstjóri
KEA og Henn-
ing Clausen
formaður
sýningar-
nefndar.
frá sjö samlögum. Allar tegundimar
tóku þátt f gæðakeppni við dönsku
vömmar og vom dómarar 85 talsins,
allt fagmenn úr mjólkuriðnaðinum.
íslensku ostamir vöktu nú meiri at-
hygli en nokkm sinni fyrr og kepptu í
fyrsta sinn til heiðursverðlauna. Tvær
íslenskar vörutegundir hrepptu slík
verðlaun: Sex koma þykkmjólk með
ferskjum frá KB hlaut heiðursverð-
laun, einkunn 14,6 af 15 mögulegum,
í flokki ferskvara og rjómamysostur
frá KEA, einkunn 12,8 af 15, hlaut
heiðursverðlaun í flokki osta.
Alls unnu íslensku vörumar til 44
verðlauna í keppninni. Einn íslenskur
ostur hlaut silfuryerðlaun á erlendri
grandu áður en hann hlýtur nafn á Is-
landi, en samkeppni um nafn á þennan
nýja ost lýkur ekki fyrr en 10. nóvem-
ber næstkomandi.
eins og heima hjá sér.“
„Landhreinsun"
Lögreglan í Reykjavík hafði snör
handtök eftir að Sigurður hafði sýnt
fram á svikin. Lára var sett í gæsluvarð-
hald, sem og Þorbergur Gunnarsson og
Kristján Ingvi Kristjánsson. Óskar Þórir
var yfirheyrður: öll fjögur vom ákærð.
Lára var vistuð á Kleppi frá 31. októ-
ber til 22. desember 1940, þarsem Helgi
Tómasson gerði áðumefrida geðrann-
sókn á henni. Niðurstöður hans vom
meðal annars þessar: „Hún er hvorki fá-
viti né haldin ákveðnum geðsjúkdóm.
f...] Það er um að ræða lítt menntaða,
félagslega lágt setta konu, siðferðislega
ágallaða, sem lifir við sult og seyru, oft-
ast á sveitarinnar kosmað að einhveiju
leyti, við híbýlaþrengsli, í óhamingju-
sömu hjónabandi og öldugangsástah'fi."
Einsog áður kom fram, taldi Helgi
Tómasson einsýnt að „miðilsásUind"
Lám væri ekki annað en einkenni á
flogaveiki hennar.
I undirrétti var Lára núðill dæmd í árs
fangelsi fyrir íjársvik og Þorbergur til
hálfs árs fangelsisvistar. Kristján Ingvar
og Óskar Þórir vom dæmdir skilorðs-
bundið til fjögurra mánaða fangelsis-
vistar hvor. Hæstiréttur mildaða dóma
yfir öllum sakbomingunum: Lám var nú
gert að sæta sex inánaða fangelsi, en
Óskar Þórir og Kristján Ingvi hlutu tvo
mánuði hvor, og vom allir dómamir
skilorðsbundnir. Þorbergi var hinsvegar
gert að sæta Ijögurra rnánaða fangelsi,
enda hafði hann áður komist í kast við
lögin.
Lára miðill þurfti því ekki að fara í
tugthúsið. En térli hennar í Reykjavík
var lokið. Ýmsir urðu til að taka undir
með Alþýðublaðinu eftir að svik Lám
urðu uppvís: ,Má telja landhreinsun að
því að þessi svik hafa nú loksins verið
afhjúpuð.”
Sögulok
Lára fluttist nokkm síðar til Akureyr-
ar þarsem hún gekk í hjónaband á nýjan
leik og þar lést hún. Áðumefnd bók séra
Sveins Víkings kom út árið 1962.
Sveinn Víkingur var mikill áhugamaður
um sálarrannsóknir og hann var sann-
færður um hæfileika Lám sem miðils. í
bókinni er ekki farið ofan í saumana á
málaferlunum örlagaríku eða aðdrag-
anda þeirra, og ýmislegt er í mótsögn
við það sem fram kemur í dómsskjöl-
um.
í réttarsal hafði verið sannað, meðal
annars með játningum Lám sjálfrar, að
stórfelldum svikum hafði verið beitt og
fjöldi fólks blekktur. Allt og sumt sern
Lára hefur að segja, tutmgu ámm síðar,
er þetta: „Sjálf veit ég í raun og vem
ekki hvað gerðist eða ekki gerðist. í
miðilssvefni gefur maður sig algerlega á
vald öflum, sem maður ekki þekkir og
veit ekki sjálfur hvað gerist. Sjálf er ég
þá viljalaust tæki, sem auðvelt er að
misnota, ef óvandaðir eiga í hlut. Hafi
ég játað, eins og sagt er, að ég hafi gjört,
þá hefur það verið í örvilnan og upp-
gjöf, þar sem ég var svo að segja viti
mínu fjær.“ ■
Gallerí Greip
Sýning Tinnu
Á laugardaginn verður opnuð í
Gallerí Greip sýning á verkum Tinnu
Gunnarsdóttur. Á sýningunni eru
sófar, borð og hillur.
Tinna útskrifaðist úr listhönnunar-
deild West Surrey College of Art &
Design í Bretlandi 1992. Hún hefur
tekið þátt í samsýningum hér heima
og í Bretlandi, en þetta er þriðja einka-
sýning hennar. Sýningin stendur til
26. nóvember.
Inflúensubólusetning
á vegum heilsugæslu-
stöðvanna í ReyOOkjavík,
Heilsugæslustöðvar
Seltjarnarness og sjálfstætt
starfandi heimilislækna
Um þessar mundir er að hefjast bólusetning gegn inflú-
ensu á vegum heilsugæslustöðvanna í Reykjavík,
Heilsugæslustöðvarinnar á Seltjarnarnesi og sjálfstætt
starfandi heimilislækna. Smakvæmt upplýsingum land-
læknis er öldruðum, hjarta- og lungnasjúklingum og
fólki með skert ónæmiskerfi sérstaklega ráðiagt að láta
bólusetja sig gegn inflúensu.
Bóiusetningar eru framkvæmdar á heilsugæslustöðvun-
um í Reykjavík og Heilsugæslustöðinni á Seltjarnarnesi.
Stöðvarnar eru:
Heilsugæslustöð Árbæjar, Hraunbæ 102, sími 567-1500.
Heilsugæslustöð Grafarvogs, Hverafold 1-3, sími 587-
1060.
Heilsugæslustöð Efra-Breiðholti, Hraunbergi 6, sími 567-
0200.
Heilsugæslustöð í Mjódd, Þönglabakka 6, sími 567-0440.
Heilsugæslustöð í Fossvogi, Borgarspítala, sími 569-
6780.
Heilsugæslustöð Lágmúla 4, sími 568-8550.
Heilsugæslustöð Hlíðarsvæðis, Drápuhlíð 14, sími 562-
2320.
Heilsugæslustöð Miðbæjar, Vesturgötu 7, sími 562-
5070.
Heilsugæslustöðin Seltjarnarnesi, Suðurströnd, sími 56-
2070.
Ennfremur annast sjálfstætt starfandi heimilislæknar í
Reykjavík þessar bólusetningar.
19. október 1995.
Heilsugæslan í Reykjavík,
Heilsugæslustöðin á Seltjarnarnesi.
Ungir jafnaðarmenn
Sambandsstjórnarfundur verður haldinn sunnudaginn
12. nóvember klukkan 13 á efri hæð Sólon íslandus.
Dagskrá:
1. Fundargerð síðasta fundar lögð fram til samþykktar.
2. Kosningar í lausar stöður innan sambandsins.
3. Fréttirfrá aðildarfélögum og málstofum.
4. Ályktanir um umhverfismál.
5. Ályktanir um menntamál.
6. Önnur mál.
Mikilvægt er að þeir sambandsstjórnarmenn sem ekki
sjá sér fært að mæta tilkynni forföll á skrifstofu sam-
bandsins.
Framkvæmdastjórn SUJ
Ungir jafnaðarmenn
Skrifstofa sambandsins verður opin til áramóta
sem hér segir:
Mánudaga og þriðjudaga: 9-13
Miðvikudaga: 12-16
Fimmtudaga: 14-18
Framkvæmdastjórn SUJ