Alþýðublaðið - 15.11.1995, Page 6
6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 1995
Félag ungra jafnaðarmanna í Hafnarfirði
Aðalfundur
Aðalfundur Félags ungra jafnaðarmanna í Hafnarfirði
verður haldinn föstudaginn 24. nóvember klukkan 20.30.
Dagskrá verður auglýst síðar.
Formaður FUJ í Hafnarfirði.
Húsbréf
Innlausnarverð
húsbréfa í
1. flokki 1989
1. flokki 1990
2. flokki 1990
2. flokki 1991
3. flokki 1992
2. flokki 1993
2. flokki 1994
3. flokki 1994
Innlausnardagur 15. nóvember 1995.
1. flokkur 1989: Nafnverð: 500.000 kr. 50.000 kr. 5.000 kr. Innlausnarverð: 896.628 kr. 89.663 kr. 8.966 kr.
1. flokkur 1990: Nafnverð: 500.000 kr. 50.000 kr. 5.000 kr. Innlausnarverð: 791.613 kr. 79.161 kr. 7.916 kr.
2. flokkur 1990: Nafnverð: 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 1.572.802 kr. 157.280 kr. 15.728 kr.
2. flokkur 1991: Nafnverð: 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 1.461.957 kr. 146.196 kr. 14.620 kr.
3. flokkur 1992: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 6.451.648 kr. 1.290.330 kr. 129.033 kr. 12.903 kr.
2. flokkur 1993: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 5.952.105 kr. 1.190.421 kr. 119.042 kr. 11.904 kr.
2. flokkur 1994: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 5.530.214 kr. 1.106.043 kr. 110.604 kr. 11.060 kr.
3. flokkur 1994: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 5.429.117 kr. 1.085.823 kr. 108.582 kr. 10.858 kr.
Innlausnarstaður: Veðdéild Landsbanka íslands
Suðurlandsbraut 24.
C^G HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
I 1 HÚSBRÉFADEILO • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 569 6900
Hvorki beinn
né breiður vegur -3. hiuti
Eftir Svavar Gestsson
alþingismann
Að treysta
ekki bara
sjálf um sér
Víða reynir Jón í greinum sínum að
gera okkur upp skoðanir krefst þess
jafnffamt að við núna, 1995, gefum þá
yfirlýsingu að allt hafi verið vitlaust
sem stjómmálahreyfmg íslenskra sósí-
alista gerði á ámnum ífam til dagsins í
dag, síðustu sextíu sjötíu ár eða svo.
Jafnvel þó að við féllumst á þessi sjón-
armið Jóns Baldvins þá sjá allir hvað
það væri fráleitt. Sú stjómmálahreyf-
ing sem Jón Baldvin vill núna jarða og
strika út úr sögunni hafði 20-30% hér
um áratuga skeið. Á sama tíma hírðist
Alþýðuflokkurinn oft undir 10% og
var áhrifalítill eða áhrifalaus í verka-
lýðshreyfingumii og þáði völd sín fyrir
náð og miskunn undir handarkrika
Framsóknarflokksins fyrst og seinna
Sjálfstæðisflokksins. Mér sýnist því að
einn vandi vinstri hreyfingarinnar sé sá
að Jón Baldvin geri sér og sínum grein
fyrir því af hveiju Alþýðuflokkurinn
var jafnaumur og raun ber vitni um.
Hann verður að taka að sér sjálfsskoð-
un sem hann treystir sér ekki til að
gera. Jón Baldvin þarf vegna íslenskra
kjósenda að láta fara fram uppgjör í
Álþýðuflokknum - uppgjör við fortíð-
ina.
Þar með er ég ekki að fara fram á að
hann geri upp fyrir þennan tíma og
biðji einhvem um syndaaflausn. Það er
tilgangslaust og út í hött. Hins vegar
þarf hann að gera grein fyrir því að
hve miklu leyti saga Alþýðuflokksins
er skýringin á vanda hans í dag. Það er
augljóst að fortíðin er vandi Alþýðu-
flokksins í núinu.
Fæðingarvottorð
Alþýðubandalagsins
Eini hluti greinaflokks Jóns Bald-
vins sem mér finnst leiðinlegur er sá
hluti þegar hann skrifar eins og hann
væri Bjöm Bjamason þar sem hann
reynir að gera mig tortryggilegan -
jafnvel sérstaklega sem einstakling.
Hann spyr aftur og aftur hvers vegna
við höfum ekki í heyranda hljóði skýrt
frá því hvernig Austur-Þýskaland var
og hvernig Austur-Evrópa var. Það
gerðum við. Það gerði ég til dæmis
sumarið 1968. Hver skrifaði leiðara
Þjóðviljans í kringum innrásina í
Tékkóslóvakíu þar sem því þjóðfélags-
kerfi var hafnað sem að þá átti að ryðja
sér til rúms á ný undan sámnum sem
skriðdrekamir skildu eftir sig í götum
Prag? Þessu þjóðfélagskerfi lýstum við
undanbragðalaust og höfnuðum gjör-
samlega. Þannig er það annað hvort
sogufölsun eða ósannindi þegar Jón
Baldvin ætlar að slá striki yfir það
mikilvæga uppgjör sem átti sér stað í
Alþýðubandalaginu 1968. Það uppgjör
varð fæðingarvottorð Alþýðubanda-
lagsins sem breytti því í öflugan stjóm-
málaflokk þar sem hafnað var öllu
þjóðfélagskerfi Austur-Evrópu eins og
það lagði sig á þeim tíma. Jón Baldvin
segir: „Ef þeir skildu það að sósíalismi
án lýðræðis og frelsis hlyti að snúast
upp í andhverfu sína var þeim það ekki
Ijóst þá þegar að aðferðafræði lýðræð-
isjafnaðarmanna í pólitík var rétt,
hvers vegna sögðu þeir það ekki full-
um fetum?“
Auðvitað kom það ffarn aftur og aft-
ur að við höfnuðum þjóðfélagskerfi
Austur Evrópu.
Það þarf því ekki að fara fram nein
niðurdýfingarskím til þess að við get-
um kallað okkur jafiiaðarmenn. Orðið
jafnaðarstefna er íslenskt og gott því
það er gagnsætt. Það er í mínum huga
sama orðið og útlenska orðið sósíal-
ismi eins og það er notað til dæmis í
Sósíalistaflokknum í Frakklandi. En
við höfum alltaf verið á móti því að
kenna okkur við það sérkennilega ís-
lenska afbrigði af kratisma - ekki sósí-
aldemókratisma - sem Alþýðuflokkur-
inn hefur haldið gangandi. Þá er átt við
þetta sérkennilega íslenska afbrigði af
kratisma sem hafði þróast í tíð Stefáns
Jóhanns og Emils Jónssonar eftir að
Alþýðuflokkurinn var búinn að reka
alla sæmilega jafnaðarmenn úr for-
ystusveit sinni. Jón Baldvin spyr: „Ef
þeim (það er að segja okkur sósíalist-
um) var ljóst að sovéska nýlenduveld-
ið var hervætt alræðisríki á útþenslu-
skeiði var þeim þá ekki ljóst að lýð-
ræðisríkin urðu meðal annars eftir
reynsluna af nasismanum að koma sér
upp sameiginlegu öryggiskerfi til
„Jón Baldvin þarf vegna íslenskra
kjósenda að láta fara fram uppgjör
í Alþýðuflokknum - uppgjör við
fortíöina."
vemdar lýðræðinu?"
Svarið er: Okkur var fullkomlega
ljóst að sovéska nýlenduveldið var her-
vætt alræðisríki en við sögðum líka:
Vígbúnaðurinn í vestri er hættulegur,
stórveldin eru hættuleg, stórveldahags-
munimir em vandamál heimsins í dag.
Vígbúnaðarkapphlaup stórveldanna er
það sem er hættulegt fyrir lífið í heim-
inum. Það kerfi þarf að brjóta niður.
Stórveldin þarf að brjóta niður. Þeim
þarf að skipta í mörg smærri ríki,
sögðum við aftur og aftur, til dæmis
sumarið 1968 - ekki síst einmitt
Magnús Kjartansson í sínum greinum.
Þetta var okkar viðhorf og við teljum
að sagan hafi reyndar sannað að við
höfðum rétt fyrir okkur í þessu efni.
Það er ekki orðið ffiðvænlegra í heim-
inum fyrr en hemaðarbandalögin eins
og þau vom hafa í raun og vem verið
lögð niður; meira að segja NATO er
að taka verulegum breytingum. Jón
Baldvin ætlast hins vegar til þess að
við höfnum núna, árið 1995, þeirri
stefnu sem Hannibal og Sósíalista-
flokkurinn höfðu gagnvart NATO, ár-
ið 1949. Jón Baldvin Hannibalsson fær
okkur aldrei til þess vegna þess að við
teljum að okkar afstaða um fijálst og
fullvalda ísland hafi meðal annars
tryggt að íslenska þjóðin hefur haldið
reisn sinni ekki aðeins í utanríkismál-
um á mörgum öðrum sviðum heldur
líka til dæmis í menningarmálum og í
efnahagsmálum. Þann kafla vantar í
stjómmálasögu Jóns Baldvins Hanni-
balssonar að sjálfstæði Islands hefur
verið efnahagsleg auðlind að ekki sé
minnst á hina menningarlegu reisn.
Þær blaðsíður íslensku sjálfstæðisbar-
áttunnar virðast hafa farið algjörlega
fram hjá formanni Alþýðuflokksins.
@Meginmál = Eitt af því sem mér
fellur ekki í skrifum Jóns Baldvins er
þörf hans til þess að knýja viðræðuað-
ilann til uppgjafar; til þess að iðrast og
lýsa því yfir að allt sem gert hefur ver-
ið í nafni sósíalismans á íslandi hafi
verið rangt. Það kemur ekki til greina
að undirritaður reyni að veita Jóni
Baldvin Hannibalssyni slíka þjónustu
enda væri slíkt í senn fáfengilegt og
fráleitt. Til þess hefur enginn umboð