Alþýðublaðið - 21.11.1995, Side 3
ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
s k o ð a n
Sameining jafnaðarmanna
Skyldi ekki vera öðruvísi umhorfs hér ef jafn-
aðarmenn af hinum ýmsu litbrigðum hefðu
unnið í sameiningu að því að móta samfélag
okkar að hætti jafnaðarmanna? Það gerðu
þeir því miður ekki, heldur eyddu þeir drjúgu
hugviti og orku í að berja hver á öðrum hve-
nær sem færi gafst.
Þeir sem nota orðin sameining jafn-
aðarmanna í ræðu eða riti, án gæsa-
lappa, eru - ef til vill óafvitandi -
búnir að gera sér grein fyrir aðalatriði
málsins. Nefnilega því að jafnaðar-
menn á íslandi eru sundraðir á marga
flokka. Mesta samþjöppun þeirra er í
A-flokkunum, en þá er einnig að frnna
meðal stuðningsmanna og kjósenda
allra hinna flokkanna, í mismiklum
mæli.
Pallborðið |
Finnur Birgisson skrifar
Þessu er öðruvísi háttað meðal nán-
'ast allra nágrannaþjóðanna. Þar eru
jafnaðarmannaflokkar allstaðar sam-
einaðir, stórir og áhrifamiklir, og hafa
jafnvel ráðið ríkjum áratugum saman.
Svo vill til að einmitt í þessum lönd-
um er að finna mestu auðsældina og
velmegunina og aðrar þjóðir líta til
þeirra sem fyrirmyndarsamfélaga.
Undanfama mánuði hefur landflótti
firá Islandi ágerst. Fólk flýr lág laun og
skuldabasl, rangláta skatta og kerfis-
byggingu, sem er harðneskjuleg og
meingölluð, sér í lagi sú hliðin sem
snýr að ungum ijölskyldum. Við höf-
um lengi látið nægja að afgreiða sam-
anburð við önnur lönd með meðaltöl-
um og þjóðhagsstærðum í bland við
slagorð. En skilaboðin, sem berast frá
löndum okkar, sem nú eru teknir til
við að byggja sér betri framtíð í öðr-
um löndum, ásamt öðru upplýsinga-
flæði af því tilefni, hafa nú leitt okkur
skýrt fyrir sjónir að lífskjör og aðbún-
aður hér þola engan samanburð við
það sem bræðraþjóðir okkar búa við.
Þar skilur hyldjúp gjá á milli.
Skyldi ekki vera öðruvísi umhorfs
hér ef jafnaðarmenn af hinum ýmsu
litbrigðum hefðu unnið í sameiningu
að því að móta samfélag okkar að
hætti jafnaðarmanna? Það gerðu þeir
því miður ekki, heldur eyddu þeir
drjúgu hugviti og orku í að berja hver
á öðrum hvenær sem færi gafst. I því
stríði unnust engir sigrar, en líkur eru
á því að sjálf samfélagsbyggingin líði
nú fyrir afleiðingar hemaðarins.
Það er áberandi að ákveðnustu
raddirnar um nauðsyn á sameiningu
jafnaðarmanna heyrast nú frá ungu
fólki innan A- flokkanna. Þetta unga
fólk hefur lítinn áhuga á gömlum vær-
ingum af tilefnum, sem tilheyra nú
fortíðinni og sögunni. Það hefur hins-
vegar áhyggjur af ótryggri framtíð og
vill taka höndum saman við hvern
þann sem það skynjar samstöðu með í
nútíðinni.
Efasemdar- og úrtöluraddirnar
koma hinsvegar aðallega frá þeim,
sem tóku út pólitískan þroska sinn á
tímum illvígrar baráttu og tóku sjálfir
þátt í henni. Einstakar orustur eru
þeim í fersku minni og sum sáranna,
sem þeir hlutu, hafa gróið illa. Þeir em
þó margir í fullu fjöri ennþá, og jafn-
vel á hátindi ferils síns og áhrifa.
Sameining jafnaðarmanna er vissu-
lega ekki áhlaupaverk, það sanna
margar mislukkaðar tilraunir liðinna
ára. Ýmislegt bendir þó til að tími
hennar sé að nálgast, ekki síst skýrar
raddir unga fólksins, sem hinir eldri
mega ekki loka eyrunum fyrir. Þeir
ættu að taka höndum saman við unga
fólkið og nýta reynslu sfna og þekk-
ingu til að láta á það reyna hvort sam-
eining eigi ekki betri möguleika nú en
áður, en láta sagnfræðingunum eftir
það sem að ósekju má heyra sögunni
til. ■
Höfundur er formaöur Jafnaðar-
mannafélags Eyjafjarðar. Greinin
birtist sem leiðari í Alþýðumanninum
á Akureyri 17. nóvember
h i n u m e g i n
"FarSide" eftir Gary Larson
Tilhugalíf á vinstri væng
stjórnmálanna
blómstrar um þessar
mundir. Alþýðubandalags-
félag Reykjavíkur heldur
fund mánudaginn 4. des-
ember jiæstkomandi þar-
sem ýmsar kanónur munu
tjá sig um málið, þeirra á
meðal Margrét Frí-
mannsdóttir, Sighvatur
Björgvinsson, Jóhanna
Sigurðardóttir, Ög-
mundur Jónasson og
Benedikt Davíðsson. Þá
eru stjórnarandstöðuflokk-
arnir fjórir nú að undirbúa
sameiginlegan þingflokks-
fund þarsem einkum á
ræða um fjárlögin. Ýmsir
áhrifamenn í öllum flokk-
um eru áhugasamir um að
reglulega verði efnt til
funda af þessu, en um það
eru ærið skiptar skoðan-
ir...
Fátt er Morgunbladinu
hugleiknara en sjávar-
útvegsmálin, og ósjaldan
er Þorsteinn Pálsson
snoppungaður í forystu-
greinum fyrir andstöðu
við veiðileyfagjald. Á
sunnudag var því sérstak-
lega fagnað í forystugrein
að þrír þingflokkar - Al-
þýðuflokkur, Þjóðvaki og
Kvennalisti - hafa lýst sig
hlynnta veiðileyfagjaldi,
auk þess sem Ólafur
Ragnar Grímsson vill nú
ekki útiloka neitt fyrir
hönd Alþýðubandalagsins.
I sama leiðara var sett of-
an í við Þorstein fyrir um-
mæli hans á Alþingi um
Ágúst Einarsson þing-
mann Þjóðvaka og stjórn-
armann í Granda hf. Þá
sagði Þorsteinn að Ágúst
væri með baráttu sinni fyr-
ir veiðileyfigjaldi að ganga
erinda Granda og annarra
og stórfyrirtækja. Ágúst
brást að vonum hinn
versti við og kallaði Þor-
stein „ómerking". Fyrir
vikið var Ágúst áminntur
af Ólafi G. Einarssyni
þingforseta, en Morgun-
blaðið tók semsagt upp
þykkjuna fyrir þingmann
Þjóðvaka...
Fátt vakti meiri athygli í
síðustu viku en hin
tæpitungulausa grein
Guðrúnar Pétursdóttur
vegna smásögu Hrafns
Gunnlaugssonar sem
hann flutti í útvarpinu. I
smásögunni fjallaði Hrafn
um hjónin á gljúfrasteini,
Halldór og Auði Lax-
ness, ekkju Picassos og
Vigdísi Finnbogadóttur
forseta auk þess sem leik-
stjórinn kom sjálfur við
söguna. Mörgum þykir að
Hrafn Gunnlaugsson hafi
farið rækilega út fyrir vel-
sæmismörk í umfjöllun
sinni um Nóbelsskáldið
roskna og konu hans. Nú
heyrum við að Guðrún
Pétursdóttir láti ekki stað-
ar numið: hún hefur hafið
undirskriftasöfnun þarsem
skorað er á séra Heimi
Steinsson útvarpsstjóra
að láta endurflytja sögu
Hrafns. Þetta mun Guðrún
gera með fullu samþykki
frú Auðar...
v—' ýövV yóii C
roW in... not three, not tíw buf in k
> one hr.nute i yes, X sa j om m.'nuig.
w;fh fhe. Wonder f 33^ &&y; f
'\XÍ'S 'fss+l Áv\d vf yoU OfJer núiM, 'r*
ýTAheté'i u/Iwtelsp you'fl aet'—/r
OI9M firWofto. to
Hvenær hefst aðventan?
i aðventu er 26. nóv.
Kristín Gunnarsdóttir hús-
móðir: Sunnudaginn 3. des-
ember.
Sigurlaug Jónasdóttir
húsmóðir: Á sunnudaginn,
26. nóvember.
Árni Gunnarsson nemi:
Hún byijar 4. desember.
Guðrún Lilja Garðarsdóttir
sölumaður: Fyrstu helgina í
desember.
Hrafnhildur Björnsdóttir
söngkona: Fjórum sunnu-
dögum fyrir jól.
v i t i m e n n
Og af því ég er einsog ég er,
finnst mér voðalega sætt ef
það eru einhver kynörvandi
og sæt nærföt sem engum öðrum
er ætlað að sjá.
Heiðar Jónsson í vikulegum pistli
að segja lesendum Tímans hvernig
og hvaða gjafir á að velja.
Reynslan á eftir að leiða
í ljós til hvers skattlagning fjár-
magnstekna leiðir hér. Ekki er
ólíklegt að hún valdi óánægju í
fyrstu en smátt og smátt finnur
fólk, að það er eðlilegt, að allar
tekjur séu skattlagðar.
Forystugrein Morgunblaðsins í gær.
Það varð að ávana hjá mér
að biðja þá að Ijúga nú ekki.
Ef ég til dæmis spurði Tudjman
(Króatíuforseta) hvort hann ætlaði
að fyrirskipa árás svaraði hann
„Nei“ en við vissum báðir
að hann ætlaði samt að gera
þetta svo spurningin var
eiginlega út í hött.
Owen lávarður að lýsa kynnum
sínum af forystumönnum
á Balkanskaga.
íslendingar
eru sóðar.
Jónas Kristjánsson var á
hefðbundnum nótum í forystugrein
DV á laugardag.
Franski háðfuglinn og
boðflennan Claude Khazizian,
eða Claude tíundi einsog hann
er gjarnan kallaður, 61 árs
gamall ellilífeyrisþegi, lét sig ckki
vanta við brúðkaup Jóakims
prins og Alöxöndru í Friðriksborg-
arhöll á laugardag.
DV skýrir frá nýjustu afrekum
frægustu boðflennu heims.
Fjölbrautarskóli
Suðurlands með glervegg
við sprungusvæðið.
Frétt í DV af áhyggjum manna vegna
Suðurlandsskjálfta.
fréttaskot úr fortíð
Lífshættavegna
grjótkast
I gærkvöld milli kl. 11 og 12, var
kastað steini inn um glugga hjá Hall-
bimi Halldórssyni prentara Berg-
staðastræti 51. Steinninn lenti í rúmi
Hallbjamar og konu hans þar sem
sonur þeirra svaf, sem svaraði 30 sm
frá höfði drengsins. Það mátti því
heita sérstakt lán að steinninn skyldi
ekki verða drengnum að bana, og eins
það að þau hjónin skyldu ekki vera
háttuð, því ekki hefðu bæði sloppið
ómeidd ef þau hefðu verið í rúminu.
Nánar um þetta síðar.
Alþýðublaðið 23. september 1922.
(Hallbjörn varð siðar ritstjóri
Alþýðublaðsins.)