Alþýðublaðið - 21.11.1995, Síða 6

Alþýðublaðið - 21.11.1995, Síða 6
6 ALÞÝÐUBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. NOVEMBER 1995 I e i k h ú s Félagsmálaráðuneytið Starfsmenntasjóður Félagsmálaráðuneytið auglýsir hér með opinn fund starfsmennta- ráðs sem haldinn verður miðvikudaginn 22. nóvember nk., kl. 16.00, í Borgartúni 6. Á fundinum verður fjallað um úthlutun styrkja úr starfsmennta- sjóði vegna starfsmenntunar í atvinnulífinu skv. lögum nr. 19/1992. Félagsmálaráðuneytið, 17. nóvember 1994. Styrkir til háskólanáms í Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð. Stjórnvöld í Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð bjóða fram eftirtalda styrki handa íslendingum til háskólanáms í þessum löndum námsárið 1996-97. Styrkirnir eru ætlaðir þeim sem komnir eru nokkuð áleiðis í háskólanámi og eru miðaðir við 8-9 mánaða námsdvöl en til greina kemur að skipta þeim ef henta þykir. Til náms í Danmörku eru boðnir fram fjórir styrkir. Styrkfjárhæðin er 4.260,- d.kr. á mánuði. Til náms í Finnlandi er boðinn fram einn styrkur til háskólanáms eða rannsóknarstarfa. Styrkfjárhæð 4.000.- finnsk mörk á mánuði. Til náms í Noregi er einnig boðinn fram einn styrkur. Styrkfjárhæð er 5.700,- n.kr. á mánuði og skulu umsækjendur að öðru jöfnu vera yngri en 35 ára. Til náms í Svíþjóð er boðinn fram einn styrkur til háskólanáms og tveir til vísindalegs sérnáms. Styrkfjárhæðin er 7.000.- s.kr. á mán- uði. Umsóknum um styrkina, ásamt staðfestum afritum prófskírteina og meðmælum, skulu sendar til menntamálaráðuneytisins, Sölv- hólsgötu 4,150 Reykjavík, fyrir 29. desember n.k. Sérstök eyðublöð og nánari upplýsingarfást í afgreiðslu ráðuneyt- isins á 1. hæð að Sölvhólsgötu 4. Menntamálaráðuneytið 16. nóvember 1995. Aðalfundur Aðalfundur Félags ungra jafnaðarmanna í Kópavogi verður haldinn föstudaginn 24. nóvember 1995, að Hamraborg 14a, klukkan 19. Dagskrá auglýst síðar. Formaður.Leigjendasamtökin Ungir jafnaðarmenn Skrifstofa sambandsins verður opin til áramóta sem hér segir: Mánudaga og þriðjudaga: 9-13 Miðvikudaga: 12-16 Fimmtudaga: 14-18 Framkvæmdastjórn SUJ Félag ungra jafnaðarmanna í Hafnarfirði Aðalfundur Aðalfundur Félags ungra jafnaðarmanna í Hafnarfirði verður haldinn föstudaginn 24. nóvember klukkan 20.30. Dagskrá verður auglýst síðar. Formaður FUJ í Hafnarfirði. Vinning laugard ctnlnr ... aiviui aginn: nóv. 1995 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING [1 SafS 0 4.396.201 g+4af5 3 147.400 3 4af 5 85 8.970 Ei 3 af 5 2.583 680 Aðaltölur: 18 33 36 BÓNUSTALA: (37) Heildarupphæt) þessa viku: kr. 7.357.291 ,NR. 800 6511 - TEXTAVARP 453 BIRT MED FYRIR- VARA UM PRENTVILLUR Leikararnir Ijá persónunum sál og hold en reyna ekki að trana sér fram fyrir skáldskapinn og leikstjórinn virðist ekki búa yfir neinni löngun til að sýna færni sína eða halda athygli áhorfenda með ódýrum trikkum, skáldskapurinn ríkir hér einn. Kristaltær Miller Verkefni: Glerbrot Höfurrdur: Arthur Miller Þýðing: Birgir Sigurðsson Lýsing: Páll Ragnarsson Leikmynd og búningar: Sigurjón Jóhannsson Leikstjórn: Þórhildur Þorleifsdóttir Sýningarstaður: Þjóðleikhúsið - Stóra sviðið Það er til margskonar ótti og að öll- um líkindum er hann meiri áhrifavald- ur í lífi okkar en við viljum vera láta. Er það ekki hann sem hrekur okkur útí fordóma og hatur? Elur af sér heimótt- arskap og lágkúru? I hans skjóli eru unnin verstu grimmdarverkin og of- stækið er hreinræktaður ávöxtur hans. Þögnin er þó kannski algengasta og sterkasta birtingarmynd óttans. Þessi þögn sem gerir þeim sem til þess hafa vald og vilja kleift að fara sínu fram, varðir afskiptaleysi múgsins. Þótt höf- undur haldi því sjálfur fram að kyn- þáttaofsóknir í fortíð og nútíð séu kveikjan að þessu verki virðist óttinn og þögnin þó fyrirferðarmeiri í verk- inu. Þarna er þó ef til vill kominn galdur meistara Millers, að taka jafn víðtækt og í sjálfu sér lítt skáldlegt viðfangsefni og kynþáttaofsóknir og spegla það í lífi og átökum hjóna sem lifa víðsfjarri þeim atburðum sem eru aflvakar verksins. Það virðist sumsé niðurstaða hans að uppspretta óttans sé aðeins ein, hin frumstæða hræðsla og óöryggi sem býr innra með hveij- um einstaklingi. Þetta erfðafé sem gengur frá kynslóð til kynslóðar og engin tækni, engin upplýsing vinnur bug á. Glerbrot, á frummálinu Broken glass, nýjasta verk Arthurs Millers er leikrit í hefðbundnum stíl, gegnheill texti, skáldskapur fyrir leiksviðið, meitlað verk, kröfuhart jafnt við flytj- endur sem áhorfendur. Eða eins og til- vitnun í höfundinn í leikskrá segir: „Leikhúsið er list augnabliksins og gerir áhorfandann að þátttakenda. Leikrit þarfnast beitingu tungumáls sem krefst áreynslu við hlustun og túlkun, þannig verður áreynslan hluti af upplifuninni. Ahorfendur sem hafa ekki vanist slfkri áreynslu verða óþol- inmóðir og kjósa frekar sjónvarp eða kvikmyndir." Leikhús | Arnór Benónýsson skrifar um leiklist Þýðing Birgis Sigurðssonar virtist vel unnin og hljómaði vel. Hann kann þá list öðrunpleikskáldum okkar betur að þræða hina hárfínu línu milli skáld- skapar og talmáls með þeim hætti að úr verði trúverðugur og fljótandi leik- sviðstexti. Leikstjórinn, Þórhildur Þorleifsdótt- ir, velur þá leið að vera verkinu trú og treysta texta skáldsins til að halda at- hygli áhorfenda og koma boðskapnum til skila. Þannig er sýningin „gamal- dags“ og hefðbundin í bestu merkingu þeirra orða beggja. Verkið gerist í New York árið 1940 og búningar per- sónanna undirstrika það. Hér er verið að flytja sögu, epískan skáldskap og það er gert án allra hundakúnsta. Leik- aramir ljá persónunum sál og hold en reyna ekki að trana sér fram fyrir skáldskapinn og leikstjórinn virðist ekki búa yfir neinni löngun til að sýna fæmi sína eða halda athygli áhorfenda með ódýmm trikkum, skáldskapurinn ríkir hér einn. Það er full ástæða til að óska Þórhildi til hamingju með vel unna sýningu og oft hefur maður á til- finningunni að hún með vinnu sinni leiði verkið um þau einstigi sem á því kunna að vera frá höfundarins hendi. Af leikurunum er Sigurður Sigur- jónsson minnisstæðastur. Persónu- sköpun hans er ffábærlega vel unnin. Hann fetar einstigið milli skops og harms af fáséðu öryggi og sýnir enn einu sinni að þar fer listamaður af guðs náð. Guðrún Gísladóttir gerir einnig mjög vel. Persóna hennar er að sönnu bundin við hjólastól alla sýninguna og því reynir ekki mikið á líkamlega tján- ingu leikarans en því meira á vits- muna og tilfinningalega getu hans til sköpunar og þar er Guðrún á heima- velli. Hún nær að hrífa áhorfandann með sér í gegnum örvæntingu, upp- gjöf og gleði, og víst er að til þess þarf mikla kúnst. , Læknirinn sem Amar Jónsson leik- ur er frá höfundarins hendi nokkuð óræð persóna og hlutverk hans í leikn- um liggur ekki ljóst fyrir. Amar skilar honum þó af þeirri fagmennsku að hann lifir í huga manns sem bijóstum- kennanlegt fórnarlamb óttans og drullusokkur'sem manni þykir jafnvel vænt um. Hlutverk þeirra Ragnheiðar Steindórsdóttur og Helga Skúlasonar eru smá og hafa þá sérstöðu að þar fara ekki gyðingar, (en gyðinglegur uppmni höfundar er auðsær á verkinu) og því verða þessar persónur hálfpart- inn utangarðs. Engu að síður unnu þau Ragnheiður og Helgi vel úr sínu og áttu sinn þátt í þeirri sterku heildar- mynd sem yfir sýningunni hvílir. Leikmynd Sigurjóns er ekki hefð- bundin, langt í frá og í upphafi virkaði hún jafhvel tmflandi. En eftir því sem á sýninguna leið virkaði hún betur og betur og tröllauknir glerveggirnir skópu þessu hefðbundna verki brot- hætta umgjörð sem undirstrikaði og jók áhrifamátt þess. Lýsing Páls var hvít og köld og þjónaði verkinu vel án þess kannski að spila afgerandi mllu í sýningunni. Niðurstaða: Ómenguð „gamal- dags“ sýning, þar sem reynsla og færni allra aðstandenda hlómstrar og skilar heilsteyptu og meitluðu verki farsællega í höfn.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.