Alþýðublaðið - 21.11.1995, Side 8
Þriðjudagur 21. nóvember 1995 177. tölublað - 76. argangur Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
■ Kaffileikhúsið
Islensk
leikhústónlist
Á miðvikudagskvöldið verða aðrir
tónleikar í tónleikaröð Kaffileikhússins
sem helguð er íslenskri leikhústónlist.
Það er Hjálmar H. Ragnarsson tón-
skáld sem kynna mun sína eigin leik-
hústónhst og félagar úr Caput-hópnum
ásamt fleiri listamönnum flytja úrval
hennar. Hjálmar hefur á undanfömum
árum samið mikið af leikhústónhst og
þá sérstaklega fyrir Þjóðleikhúsið. Ný-
verið samdi hann tónhst fyrir Glerbrot
eftir Arthur Miller sem nú er sýnt í
Þjóðleikhúsinu auk þess sem hann
vinnur nú að tónlist íyrir Tröllakirkjuna
eftir Ólaf Gunnarsson og Þórunni
Sigurðardóttur sem fmmsýnd verður
í Þjóðleikhúsinu í mars. Tónlistin sem
flutt verður á miðvikudagskvöldið er
öll úr verkum Þjóðleikhússins sem
sýnd vom á ámnum 1987-1993. Þeirra
á meðal em Marmari eftir Guðmund Tónleikamir hefjast klukkan 21 en hús-
Kamban og Pétur Gautur eftir Ibsen. ið verður opnað klukkan 20.
KÓLÓMBÍUKAFFI
Afburða ljúffengt hreint Kólombíukaffi með kröftugu og frískandi bragði.
Kaffið er meðalbrennt sem laðar fram hin fínu blæbrigði í brágði þess.
Kólombíukaffi var áður í hvítum umbúðum.
MEÐALBRENNT
Einstök blanda sex ólíkra kaffitegunda. Milt Santos kaffi frá Brasilíu
er megin uppistaðan. Kólombíukaffi gefur ilminn og frísklegt, kröftugt bragð.
Blandan er loks fullkomnuð með kostakaffi frá Mið-Ameríku
og kjarnmiklu Kenýakaffi.
fll «1 «1
. f
MF.fj.U.BKEWT
gevaua
A f' [ Í
E-BRYGG sérblanda
Kaffi sem lagað er í sjálfvirkum kaffikönnum þarf að búa yfir sérstökum
eiginleikum til að útkoman verði eins og best verður á kosið.
Gevalia E-brygg er blandað með sjálfvirkar kaffikönnur í huga.
Aðeins grófara, bragðmikið og ilmandi.
Fádæma gott kaffi frá eyjunni Java í Indónesíu. Bragðið er mjúkt,
hefur mikla fyllingu og sérstaklega góðan eftirkeim
sem einkennir Old Java. Kaffi sem ber af.
GEVALIA
-Það er kaffið!
Fundur NEAFC
Ekkert
samkomulag
Á 14. ársfundi Norðaustur-Atlants-
hafs fiskveiðinefndarinnar, NEAFC,
sem fram fór í London, var meðal rætt
um stjóm veiða úr úthafskarfastofnin-
um á Reykjaneshrygg og norsk-ís-
lenska síldarstofninn. Skiptar skoðanir
vom um þessi mál og náðist ekki sam-
komulag á fundinum.
Varðandi úthafskarfann lögðu Is-
land og Danmörk, vegna Grænlands
og Færeyja, fram sameiginlega tillögu
um ákvörðun heildarafla og skiptingu
hans. Af hálfú Rússa var einnig lögð
fram tillaga um skiptingu veiða úr
stofninum. Reynt verður að ná sam-
komulagi fyrir upphaf næstu vertíðar.
Varðandi norsk- íslenska sfldarstofn-
inn var á fúndinum mikil umræða um
hvaða vettvangur væri eðlilegastur til
að fjalla um stjómun veiðanna. Málið
verður rætt áffam á fundi í Færeyjum
um miðjan desember.
Ríó tríó í
túninu heima
Á þessu ári em um það bil þrjátíu ár
frá því þrír ungir piltar úr Kópavogi
komu saman og hófu söng með gítar-
undirleik undir nafninu Ríó tríó. Aðrar
sögur fara ekki af þessu tríói nema
þær að nú halda þeir upp á afmælið og
um leið fjörtíu ára kaupstaðarafmæli
Kópavogs þann 25. nóvember næst-
komandi í túninu heima.
Ríó tríóið var stofnað af þeim Ólafi
Þórðarsyni, Halldóri Fannar og
Helga Péturssyni, sem þá stunduðu
allir nám í Víghólaskóla. I upphafi var
aðeins notast við tvo lélega kassagít-
ara og söngurinn ungæðislegur og
ekki með öllu hreinn og tær. En batn-
andi mönnum er best að lifa og sagan
sannar að þeir em nú meðal vinsael-
ustu skemmtikrafta landsins. Ferðir
tríósins bæði hér heima og erlendis
em orðnar ótalmargar, hljómplötumar
um tuttugu, fjölmargir sjónvarps- og
útvarpsþættir innanlands og utan og
svo mætti lengi telja.
I tilefni afmælisins ætla þeir félagar
Ágúst Atlason, sem gekk til liðs við
tríóið 1968, Helgi Pétursson og Ólafur
Þórðarson að halda stóra fjölskyldu-
tónleika í íþróttahúsi HK við Digra-
nes, laugardaginn 25. nóvember kl.
17.00. Tónleikana kalla þeir I túninu
heima og fylgir sú skýring að í Digra-
nestúninu hafi þeir byrjað að raula
með gítamndirleik í bjartri vornótt-
inni. Iþróttahús HK stendur á þeim
stað sem allt hófst og því ekki hægt að
komast nær upphafssöngstaðnum.
Tónleikamir verða einkar glæsilegir,
þar sem til liðs við þá félaga kemur
ljöldi listamanna. Hljómsveitin Saga
Class og söngvaramir Sigrún Eva og
Reynir Guðmundsson, Björn Thor-
oddsen gítarleikari, Szymon Kuran
fiðluleikari og Reynir Jónasson
harmonikuleikari. Einnig syngur Kór
Kársnesskóla með tríóinu, en honum
stjómar Þórunn Björnsdóttir. (Þess
má geta að hvorki Ólafur né Helgi
komust í kór í Kópavogi þegar þeir
vom að alast þar upp. Það sýnir glöggt
hve kröfurnar eru miklar til ungra
söngvara í bænum.) Brassasveitin
Kamivala leikur líka með þeim félög-
um, en félagar í henni em allir uppald-
ir í Skólahljómsveit Kópavogs. Þar á
meðal er Össur Geirsson, sem stjóm-
ar nú Skólahljómsveitinni, en yngri
deild hennar mun hita upp í anddyri
fyrir tónleika Ríó.
Það er von þeirra Ríó tríó félaga að
sem flestir láti sjá sig og taki þátt í
einum allsherjar fjölskyldusöng, því
tónleikamir verða ekki endurteknir.