Alþýðublaðið - 22.11.1995, Qupperneq 1
■ Framsókn gegn veiðileyfagjaldi
Ætti að ræða auðlindaskatt
- segir Magnús Stefánsson alþingismaður flokksins.
„Ég hefði ekkert á móti því að ffam
færi umræða um auðlindaskatt og
hvort þeir sem nýta auðlindir lands og
sjávar eigi að greiða af því skatt. En
ég er ekki meðmæltur þessu veiði-
leyfagjaldi sem nú er til urnræðu,"
sagði Magnús Stefánsson þingmaður
Framsóknarflokks í samtali við blaðið.
Þingmenn flokksins hafa lítið látið
að sér kveða í umræðum Alþingis
varðandi þingsályktunartillögu um að
taka upp veiðileyfagjald. Magnús
sagði málið ekki hafa verið rætt form-
lega í þingflokki Framsóknar en
kvaðst vita að þar væru menn almennt
ekki þeirrar skoðunar að taka ætti upp
veiðileyfagjald.
„Mér finnst hins vegar eðlilegt að
menn tæku umræðu um hvort eigi að
leggja á auðlindaskatt almennt sem
væri þá pólitísk ákvörðun. En ég er
ekki þar með að segja að slíkan skatt
eigi að leggja á. Hvað varðar þessa til-
lögu Þjóðvaka um veiðileyfagjald þá
er þar bent á sjö leiðir og það getur
skipt máli varðandi afstöðu manna
hvaða útfærslu er verið að tala um,“
sagði Magnús Stefánsson.
Magnús: Málið hefur ekki verið
rætt í þingflokki Framsóknar.
■ Sjálfsbjörg mótmælir
niðurskurði í heilbrigðis-
kerfinu
Brot á mann-
réttindum
„Það er brot á mannréttindum að
það sé lagt í hendur misvitra stjóm-
málamanna hvort, hvenær og hversu
mikið bætur skuli hækka hveiju sinni
eða hvort þær skuli hækka yfir höfuð.
Við viljum að bætur séu hugsaðar sem
laun hins fatlaða og því skuli þau
hækka í samræmi við almennar launa-
hækkanir."
Svo segir meðal annars í ályktun
sem samþykkt var á almennum félags-
fundi Sjálfsbjargar. Þar er mótmælt
harðlega þeim niðurskurði í heilbrigð-'
iskerfinu sem áætlaður er samkvæmt
fjárlagafrumvarpinu og gerir meðal
annars ráð fyrir að fellt verði niður
það ákvæði að bætur almannatrygg-
inga fylgi almennum launasamning-
um.
Fundurinn mótmælir því að lækka á
heildargreiðslur til heimildarbóta sem
þýði meðal annars að uppbót vegna
sjúkrakosmaðar er lækkuð og þar með
heildarbætur hins fatlaða. Sömuleiðis
er því mótmælt að taka upp innritun-
argjöld á sjúkrahús og að srfellt er ver-
ið að lækka þær fjárhæðir sem fara í
hjálpartæki, til dæmis með því að
fækka þeim vörum sem Trygginga-
stofnun tekur þátt í að greiða.
Sjálfsbjörg mótmælir einnig ein-
dregið þeirri stefnu stjómvalda að láta
svokallað frítekjumark standa í stað
frá því í júlí 1993, en lögum sam-
kvæmt eigi að endurskoða það árlega.
Bætur hafi í raun lækkað frá 1993 og
færri fái bætur en áður.
Léttjyndir framsóknarmenn Framsóknarmennirnir Guðni Ágústsson
og Ólafur Örn Haraldsson voru að vanda glaðbeittir á þinginu í gær. Ekki vitum við hvort umræðuefnið vakti
kátínu þeirra félaga: í ræðustóli var Þorsteinn Pálsson að mæla fyrir frumvarpi um tæknifrjóvgun. A-mynd:E.ói.
KEA tapar á vatni
Samkvæmt uppgjöri samstæðunnar
Kaupfélag Eyfirðinga og dótturfyrir-
tæki fyrstu átta mánuði ársins nemur
tap af rekstri um níu milljónum króna á
móti 48 milljón króna hagnaði í fyrra.
Rekstur móðurfýrirtækisins, KEA, hef-
ur batnað töluvert undanfama mánuði.
Aftur á móti hefur afkoma dótturfyrir-
tækja versnað og sérstaklega hefur tap
á vatnsútflutningi aukist. Þá er afkoma
mjólkursamlags og fiskvinnslu mun
verri heldur en á sama tímabili í fyrra.
■ Alþýðublaðinu vex
fiskur um hrygg
Dreifing í öll
hús í Reykjavík
Alþýðublaðið á morgun verður
útbreiddasta blað höfuðborgarinnar.
Blaðinu verður dreift í öll hús í
Reykjavík, auk þess sem það mun
liggja frammi í fjölmörgum sölu-
tumum og verslunum. Þá verður Al-
þýðublaðið talsvert stærra en venju-
lega, 20 síður, og er mikil áhersla
lögð á vandað og fjölbreytt efni.
Sumt mun koma föstum lesendum
kunnuglega fyrir sjónir þarsem birt
verður ýmislegt efni sem birst hefur
í Alþýðublaðinu uppá síðkastið.
Með þessu móti vill blaðið kynna
sig fyrir stærri lesendahópi og afla
fleiri áskrifenda. Af efni Alþýðu-
blaðsins á morgun má nefna viðtal
Kolbrúnar Bergþórsdóttur við
Friðrik Eriingsson höfund Benjam-
íns dúfu sem á næstunni sendir frá
sér nýja skáldsögu, pistil Guð-
mundar Andra Thorssonar um
Hrafn Gunnlaugsson og greinar
eftir Hallgrím Helgason, Jón Bald-
vin Hannibalsson og Hrafn Jök-
ulsson. Þá verður endurbirt umfjöll-
un blaðsins um Láru Agústsdóttur
miðil svo nokkuð sé nefht.
■ Opið bréf Ólafs Gunn-
arssonar fanga til Þor-
steins Pálssonar dóms-
málaráðherra
Er stefna stjórn-
valda að slíta
tengsl barna
við foreldra?
,,Er það virkilega stefna fangelsisyf-
irvalda, að slíta tengsl bama og ætt-
ingja við feður sínar og mæður sem
lent hafa á ógæfubrautinni?" spyr Ól-
afur Gunnarsson í opnu bréfi til Þor-
steins Pálssonar dómsmálaráðherra.
Ólafur kveðst hafa verið rekinn af
Litla-Hrauni vegna starfa sinna í þágu
Trúnaðarráðs fanga. Hann var þess í
stað vistaður í Hegningarhúsinu við
Skólavörðustíg. Ólafur segir að engin
„bylting" hafi orðið í fangelsismálum
með tilkomu nýju byggingaripnar á
Litla-Hrauni, einsog ráðamenn haldi
fram. Þvert á móti verði hagir fanga
um margt verri en áður, meðal annars
vegna þess að heimsóknartími sé stytt-
ur til mikilla muna. Bréf Ólafs til Þor-
steins er birt á blaðsíðu 7 í Alþýðu-
blaðinu í dag.
■ Starfsmenn Hafnarfjarðarbæjar enn með uppsögn sérkjara upp á vasann
Starfsandi með því versta sem gerist
- segir Árni Guðmundsson formaður Starfsmanna-
félagsins. Valgerður Guðmundsdóttir formaður
bæjarráðs: Unnið að lausn málsins.
■ Eining
Uppsögn
samninga
Almennir félagsfundir í Verka-
lýðsfélaginu Einingu Eyjafirði
hafa samþykkt að skora á launa-
nefnd landssambanda innan ASÍ
að segja nú þegar upp gildandi
kjarasamningum þannig að þeir
verði lausir um næstu áramót.
Ennfremur var samþykkt á fund-
um Einingar að veita stjórn og
trúnaðarmannaráði félagsins
heimild til að segja upp gildandi
kjarasamningum félagsins.
„Með fullri virðingu fyrir bæjarfull-
trúum í Hafnarfirði þá er ekki hægt að
umgangast starfsmenn bæjarins með
þeim hætti sem gert hefur verið.
Starfsandinn er með því versta sem
gerist og það er tilefni til úthlutunar
bjartsýnisverðlauna ef menn halda að
hægt sé að sækja einhvem spamað í
rekstrinum í laun og kjör bæjarstarfs-
manna,“ sagði Arni Guðmundsson
formaður Starfsmannafélags Hafnar-
fjarðar í samtali við blaðið. f haust
fengu 93 bæjarstarfsmenn bréf frá
bænum þar sem sérkjömm þeirra var
sagt upp frá og með næstu áramótum.
Á fundi þessa hóps á dögunum var
ákveðið að óska eftir viðræðum við
bæjarráð nú þegar þar sem engar
samningaviðræður hafi enn farið fram.
Fundurinn átaldi vinnubrögð bæjaryf-
irvalda og skoraði á þau að draga öll
bréfin til baka eða eyða með öðrum
hætti allri óvissu í eitt skipti fyrir öll.
Fyrir fimm vikum hafi bæjarstjóri lýst
því yfir að samningaviðræður væm að
heljast en ekkert orðið af þeim enn.
„Þetta er í rauninni svo að þessu
fólki var sagt upp störfum frá næstu
áramótum en átti að ræða við það um
sérkjör. Nú er svo komið að fólk verð-
ur að láta í ljós íyrir 1. desember hvort
það ætlar að vinna áfram hjá bænum
eða ekki. Ef það á að ganga ffá samn-
ingum við 93 starfsmenn á tveimur
dögum eða svo þá em það mjög ein-
kennileg vinnubrögð. Fólk er búið að
fá nóg af þessu háttalagi og vill fá
þetta mál út úr heiminum. Ef ekkert
gerist er mikil hætta á að bærinn missi
talsverðan hluta af sínu starfsfólki og
því viljum við viðræður strax," sagði
Ámi Guðmundsson.
Valgerður Guðmundsdóttir for-
maður bæjarráðs Hafnarfjarðar sagði í
samtali við blaðið að unnið hefði verið
í þessum málum af hálfu bæjarins.
Bæjarstjórinn hefði haft með þetta mál
að gera en hann hefði verið fjarver-
andi. Hann kæmi hins vegar til starfa í
dag og í framhaldi af því væri að
vænta fundar með fulltrúum starfs-
manna.
Arnór Benónýsson
um hrúta, Evrópu og
Davíð Oddsson
Kolbrún Bergþórsdóttir Þorsteinn Gunnarsson Arnór Hannibalsson
segir Hallgerði langbrók um Betelinga, kvótakónga um ósigur Walesa og nýjan
til syndanna og landflótta forseta Póllands