Alþýðublaðið - 22.12.1995, Page 6
6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
HELGIN
HÚtvarpspistill Ásgeirs Friðgeirssonar
fjölmiðlagagnrýnanda RÚV um dóm Siðanefndar
Blaðamannafélagsins og Alþýðublaðið
Siðanefnd á hálum ís
Siðanefnd Blaðamannafélags íslands er komin út á hálan ís.
Fyrir utan þversögn í forsendum dóms þá skýtur hún sendiboða hinna vondu tíðinda
og segir svo að sannleikurinn skipti ekki máli.
í annað sinn á innan við þremur árum hef-
ur Siðanefnd Blaðamannfélags íslands gert
sannleikann að aukaatriði.
Á miðju ári 1993 úrskurðaði Siðanefnd
Blaðamannafélagsins í vandmeðfömu sifja-
spellsmáli. Þar ásakaði maður í tímaritsvið-
tali föður sinn um kynferðislegt ofbeldi. Rit-
stjóri tímaritsins kannaði hjá þriðja aðila
áreiðanleika ásakananna en sá ekki ástæðu
til að leita svara hjá þeim sem var borinn
þeim. Siðanefnd áleit að ritstjórinn hefði
framið alvarlegt brot og vísaði til ákvæða
um að blaðamaður eigi að vanda upplýs-
ingaöflun sína, úrvinnslu og framsetningu
svo sem kostur er og sýna fyllstu tillitssemi í
vandasömum málum.
Svo virðist sem brot ritstjórans hefði verið
það helst að gefa sakbomingi ekki kost á að
svara. Siðanefnd tók skýrt fram í þessum úr-
skurði að hún væri ekki að úrskurða um
hvað væri satt í málinu og hvað ósatt.
í síðustu viku úrskurðaði siðnefndin í öðru
máli. Málavextir eru þeir að í blaðagrein
sem fjallar um viðhorf foryStumanns í ís-
lenskri þjóðmálahreyfmgu kemur fram að
nafngreindur alþingismaður sé félagi í
hreyfingunni og er umræddur formaður
hafður fyrir því. Upplýsingar þessar vom
þegar opinberar því þær höfðu komið fram á
opnum fundi kvöldið áður. Með fréttinni
birti blaðið mynd af alþingismanninum þar
sem hann segir að sér vitandi hafi hann
aldrei gengið í umrætt félag.
Siðanefnd Blaðamannafélagsins taldi að
ritstjóri dagblaðsins hefði framið alvarlegt
brot þar eð upplýsingaöflun, úrvinnsla og
framsetning hafi ekki verið sem skyldi. Líkt
og í fyrra dæminu frá 1993 þá virðist helsta
sök ritstjórans vera sú að leita ekki til þess
sem borinn var ásökunum í frétt blaðsins.
Aftur minnir Siðanefnd á að það sé ekki
hlutverk nefndarinnar að meta sannleiks-
gildi einstakra frétta, heldur einvörðungu að
meta vinnubrögð blaðamanna og fjölmiðla.
I þessu máli held ég að ég hugsi eins og
margir aðrir blaðamenn: Það hlýtur að vera
eitthvað rangt við það mat að sannleikurinn
skipti ekki máli. Skoðum málið nánar.
Ef við gefum okkur að hægt sé að greina
svo klárlega milli vinnubragða og sannleik-
ans eins og nefndin telur mögulegt þá stönd-
um við frammi fyrir því að formsatriði eru
gerð að aðalatriði.
Allir þeir sem hafa komið nálægt blaða-
og fréttamennsku vita að fátt er fengið með
því að leita til þeirra sem bomir em óvænt-
um sökum. I raun er það oft ekki gert, - efn-
islega breytir það firéttinni ekki neitt og þar
fyrir utan er oft erfitt að koma því við vegna
þess hve margt kemur fram í beinum útsend-
ingum ljósvakamiðla og þess mikla hraða
sem er á fréttaflutningi nú á tímum. Mönn-
um er hins vegar oftast gefinn kostur á að
svara fyrir sig síðar á sama vettvangi. Það er
talið til formsatriða í blaðamennsku hvort
þeir fái að svara ásökunum fyrir eða eftir
birtingu þeirra.
í báðum ofangreindum úrskurðum gerir
Siðanefttdin þessi formsatriði að aðalatriði
og segir jafnframt að það sé aukaatriði hvað
sé satt eða logið.
Við skulum huga að fleim. Ef við skoðum
betur umljöllun Siðanefndar í máli alþingis-
mannsins kemur nokkuð athyglisverð þver-
sögn í ljós. Þar segir, eins og áður hefur
komið fram, að það sé hlutverk nefndarinnar
að meta vinnubrögð blaðamanna en ekki
sannleiksgildi einstakra frétta eða frásagna.
- En svo bætir nefndin við: „.. .nema að svo
miklu leyti sem það er nauðsynlegt eða
hjálplegt til að meta vinnubrögð þeirra
blaðamanna sem kæran beinist að“.
Samkvæmt eigin forskrift á þá nefndin
bæði að hafa sannleikann til hliðsjónar og að
horfa framhjá honum. Það virðist því vera
svo að siðanefnd hafi getað tekið tillit til
þess hvað var satt í þessu máli og hvað ekki,
teldi hún það nauðsynlegt. En það gerir hún
ekki, - hún virðist ákveða að horfa framhjá
sannleikanum. Það gerir hún án rökstuðn-
ings, - nefndin lætur hjá líða að rökstyðja af
hverju hún telur það ekki nauðsynlegt eða
hjálplegt að skoða hvað er rétt og hvað er
rangt þegar meta á vinnubrögð í þessu máli.
Þetta hlýtur að vera yfirsjón og ber hún
ekki vott um vönduð vinnubrögð nefndar-
innar.
Skoðum fleiri hliðar á þessu máli.
Hefði sjónvarpið til dæmis sýnt upptökur
frá umræddum fundi þar sem upplýsingam-
ar um alþingismanninn komu fram og síðan
birt rnynd af viðkomandi alþingismanni, -
hefði þar verið um alvarlegt brot á siðaregl-
um að ræða?
Hugsum okkur annað dæmi:
Komi það til dæmis fram í fréttum útvarps
að Guðni Ágústsson, þingmaður Framsókn-
arflokksins á Suðurlandi, hafi haldið því
fram á fundi að Hrafn Jökulsson, varaþing-
maður Alþýðuflokksins í sama kjördæmi,
hafi um tíma verið í Framsóknarflokknum
og þá ekki mælt gegn landbúnaðarstefnu
flokksins, - þá get ég tæplega séð að Hrafn
eigi að fá útrás fyrir bræði sína með því að
kæra fréttamann útvarpsins fyrir Siðanefnd
Blaðamannafélagsins.
Ég get ekki með neinum hætti komið auga
á brot blaðsins - allt það sem máli skipti
hafði komið fram opinberlega áður. Blaðið
gegndi fyrst og fremst hlutverki sendiboð-
ans.
Ef alþingismaðurinn var ósáttur og taldi
að vegið hefði verið að æru sinni átti hann að
sjálfsögðu að glíma við þá forvígismenn
umræddrar þjóðmálahreyfingar sem sögðu
að hann hefði verið félagi þeirra.
Blaðamenn verða að fara að endurskoða
sín siðamál. Annaðhvort þarf að stokka upp
þær reglur sem til viðmiðunar eru eða að
huga að þeim hefðum sem skapast hafa við
túlkun á þeim siðareglum sem í gildi eru.
Eitt er víst:
Siðanefnd Blaðamannafélags íslands er
komin út á hálan ís. Fyrir utan þversögn í
forsendum dóms þá skýtur hún sendiboða
hinna vondu tíðinda og segir svo að sann-
leikurinn skipti ekki máli.
Flutt í Ríkisútvarpinu 13. desember.
Birt meö leyfi höfundar.
desember
Atburðir dagsins
1375 ítalska skáJdið Giovanni Boccaccio
deyr. Hann skrifaði hundrað sögur um
fólk sem reyndi að flýja pláguna í Flórens
1348.1945 Ölfusárbrú við Selfoss form-
lega opnuð til umferðar. 1945 Bandariski
hershöfðinginn George Patton deyr eftir
bílslys. 1952 Á Austurvelli var kveikt á
fyrsta jólatrénu sem Oslóbúar gáfu Reyk-
vikingum. 1969Ámagarðurvígður. 1989
Sigurður Þorvaldsson á Sleitustöðum í
Skagafirði lést. Hann hefur orðið elstur
íslenskra karla, 105 ára og 333 daga.
Afmælisbörn dagsins
Páll Árnason 1776, rektor og orðabóka-
bókahöfundur. Heinrich Böll 1917,
þýskur Nóbelshöfundur. Jane Fonda
1937, bandarísk leikkona. Frank Zappa
1940, bandariskur rokkari.
Annálsbrot dagsins
Böm tvö fæddust, samföst á kviðnum,
fyrir norðan; vom bæði stúlkuböm, lifðu
ekki lengi, deyðu bæði undireins.
Grímsstaðaannáll 1745.
Afsökun dagsins
Ég var ekki að kyssa hana, ég var bara að
hvísla í munninn á henni.
Gamanleikarinn Chico Marx, þegar eigin-
kona hans kom að honum meö dansmey.
Lífssaga dagsins
Langar yður að vita, hvað er sögulegast
við líf mitt? Að ég hef lagt snilligáfu
mína í líf mitt; í verk mín hef ég aðeins
lagt hæfileikana.
Oscar Wilde.
Málsháttur dagsins
Oft slökkur ein sorg aðra.
Orð dagsins
Enginn grœtur Islending,
einan sér og dúinn.
Þegar allt er komið í kring,
kyssir torfa núinn.
Jónas Hallgrímsson orti þessa vísu þennan
dag fyrir 151 óri.
Skák dagsins
I fljótu bragði virðist ekki mikilla tíðinda
að vænta í skák dagsins. Hún var tefld ár-
ið 1954; Kwiletski hefur hvítt og á leik
gegn Roslinski. Kviletski lýkur hinsveg-
ar skákinni af mikilli einurð og festu.
Hvítur leikur og vinnur.
1. De5+ Kf8 Ekki Kg8 vegna He8+ 2.
Df6! Svartur gafst upp: drepi hann hró-
kinn á e7 mátar hvítur með Dh8. Snoturt.
Jólaskák-
þrautir
Alþýðu-
blaðsins
1 Weichert - Neye, 1937
Hvítur mátar íþremur leikjum.
2 Olsen - Jacobsen, 1953
Svartur leikur og vinnur.
3 Bauer - Göllner, 1956
Hvítur leikur og vinnur.
4 Bronstein - Geller, 1961
Hvítur leikur og vinnur.
5 Andersson - Nunn, 1982
Svartur leikur og vinnur.
L a u s n i r
HQedeiöOiSPH ■ ■ L
>/s/ 'p/s/ nng[us essacj e mya jbBba
-suili iQBiej uunN jnuuiA jnpeAS
Bo +zpxq £6 y +geg 314» £ +taxa
ZP*H Z iiZPH •" ’l S puAiuneots
■fBUJ g6a ‘£ 60 +£6xh
Z 96XJ 't :jaqueujes 'ddn js}eB
jnpeAS ii96a 'L -V puAuinpojs
teujgja '£86xa i+86a
'z <+p<ta £ mx +sBa 'Z 9yxy ■■■
'L) 9qx6 i+gqxH 't :g PuAiunpois
■ddn jsjeB jnjiAH goxa z6x>|
Z ii+z6xa '•■ 'L -Z puAuinppts
jjeuj iPH '8 84» ++96a
Z 9úxa ii+gqa L -l puAuinpojs