Alþýðublaðið - 22.12.1995, Síða 16

Alþýðublaðið - 22.12.1995, Síða 16
Hvað á að lesa um jólin? Alþýðublaðið kann svar við því og hérna eru bækurnar sem blaðið mælir sérstaklega með þetta árið. Þýddar skáldsögur tungu þótt viðfangsefnið sé náttúr- lega ekkert grín. Það talar í trjánum eftir Þorstein frá Hamri. Ið- unn. Það er með ólíkindum hvemig Þorsteini tekst sí- fellt að bæta við sig: nýja bókin hans er hreint og tært meistaraverk. Hann er per- sónulegri en í síðustu bók- um, skrifuð á fegurra máli en nokkuð annað íslenskt skáld hefur á valdi sínu. Enginn kemst nær því en Þorsteinn frá Hamri að orða hið óorðanlega. Speglabúð í bænum eftir Sigfús Bjartmarsson. Bjartur. Þegar Sigfúsi tekst best upp skrifar hann stíl sem er hrein og klár snilld. Sigfús er skemmtilegt sambland af þingeyskum töframanni og heimsborgara. Ljóð hans hafa ekki alltaf verið að- gengileg - en ávallt þess virði að við þau sé glírnt. Það er hinsvegar óþarfi að óttast Sigfús að þessu sinni, enda má segja að hann komi til móts við lesendur. Útkoman er svellandi fín bók - ljóðin eru háðsk, frumleg og umfram allt vel stíluð. LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR sími: 568 8000 <»j<» jrm$kkf28. iumíir % MAFIAIU Frú Bovary eftir Gustave Flau- bert. Þýðandi Pétur Gunnars- son. Bjartur. A sinn hátt eitthvert fullkoinnasta verk heimsbók- menntanna, svo einfalt er það. Þýðing Péturs gerir frumtextanum fullan sóma. Hún er fágætt afrek. Lát hjartað ráða för eftir Sus- anna Tamarö. Þýðandi Thor Vilhjálmsson. Setberg. Umfram allt einlæg og falleg skáldsaga sem höfðar í senn til til- finninga og vitsmuna. Afar vel þýdd. Mefistó eftir Klaus Mann. Þýð- andi Bríet Héðinsdóttir. Orm- stunga. Lykilskáldsaga um leikara sem selur sig illþýðinu í hirð Hitlers og bíður af sálartjón. lllyrmislega meinhæðið verk, uppfullt af skrítnum, sérkennilegum og and- styggilegum persónum, og kannski fyndnasta bók á þýska Bækurnar sem Alþýðublaðið mælir með íslenskar skáldsögur Híbýli vindanna eftir Böðvar Guðmundsson. Mál og menn- ing. Böðvar hefur loks fundið sér bún- ing sem hæftr honum. Sumir myndu jafnvel segja að það væru fötin af Bimi Th., en þau fara Böðvari ansi vel. Kvöldið í Ijósturninum eftir Gyrði Elíasson. Mál og menn- Mávahlát- ur eftir Kristínu Marju Baldurs- dóttur. Mál og menning. Hressilegasta og skemmtilegasta skáldsaga ársins. Verður kannski ekki metin að verðleikum, einmitt vegna þess. Kannski er hún ein- faldlega of blátt áfram. Sagan sem hér fer á eftir Cees Nooteboom. Þýðandi Kristín Waage. Vaka-Helgafell. Verk án formgalla, skrifað af ör- yggi og vitsmunum, án nokkurrar tilgerðar. Listaverk. Ljóðabækur Ljóðlínu- skip eftir Sigurð Pálsson. Forlagið. Loksins var bók eftir Sigurð til- nefnd til Is- lensku bók- mennta- verðlaun- anna, og vonandi koma þau í hlut þessa óviðjafnan- lega skálds. Stfll skáldsins í nýrri bók er meitlaðri en áður, ! ? ljóðin eru um margt krefj- andi - rétt einsog ástin sem Sigurður hefur ort nieira og betur um en flest önnur skáld. ing. Gyrðir er einn af fá- um höfund- um á Is- landi sem hefur vott af snilli- gáfu. Verk hans njóta samt ekki álits í samræmi við það; einhvem veginn er vill svo furðulega til að það er líkt og menn skilji ekki stórtíðindin sem bækur hans sæta. Ástin ljóðlistin eftir Paul Éluard. Þýðandi Sigurð- ur Pálsson. Mál og menn- ing. Þótt Éluard fetaði ótrauður torráða slóð súrrealismans var hann um leið skáld sem naut óvenjulegrar lýðhylli. Það var náðargáfa hans að geta brugðið upp furðulega óvæntum myndum á auð- skildu og skýru máli, ekki síst í ástarkvæðum sem sindrar á. Ljóðakver sem ætti að vera öllum almenni- legum elskendum hjartfólg- ið. Bækur almenns efnis Ströndin í náttúru íslands eftir Guðmund P. Ólafsson. Mál og menning. Hér fá bókagerðarmenn að taka á af öllum kröftum og útkoman er glæsileg. Ljósmyndir Guðmundar bera vott urn aðdáunarverða þrá- kelkni og textinn er afar aðgengi- legur. Vídalínspostilla. Ritstjórar Gunnar Kristjánsson og Mörð- ur Árnason. Mál og menning. Kannski ekki skemmtiefni sem hægt er að lesa í einni lotu. En þeir sem komast í gegn verða margs vísari um brennandi mæl- skulist eins af meisturum íslenskr- ar tungu. Formáli séra Gunnars bregður nýju - og óvæntu - ljósi á guðfræði Vídalíns; þetta var þá ekki eintómur eldur og brenni- steinn. Milli vonar og ótta eftir Þór Whitehead. Vaka- Helgafell. ísland á tíma þegar heimurinn var að ganga af göflunum og ráð- stjómarkommar yggldu sig í austri en þjóðemissósíalistar sóttu fram í Evrópu. Einna merkilegast er að lesa hvemig tveir helstu rithöfund- ar þjóðarinnar, Halldór Laxness og Gunnar Gunnarsson, hölluðust hvor að sinni helstefnunni. Gmnd- vallarrit. Ævisögur og endur- minningar Paula eftir Isabel Al- lende. Mál og menn- ing. Ekki síðri bók en Hús andanna. Lesandinn kemst ekki hjá því að vera gagntekinn af verkinu. Þetta er bók sem heldur mönnum við efnið, ekki einungis á meðan þeir lesa hana heldur einnig í þó nokk- um tíma eftir lesturinn. Það ætti enginn að verða fyrir vonbrigðum með þessa bók. Handbækur íslenskar tilvitnanir. Ritstjóri Hannes Hólmsteinn Gissurar- son. Almenna bókafélagið. Verk sem er að mörgu leyti ábóta- vant enda er þetta einungis fyrsta atrenna til að búa til bók af því taginu sem þarf að vera til í öllum siðuðum löndum. Kverúlantar fá nóg til að fárast yfir, aðrir láta sér lfldega nægja að dást að orðsnilld- inni. Alþýðu- flokkur Kópavogs Reglulegir mánudagsfundir hefjast á nýju ári, mánudaginn 8. janúar 1996 kl.20.30. Fundirnir fara fram í félags- heimili ílokksins, Hamraborg 14A 200 Kópavogi og eru opnir öllum flokksmönnum. Nefndarfólk er sérstaklega boðið velkomið. Stjórnin Alþýðuflokkur Kópavogs ósk- ar öllum flokksmönnum og stuðningsaðilum Alþýðu- flokksins Jafnaðarmannaflokks íslands gleðilegra jóla og far- sæls kontandi árs!

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.