Alþýðublaðið - 12.01.1996, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 12.01.1996, Qupperneq 1
■ Rússar gagnrýna Norðmenn harðlega fyrir að ákveða einhliða veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum Stuðningur við málflutning okkar -segirSighvatur Björgvinsson alþingismaður. Færi skapasttil að reka fleyg milli Rússa og Norðmanna í öðr- um málum sem snerta veiðar í Norðurhöfum. „Þetta er stuðningur við málflutn- ing okkar íslendinga. Við höfum líka gagnrýnt Norðmenn harðlega fyrir óábyrga framkomu," sagði Sighvatur Björgvinsson alþingismaður í samtali við Alþýðublaðið í gær. í fréttum Ríkisútvarps kom fram að Rússar gagnrýna Norðmenn harðlega fyrir að hafa einhliða ákveðið að veiða 725 þúsund tonn úr norsk-íslenska sfldar- stofninum. Fiskifræðingar segja óhætt að veiða allt að milljón tonn úr stofninum, og því ljóst að lítið er til skiptanna fyrir fslendinga, Rússa og Færeyinga, sem einnig hafa nýtt stofnínn, nái Norðmenn fram vilja sínum. Rússar og Norðmenn voru sam- stiga á síðasta ári, en íslandi og Fær- eyjum voru þá settir slflcir afarkostir að samningar náðust ekki. Fyrir vikið voru veiðar íslendinga og Færeyinga einskorðaðar við fiskiveiðilögsögu ríkjanna. Samningaviðræður um skiptingu sfldveiða á þessu ári hafa verið árang- urslausar en fundað verður í Moskvu síðar í mánuðinum. Sighvatur kvaðst telja lfldegt að Rússar tilkynni Norð- mönnum, Færeyingum og íslending- um að þeir ákveði sjálfir hve mikið þeir veiða. Rússar standi hinsvegar frammi fyrir því, að þótt uppeldis- stöðvar norsk-íslenska stofnsins sé að hluta í rússneskri lögsögu þá verði þeir að semja við Norðmenn um að veiða sfldina í lögsögu Noregs. Sig- hvatur sagði því að torvelt yrði að fá Rússa í bandalag með íslendingum og Færeyingum gegn Norðmönnum, þarsem síldin héldi sig að mestu í norsku fiskveiðilögsögunni., „Það er hinsvegar ágætt ef ágrein- ingur verður milli Rússa og Norð- manna. Þá er hugsanlega hægt að reka fleyg milli þeirra í öðrum málum sem varða veiðar í Norðurhöfum." ■ Enn bætist við lista hugsanlegra forsetafram- bjóðenda Skorað á Pét- ur Kr. Hafstein Samkvæmt heimildum Alþýðu- blaðsins vinnur hópur manna að því að fá Pétur Kr. Hafstein hæstaréttar- dómara og fyrrum sýslumann í for- setaframboð. Pétur, sem verður 47 ára í mars, er sonur Ragnheiðar og Jó- hanns Hafsteins, sem var formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráð- herra. Pétur var sýslumaður á Isafirði 1983-91 en hefur síðan gegnt embætti hæstaréttardómara. Ekki náðist í Pétur sjálfan vegna málsins í gær, en blaðið hefur heimildir fýrir því að máhð hafi verið rætt við hann. ■ Jón Baldvin Hannibalsson í viðtali við norskt dagblað Styð konu í for- setaembættið Vill ekki nafngreina hana af ótta við að skaða framboð hennar. í viðtali við norska dagblaðið Sta- vanger Tidning segist Jón Baldvin Hannibalsson styðja ákveðna konu í embætti forseta Islands. Blaðið segir að þar sem Jón Baldvin sé umdeildur á íslandi vilji hann ekki opinberlega lýsa yfir stuðningi við hana þar sem hann óttist að stuðningur sinn kunni að skaða framboð hennar. „Það eina sem ég vil segja er að ég styð konu til forseta. Forsætisráðherr- ann Davíð Oddsson virðist hafa hug á því að verða forseti. Tækist það yrði áralöng hefð rofin. Síðustu forsetar hafa komið úr menningargeiranum,“ er haft eftir Jóni Baldvin sem blaðið segir vera litríkan og umdeildan stjórnmálamann. Fiskveiðideila Is- lendinga og Norðmanna er einnig til umræðu, en Jón Baldvin segir að Is- lendingum beri að stefna Norðmönn- um fyrir Alþjóðdómstólinn í Haag vegna 200 mílna lögsögunnar sem Jón Baldvin: Davíð Oddsson virðist hafa hug á forsetaembættinu. þeir tóku sér við Svalbarða. Jón Bald- vin víkur síðan að Evrópusambandinu og segist hafa trú á því að Island og Noregur eigi eftir að vera aðilar að bandalaginu, enda muni samstarf yftr landamæri tryggja atvinnuöryggi og velferð einstaklinga í alþjóðasamfé- lagi nýrrar aldar. Listakona á tíræðisaldri Næst komandi laugardag klukkan 15:00 verður opnuð sýninga á verk- um Maríu M. Asmundsdóttur mynd- listarkonu, frá Krossum í Staðarsveit. Sýningin verður í húsakynnum Fé- lags eldri borgara í Reykjavflc og ná- grenni að Hverfisgötu 105,4. hæð. María, sem nú er á 97 aldursári, hefur fengist við margvíslega lista- vinnu lengst af ævinni. Hún hefur málað myndir allt frá unga aldri. Eignaðist fljótt myndavél og notaði síðan myndirnar til að mála eftir . Annars hefur hún sótt myndefni víða að, þar á meðal frá Danmörku og Noregi. Þá hefur hún málað á gler, og útsaum hefur hún lagt mikið í, enda erfitt og vandasamt verk. María sýndi verk sín fyrst í útstill- ingargluggum hjá Marteini Einars- syni árið 1930 og síðan árið 1990 í félags- og þjónustumiðstöðinni í Ból- staðarhlíð, en hefur nú safnað saman stærra safni af ýmsum listmunum, sem einnig verða til sýnis. Dagskrá um Don Juan Næstkomandi mánudagskvöld verður hinn margrómaði og smáði Don Juan tekinn til umfjöllunar í Listaklúbbi Leikhúskjallarans. Fjallað verður um uppsetningu litháíska leik- stjórans Rimosar Tuminas á leikriti Moliére og hún skoðuð frá ólíkum sjónarhólum. Nokkrir af aðstandend- um sýningarinnar munu sitja fyrir svörum um ýmislegt er varðar sýning- una og vinnslu hennar. Sýning þessi hefur eins og kunnugt er hlotið afar ólíka dóma - nokkra einstaklega góða en aðra mjög slæma. Elísabet Jökulsdóttir er hér titluð áhorfandi, Guðmundur Andri Thorsson karlmaður, Edda Heiðrún Backman leikkona, Amór Benónýs- son gagnrýnandi og Silja Aðalsteins- dóttir leikhúsvinur munu flytja stutt erindi.. Leikaramir Jóhann Sigurðar- son og Sigurður Sigurjónsson flytja kafla úr verkinu og gestum gefst kost- ur á að virða fyrir sér búninga Vytaut- asar Narbutas og njóta tónlistar Faustasar Latenas bæði úr Mávinum og Don Juan. Leitað var til Jóns Við- ars Jónssonar gagnrýnanda Dags- ljóss. Hann gat því miður ekki komið þar sem hann verður erlendis á mánu- daginn. Umsjón með dagskránni hefur Ásdís Þórhallsdóttir en hún hefur unnið sem aðstoðarleikstjóri Rimasar í báðum þessunt sýningum. Þeir eru stundum kailaðir Lenín og Stalín, eða Marx og Engels, póst-sovéskr- ar myndlistar. í útliti gætu þeir hins vegar verið náskyldir Gög og Gokke, og list þeirra verið eftir þá alla; hún er sérkennilegt sambland af alvöru og glen- si, auglýsingaskrumi og pólitískri hugsjónamennsku. Þeir heita Komar og Melamid og á morgun afhjúpa þeir á Kjarvalsstöðum málverkið sem íslenska þjóðin vildi helst sjá og málverkið sem íslenska þjóðin kærir sig síst um. í Alþýðublaðinnu í dag segir frá litríkum ferli þessara skringilegu myndlistar- forkólfa.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.