Alþýðublaðið - 24.01.1996, Blaðsíða 1
■ Jákvæðar undirtektir Þjóðvaka við hugmyndum um samvinnu við Alþýðuflokkinn
Formlegar viðræð-
ur á næstu dögum
-segir Jón Baldvin Hannibalsson. Rannveig Guðmundsdóttir formaður þingflokks
Alþýðuflokksins: Mín trú að tekið verði í útrétta sáttahönd. Ásta Ragnheiður Jó-
hannesdóttir þingmaður Þjóðvaka: Sameining gæti verið í augsýn.
„Mér er ánægjuefni að viðbrögðin
hafa reynst jákvæð. Eg geri ráð fyrir
því að nú á næstu dögum munum við
taka upp formlegar viðræður okkar í
milli um málið,“ sagði Jón Baldvin
Hannibalsson í samtali við Alþýðu-
blaðið í gær um viðbrögð Þjóðvaka
við tillögum hans um samvinnu flokk-
anna. í viðtali við Alþýðublaðið síð-
astliðinn föstudag lýsti Jón Baldvin
þeirri skoðun að fyrsta skrefið í átt til
sameiningar jafnaðarmanna gæti orðið
sameiginlegur þingflokkur Alþýðu-
flokks og Þjóðvaka.
I Þjóðvakablaðinu, sem út kemur í
dag, er forsíðuviðtal við Jóhönnu þar
sem hún fagnar fmmkvæði Jóns Bald-
vins. Nánar er sagt frá viðtalinu við
Jóhönnu annarsstaðar á síðunni. Jón
Baldvin sagði að samvinna þingflokk-
anna gæti orðið fyrsta skrefið á lengri
leið. „Þetta gæti orðið prófsteinn á það
hvað menn raunverulega meina þegar
þeir boða aðgerðir um sameiningu
jafnaðarmanna. Á bak við hlýtur að
búa sú hugsun að gefa kjósendum
raunverulegan valkost við núverandi
stjóm,“ sagði Jón Baldvin.
Rannveig Guðmundsdóttir formað-
ur þingflokks Alþýðuflokksins fagn-
aði því að fulltrúar flokkanna væru
famir að tala um samstarf. Hún sagði:
„Alþýðuflokkurinn á að vera með op-
ið tilboð til Þjóðvaka því það er mín
trú að það komi að því að tekið verði í
útrétta sáttahönd."
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir
þingmaður Þjóðvaka sagði að staða
stjómarandstöðuflokkanna í skoðana-
könnunum gæfi þeim sérstakt tilefni
til að þjappa sér betur saman. Hún
sagði ennfremur: „Ég vona að þeim
auðnist að sameina kraftana fyrr en
síðar og hver veit nema það sé í aug-
sýn.“'
Samkvæmt heimildum Alþýðu-
blaðsins ræddu Jón Baldvin og Jó-
hanna saman í gær, en Jón Baldvin
vildi ekki tjá sig urn viðræður þeirra.
Sjá viðtöl á baksíðu.
Jón Baldvin Hannibalsson og Jóhanna Sigurðardóttir ræddu saman í gær
um hugmyndir um samvinnu þingflokka Þjóðvaka og Alþýðuflokks.
■ Ástarbréf með
sunnudagskaffinu
IMýjung
í Þjóðleik-
húsinu
Þjóðleikhúsið býður nú upp á leik-
sýningu síðdegis á sunnudögum í
Leikhúskjallar-
anum. Sýnt
verður leikritið
Ástarbréf og
njóta leikhús-
gestir kaffiveit-
inga meðan
horft er á sýn-
inguna. Leik-
endur í Ástar-
bréfuni eru Her-
dís Þorvaldsdóttir og Gunnar Eyjólfs-
son.
Ástarbréf er hugljúft, bandarískt
verk um mann og konu sem komin
em á efri ár. Þau hafa þekkst allt frá
bemsku og hafa haldið stöðugu bréfa-
sambandi í gegnum árin. Samband
þeirra hefur þróast í gegnum bréfin,
dýpkað og tekið á sig ýmsar myndir.
Aðstæður hafa þó valdið því að þau
hafa aldrei náð alveg saman. Leikritið
lýsir ást þeirra, tilfinningum og eftir-
sjá.
Ástarbréf vom sýnd við miklar vin-
sældir á
Litla sviði
Þjóðleik-
hússins fyr-
ir tveimur
árum og
var farið
með verkið
í leikferð á
1 i ð n u
sumri.
Höfundur er bandariska leikskáldið
A.R. Gumey, en það var Úlfur Hjörv-
ar sem þýddi verkið.
Þómnn S. Þorgrímsdóttir er höfúnd-
ur leikmyndar, Ásmundur Karlsson
haniiar lýsingu. Leikstjóri er Andrés
Sigurvinsson.
Forsýning verður á Ástarþréfum í
Þingholti, Hótel Holti laugardaginn
27. janúar klukkan 15.00 á vegum Fé-
lags íslenskra háskólakvenna og
Kvenstúdentafélags Islands.
Skilvísir þjófar Það vakti mikla athygli nýverið
þegar brotist var inn í Bókavörðuna við Vesturgötu og ýmsu fágæti stol-
ið. Þar á meðal voru bækur, póstpoki, faxtæki, skjaldamappa sem merkt
var Stasi og innrömmuð mynd af Adolf Hitler. Þjófarnir virtust semsagt
bæði áhugamenn um sögu og fagrar bókmenntir, en í Bókavörðunni var
settur upp galdrastafur til að hindra frekari gripdeildir að næturþeli. Nú er
komið á daginn að áhrif galdrastafsins voru enn meiri en búist var við:
allt þýfið er til skila komið utan faxtækið. Ari Gísli Bragason verslunar-
maður sagði að tækið kæmi væntanlega aftur í hús á næstu dögum. Þjóf-
unum hefði hinsvegar verið sagt að þeir skyldu fyrir alla muni haida eftir
myndinni af Hitler sáluga. A-mynd: E.ÓI.
■ Tuttugasti hver maður atvinnulaus 1995
6538 atvinnu-
lausir í fyrra
Árið 1995 voru um 6538 manns að
meðaltali atvinnulausir á landinu,
eða 5% af áætluðum mannafla á
vinnumarkaði, samkvæmt nýjum
tölum frá vinnumálaskrifstofu fé-
lagsmálaráðuneytisins. Atvinnuleysi
jókst því um 0,2 prósentustig frá
1994 en þá voru 6209 atvinnulausir
að meðaltali. Skráð atvinnuleysi 1995
skiptist svona eftir svæðum og kyni.
Svæði_______________________Konur__________Karlar________Alls
Höfuðborgarsvæðið 6,2%4,3%5,1%
Landsbyggðin 6,6% 3,5% 4,8%
Vesturland 5,0% 2,9% 3,7%
Vestfirðir 2,0% 1,7% 1,8%
Norðurland vestra 7,8% 3,5% 5,2%
Norðurland eystra 6,7% 4,8% 5,6%
Austurland 6,4% 3,8% 4,8%
Suðurland 8,0% 3,8% 5,5%
Landið allt 6,4% 4,0% 5,0%
Rýnt í forsetaefni
Alþýðublaðið birtir í dag veglega úttekt á þeim einstaklingum sem
helst hafa verið orðaðir við forsetaframboð. Blaðið fékk til liðs við sig
fólk sem er öllum hnútum kunnugt í kosningastarfi og bað það að vega
og meta styrk og veikleika forsetaefna, hvaðan þau geta helst vænst
stuðnings og hvað þau þurfi að til bragðs að taka til að gera sig
gildandi í langhlaupinu á Bessastaði.
■ Jóhanna Sigurðardóttir óskar eftir viðræðum við Alþýðuflokkinn
Fagnar frumkvæði Jóns Baldvins
„Mér finnst rétt að verkin fari að tala í þessu sameiningarmáli."
„Ég fagna því frumkvæði Alþýðu-
flokksins sem fram kom í máli for-
manns flokksins í Alþýðublaðinu í síð-
ustu viku. Það var vissulega jákvætt
framlag. Því svara ég einfaldlega
þannig að fyrir hönd Þjóðvaka óska ég
eftir viðræðum við Alþýðuflokk um
samstarfið," segir Jóhanna Sigurðar-
dóttir í viðtali við Þjóðvakablaðið sem
út kemur í dag.
I viðtalinu segir Jóhanna ennfremur:
„Mér finnst rétt að verkin fari að tala í
þessu sameiningarmáli. Mikilvægt er
að flokkamir sem opnir eru fyrir þessu
sameiningarferli, Alþýðuflokkur, Al-
þýðubandalag og Þjóðvaki hefji nú
þegar viðræður um þessi mál. Margir
hafa séð fyrir sér að þingflokkamir geti
starfað saman sem einn þingflokkur -
þingflokkur jafnaðarmanna, en héldu
sjálfstæði, þannig að þingmannahópar
flokkanna yrðu samt til áfram sem
sjálfstæðar einingar. Samstarfið getur
þannig þurft að þróa í nokkrum áföng-
um.
Jóhanna segir að miklu skipti að
hefja uppbyggingarstarfið sem fyrst og
að jákvætt hugarfar sé afar inikilvægt.
Flokkamir verði að bregðast við kröf-
um og væntingum grasrótarinnar, og
unga fólksins sérstaklega sem auðvitað
verði að taka þátt í þessu ferli.
H