Alþýðublaðið - 24.01.1996, Page 6
6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 1996
} ó I i t í k
Ungir jafnaðarmenn
Málstofa um
umhverfismál
Fundur verður miðvikudaginn 24. jan. kl. 20.30 í Alþýðu-
húsinu Hverfisgötu 8 -10.
Niðurstaða málefnavinnu nefndarinnar liggur frammi á
skrifstofu sambandsins. Allar athugasemdir vel þegnar
Stjórn málstofu um umhverfismál
Framkvæmda-
stjórnarfundur
Framkvæmdarstjómarfundur verður haldin miðvikudag-
inn 24. jan. kl. 17.30, að Hverfisgötu 8 -10.
Mikilvægt er að þeir framkvæmdarstjórnarmeðlimir
sem ekki sjá sér fært að mæta tilkynni forföll á skrifstofu
sambandsins.
Framkvæmdarstjóri SUJ.
Sambands-
stjórnarfundur
Sambandsstjórnarfundur verður haldin næstkomandi
laugardag í Keflavík. Þar verður kosið í laus embætti að
vegum ungra jafnaðarmanna. Nánari dagskrá auglýst
síðar.
Framkvæmdarstjórn.
L
Landsvirkjun
Úthoð
Leiðiskóflur og legur
Landsvirkjun óskar hér með eftir tilboðum í viðgerðir og
breytingar á leiðiskóflum og endurnýjun á slífum skóflu-
búnaðar Kaplanhverfla í Steingímsstöð, í samræmi við
útboðsgögn SOG- 04.
Verkið felst í að sækja og afhenda á vinnusvæði Stein-
grímsstöðvar leiðiskóflur o.fl. úr tveimur hverflum
stöðvarinnar, og framkvæma á þeim ýmsar breytingar.
Skiladagar verksins eru mánudaginn 29. apríl 1996 fyrir
fyrri hverfilinn, en þriðjudaginn 10. september 1996 fyrir
seinni hverfilinn.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Landsvirkjunar,
Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík, frá og með miðviku-
deginum 24. janúar 1996 gegn óafturkræfu gjaldi að
upphæð kr. 3.000,- m. VSK fyrir hvert eintak.
Tilboðum skal skila á sama stað fyrir kl. 12:00 þriðjudag-
inn 13. febrúar 1996 og verða þau opnuð þar sama dag
kl. 14:00. Fulltrúum bjóðenda er heimilt að vera við-
staddir opnunina.
UTBOÐ
RARIK óskar eftir tilboðum í:
RARIK 96001 6,3 MVA, 66 (33)/33kV aflspenni.
Utboðsgögn verða seld á aðalskrifstofu RARIK, Laugavegi
118, 105 Reykjavík, frá og með þriðjudeginum 23. janúar
1996 og kosta 2.000 kr. hvert eintak.
Skila þarf tilboðum á skrifstofu RARIK, Laugavegi 118,
Reykjavík, fyrir kl 14.00 fimmtudaginn 15. febrúar 1996. Til-
boðin verða þá opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda sem óska að
vera nærstaddir.
Vinsamlega hafið tilboðin í lokuðu umslagi,
merktu: RARIK 96001.
RARIK
Laugavegi 118 • 105 Reykjavík
Sími 560 5500 • Bréfasími 560 5600
■ Þorsteinn Antonsson skrifar
Jöfnudur
Hverjar eru andstæður í pólitíkinni?
Jöfnuður? Eru jafnaðarmenn ekki
flæktir í orð sem lýsa því síst sem þeir
helst æskja? Fáir efast víst um að ríki
réttlæti í þróuðum þjóðfélögum eins
og því íslenska án þess að lögð sé sér-
stök áhersla á jöfnuð með stjómmála-
baráttu. Stofnanir þjóðfélagsins hafa
þegar hlotið föst form sem beina rétt-
lætismálum á einn og sama veg, og fái
þau ekki framgang verður mannlegum
ófullkomleika helst um kennt en ekki
rangri pólitík í samfélaginu. Agrein-
ingur um grundvallarmál ræður ekki
úrslitum um hvort vökult eftirlit sé
með athöfnum stjórnvalda heldur
samkeppni um völd og embætti. Og í
annan stað eru það fjármál sem helst
ráða úrslitum um hvort réttlætið nær
fram að ganga, - dómsniðurstöður
fást ekki fyrr en um síðir vegna tak-
markaðra fjárframlaga til réttarkerfis-
ins. Tafir stafa ekki af geðþótta stjóm-
valda.
Núorðið er hægt að greina þær and-
stæður einar í innlendum stjómmálum
sem leiða af ágreiningi um hvað kall-
ast skuli frelsi, og hvað stjórnleysi.
Frelsi er af fijálshyggjumönnum talið
einfaldlega það að sleppa lausu því
sem lífs er, en sósíalistar þurfa að
hugsa út merkingu þessa hugtaks sem
annarra, og fylgja svo merkingunni
eftir. Engum fijálshyggjumanni kem-
ur til hugar að heimta algert stjóm-
leysi í málefnum ríkisins. A hinn bóg-
inn vænta jafnaðarmenn að komið
verði stjóm á alla mannlegt athæfi; á
þeim gmndvelli vilja þeir úthluta rétt-
læti og öðrum mannlegum gæðum.
Sjálfstæðismenn ætla mannlegum
samskiptum sem mest svigrúm til að
þróast eins og þeim er eðlilegast. Það
þýðir ekki að koma eigi í veg fyrir
skipulag og samstarf, séu menn á ann-
að borð trúaðir á að slíkt komi að
gagni, heldur hitt að fyrirframhugsuð
miðstýring er talin óæskileg. Nægilegt
fijálsræði á að ríkja á hveijum tíma til
að smáar skipulagseiningar geti
myndast sem ekki ögri frumþáttum
siðferðisins og öðrum ámóta grund-
vallarreglum. Jafnaðarstefnan hefur á
hinn bóginn þegar hugsað fyrir hveij-
ar einingar eru æskilegar og á hvem
veg þær skuli þróast ef til verða.
Hvort fyrirkomulagið er æskilegra?
Menn hafa reynt um langt skeið að
svara spurningunni með heimspeki-
legum rökum í þeirri trú að hægt væri
að koma upp rökfræði sem allir hlytu
að sættast á, til að grundvalla á svör
og samvinnu. Þetta hefur reynslan
sýnt að er ekki hægt heldur hlýtur
málamiðlun að ríkja um niðurstöður, á
einhverju stigi rökræðunnar hljóta
menn að sættast á meðalveg eigin álits
og andstæðingsins, að minnsta kosti
að sinni. í öðm lagi hefur stjómmála-
sagan sýnt að ófyrirsjáanleiki um upp-
byggingu samfélagsmynstra er svo
mikil sem jafnaðarmennskan hefur
viljað. Margsinnis hefur ófyrirséð at-
burðarás orðið til að valda heimssögu-
legum breytingum á undanfömum ár-
hundruðum á Vesturlöndum þrátt fyrir
allt skipulag. Hvað olli hmni Sovét-
ríkjanna? Rangt stjórnmálakerfi
hrundi undan sjálfu sér, segja þeir
hægri sinnuðu. Svik við kenninguna,
segja aðrir. Líklegra er þó að tækni-
þróun hafi valdið þessum stórviðburði
á tiltölulega skömmum tíma. Miðstýr-
ingin beið lægri hlut fyrir þróun í
tölvu- og fjarskiptamálum sem gerði
almenningi í Sovétríkjunum, sem ann-
ars staðar, fært að taka upp og virða
skoðanir með sjálfstæðari hætli en áð-
ur var hægt, þar sem spmttu upp óvið-
ráðanlegar kröfur. Stjórnunarháttur
markaðarins reyndist öflugri.
Þessa þróun gat vafalaust engin séð
fyrir nema þá af listrænu innsæi eins
og expressjónískir málarar heimsstyij-
öldina síðari - en hún varð helstur
hvatinn að þeirri tækniöld sem við nú
lifum. A heimavelli okkar Islendinga
höfum við vanist því að virða fyrir-
ferðamikinn óvissuþátt í öllu mann-
legu skipulagi sem em náttúmhættir
landsins sjálfs, - og hefur þó gengið
misvel að reikna dæmið, sbr. Kröflu-
ævintýrið.
Fjallhress vitleysa
Vægara er ekki hægt að taka á sósí-
alistum núorðið en krefja þá um að
endurskoða frá rótum viðhorf skyn-
semishyggjumanna, helstu stuðnings-
manna stefnunnar, til rökræðna. Hinir
skárri sósíalistar hafa tekið upp heim-
speki óreiðunnar sér ti! fylgilags, sem
hluta nýrrar h'fssýnar, - að óreiða geti
af sér reglu fyrir hendingu - en endur-
skoða ekki trú sósíalista á rökhyggju,
hún er söm og fyrr. Betra væri að gera
ráð fyrir óvissu í öllum niðurstöðum.
Samkvæmt hefðbundnum vinnuað-
ferðum sósíalista er allt fyrirfram
hugsað og það sem ekki er rétt er vit-
laust að þeirra áliti, - en ekki rétt á
einhvem annan hátt eða frá öðm sjón-
armiði skoðað. Af þess konar ein-
stefnu raunsæi hafa sósíalistar meira
en nóg, og mættu nú láta af slíkum of-
kröfum til eigin skynsemi og viður-
kenna að pólitík er málamiðlun en
ekki uppgötvun staðreynda. Engin leið
er til sameiningar um einn sannleika
en á málamiðlun má alltaf sættast.
Leit að einni lausn í pólitfk er fyrir bí,
úrkostirnir eru ævinlega margir, en
hægt er að þrengja sviðið þar sem úr-
kosta er helst að vænta. Þar með er
líka draumurinn úti um einn öflugan
sósíalistaflokk. Jafnaðarstefnan getur
ekki annað verið, ef vit á að fylgja, en
óræð hugsjón. Það er hægt að upp-
hugsa frelsi, jafnrétti og bræðralag
mönnum til handa, ekki síður en hjól
og steglu, en engin haldbær rök og
ekkert nema vilji og ásetningur gerir
annað markmiðið ,/éttara“ en hitt.
Fyrst svo er þá er best að margir
hópar komi að málinu, hver urtt sig
fyrir sitt sögulega tilefni og sjálfs-
bjargarþörf, en komi sér svo saman
um að gera hin helstu gildi jafnaðar-
stefhunnar að raunveruleika. Líklegra
er að endingin verði meiri með þessu
fyrirkomulagi en ef allt á undan að
láta til að saman gangi. Auk þess nú
hvað fjölbreytilegt mannlíf gerir allt
miklu skemmtilegra.
Þess er líka að vænta að helsta hlat;
ursefni hægri manna f pólitík, sundur-
þykkni vinstrimanna, verði síður til áð
setja svip á samstarfið. Muna ekki ein-
hveijir eftir þróun kommúnistaflokks-
ins á áttunda áratugnum, sem sífellt
var að klofna í smærri einingar vegna
ágreinings um skilgreiningar? Stjóm-
málasaga aldarinnar ætti að hafa kéhnt
íslendingum sem öðrum þá Ibxfú'áS
engin stjóm þýðir ekki óhjáki/íéftfílejiá
stjómleysi, síðast nefnt ástand er frék-
ar ómynd sem leiðir af ofstjórn, en
upplag og eðli manna. Aður en lagt
um líður sprettur upp skipulag úr
óreiðunni eftir hrunið sem svo lagar
sig að aðstæðum og óskum fjöldans.
Þá kemur enn að nýju að því upp-
gjörsmáli hvort réttur hins sterka sé
meiri en annarra, hvar mörkin liggí
milli hjálpræðis og sjálfsbjargár, þró-
un sem við upplifum nú í sjúkrahús-
málum okkar. Spumingin er fyrr og
síðar hvers vegna sjálfstæðismaður
kýs að láta ráðast um þróun mála á
sem flestum sviðum, en sósíalistinn
væntir sér bestra úrkosta ef allt er fyr-
irfram úthugsað og úrræðin vísvituð.
Trúlegast er að annar gerir ráð fyrir
forsjón sem geri gott úr málum, - slík
örlagatrú eða guðstrú virðist hei\tít
sjálfstæðismönnum. Líklega rÍEður’þo
veraldlegur aðstöðumunur því helst
hvort menn kjósa miðstýringu eða
ekki. Sá sem vill draga úr ríkisfórsjá
trúir að hagsmunir hans sjálfs þoli það
og jafnvel að sér vegni þar með betur,
til dæmis ef líkur aukast á viðskipta-
vild hans á ftjálsum markaði.
Sjálfstæðisflokkurinn byggist á öllL
um helstu prinsípum borgaralegs sam-
félags, og er hinn eini borgáralégi
flokkur í landinu sem gengst við slík-
um hugsjónum. Fátt sameinar sjálf-
stæðismenn annað en trúin á borgara-
lega lifnaðarhætti. Sú staðreynd að
þeir lifnaðarhættir eru komnir undir
neikvæðum gildum að miklu leyti
gengur fram af rökþenkjandi sósíalist-
um sem fyrir vikið hafa flykkst saman
til að úthrópa þessa viðurstyggð, Sjálf-
stæðisflokkinn og borgaraskapinn. En
samtímis taka svo hinir sömu upp
borgaralega hætti, sælir í þeirri trú að
þeir séu sósíalistar fyrst þeir hafi ein-
hvem tíma verið það.
Það er að sjálfsögðu hægt að skil-
greina allt sem borgurum viðkemur
eins og hvað annað en borgaraskapur-
inn verður ekki haminn með skilgrein-
ingum, hann fer sínu fram óháður öllu
þess konar. Tökum sjúkrahúsrhálin:
Það er borgaralegt að hirða ekkt uni
vanhöld manna ef hægt er að koniast
hjá því, veikindi sem önnur bágindi.
Borgaramir eru þó ekki skammsýnni
en svo að þeir sjá fram á að einnig
þeir kunna að verða hjálpar þurfi, en
er aðalatriðið að bjargast af sem lengst
og sem best, og heilindi skipta þá
§Hádegisverðar-
fundur
Kvenfélag Alþýðuflokksins í Hafnarfirði heldur hádegis-
verðarfund laugardaginn 27. janúar kl. 11.00 í veitinga-
húsinu Tilverunni við Linnetsstíg í Hafnarfirði.
Gestur fundarins er Össur Skarphéðinsson alþingismað-
ur.
Hádegisverður kr. 590,-.
Að loknum fundi verður farið í heimsókn í elsta hus
Hafnarfjarðar, Sívertsenhús og í Siggubæ. Húsin skoð-
uð í fylgd minjavarðar, Steinunnar Þorsteinsdóttur
Fjölmennið og takið með ykkur gesti.
Hlökkum til að sjá ykkur.
Stjórnin