Alþýðublaðið - 09.02.1996, Blaðsíða 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1996
s k i I a b o ð
Skilafrestur skatt framtal s
rennur út 10. febrúar
Leiðbeiningabæklingur með skattframtali
hefur að geyma nauðsynlegar upplýsingar
varðandi framtalsgerðina. Kynntu þér
bæklinginn vel - og útfylling framtalsins
verður auðveldari en þig grunar.
Rétt útfyllt skattframtal tryggir þér rétta
skattlagningu.
Eyðublöð liggja frammi hjá skattstjórum
og umboðsmönnum þeirra, og í Reykjavík
í bönkum, bankaútibúum og sparisjóðum.
Þá er minnt á mikilvægi þess að
varðveita launaseðla. Ef þörf
krefur eru þeir sönnun fyrir því
að staðgreiðsla hafi verið dregin
af launum.
Skattframtalinu á að skila til skattstjóra í
viðkomandi umdæmi og mundu að taka
afrit af framtalinu áður en því er skilað.
Skilaðu tímanlega
og forðastu álag!
RSK
RÍKISSKATTSTJ ÓRI
áar
Alþýðublaðið
■gerir ekki úlfalda úr mýflugu
Tónleikaröð Leikfélags
Reykjavíkur
Stórsveit Reykja-
víkur ásamt
söngkonum
Stórsveit Reykjavíkur mun halda
tónleika þriðjudagskvöldið 13.
febrúar. Stórsveitin er eina starf-
andi hljómsveit sinnar tegundar
hér á landi. Hér er um að ræða
fullskipað „Big Band“ með nítján
hljóðfæraleikurum auk stjórnanda,
sem á þessum tónleikum verður
Stefán S. Stefánsson. Snæbjörn
Jónsson stjórnandi mun einnig
koma fram með hljómsveitinni.
Liðstyrkur Stórsveitarinnar verður
ekki af verrri endanum, söngkon-
urnar Andrea Gylfadóttir, Berglind
Björk Jónasdóttir, Ellen Kristjáns-
dóttir og Edda Borg, munu sjá um
sönginn á tónleikunum. Tónleik-
arnir eru liður í Tónleikaröð Leik-
félags Reykjavíkur í Borgarleik-
húsinu og hefjast klukkan 20:30.
Leikendur, leikstjóri, höfundar og
aðrir aðstandendur Tröllakirkju.
Nýtt íslenskt leikverk eftir
Þórunni Sigurðardóttur,
gert eftir skáldsögu Ólafs
Gunnarssonar
Tröllakirkja
sett á svið
Á stóra sviði Þjóðleikhússins
standa nú yfir æfingar á leik-
verkinu Tröllakirkju, eftir sam-
nefndri skáidsögu Ólafs Gunn-
arssonar. Höfundur leikverksins
er Þórunn Sigurðardóttir.
Sögusvið verksins er Reykja-
vík á árunum eftir stríð. Segir
þar frá íslenskum athafnamanni
sem dreymir um að reisa stór-
hýsi en draumar hans hrynja til
grunna þegar ofbeldisverk er
framið í fjölskyldunni; átaka-
verk um stóra drauma, fallvalta
gæfu, hefnd og fyrirgefningu.
Bókin Tröllakirkja vakti á sín-
um tíma mikla athygli og var til-
nefnd til íslensku bókmennta-
verðlaunanna 1992.
Frumsýning verður 1. mars
næstkomandi.
Akureyri
Páll Skúlason
í Deiglunni
Starf félags áhugafólks um
heimspeki á Akureyri hefst á
þessu ári með heimsókn dr.
Páls Skúlasonar heimspek-
ings. Fyrirlestri sínum hefur
Páll valið heitið Umhverfing
og fjallar hann um forsendur
umhverfis- og náttúruvernd-
ar. Hyggst Páll skýra ýmsar
grundvallarhugmyndir og
viðhorf í rökræðum um um-
hverfismál og þar á meðal
greinarmuninn á umhverfis-
verndarhyggju og náttúru-
verndarhyggju.
Fyrirlesturinn hefst klukk-
an 14:00 á laugardag í Deigl-
unni.