Alþýðublaðið - 09.02.1996, Blaðsíða 8
*■ *
\WRE vf/h/
4 - 8 farþega og hjólastólabílar
5 88 55 22
Föstudagur 9. febrúar 1996
23. tölublað - 77. árgangur
■ Pólitískstefnumörkun í heilbrigðismálum í molum, segirfyrrverandi heilbrigðisráðherra
Stjórnin veit ekki sitt rjúkandi ráð
-segir GuðmundurÁrni Stefánsson fyrrverandi heilbrigðisráðherra um ástandið í heilbrigðismálum.
Guðmundur Ámi Stefánsson fyrr- þingi í gær að yfirskrift utandagskrár-
verandi heilbrigðisráðherra sagði á Al- umræðunnar - ástandið í heilbrigðis-
Fimmfaldur 1. vinningur!
Nú er að
nota
tcekifœnð!
-vertu viðbúinav vinningi
Fáðu þér miða fyrir kl. 20.2« á laugardagimi.
málum - væri réttnefni. „Það er raun-
verulegt ástand, ekki endilega í heil-
brigðisþjónustunni heldur hvað varðar
hina pólitísku stefnumörkun. Þar
hrekst ríkisstjórnin, og sérstaklega
heilbrigðisráðherra og fjármálaráð-
herra, úr einu homi í annað án þess að
vita hvað snýr upp eða niður. Rætt er
um forgangsröðun einsog allra meina
bót án þess að forsvarsmenn ríkis-
stjómarinnar hafi hugmynd um hveiju
eigi að forgangsraða eða hversvegna.
Em þau að segja með slíkri forgangs-
röðun að Islendingar, sjötíu ára og
eldri, eigi ekki að njóta aðhlynningar
þegar kemur að hjartasjúkdómum,
mjaðmaaðgerðum og öðm þessháttar?
Hvað á ríkisstjórnin við þegar hún
segir að hinir ríku eigi að geta keypt
sér lúxusþjónustu? Er það forgangs-
röðun ríkisstjómarflokkanna? Hvemig
ber að skilja stefnumörkun sem í öðm
orðinu byggir á innritunargjöldum á
Guðmundur Árni: Eiga hinir ríku að
geta keypt sér lúxusþjónustu?
spítala en daginn eftir á nefskatti á alia
landsmenn? Fleiri dæmi nefna, en að
öllu samanlögðu er ljóst að ríkisstjóm-
in veit ekki sitt rjúkandi ráð,“ sagði
Guðmundur Ámi Stefánsson.
■ Matthías gagnrýnir Davíð
Oskiljanlegt að
fresta landsfundi
„Þingmenn þora ekki að segja
neitt eða spyrja um framboðsmál
Davíðs, leiðtoga síns. Við erum all-
ir farnir sem þorðum og létum
ekki ganga yfir okkur.“ Þetta segir
Matthías Bjarnason, fyrrverandi
alþingismaður í snörpu viðtali við
Tímann í gær.
Matthías ræðir einnig þau
áform að fresta landsfundi Sjálf-
stæðisflokksins í annað sinn, nú
fram á haust, og vandar foryst-
unni ekki kveðjurnar. Það hafi
verið eðlilegt að fresta fundinum
ögn vegna atburðanna á Flateyri,
en það sé gjörsamlega óskiljanlegt
að fresta honum um heilt ár: „Ein-
hvern tíma hefði mér fundist það
vera undarlegt ef kjörtímabil for-
ystu flokksins væri lengt um 50
prósent. Ég er hræddur um að
myndi syngja í ýmsum ef Alþingi
tæki upp á því sama,“ segir Matt-
hías.
„Annars hef ég fyrirlitningu á
pólitík,“ segir gamli þingskörung-
urinn og gagnrýnir þar sérstak-
lega að eytt sé milljörðum í fram-
kvæmdir sem megi sannarlega
bíða. Nefnir hann sérstaklega
Hvalfjarðargöng og endurbætur á
Bessastöðum sem hann segir vera
að nálgast 1.4 milljarða og muni
líklega kosta meira.
Á sama tíma segir Matthías að
sé verið að spara „sem þeir kalla
tugþúsundir legudaga í sjúkra-
húsakerfinu“. Og hann spyr:
„Hvað kostar það þetta fólk, til
dæmis á geðdeildunum, hvað verð-
ur um þessa sjúklinga sem fá ekki
læknishjálp þvert ofan í gildandi
lög? Og almannatryggingarnar og
ellilífeyrisþegana, þar verður næst
ráðist á þá sem minnst mega sín.“
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Útför Gísla Ág-
ústs Gunnlaugs-
sonar á mánudag
Á mánudaginn verður gerð frá
Víðistaðakirkju í Hafnarfirði út-
för dr. Gísla Ágústs Gunnlaugs-
sonar, en hann lést eftir langvinn
veikindi, aðeins 42 ára að aldri.
Gísli var fæddur í Reykjavík 6.
júní 1953, sonur Sigrúnar Ingi-
bjargar Gísladóttur og Gunnlaugs
Rafns Þorfinnssonar. Hann lauk
B.A. Honours prófi í safnfræði
og bókmenntum frá East Anglia
háskólanum í Norwich 1976 og
varð cand.mag í sagnfræði við
Háskóla íslands 1979. Doktorsrit-
gerð sína varði hann við Uppsala-
háskóla 1988 og fjallaði hún um
þróun fjölskyldu- og héimilis-
gerða á Islandi 1801-1930.
Gísli fékkst við kennslu og
fræðistörf og var dósent við Há-
skóla Islands er hann lést. Eftir
hann liggur fjöldi ritverka og rit-
gerða um sagnfræði, Hann var
þekktur og virtur meðal erlendra
fræðimanna, birti fjölda ritverka
á erlendum málum og var tíður
fyrirlesari á alþjóðlegum ráð-
stefnum. Gísli var um skeið for-
maður Sagnfræðingafélags Is-
lands og ritstjóri Sögu, tímarits
Sögufélagsins. Þá var hann virkur
í starfi Alþýðuflokksins, bæði í
Hafnarfirði og á landsvísu. Jafn-
aðarmenn sjá nú á bak góðum og
traustum félaga og liðsmanni.
Gísli var giftur Berglindi Ás-
geirsdóttur og eru börn þeirra
þrjú, Ásgeir, Sigrún Ingibjörg og
Sæunn.
ESSO Stórahjalla
Happadrjúg
þjonusta
ESSO þjónusta stuðlar að ánægjulegum
og öruggum akstri og nægir að nefna
rétta loftþyngd í dekkjum, hreinar rúður
eða næga olíu. Það gæti líka reynst
happadrjúgt að líta inn og kaupa miða
í lottói eða getraunum.
E S S O ÞJONUSTA - snýst u m þ i g
Olíufélagiðhf
~50ára~