Alþýðublaðið - 22.02.1996, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 22.02.1996, Qupperneq 1
■ Norræn bænaráðstefna til höfuðs hjúskaparlögum samkynhneigðra Næst munu barnaníðingar vilja giftast börnum - segir Snorri Óskarsson safnaðarhirðir í Betel. Reynt að fá alþingismenn til að leggjast gegn frumvarpi um réttindi samkynhneigðra. „Virðist þingmenn vera okk- ur sammála," segir Snorri. „Frá kristilegu sjónarmiði kemur ekki til greina að stofna til hjóna- bands, eða staðfestrar sambúðar, milli fólks af sama kyni. Hvað gerist þá með menn sem vilja búa með ein- hverjum öðrum, til dæmis bömum? Við höfum fengið þær upplýsingar frá skoðanabræðrum okkar í Banda- ríkjunum að samtök barnaníðinga þar í landi muni berjast fyrir því. Hér mun það sama gerast," sagði Snorri Óskarsson safnaðarhirðir í Betel í Vestmannaeyjum í samtali við Alþýðublaðið í gær. Boðað hefur verið til ráðstefnu í Færeyjum í apríl þar sem rætt verður um stöðu kristn- innar á Norðurlöndum í ljósi þess að aðeins þrjú landanna - Finnland, Færeyjar og ísland - hafa enn ekki samþykkt hjúskaparlög fyrir sam- kynhneigðra. Snorri mun sækja ráð- stefnuna, enda hefur hann fordæmt samkynhneigð í ræðu og riti. Jafn- framt fundahöldum og erindum verður efnt til bænastunda, og segir Snorri að beðið verði fyrir framtíð Norðurlanda. í tilkynningu frá mótsnefnd bæna- ráðstefnunnar segir að lífsmáti sam- kynhneigðra sé „árás á öll Norður- lönd.“ Þar segir ennfremur: „Nú þegar hefur baráttan tapast í Dan- mörku, Noregi, Svíþjóð og Græn- landi. En einhversstaðar verður að snúa vörn í sókn þar sem kraftur Antikrists verður stöðvaður í áætlun sinni.“ Snorri Óskarsson sagði að „barátt- an kunni að tapast" á íslandi líka, enda búið að semja lagafrumvarp um hjúskaparstöðu samkynhneigðra. Lögin eru í meginatriðum byggð á norrænni löggjöf, og tryggja meðal annars að samkynhneigðir fá opin- bera staðfestingu á sambúð sinni og öðlast með því sömu réttarstöðu og einstaklingar í hjónabandi. Snorri sagði að reynt yrði að koma í veg fyrir samþykkt frum- varpsins, og upplýsti að hann hefði talað við þingmenn í því skyni. „Við höfum rætt málið lítillega við nokkra þingmenn. Þeir eru kurteisir og hlusta. Mér virtist að þeir væru sammála okkur, þótt það eigi eftir að koma í ljós. Mig grunar að sannfær- ing þeirra sé ekki mikil í þessu máli,“ sagði Snorri Óskarsson. Snorri Óskarsson safnaðarleiðtogi og félagar hans ætla að berjast gegn sókn Antikrists. ■ Hvað segir Biblían? Kristið fólk ræðir sam- kynhneigð Samband samkynhneigðra við kristna trú hefur mjög verið til um- ræðu að undanfömu og em þar ofar- lega á baugi spumingar um hvernig samkynhneigð samrýmist heilagri ritningu, samvistir þeirra og rétt til að ala upp böm. Því hlýtur að vera fylli- lega tímabært að þjóðkirkjan efnir í dag til fræðslufundar undir yfirskrift- inni Kirkjan og samkynhneigðir. Á fundinum, sem stendur frá klukk- an 13.30 til klukkan 16 í Hallgnms- kirkju, munu Elísabet Þorgeirsdóttir og Guðbrandur Baldursson velta fyrir sér umhugsunarefninu Samkyn- hneigðir og trú, en að auki lýsir Guð- brandur reynslu sinni sem samkyn- hneigður prestssonur. Dr. Björn Bjamason, prófessor í guðfræði, reifar það sem Biblían segir um samkyn- hneigð, en Björg Thorarensen, fulltrúi í Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, segir frá frumvarpi til laga um stað- festa samvist samkynhneigðra. Loks flytur séra Jakob Ágúst Hjálmarsson dómkirkjuprestur tölu sem hann nefnir Að minnast samkynhneigðs manns, undirbúningur útfarar. Að loknum ræðum frummælenda gefst rúm til fyrirspuma og umræðna. Kosið í Háskólan- um í dag í dag kjósa stúdentar við Háskóla íslands sér fulltrúa í Stúdenta- og Háskólaráð. Þrjár fylkingar bjóða fram að þessu sinni, Vaka, Röskva og Haki, félag öfgasinnaðra stúd- enta, sem er nýtt framboð. Röskva hefur verið með meirihluta í Stúd- entaráði síðustu fimm ár, er nú með 17 fuiitrúa, Vaka er með 12 og Óháði listinn 1. íþróttir, pólitík og bisness „Já, þú segir nokkuð," segir Alfreð Gíslason, handboita- maður, knæpueigandi og for- maður menningarmálanefnd- ar Akureyrar, þegar borinn er undir hann sá orðsveimur að hann sé rétti maðurinn til að leiða Alþýðuflokkinn í Norður- landi eystra í næstu kosning- um. Alfreð, sem segist vera jafnaðarmaður að upplagi, svarar því til að hann geti ekki hugsað sér að verða stjórn- málamaður eins og staðan er í dag. „Ég verð nú að segja íþróttunum það til hróss að þar ferfram ólíkt heiðarlegri bar- átta en í stjórnmálum. Nei, ég verð seint atvinnupólitíkus," segir Alfreð Gíslason í viðtali sem birtist í Alþýðublaðinu í dag. Sjá blaðsíðu 5. ■ Þjóðvaki réttir úr kútnum í skoðanakönnun Frjálsrar verslunar og fengi tvo þingmenn Sýnir sterkan vilja fólks til sameiningar -segir Jóhanna Sigurðardóttir í samtali við Alþýðublaðið. „Það er erfitt að átta sig á sveiflum í skoðanakönnunum. Niðurstöður eru mismunandi þótt kannanir séu gerðar á sama tíma. Við erum ekki uppnæm fyrir slíku enda lítum við fyrst og fremst svo á að við höfum hlutverki að gegna,“ sagði Jóhanna Sigurðar- dóttir í samtali við Alþýðublaðið í gær um skoðanakönnun Frjcílsrar verslun- ar á fylgi flokkanna. Þar mælist Þjóð- vaki með 4 prósent, en flokkudnn hef- ur verið alveg við núllið í könnunum um langt skeið. Samkvæmt þessari nýju könnun fengi Þjóðvaki tvo þing- menn, en lengstaf hafa kannanir gefið til kynna að enginn frambjóðandi flokksins næði kjöri. Framsóknarflokkur fær 21,4 pró- sent í könnuninni (miðað við 23,3 í kosningunum í fyrra), Sjálfstæðis- flokkur 40,3 (37,1), Alþýðubandalag- ið 14,8 (14,3), Alþýðuflokkur 12,1 (11,4) og Kvennalisti 4,6 (4,9). Jóhanna kvaðst þeirrar skoðunar að tvær meginskýringar á því að Þjóð- vaki væri nú að rétta úr kútnum. „Fólk tekur vel hugmyndum um samein- ingu. Alþýðuflokkur og Þjóðvaki hafa verið mest áberandi í þeirri umræðu og njóta þess greinilega í könnunum. Þetta eru skilaboð um að flokkarnir eigi að vinna að sameiningu. I öðru lagi hafa þingmenn Þjóðvaka komið á framfæri stefnumálum flokksins, og það er að skila sér. Við lítum svo á að stjómmálabarátta sé langhlaup og nið- urstöður kannana skipta engu höfuð- máli,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir við Alþýðublaðið. Jóhanna: Alþýðuflokkur og Þjóðvaki hafa verið mest áberandi í samein- ingarumræðunni og njóta þess greinilega í könnunum.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.