Alþýðublaðið - 22.02.1996, Side 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1996
s k o ð a n
Sendiherrar
sérhagsmuna
Landbúnaðarráðuneytið hefúr um langt árabil verið útibú hags-
munasamtaka bænda í landinu. Heilagt bandalag bændasamtak-
anna og svokallaðra bændavina á Alþingi hefur svipt ráðuneytið
öllum möguleikum á því að gæta almannahagsmuna í landbúnað-
armálum; sérhagsmunir framleiðenda hafa ráðið öllu þar á bæ.
Landbúnaðarráðherrann hefur í raun verið sérstakur sendiherra
sérhagsmuna bænda í íslenska stjómkerfinu og unnið leynt og
ljóst gegn hagsmunum neytenda í landinu. Embættismenn í ráðu-
neytinu hafa af áhuga tekið þátt í leiknum og brugðist skyldum
sínum í embætti. Að líkindum væri það hagkvæmara fyrir al-
menning í landinu að hafa þá heima á launum en í vinnunni.
Nýjasta dæmið um þetta óffemdarástand er þátttaka landbún-
aðaráðneytisins í samsæri eggjaframleiðenda gegn neytendum í
landinu. Samkeppnisráð hefur gagnrýnt ráðuneytið harkalega fyr-
ir hlut þess í vel heppnuðum aðgerðum eggjaffamleiðenda til að
halda uppi verði á eggjum. Þessi uppákoma er enn eitt dæmið um
það sjúklega rekstrarumhverfi sem landbúnaði í landinu er búið
og hversu réttindi neytenda eru fótum troðin í stjómkerfinu.
Samkeppnisráð hefur einnig - eins og raunar margir aðrir fyrr
og síðar - bent landbúnaðarráðherra á að hin hálf-sovésku bú-
vörulög stangist á við ákvæði samkeppnislaga. Ekki er við því að
búast að sendiherrann Guðmundur Bjamason sinni þessu í neinu,
svo oft sem.honum hefur verið bent á þessa staðeynd. Landbún-
aðarráðherrar á íslandi hafa aldei skilið einföldustu atriði um
eðlilega verðmyndun og samkeppni á markaði. Starf sendiherr-
ans hefur verið þeim eðlislægara. Línuna hafa þeir fengið í
Bændahöllinni og náð einna mestum hæðum í starfi sem eins
konar opinberir varðhundar eða blaðafulltrúar sérhagsmuna
bænda.
Byrjað á öfugum enda
Löngu er tímabært að taka á lífeyrismálum ríkisstarfsmanna.
Eins og staðan er í dag gefur ríkið einfaldlega út óútfyllta ávísun
um ffamtíðarskuldbindingar, án þess að gera eðlilega ráð fyrir því
hvemig greiða skuli fyrir. Það er ljóst að breytingar af þessu tagi
em erfiðar og viðkvæmar og gætu jafnvel kostað nokkur átök.
Lífeyrisréttindi em hluti af kjömm ríkisstarfsmanna og því þar-
famál að ná sem bestri sátt um nauðsynlegar breytingar.
Stjórnmál á veraldarvefnum
Veraldarvefurinn (World Wide
Web) er meðal þess sem hið alþjóð-
lega tölvunet Internet býður upp á.
Vefurinn er safn af texta og myndum
sem geymd eru á tölvum um allan
heim og unnt er að nálgast með ein-
földum hætti frá öllum tölvum sem
tengdar eru Intemetinu og hafa hug-
búnað sem kallast „vefrápari" á góðri
íslensku. Einn merkilegasti eiginleiki
vefsins er sá að það kostar nánast ekki
neitt að gefa út efni á honum og gera
það aðgengilegt út um allan heim.
Þetta þýðir að einstaklingar, félög og
fyrirtæld geta náð til fleira fólks íyrir
minna fé en nokkm sinni fyrr í sög-
unni. Veraldarvefurinn hefur llka vax-
ið gífurlega og er talið að a.m.k.
10.000 síður (svokallaðar „heimasíð-
ur“) bætist við hann daglega.
Pallborðið |
Vilhjálmur
I
1 Þorsteinsson
skrifar
A vefnum kennir margra grasa og
má segja að öll flóra mannlífsins end-
urspeglist þar. Unnt pr að nálgast bæði
klám og listaverkasafn Vatíkahsins og
allt þar á milli, meðal annars fréttir frá
Telegraph í London og CNN í Banda-
ríkjunum, og upplýsingar um flestar
stjómmálaskoðanir milli himins og
jarðar.
íslenskir vefsmiðir hafa verið fljótir
að taka við sér og íslenskar heimasíð-
ur em orðnar fleiri en unnt er að hafa
yfirsýn um með góðu móti. Það er
ánægjuleg þróun að hér hafa sprottið
upp allmargar heimasíður sem eru
vettvangur skoðanaskipta um stjóm-
mál. Þar em bæði á ferðinni einstak-
lingar, félög og flokkar. Hlutur jafnað-
arstefnunnar í þessum nýja miðli er
afar góður. Nýkominn er til sögunnar
„Vinstri vefurinn" (http://cc.is/~del-
ic/vv) sem birtir greinar og umræðu
um jafnaðarstefnu og hvetur til sam-
vinnu jafnaðarmanna í öllum flokk-
um. Þessi vefur er til fyrirmyndar um
frágang og efnistök. Mótvægi við
hann er „Frjálshyggjusíðan"
(http://www.rhi.hi.is/~benedip/-
ffelsi.html), einnig vel unnin síða, þar
sem fjallað er um fijálshyggjuna í víð-
um skilningi og mikið vitnað í Adam
Smith og Milton Friedman, auk
bandaríska byssublaðsins Guns &
Ammo, en byssur og frjálshyggja
virðast til lengdar óaðskiljanleg fýrir-
bæri. Þá em allnokkrir kratar með eig-
in heimasíður, t.d. Magnús Árni
Magnússon (http://www.rhi.hi.
is/~mam), Guðmundur Ámi Stefáns-
son (http://www.mmedia.is/gas) og
undirritaður (http://www.if.is/~villi).
Á þessum síðum er yfirleitt að fmna
greinasöfn og umræðu um stjómmál
auk tengla við heimasíður jafnaðar-
manna og -flokka út um allan heim.
Loks má ekki gleyma hinni fjölsóttu
heimasíðu Björns Bjarnasonar
menntamálaráðherra (http://www.
centrum.is/bb) þar sem hann færir
samviskusamlega nokkurs konar ann-
ál um störf sín og hugrenningar, yfir-
leitt vikulega. Framtak Bjöms hefur
IÁ vefnum kennir margra grasa og má segja að
öll flóra mannlífsins endurspeglist þar. Unnt
er að nálgast bæði klám og listaverkasafn
Vatíkansins og allt þar á milli.
mælst vel fyrir og er ffóðlegt fýrir al-
menning að kynna sér störf ráðherra
með þessu móti.
Róttækir eiga sér talsmann í Elíasi
Davíðssyni (http://rvik.ismennt.is
/~elias) sem m.a. hefur safnað saman
upplýsingum um deilur ísraels og Pal-
estínumanna (þar sem taumur Palest-
ínumanna er sterklega dreginn) og
meinta ritskoðun Morgunblaðsins.
Framsóknarmenn hef ég fáa rekist á
enn sem komið er, en sérstök ástæða
er til að geta Ingvars Níelssonar
(http://www.ingvar.is) sem er einn
fárra einstaklinga með eigin búnað til
vefmiðlunar. Meðal efnis hjá Ingvari
eru greinar um það sem hann telur
vera frábæra frammistöðu Finns Ing-
ólfssonar í álmálum, meðan kratar eltu
„sandkassaálver" á sínum árum í iðn-
aðarráðuneytinu, að mati Ingvars. Ég
bendi áhugamönnum sérstaklega á
grein hans um Evrópusambandið,
„Das Vierte Reich“ (Fjórða ríkið) sem
er slík samansúrruð flétta af rökleys-
um að aðdáunarvert er. Dæmi: „Evr-
ópusambandið er hræðslubandalag
þjóða, sem hræðast hver aðra, en þó
mest af öllu sjálfar sig og fortfð sína. í
öngþveitinu missa menn sjónar á sjálf-
um vandanum. Hagræn forgangsmál
víkja fyrir félagslegum gæluverkefn-
um.“ Hvergi er útskýrt af hveiju þjóð-
ir sem hræðast hver aðra eru þá að
standa í því að mynda bandalag um
sameiginleg málefni, og hvað sé
slæmt við það, né hvaða máli það
skiptir hvort þjóðimar hræðast „sjálfar
sig og fortíð sína“. Lesandinn er ekki
fræddur nánar um það hvaða „öng-
þveiti" sé á ferðinni né hver „sjálfur
vandinn" þá raunverulega er; þessi
vandi sem Ingvar sér betur en aðrir, en
kemur ekki skýmm orðum að í grein
sinni. Þá er alveg óljóst hvaða „hag-
rænu forgangsmál" það eru sem Ing-
var telur að hinar ríku Evrópuþjóðir
ættu að beita sér fyrir í stað „félags-
legra gæluverkefna". Sem sagt: fram-
sóknartexti eins og hann gerist
skemmtilegastur.
Fyrirsjáanlegt að úrvalið á Verald-
arvefnum mun enn aukast; allir sót-
raftar af sundi dregnir munu geta látið
rödd sína heyrast, en vandinn verður
neytandans að velja og hafna. Vefur-
inn gefur nýja vídd í fjölmiðlun og ég
er bjartsýnn á að hann verði til að efla
lýðræðisleg skoðanaskipti. Eitt er víst:
þróunin á þessu sviði verður geysi-
hröð næstu misserin. ■
fimuiiLfBiii
21069. tölublað
Hverfisgötu 8 -10 Reykjavík Sími 562 5566
Útgefandi Alprent
Ritstjóri Hrafn Jökulsson
Umbrot Gagarín hf.
Prentun ísafoldarprentsmiðjan hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 562 5566
Fax 562 9244
Símboði auglýsinga 846 3332
Áskriftarverð kr. 1.500 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 150 m/ysk
Fjármálaráðherra hefúr haldið þannig á þessu máli að erfitt get-
ur verið að ná viðunandi lausn í því. Ríkisstarfsmenn líta á frum-
varp hans sem árás á kjör sín og eru nú þegar byrjaðir að skipu-
leggja hemaðinn. Það vekur sérstaka athygli að í frumvarpi ijár-
málaráðherra er ekki tekið á lífeyrismálum alþingismanna og ráð-
herra, þar sem mest og brýnust þörfin er á umbótum. Þingmenn
Sjálfstæðisflokksins hafa þegar lagt til að þetta verði gert. Hvers
vegna sýnir fjármálaráðherra það dómgreindarleysi að leggja
fram fmmvarp um lífeyrissjóð ríkisstarfsmanna án þess að taka á
lífeyrismálum alþingismanna og ráðherra?
Alþingi getur ekki á trúverðugan hátt tekið á umdeildum lífeyr-
ismálum ríkisstarfsmanna án þess að hreinsa fyrst til í eigin garði.
Hér er því byrjað á öfugum enda. Breytingar á lífeyrissjóði ríkis-
starfsmanna - hversu nauðsynlegar sem þær annars kunna að
vera - verða ekki að veruleika án þess að Alþingi gangi á undan
með góðu fordæmi. Annað væri siðblinda. ■
f e b r ú a r
Atburðir dagsins
1512 Landkönnuðurinn Amer-
igo Vespucci deyr: Amerfka er
við hann kennd. 1787 Frakk-
land rambar á barmi gjaldþrots,
þjóðarskuldir nema 800 millj-
ónum punda. 1819 Spánn lætur
Flórída og aðrar nýlendur aust-
an Mississippi af hendi til
Bandaríkjanna. 1979 Menning-
arverðlaun DV afhent í fyrsta
sinn. 1991 Sigríður Snævarr af-
henti trúnaðarbréf sitt sem
sendiherra í Stokkhólmi og
varð þarmeð fyrst íslenskra
kvenna til að gegna slíku emb-
ætti.
Afmæiisbörn dagsins
George Washingon 1732,
fyrsti forseti Bandaríkjanna.
Arthur Schopenhauer 1788,
þýskur heimspekingur. Robert
Baden-Powell 1857, stofnandi
skátahreyfingarinnar. Luis
Bunuel 1900, spænskur kvik-
myndaleikstjóri.
Annálsbrot dagsins
Frá Mallandi á Skaga þóttust
menn sjá til hvals á ísnum fyrir
sumarmálin, og gengu fjórir á
ísinn, komust ei á land aflur á
Skaga, af því ísinn allan sundur
losaði, og voru þijú dægur full
ráfandi um ísinn; gátu um síðir
kallað til lands, svo þeim varð
bjargað á skipi frá Bæ á Höfða-
strönd. Sjávarborgarannáll 1697.
Málsháttur dagsins
Seint flýgur krummi á kvöldin.
Orð dagsins
Yfirstéttin okkar lands,
oft við pretti riðin,
af blóðslettum öreigans
á sér mettar kviðinn.
Ókunnur höfundur.
Skák dagsins
Halifman er einn af sterkustu
skákmönnum heims og færir
fullar sönnur á þá fullyrðingu í
skák dagsins. Bosníumaðurinn
Ivan Sokolov hefur svart og á
mjög undir högg að sækja. Ha-
lifman hristir framúr erminni
glæsilega leikfléttu.
Hvítur leikur og vinnur.
1. Hxg6+! fxg6 2. Hxh8+!
Kf7 3. Hh7+ Ke6 og Sokolov
gafsl upp.