Alþýðublaðið - 05.03.1996, Síða 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 5. MARS 1996
s k o d a n i r
UHmun
21075. tölublað
Hverfisgötu 8-10 Reykjavík Sími 562 5566
Útgefandi Alprent
Ritstjóri Hrafn Jökulsson
Umbrot Gagarín hf.
Prentun ísafoldarprentsmiðjan hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 562 5566
Fax 562 9244
Símboði auglýsinga 846 3332
Áskriftarverð kr. 1.500 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Þörf umræða
Guðný Guðbjömsdóttir þingkona Kvennalistans hefur beðið
um umræðu utan dagskrár á Alþingi um kynferðislega áreitni.
Þessu fmmkvæði Kvennalistans ber að fagna, enda óhæfa að
reyna að þegja þessi mikilvægu mál í hel. Fá mál hafa vakið
meiri umræðu manna á meðal síðustu dagana en frásagnir kvenna
af áreitni Ólafs Skúlasonar biskups í þeirra garð. Viðkvæmni í
garð biskups má ekki koma í veg fyrir umræðu sem þessa, enda
em íslendingar langt á eftir nágrannaþjóðunum í þessu efni. Við
svo búið má ekki standa.
Rétt er að minna á að þegar Kvennalistinn hóf umræðu í þing-
sölum um heimilisofbeldi og kynferðislegt ofbeldi gegn bömum,
urðu margir þingmenn kindarlegir á svip og vissu ekki í hvom
fótinn þeir ættu að stíga. Kvennalistinn og aðrar grasrótarhreyf-
ingar kvenna eins og Stígamót og Samtök um kvennaathvarf,
hafa opnað umræðuna og dregið þessi mál fram í dagsljósið. Áð-
ur vom þau tabú, sem enginn þorði að tala um á opinbemm vett-
vangi - allra síst Alþingi Islendinga. Kynferðislegt áreiti hefur
hingað til haft svipaðan status; feimnismál umvafið þögn.
Umræðan um kynferðislegt áreiti á vinnustöðum var að byija
af krafti þegar mál biskupsins komst í hámæli. Fyrir nokkm var
til að mynda nokkur umræða um kynferðislegt áreiti innan
veggja Háskóla Islands. Mikilvægt er að biskupinn verði ekki til
þess að ýta þessum málum út af dagskrá. Hagsmunir of margra
kvenna em í húfí, enda vitað mál að margar konur hér á landi,
eins og erlendis, hafa hrakist úr starfi eða verið meinað um eðli-
legan starfsframa vegna kynferðislegs áreitis. Auðvitað er það
ekki sama hvemig umræða sem þessi fer fram, en það gildir um
flest mál. Islendingar geta sótt í erlenda reynslu í þessu efni og
lært nokkuð af því hvemig aðrar þjóðir haga sínum málum. Bisk-
upsmálið - sem er tilfínningaþmngið á alla kanta - ætti frekar en
hitt að ýta undir þessa umræðu og vera öllum hvatning til að
svipta þagnarhulunni af kynferðislegu áreiti og koma þessum
málum í ásættanlegan farveg.
Biskupsmálið er raunar dæmi um það þegar reynt er að þegja
kvartanir um kynferðislegt áreiti í hel og enginn vitlegur farvegur
er til þess að taka á því. Hér er ekki um nýtt mál að ræða. Sigrún
Pálína Óskarsdóttir hefúr í mörg ár reynt að fá það tekið upp inn-
an kirkjunnar, en án árangurs. Á hana hefur ekki verið hlustað;
hún hefur ekki verið tekin alvarlega. Þess vegna - meðal annars -
er málið í þeim hnút sem það er í nú. Þær konur sem kvartað hafa
undan framferði biskups, fóm ekki með málið í íjölmiðla að íyrra
bragði. Þessu er mikilvægt að halda til haga. Sú mikla umfjöllum
sem þetta mál hefúr fengið í íjölmiðlum er ekki af þeirra fmm-
kvæði og reynist þeim án efa jafn erfið og Ólafi Skúlasyni bisk-
upi. Kirkjan hefur hins vegar ekki reynst fær um að taka á málinu
af þeirri festu sem nauðsynleg er og misst rríikið af sínum trú-
verðugleika fyrir vikið.
Ekki þarf að leita lengi utan landsteinanna til þess að komast að
því að íslenska kirkjan er ekki fyrsta kirkjan sem lendir í miklum
vandræðum vegna mála af þessu tagi. Kynferðislegt áreiti er allt-
of algengt í okkar samfélagi og getur komið upp innan kirkjunnar
eins og annars staðar. Þær ályktanir sem okkur ber að draga em
ekki þær að láta hugfallast og þegja um kynferðislegt áreiti al-
mennt. Réttari lærdómur - studdur af alþjóðlegri reynslu - er op-
in umræða og skýr farvegur fyrir umkvartanir af þessu tagi. Á
þennan hátt er réttur allra aðila best tryggður. Umræða um kyn-
ferðislegt áreiti er þörf og tímabær: líka í sölum Alþingis. ■
4-
i
I
Framtíð Pósts og síma í
höndum ráðvilltrar ríkisstjórnar
Ríkisstjómin vill háeffa Póst og
síma. Frumvarp þess efnis var til um-
fjöllunar á Alþingi á dögunum. Meg-
inástæða formbreytinganna á þessu
stórfyrirtæki eru þær breytingar sem
átt hafa sér stað og munu eiga sér stað
í vaxandi mæli á næstu árum í fjar-
skiptaheiminum. Ný tækni hefur rutt
sér til rúms og sér tæpast fyrir endann
á öllum þeim möguleikum sem fjar-
skiptin, símar, tölvur og hvaðeina
munu bjóða upp á í tæknivæddri ver-
öld framtíðarinnar. Og samkeppni
hugmyndasmiða og fyrirtækja á þess-
um vettvangi mun blómstra sem aldrei
fyrr. Aukinheldur liggur það fyrir að
aðild okkar að Evrópska efnahags-
svæðinu segir fyrir um það að ísland
er hluti þess veruleika sem tækni-
heimur íjarskiptanna býr okkur; þar er
orð dagsins samkeppni - og einkaleyfi
á stómm hluta þessa markaðar heyrir
brátt sögunni til.
Háborðið |
Á að selja?
Tekið er íram af háifu stjómarliðs-
ins að formbreytingin á Pósti og síma
þýði ekki sjálfkrafa sölu fyrirtækisins.
Ef slík ákvörðun yrði tekin þyrfti Al-
þingi að flalla um málið og úrskurða.
Eitthvað hljómar þetta allt ákaflega
laust í reipunum. Þetta er gömul klisja
og úr sér gengin. Hvers vegna í ver-
öldinni segir samgönguráðherra og
þeir sjálfstæðismenn ekki söguna alla?
Þeir hafa fjölmargir lýst því opinber-
lega yfir að það sé þeirra von og
draumur að einkavæða Póst og síma.
Hvers vegna þessi feluleikur? Því
miður er það svo að ákaflega Ktið hald
er í því ákvæði að ákvörðun þurfi frá
Alþingi eigi að selja reytur Pósts og
síma á markaði. Það er hægt að keyra
slíka ákvörðun í gegn á einu síðdegi,
verði ríkisstjómarflokkamir ásáttir um
slfkt.
Að vísu hafa talsmenn Framsóknar
látið í veðri vaka að þeir muni ekki
samþykkja sölu á Pósti og síma. En
hvað er að marka það? Framsóknar-
flokkurinn hefur svikið hvert kosn-
ingaloforðið á fætur öðm frá því þeir
fóm undir sængina hjá íhaldinu. Og
ævinlega er afsökunin sú sama þegar
Framsókn er spurð um sviknu loforð-
in. Þeir segja einfaldlega að það þurfi
að gera fleira en gott þykir þegar
ástand ríkisfjármálanna er jafn erfitt
og raun beri vitni. Það kæmi því ekki
á óvart í ljósi reynslunnar að við
næstu ijárlagagerð kæmu þeir forkólf-
ar ríkisstjómarinnar ffarn á sjónarsvið-
ið og segðu ekki undan því komist að
selja eins og 40-50 prósent í Pósti og
síma. Og það em ekki litlir peningar
sem þar eru á ferð. Sennilega 5-6
milljarðar króna. Verður freistingin
ekki mikil þegar þeir bisa við að upp-
fylla loforðið um hallalaus fjárlög?
Verður Pósti og síma þá ekki fómað?
Verður fyrirtækið ekki bútað upp og
selt á afsláttarkjörum til vina ríkis-
„Hvers vegna í veröldinni segir samgöngu-
ráðherra og þeir sjálfstæðismenn ekki söguna
alla? Þeir hafa fjölmargir lýst því opinberlega
yfir að það sé þeirra von og draumur að
einkavæða Póst og síma. Hvers vegna
þessi feluleikur?"
stjómarflokkanna í íslensku atvinnu-
lffi - og það fyrr en síðar. Spytjum að
leikslokum.
Ráðherra allsráðandi
I títtnefndu frumvarpi samgöngu-
ráðherra um Póst og síma er ráðherra
veitt heimild til að stofna eins mörg
dótturfyrirtæki og hann lystir. Eitt
hlutafélag fyrir gmnnnetið, eitt fyrir
sölu símtækja, eitt fyrir póstinn, eitt
fyrir alnetið og svo framvegis. En allt
þetta ætlast hann til að Alþingi heimili
með samþykkt þessa frumvarþs, þótt
sjálfur skili hann auðu þegar spurt er
um framtíðarsýn hans varðandi hlut-
verk og markmið þessarar þjónusm.
Ennffemur er ljóst að undirbúnings-
vinna vegna stöðu starfsmanna, sem
em um 2400 talsins, er á algjöm ffurn-
stigi. Því miður svarar frurnvarpið allt-
of fáu um eðlilegar spumingar starfs-
manna varðandi framtíð þeirra og
stöðu hjá nýjum vinnuveitanda, hluta-
félagi.
Undirritaður telur ógjörning að
samþykkja ffumvarp ríkisstjómarinnar
um Póst og síma eins og það liggur
fyrir. Vissulega er nauðsynlegt að laga
þetta ríkisfyrirtæki að þeim vemleika
sem orðinn er. Þar em margar leiðir
færar. Alþýðuflokkurinn aðhyllist ein-
faldlega blandað hagkerfi. Það er ekki
trúaratriði að hefja ríkisrekstur né
hætta honum. Ekki trúarbrögð að
hlutafélagavæða - eða einkavæða.
Meta stöðuna einfaldlega kalt og yfir-
vegað. Hvernig verður þjónustan
ódýrust og best og hvernig verður
hagur starfsmanna tryggður? En um-
fram allt verður í þessu sambandi fyrst
að skilgreina með skýrum hætti á
hvaða vettvangi verður bullandi sam-
keppni í póst- og símamálunum, hvar
áfram einkaleyfi, hver er gjaldskrár-
stefnan, hveijar arðsemiskröfumar -
og yfirleitt hvemig þetta stóra fyrir-
tæki ætlar að bregðast við þessum ger-
breyttu kringumstæðum. Það eitt að
breyta stóm ríkisfyrirtæki í hlutafélag
svarar þessu á engan hátt.
Póstur og sími er feiknstórt fyrir-
tæki á íslenskan mælikvarða. Eigið fé
þess er í kringum 13 milljarðar króna
miðað við efnahagsreikning um síð-
ustu áramót. Ótaldar eignir þess og
viðskiptavild er talin í kringum 8
milljarðar króna. Frá dragast lífeyris-
skuldbindingar sem em taldar vera um
8 milljarðar. Með öðmin orðum, fyrir-
tæki með 13 milljarða króna í heima-
mund. Fyrirtæki sem greiðir um 2400
manns um það bil þijá og hálfan millj-
arð í laun á ári hveiju og veltir 10-11
miUjörðum á ári.
Ekki almennt snakk
Menn afgreiða ekki framtíð mikil-
vægs þjónustufyrirtækis, vinnuveit-
anda þúsunda Islendinga, fjársterks
stórfyrirtækis á borð við Póst og síma
með almennum yfirlýsingum, al-
mennu snakki, eins og stórgallað
frumvarp samgönguráðherra er í raun
þegar hismið hefur verið skilið frá
kjarnanum.
í þessum málum eins og öðmm þarf
stjómarandstaðan að hafa vit fýrir rík-
isstjóminni. Það mun ekki standa á
Alþýðuflokknum í þeim efnum.
Höfundur er varaformaöur
Alþýöuflokksins -
Jafnaðarmannaflokks íslands.
a t a I 5 .
m a r s
Atburðir dagsins
1461 Hinrik VI Englandskóng-
ur er settur af og er það einn
stóratburðurinn í svokölluðu
Rósastríði. 1856 Covent Gar-
den óperan í Londan brennur
til gmnna. 1933 Nazistar vinna
nær helming þingsæta f kosn-
ingum í Þýskalandi. 1946 Win-
ston Churchill lýsir því yfir í
ræðu að „járntjald hafi fallið
um Evrópu". 1953 Jósef Stalín
andast. 1991 Útvarpið í Bagd-
ad lýsir því yfir að stjóm fraks
hafi fallið frá þeirri ákvörðun
að innlima Kúveit.
Afmælisbörn dagsins
Lady Gregory 1852, írskt
leikritaskáld og annar stofnandi
Abbey-leikhússins í Dublin.
Rosa Luxemburg 1871, þýsk-
ur kommúnistaforingi og rit-
höfundur. Rex Harrison 1905,
breskur leikari. Elaine Page
1952, bresk söngkona, einkum
þekkt fyrir söngleikina Evita
og Cats.
Annálsbrot dagsins
Sló Erlendur Gíslason með
vakastöng eður vakabroddi
Gísla nokkurn Jónsson að
nafni, búandi austur í Holta-
mannahrepp í Rangárvalla-
sýslu, svo Gísli Jónsson deyði
þar af. Erlendur dæmdur líf-
laus, en sett þó til kongs, af því
Gísli var ei saklaus við hann.
Sjávarborgarannáll 1698.
Tilvísun dagsins
Trú þú öngum svo vel að þú
trúir eigi best sjálfum þér.
Guömundur ríki Eyjólfsson viö
Gretti Ásmundarson.
Tilvitnun dagsins
Eg leyfi mér að ítreka þá stað-
föstu trú mína, að það eina sem
við þurfum að óttast, er sjálfur
óttinn.
Franklin D. Roosevelt Bandaríkja-
forseti er hann sór embættiseió
sinn 1933.
Málsháttur dagsins
Sjaldan er fíflum framaskortur.
Orð dagsins
Ástin hefur hýrar brdr,
en hendur sundurleitar,
ein er mjúk en önnur sdr,
en þó báðar heitar.
Siguröur Breiðfjörð
Skák dagsins
Sá sem leysir skákþraut dags-
ins á innan við mínútu telst
býsna glúrinn. Klinger hefur
svart og á leik gegna Nemet,
skákin var tefld í Biel 1989.
Svartur leikur og vinnur.
1. ... Dxf3!l 2. gxff3 Bxf3+ 3.
Kgl d3+ 4. Kfl dxe2+ Og
hvíta drottningin cr fallin.