Alþýðublaðið - 07.03.1996, Side 4
4
u n
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 7. MARS 1996
g k r a t i n n
Hörður H. Arnarson skrifar
Ný Félags-
miðstöð
opnuðí
Hafnarfirði
Ungt fólk og Alþýðuflokkurinn
Þann 29. febrúar hóf starfsemi
sína ný félagsmiðstöð í Hafnarfirði.
Það er að frumkvæði Æskulýðs- og
tómstundaráðs (ÆTH) í samvinnu
við skóla og skólayfirvöld sem
þessi starfsemi er sett á laggirnar.
Félagsmiðstöðin er til húsa í Hval-
eyrarskóla. Eftir nafnasamkeppni
meðal unglinga í hverfinu var fé-
lagsmiðstöðinni gefið nafnið Verið.
Það hafa um nokkurt skeið átt sér
stað umræður í æskulýðsráði um að
koma á laggir starfsemi af þessu
tagi í hverfinu. Því þó félagsmið-
stöðin Vitinn hafi þjónað vel á und-
anförnum árum þá er það svo að
Hafnarfjarðarbær hefur stækkað
geysilega ört á umliðnum árum. Ný
hverfi litið dagsins ljós eins og
Hvaleyraholtið þar sem hlutfall
barna og unglinga er mikið. Að
sama skapi hafa vegalengdir aukist.
Unglingar á Holtinu hafa því haft
um langan veg að sækja þegar að
Vitinn er annars vegar. Þess vegna
hefur ÆTH lagt gífurlega áherslu á
að koma á fót starfsemi af þessu
tagi í hverfínu.
Það var mikið fjölmenni við opn-
unina eins og sjá má á meðfylgj-
andi myndum. Um kvöldið var
haldið diskótek og má með sanni
segja að unglingarnir í hverfinu
kunni að meta Verið, því tæplega
200 manns mættu og skemmtu sér
allir hið besta, enda sjálfur Páll
Óskar sem tróð upp.
Það er æskulýðs-og tómstunda-
ráð sem sér um reksturinn. Til að
byrja með verður opið á eftirmið-
dögum og tvö til þrjú kvöld í viku.
Klúbbastarf æskulýðsráðs mun síð-
an fara fram á öðrum tímum.
Starfsmenn eru fjórir, Malen
Sveinsdóttir uppeldisfræðingur er
forstöðumaður, en auk hennar
starfa þrír starfsmenn í 33 - 50 %
störfum. Öll dagskrá er unnin í ná-
inni samvinnu við nemendaráð
skólans. Starfsemin verður án efa
mikil lyftistöng fyrir allt félagslíf í
hverfinu því ætlunin er að ein-
skorða sig ekki alfarið við ung-
lingastarf þó svo að það verði meg-
in viðfangsefnið. Félögum og sam-
tökum í hverfinu er velkomið að
nýta sér þessa ágætu aðstöðu t.d. til
fundarhalda og annarrar félagsstarf-
semi.
Alþingiskosningar á síðasta ári
mörkuðu tímamót í sögu okkar ágætu
þjóðar. Hart nær alla öldina hafa pólit-
íkusar tekist á um klassíska hægri-
vinstri hugmyndaffæði af miklum eld-
móð kryddað með þverpólitískum,
rammíslenskum hugmyndaheimi sem
kallast dreifbýli-þéttbýli, landbúnað-
ur-sjávarútvegur. Þessi þverpólitíski
hugmyndaheimur hefur ruglað kjós-
endur í ríminu f næstum heila öld og
skilur ekkert eftir sig nema úrelt
flokkakerfi gegnumsýrt af þverpólit-
ískum valdablokkum hagsmunaaðila.
En síðasta vor létu pólitíkusar þessar
dægurflugur eiga sig. f staðinn fýrir að
þurfa að meta úrelt flokkakerfi eftir
kúnstarinnar leiðum fengu kjósendur
loksins skýrt val. f alþingiskosningum
1995 var nefnilega kosið á milli Fram
og Aftur. Já, kjósendur fengu gullið
tækifæri til að velja á milli þeirra sem
vilja takast á við framtíðina af raunsæi
og skynsemi og hins vegar þeirra sem
sífellt horfa til baka án þess þó draga
lærdóm af fortíðinni. Því miður fyrir
æsku þessa lands þá gjörsigraði Aftur
- Fram með 52 þingmönnum gegn 7
(4 þingmenn þjóðvakans sátu hjá).
Kosningabandalagið Aftur, skipað
þeim Hjörleifi Guttormsyni, litasjón-
varps Palla og skoðanabræðrum þeirra
úr Sjálfstæðisflokknum, þeim Davíð,
Þorsteini og Bimi tókst með eindæm-
um vel að sannfæra kjósendur um að
stefnuleysi í utanríkis- landbúnaðar-
og sjávarútvegsmálum væri þjóðinni
og flokkum sínum heillavænlegast.
Eftir kosningar var síðan myndaður
gamall kokkteill hagsmunaaðilla sem
byrjaði á því að auka skuldir æskunn-
ar um 12 milljarða króna með „mark-
vissri íjárfestingu" í niðurgreiðslum á
væntanlegu urðuðu lambakjöti. A
sama tíma er 75 milljónir króna auka-
fjárveiting fyrir fjársveltan Háskólann
of stór biti fyrir þessa háu herra. Það
sem einkenndi þetta kosningabanda-
lag öðru fremur var algjört getuleysi
til að fjalla um framtíðarsýn á þessum
heistu málaflokkum og þá sér í lagi á
utanríkismálunum. Hjá Davíð var mál
málanna ekki á dagskrá, sem segir
okkur að þekking hans á utanrfkismál-
um er lítið annað en í góðu samræmi
við slaka tungumálakunnáttu hans. Og
ekki er nú forsætisráðherrann sterkari
í sagnfræðinni þrátt fyrir að vera sann-
kallaður 19. aldar stjómmálamaður. Á
fundi með skósveinum sínum snemma
í Desember benti hann á að efnahags-
leg samkeppni þjóða á milli hafi verið
forsenda framfara á 19. og 20 öld. 19.
aldar Davíð boðar þama stefnu sem
náði hámarki á fyrri hluta 20. aldar í
Evrópu og orsakaði tvær heimstyrald-
ir. Af biturri reynslu lærðu flestir Evr-
ópubúar af tortímingu heimsstyijald-
anna og afrakstur þess er Evrópu-
Gömlu meistaraverkin aftur á hvíta tjaldið í Hafnarfirði
Kvikmyndasafn
íslands á leið
í fjörðinn
bandalagið en Davíð og nokkur fyrr-
um ríki Júgóslavíu beija ennþá höfð-
inu við steininn.
Æska landsins á betur skilið en svo
að þurfa kyngja illa upplýstum hug-
myndum Davíðs og hans lærisveina
um málefni þeirra sem erfa skulu
landið. Æska landsins á ekki að þurfa
að kaupa kosningaloforð frjálslynd-
asta flokks landsins fyrir hveijar kosn-
ingar, sem síðan tekur hamskiptum og
breytist í torfbæ eftir kosningar og
heitir Framsóknarflokkurinn. Æska
lándsins á ekki að þurfa að hlusta á
gömlu einangrunnarstefnu þjóðemis-
sósíalistana í Alþýðubandalaginu
tyggja sömu frasana aftur og aftur.
Alþýðuflokkurinn- J afnaðarmanna-
flokkur Islands er eini flokkurinn sem
þorir að takast á við framtíðina með
nýjum lausnum. Til þess að forða því
að æskan og framtíðin tapi ekki næstu
kosningum hvet ég ungt fólk til að
kynna sér það hyldýpi sem hefur
myndast í íslenskum stjórnmálum á
milh Alþýðuflokksins og hinna flokk-
anna. Ungt fólk og Alþýðuflokkurinn
eiga samleið.
Höfundur er formaöur
Félags ungra jafnaðarmanna í Hafnarfirði
Líklegt má telja að strax á næsta
ári verði Bæjarbíó aftur í komið í sitt
upprunalega hlutverk sem kvik-
myndahús. Það sem þessu veldur er
fyrirhugaður flutningur Kvikmynda-
safns Islands í fjörðinn. I bíóinu
verður þó ekki boðið upp á það nýj-
asta á markaðinum heldur fá tilvon-
Bœjorbíó
ENGILL DAUÐANS
andi gestir að berja augum ýmis
meistaraverk kvikmyndanna. Þetta
mun því verða hrein ábót ofan á
blómlegt menningarlíf bæjarins.
Þegar rætt var við forstöðumann
kvikmyndasafnsins, Böðvar Bjarka
Pétursson, kom fram að gengið hefði
verið frá leigusamningi á húsum
gömlu bæjarútgerðarinnar. Hann
væri því undirritaður með þeim fyrir-
vara, að samningar tækjust við bæj-
aryfirvöld, um afnot af Bæjarbíó,
það væri þó allt að smella saman, en
það væri skýr vilji kvikmyndasafns-
ins að málið yrði unnið í góðri sam-
vinnu við leikfélagið.
Samstarfssamingur sem safnið
hefur unnið að í samráði við menn-
ingarmálanefnd bæjarins er nú til
umfjöllunar hjá menntamálaráðu-
neytinu og í framhaldi af því mun
bæjarráð fá málið til umfjöllunar. Að
sögn Böðvars Bjarka munu geymslu-
málin komast í gott lag og með að-
stöðu í Bæjarbíó opnast allt aðrir
möguleikar til að gera safnið sýni-
legra og þar með lifandi eins og safn
sem þetta á að vera. Þetta tvennt,
hentugar geymslur og alvöru kvik-
myndahús með gamla laginu gerðu
það að verkum að Hafnarfjörður
varð fyrir valinu. Megin forsendan
var þó hin jákvæðu viðbrögð bæjar-
yfirvalda um að fá safnið í bæinn og
4 milljóna króna framlag bæjarins
skipti þar sköpum.
Áð framan sögðu er ljóst að Hafn-
firðingar og aðrir sem leið eiga til
bæjarins munu í framtíðinni geta átt
góðar stundir yfir helstu perlum
kvikmyndasögunnar ásamt því að
kynnast sögu kvikmynda á íslandi.
Á.H.Á Byggingar
s. 568-4720
2B Sparisjóður
Hafnarfjarðar
Fasteignasalan Ás
Strandgötu 31 s. 565-2790