Alþýðublaðið - 12.03.1996, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 12. mars 1996 Stofnað 1919 40. tölublað - 77. árgangur
Frumvarp ríkisstjórnarinnar um breytingar á Lífeyrissjóði ríkisstarfsmanna
180 ára afmæli ASI
Umtalsverð skerðing
á lífeyrisréttindum
- segir Páll Halldórsson formaður BHMR og vill að
nýtt kerfi sé byggt upp samhliða því gamla
„Við erum fyrst og fremst á móti því
að verið sé að skerða lífeyrisréttindi
með einhliða ákvörðun, enda ljóst að
frumvarpið felur í sér umtalsverða
skerðingu á verðmæti lífeyrissjóðsrétt-
inda“ segir Páll Halldórsson formaður
BHMR, en í gær lögðu forystumenn
samtaka opinberra starfsmanna fram
tryggingastærðfræðilega úttekt sem þau
létu gera á frumvarpsdrögum ríkis-
stjómarinnar um Lífeyrissjóð starfs-
manna ríkisins. Telja þeir að ffumvarp
ríkisstjómarinnar feli í sér umtalsverða
skerðingu á verðmæti lífeyrisréttinda
miðað við núgildandi lög og tína til ým-
is dæmi því til stuðnings úr áliti trygg-
ingastærðfræðings. í því er sýnt ffam á
mismun á bilinu 4 til 11 prósent milli
laga sem nú em í gildi og þess sem gert
er ráð fyrir í fmmvarpi stjómarinnar.
„Við teljum að lífeyrissjóðsréttindi
séu einstaklingsbundinn réttur og að
þau réttindi verði ekki af fólki tekin
með einhliða hætti,“ segir Páll. Hann
segir að ef breyta eigi lögum um Líf-
eyrissjóð starfsmanna ríkisins sé nauð-
synlegt að gera það þannig að réttindi
einstakhnga skerðist ekki. Að því segir
hann eina leið: „ Hún er sú að búið
verði til nýtt kerfi og gefinn verði
möguleiki fyrir þá sem þegar em komn-
ir í sjóðinn að vera ennþá í gamla kerf-
inu eða fara í það nýja. Ef búið yrði til
nýtt kerfi tel ég að margir myndu vilja
fara í það, sæju aðra kosti við það. Þetta
hefur verið gert í öðmm löndum, að
hafa tvö kerfi samhliða og reynslan hef-
ur verið sú að eldri lífeyrisþegar, á aldr-
inum 55 til 60 ára, hafa verið í gamla
kerfinu en aðrir farið í nýja. Ég held að
það sé eina leiðin, til að einstaklings-
rétturinn skerðist ekki, að búa til slíkt
nýtt kerfi,“ segir Páll Halldórsson.
Forystumenn opinberra starfsmanna heyja nú áróðursstríð við ríkisstjórn-
ina. í gær kynntu Páll Halldórsson, formaður BHMR, Ögmundur Jónas-
son, formaður BSRB, og Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambandsins
mat tryggingafræðilegt mat á frumvarpi ríkisstjórnarinnar um lífeyrissjóð
ríkisstarfsmanna.
■ Alþýðuflokkurinn
80 ára
Kveðja frá
formanni
Jafnaðarmennfagiia í dag 80
ára afinæli Alþýðuflokksins -
Jafnaðarmannaflokks Islands. Á
þessum sama degi fagna systur-
samtök okkar, Alþýðusamband
íslands, sama áfanga í tilver-
unni. Við jafnaðarmenn sendum
öllumfélögum Alþýðusambands-
ins baráttukveðjur á þessum
tímamótum um leið og við þökk-
um samfylgd fyrsta aldarfjórð-
unginn og samstarfí blíðu og
stríðu alla tíð síðan.
Þar sem afmælið ber upp á
virkan dag - og við erum öll
vinnandifólk - ætlum við að
halda upp á afmœlið yfir helg-
ina. Að kvöldi föstudagsins 15.
mars verður hátíðarkvöldverður
að Borgartúni 6, samkvœmt áður
auglýstri dagskrá, og hefst hann
kl. 19.30. Á sunnudeginum þann
17. mars verður dagskráfyrir
allafjölskylduna að Hótel Borg
milli kl. 14.00 og 16.30. Allir
þeir sem vilja heiðra okkur með
nœrveru sinni eru hjartanlega
velkomnir.
Alþýðublaðið mun gera af-
mœlinu skil í se'rstakri aukaút-
gáfu nœstkomandi föstudag.
Á flokksþingi okkar á nœsta
hausti munum við minnast 80
ára afinœlisins ennfrekar, um
leið og íslenskir jafnaðarmenn
búa sig undir að ganga í endur-
nýjun lífdaganna í augsýn nýrr-
ar aldar.
Velkomin til afmœlisfagnaðar.
Jón Baldvin Hannibalsson
formaður
„Sel hjálpartæki menníngarinnar," segir Gunnar verslunarstjórr Bókarinnar sem nú er flutt í nýtt húsnæði.
■ Bókin flutt á Grundarstíg
Sel hjálpartæki
„Ég var eiginlega búinn að gefast upp en góðir menn og
konur hafa hjálpast að við að gera mér kleift að heíja bóksölu á
nýjan leik,“ segir Gunnar Valdimarsson fyrrum verslunarstjóri
í Bókinni. Um tíma leit út fyrir að rekstrinum yrði hætt en mál-
in hafa þróast á jákvæðan veg og verslunin hefur nú tekið til
starfa í öðm húsnæði. „Ég vona að menn rati hingað því versl-
mennmgarmnar
unin er einungis 250 metra frá gamla staðnum," segir Gunnar.
Bókina er nú að fmna að Grundarstíg 2 þar sem verslunin
Rómeó og Júh'a voru áður til húsa og seld voru ýmis hjálpar-
tæki ástarlífsins. ,J þessari verslun sel ég hjálpartæki menning-
arinnar," segir Gunnar. „Bókin er grundvallar menningartæki."
og Alþýðuflokks
Metum mikils
samstarfvið
jafnaðarmenn
- segir Benedikt Davíðsson
forseti ASÍ
„Eins og að okkur er sótt nú held ég
að það sé meiri ástæða en oft að hreyf-
ingin standi sig í stykkinu og vinni
sameinuð að þeim verkefnum sem
henni voru falin í upphafi, það er að
segja að vera sverð og skjöldur verka-
lýðshreyfingarinnar í sókn og vöm,“
segir Benedikt Davíðsson, en í dag, 12.
mars, er þess minnst að 80 ár eru liðin
frá stofnun Alþýðusambands íslands
og Alþýðuflokksins.
Sem kunnugt er voru Alþýðusam-
bandið og Alþýðuflokkurinn ein hreyf-
ing þar til leiðir skildi 1940. Benedikt
rifjar upp að það hafi einmitt verið Jón
Baldvinsson, formaður Alþýðuflokks,
sem hreyfði því fyrst á sambandsþingi
1926 að heppilegt væri að skilja að
yfirstjóm verkalýðshreyfingarinnar og
stjómmálahreyfingarinnar, llkt og hefði
gerst víðast í nágrannalöndum.
„Við hér Alþýðusambandsmegin
höfum starfað í þeim anda allar götur
síðan og teljum líklegt að við getum
náð árangri með þeim hætti, en gemm
okkur þó fulla grein fyrir að okkur er
nauðsynlegt að eiga góðan stuðning í
vinstri sinnuðum flokkum í póhtikinni,
á Alþingi og hvar sem er í stjómsýsl-
unni. Við metum því mikils samstarf
við þá flokka sem vilja kalla sig jafhað-
armannaflokka."
■ Siðanefnd fundar enn
vegna biskupsmála
Er kannski að
færastá annan
vettvang
- segir formaður siðanefndar
„Siðanefnd skilaði áliti í þessu máli
á sínum tíma. Síðan hefur ýmislegt
komið fram og það er margt sem við
viljum ræða við konumar og þær við
okkur,“ sagði Úlfar Guðmundsson for-
maður Siðanefndar prestafélagsins en í
dag heldur siðanefnd fund með tveim
konum sem ásakað hafa biskup fyrir
kynferðislega áreitni. „Við höfum ekki
gefið þetta mál frá okkur ennþá, en það
stendur ekki til að hafa það til eilífðar,
enda er það kannski að færast yfir á
annan vettvang," sagði Úlfar og sagðist
ekki vilja tjá sig frekar um málið á
þessari stundu.
Nokkrar vangaveltur hafa verið
uppi um það hver borgaði lögfræði-
kostnað biskups. Séra Baldur Krist-
jánsson biskupsritari sagði í samtali við
Alþýðublaðið að það lægi í augum
uppi að biskup bæri sjálfur þann kosm-
Framsóknarflokkur kiknar undan
kosningaloforðum
Svíkja loforð um greiðsluaðlögun, segir Össur Skarphéðinsson
Á Alþingi í gær kom fram hörð
gagnrýni á frumvarp dómsmálaráð-
herra um réttaraðstoð við einstaklinga
sem leita nauðasamninga. Stjómarand-
stæðingar telja stjórnarfrumvarpið
ganga allt of skammt. I máli Jóhönnu
Sigurðardóttur kom ffam að frumvarp-
ið myndi einungis hjálpa örfáum tug-
um einstaklinga. Össur Skarphéðinsson
réðst harkalega að félagsmálaráðherra
fyrir að kikna undan kosningaloforðun-
um. en Framsóknarflokkurinn lofaði
því fyrir síðustu kosningar að leggja
fram frumvarp um greiðsluaðlögun.
„Félagsmálaráðherra hefur bersýnilega
fætur úr gúmmíi," sagði Össur og ásak-
aði Pál Pétursson fyrir að láta Sjálf-
stæðisflokkinn kúga sig í málinu. Öss-
ur rifjaði upp kosningaloforð fram-
sóknarmanna þar sem þeir meðal ann-
ars lofuðu að lækka skuldir þeirra sem
ættu í tímabundnum greiðsluerfiðleik-
um. Össur rukkaði einnig Sif Friðleifs-
dóttur um eitt af kosningaloforðum
hennar en hún hafði sagt í kosningabar-
áttunni að sér fyndist að það ætti að
hækka fyrstu lán til húsnæðiskaupa
upp í 80 prósent. „Það er ekki nóg að
lofa í kosningabaráttu, hæstvirtur þing-
maður Sif Friðleifsdóttir, það verður
líka að standa við stóru málin. Hvenær
kemur að því að þú leggur fram frum-
varp um þessa hækkun?" sagði Össur.
Félagsmálaráðherra hefur bersýni-
lega fætur úr gúmmii, sagði Össur á
þingi í gær.