Alþýðublaðið - 12.03.1996, Side 3
ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 1996
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
s k o ð a n i r
Hugleiðingar um Alþýðuflokkinn
Og kannski er það einmitt tilfinningasemin sem hefur gert Alþýðu-
flokknum erfitt fyrir sem stjórnmálaflokki. í stað þess að sinna dægur-
málunum öllu meira hefur hugsjónin um nýjan og betri heim einkennt
og yfirgnæft starf og málflutning. Hin daglega barátta fyrir brauðinu
hefur orðið útundan. En þetta tvennt þarf að fylgjast að.
Á undanfömum íjörtíu árum eða frá
því að ég gekk í FUJ í Reykjavík hef
ég notað margar stundir til að íhuga
og ræða þessa spumingu: „Af hverju
er Alþýðuflokkurinn ekki stærri en
raun ber vitni?“ Svörin hafa verið
Pallborðið |
Bk Árni
™ ymm Gunnarsson
mörg og margvísleg en ekkert þeirra
hefur þó nægt til að útskýra ástæðuna.
Stærð flokksins gengur þvert á hug-
myndir mínar um fjölda jafnaðar-
manna á Islandi.
Ég hef reynt að sætta mig við vem-
leika hundraðshluta atkvæða með
svörum eins og þessum: Flokkurinn
hefur öðmm flokkum meir klofnað og
þverklofnað, hann hefur liðið fyrir
rangláta kjördæmaskipan, innra skipu-
lag hefur oft setið á hakanum og hann
hefur ekki kjölfestu í neinum hags-
munasamtökum vinnuveitenda eða
launþega.
Síðan hef ég haldið áfram og spurt
sjálfan mig: „Eru allir búnir að
gleyma gömlu baráttumálunum og ár-
angri flokksins í velferðar- og rétt-
indamálum? Og ef svo er, af hverju
héfilr flokkurinn orðið svo harkalega
fýrir, þarðiftu á óánægju almennings
méð lllt' árferði í velferðarkérfinu?
Eðá ér hugsánlegt að fólkið geri aðrar
kröfur til Álþýðuflokksins en annarra
flokka?"
Hvað sem þessum hugleiðingum
líður þá er það ljóst að Alþýðuflokkur-
inn og barátta hans hefur haft meiri
áhrif á þróun mála og landstjómina en
stærðin segir til um. Og stundum hafa
liðið ár og dagar þar til þjóðin hefur
viðurkennt að áherslur flokksins hafa
þrátt fyrir allt verið réttar í veigamikl-
um málum. Um það má nefna fjölda-
mörg dæmi.
Stundum hefur mér dottið í hug að
Alþýðuflokkurinn hafi farið fram úr
sjálfirm sér og þjóðinni um leið. Menn
verða gjaman kratar af hugsjón og til-
finningu. Hugsjónin snýst um frelsi,
réttlæti og jöfnuð. Og kannski er það
einmitt tilfinningasemin sem hefur
gert Alþýðuflokknum erfitt fyrir sem
stjómmálaflokki. I stað þess að sinna
dægurmálunum öllu meira hefur hug-
sjónin um nýjan og betri heim ein-
kennt og yfirgnæft starf og málflutn-
ing. Hin daglega barátta fyrir brauðinu
hefur orðið útúndan. En þetta tvennt
þarf að fylgjast að.
Auðvitað lifum við ekki lengri á ár-
angri fyrri ára og ekki heldur á fram-
tíðarsýn sem ekki kemst nægilega vel
til skila. Við verðum að takast á við
núið og verkefni þess. Á 80 ára af-
mæli Álþýðuflokksins er sá vandi
mestur að draga úr sársaukafullum af-
leiðingum niðurskurðar í því velferð-
arkerfi sem flokkurinn ber meiri
ábyrgð á en aðrir flokkar. Þjóðfélags-
breytingar og aldursskipting þegnanna
næstu árin gera þetta verkefni mun
brýnna en ella.
Alþýðuflokkurinn verður jafnframt
að finna aðferð til að koma framtíðar-
sýninni og veruleika nýrrar aldar til
skila meðal almennings. Núverandi
stærð flokksins á ekki að vera neitt
lögmál nema hann kjósi sér það hlut-
verk að vera hrópandinn í eyðimörk-
inni og sætti sig við stærðina vegna
þeirra mikilvægu mála sem hann hef-
ur, þrátt fyrir allt, komið til skila. Þörf-
in fyrir jafnaðarstefnuna hefur sjaldan
verið meiri á Islandi en einmitt nú.
Höfundur er framkvæmdastjóri og fyrr-
verandi þingmaður Alþýðuflokksins.
JÓN ÓSKAR
v i t i m e n n
Ég sé ekki eftir því sem
ég hef gert, því trassaskapur-
inn stafar einmitt af því að
ég hef eitt öllum tíma mínum
í stjórnmál og fjölskylduna
og því hafa aðrir hlutir oft
lent á hakanum, eins og að
borga reikningana.
Mona Sahlin í
Morgunblaöinu á sunnudag.
Hér bíða mikilvægari
verkefni en þras um
fundarsköp.
Gísli Ólafsson bæjarstjóri í Vesturbyggð.
Mogginn á sunnudag.
En Stígamót hafa unnið
gott starf og vonandi tekst
þeim að endurvinna traustið
og ég vil sjálfur mjög
gjarnan stuðla að því.
Herra Ólafur Skúlason biskup I
Tímanum á laugardag.
Það hafa margir
blaðamenn barið marga
heilbrigðisráðherra.
Birgir Guömundsson í tímans rás.
Tíminn á laugardag.
Danmörk og Island eru
afar ólík lönd, ef litið er til
náttúrulegra skilyrða.
Jón Kristjánsson ritstjóri í
Tímanum á laugardag.
Biskupinn yfir Islandi
hefur gert töffara að tals-
manni sínum í málum þeim,
sem hafa brunnið á honum
að undanförnu.
Jónas Kristjánsson í leiöara
Helgarblaðs DV.
Óneitanlega er sérkennilegt
að fylgjast með talsmanni,
sem hamast á faxinu eins og
hann sé verjandi landskunnra
afreksmanna í skuggalegum
viðskiptum.
Sami leiðari.
fréttaskot úr fortíð
Dagblöð sem
vindlinga-
pappír
Vegna viðskiptakreppunnar verða
íbúamir á Java, að reykja tóbak sem
vafið er í dagblaðapappír. Miklar
birgðir af amerískum dagblaðapappír
eru fluttar til Java frá Indlandi, og eru
notaðar sem vindlingapappír. Arið
1934 hækkaði innflutningur dag-
blaðapappírs úr 27,000 tonnum upp í
34,000 tonn.
Alþýðublaðið
sunnudaginn 21. júlí 1935
h i n u m e g i n
"ForSido" eftir Gary Larson
Alþýðubandalagið hélt á laug-
ardag fund um útvarps- og
sjónvarpsrekstur undiryfirskrift-
inni Sjónvarp og útvarp á sam-
keppnismarkaði og hafði ýmist
þekkt fólk úr heimi fjölmiðlanna
hafðj þar framsögu, meðal ann-
árra Stefán Jón Hafstein, fyrr-
yrr\ yfirrpaður Rásar 2, og Ævar
Kjartansson, ritstjóri menningar-
mála á.RÚV. Töluðu þeirfélag-.
arnir hvor á eftir öðrum og
gerðu harða hríð að yfirstjórn
Ríkisútvarpsins fyrir dugleysi.
Einn þeirra sem sat fundinn var
Heimir Steinsson útvarpsstjóri
og var Ijóst að honum mislíkaði
málflutningurinn mjög. Þegar
liðið var nokkuð á tölu Ævars
þótti honum sér ekki lengur til
setunnar boðið, heldur stóð upp
og gekk út með þjósti. Aðrir
hæstráðendur á Ríkisútvarpinu
létu sér hins vegar ekki bregða
og á eftir ræðum Stefáns Jóns
og Ævars stigu í pontu Hörður
Vilhjálmsson, fjármálastjóri
Ríkisútvarpsins, og Markús Örn
Antonsson framkvæmdastjóri
og fluttu framsöguerindi í friði
og spekt.
Eins og Alþýðublaðið skýrði
frá ekki alls fyrir löngu er
langt i frá komin niðurstaða í
þær deilur sem staðið hafa í
Borgarleikhúsinu að undan-
förnu. Andstæðingar þeirra
Kjartans Ragnarssonar og
Viðars Eggertssonar munu
seint una því að búa við það óör-
yggi og valdaleysi sem nýliðnir
atburðir hafa borið í skauti sínu.
Nú þegarfrumsýning Hins Ijósa
mans er afstaðin má búast við
tiðindum. Framhaldsfélagsfund-
ur var haldinn í gærkvöldi og
undanfarna daga hefur gamli
kjarninn í leikhópi Leikfélags
Reykjavíkur staðið fyrir mikilli
smölun. Eftir því sem blaðið
heyrir eru þar helstir forsprakkar
leikarnir Sigurður Karlsson,
Jón Hjartarson og Þorsteinn
Gunnarsson. Fyrir fundinn
munu þeir hafa ráðgert að lýsa
vantrausti á sitjandi stjórn og
ómerkja gerðir hennar. Þar með
er talin ráðning Viðars sem leik-
hússtjóra. Eftir því sem næst
verður komist mun skipulag
þeirra jafnvel ná svo langt að
þeir hafi tryggt sér afskiptaleysi
borgaryfirvalda ef til þessara
umskipta kemur...
Lakleg frammistaða íslensku
stórmeistaranna á Reykjavík-
urskákmótinu sem lauk nú um
helgina olli miklum vonbrigðum.
Hannes Hlífar Stefánsson og
Margeir Pétursson stóðu sig
skást þeirra, voru í 6.-10. sæti
með sex vinninga, en Helgi Ass
Grétarsson, Jóhann Hjartars-
son og Helgi Ólafsson voru í
11.-18. sæti með fimm og hálfan
vinning. Eins og kunnugt er
þiggja íslensku stórmeistararnir
menntaskólakennaralaun hjá rík-
inu og er er nú mjög til umræðu
meðal skákáhugamanna að
þetta fyrirkomulag hafi gert stór-
meistarana værukæra. Er í þvl
sambandi bent á að norsku skák-
meistararnir sem voru mjög sig-
ursælir á mótinu þurfi að hafa
meira fyrir lifinu; sigurvegari
mótsins, Simen Agdestein
vinnur til dæmis fyrir sér með
kennslu og blaðaskrifum. Efstu
menn á mótinu uppskáru náttúr-
lega nokkuð verðlaunafé, þótt
ekki sé þar um háar fjárhæðir að
ræða. Islensku stórmeistararnir
ætluðu hins vegar að hafa vaðið
fyrir neðan sig og fóru þess á leit
fyrir mótið að hver um sig fengi
greidda þúsund dollara fyrir það
eitt að taka þátt. Mun það hafa
mælst mjög misjafnlega fyrir...
„Baldur, viltu gjöra svo vel að hætta þessu bölvaða smjatti.
Núna!!! Maggi og Bolli hafa ekki getað komið niður einni
einustu baun vegna lystarleysis sem þessi búkhljóð í þér
valda... Það er ekki svo oft sem við fáum Heinz í stað Ora
og fullkominn óþarfi hjá þér, að eyðileggja jólamáltíðina
svona fyrir okkur."
f i m m
förnum vegi
Hvað er Alþýðuflokkurinn gamall?
Magnús Árni Skúlason
framkvæmdastjóri: Hann
var stofnaður árið 1926 og
verður þar af leiðandi sjötíu
ára.
Helga Kolbeinsdóttir
söngnemi: Hann verður
fjörutíu ára.
Inga Gunnarsdóttir veit- Bjarni Ragnar myndlistar-
ingastjóri: Finimtíu ára. maður: Hann verður áttatíu
ára í dag.
Gunnar Kristmannsson
tónlistarkennari: Hann
verður sjötíu og fimrn ára.