Alþýðublaðið - 19.03.1996, Side 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 19. MARS 1996
s k o ð a n i r
fLÞVDIIRI fDIII
21083. tölublað
Hverfisgötu 8-10 Reykjavík Sími 562 5566
Útgefandi Alprent
Ritstjóri Hrafn Jökulsson
Umbrot Gagarín hf.
Prentun Isafoldarprentsmiðjan hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 562 5566
Fax 562 9244
Símboði auglýsinga 846 3332
Áskriftarverð kr. 1.500 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk
Aumingja Friðrik!
Sennilega byggðist þetta allt á misskilningi. Þegar ríkisstjómin
setti stórskotalið sitt í árásarstöðu á þremur mikilvægum kross-
götum í leiðakerfi kjarabaráttunnar, héldu menn að nú ætti að
blása til orrustu. Verkalýðshreyfmgin vígvæddist í skyndingu og
öll tiltæk vopn voru dregin fram úr vopnabúrum. Svo skyndilega
gerðist það að hvorugur aðilinn virtist almennilega hafa áttað sig
á því um hvað var deilt í reynd.
Þá er snögglega blásið til undanhalds. Yfirhershöfðinginn gaf
innrásarliðinu dagskipun um að yfirgefa krossgötu nr. 1. Þeir
skildu eftir sig úttroðna jörð og sundurtætt gatnamót, sem ekki
verða notuð aftur án gagngerrar viðgerðar.
Enn sitja þeir um tvenn gatnamót. Breytingar á lögum um rétt-
indi og skyldur ríkisstarfsmanna og um sáttastörf í vinnudeilum
eru enn á borði herstjómarinnar. Það er aðeins spumig um gott
tilefni hvenær þau verða látin hverfa þaðan líka. Þetta stríð er
unnið. Það er gott stríð, sem vinnst án átaka. Til hamingju opin-
berir starfsmenn!
Hvað stendur þá uppúr eftir þetta frumhlaup? Hefúr ríkisstjóm-
in sent einhver holl og þroskandi skilaboð til viðsemjenda sinna
eða aðila á vinnumarkaðinum? Hefur skilningur á göllum núver-
andi fyrirkomulags við samningagerð vaxið? Em menn nær því
að setjast sameiginlega niður og fínna lausn á fjarhagsvanda líf-
eyrissjóðakerfis opinberra starfsmanna og reyndar bankamanna
líka?
Nei, síður en svo. Opinberir starfsmenn hafa gripið til skyndi-
vama, stundum af meira kappi en forsjá. Fjandskapur og tor-
tryggni einkennir nú öll viðhorf launafólks í garð viðsemjenda
sinna. Samskiptareglum á vinnumarkaði hefur verið stórlega
spillt. Þegar sest verður að samningaborði fyrir næstu samninga
verður eftirleikurinn erfiður. Traust samningsaðila í garð ríkis-
valdsins er brostið. Þetta traust hefur kannski aldrei verið ýkja
mikið, en leikreglumar hafa yfirleitt verið ljósar, hversu skyn-
samar sem þær annars kunna að hafa verið. Um það má deila.
Það var vitað fyrirfram að næstu samningar yrðu fyrir margra
hluta sakir erfiðir. Eftir það sem á undan er gengið em þeir nú
þegar komnir í hnút; gordíonshnút sem enginn galdrakarl heggur
á úr pontu á Alþingi.
Ríkisstjóminni hefúr tekist, átta mánuðum áður en samningar
renna út, að sá svo mikilli tortryggni og hvetja til þannig óhæfu-
verka að seint mun takast að koma jafnvægi á að nýju.
Sá sem tapar er þjóðin. Hún má búast við að lenda í stórátökum
á vinnumarkaði næsta vetur; átökum sem geta ekki endað öðm-
vísi en með ósköpum, ýmist í formi mikillar röskunar á daglegu
lífi fólks eða efnahagslegrar holskeflu sem skekur stöðugleikann
og skerðir framtíðarkjör. Líklegast er þó að hvort tveggja muni
fylgja.
Davíð Oddsson hefur kosið að fóma manni fyrir betri stöðu í
bráð. Niðurlæging íjánnálaráðherra er skelfileg. Hann er ekki að-
eins dæmdur til refsivistar in absetia heldur er honum ekki einu
sinni sýnd sú lágmarks tilhtssemi að láta hann vita hvað til standi.
Vömum kemur hann engum við. En hann er skikkaður til að
semja við opinbera starfsmenn í haust. Á það forað er sjálfsagt að
etja honum.
Aumingja Friðrik! ■
Andsvar við ranglæti
enn, að mannfélag sé samfélag fólks,
sem búi við ólíkar aðstæður, er geti
verið þeim ósjálfráðar. Af þessum
sökum vegni sumum verr en öðrum.
Og þá er komið að kjamanum í boð-
skap jafnaðarmanna: Þeim, sem bet-
ur mega sín ber siðferðileg skylda til
þess að fóma hluta af hagsæld sinni
til þess að bæta hlut hinna, sem
minna mega sín.
Nú má búast við, að ýmsir segi:
En eru ekki allir nú á dögum sam-
mála um, að rétta skuli bágstöddum
hjálparhönd? Sem betur fer má svara
því játandi. En grundvallarágreining-
ur er engu að síður um hvort tveggja:
Hversu langt skuli ganga og hvernig
fara skuli að. Þessi ágreiningur krist-
allast m.a. í þeim umræðum um vel-
ferðarkerfið, sem fara fram hér og
annars staðar.
Grundvallarsjónarmið jafnaðar-
manna er, að efnahagur megi aldréi
koma í veg fyrir, að allir, ungir og
gamlir, njóti afkomuöryggis, heilsu-
gæzlu og menntunar, frá vöggu til
grafar. Til þess að unnt sé að ná því
markmiði, að þeir, sem minna mega
sín, geti notið þessara mannréttinda,
þótt það sé umfram fjárhagsgetu
þeirra, verða hinir, sem betur eru
settir, að fórna nokkru af hagsmun-
um sínum. Spurningin, sem leysa
þarf úr, er því annars vegar, hverjum
eigi að veita ókeypis eða mjög ódýra
heilsugæzlu og menntun, og hins
vegar, hverjir eigi að bera kostnað-
inn.
Auðvitað verða bæði siðferðis-
sjónarmið og efnahagssjónarmið að
ráð svarinu. En frá sjónarmiði jafn-
aðarmanna er það óviðunandi að
sjúkt fólk, böm og aldraðir, eigi ekki
aðgang að nauðsynlegri læknishjálp
eða að ungt fólk eigi ekki kost á
menntun vegna erfiðs efnahags.
fyrir betra og réttlátara þjóðfélagi
þarf ekki að bitna á hagkvæmni.
Þvert á móti virðist reynslan sýna, að
réttlæti og hagkvæmni haldast yfir-
leitt í hendur.
En jafnaðarmenn og aðra, hveijum
nöfnum sem þeir kunna að nefna
sjónarmið sín, greinir á um fjölmargt
annað. Mig langar til þess að nefna
afstöðuna til eignarréttar og al-
mannahags gagnvart sérhagsmunum.
Allir nútímajafnaðarmenn virða og
skilja gildi og gagn eignarréttar. En
þeir telja hann ekki mega verða und-
irrót ranglátrar eignasöfnunar og for-
réttinda. En þegar hann þjónar heild-
arhagsmunum, beri að virða hann
skilyrðislaust.
Sem dæmi um ágreining á þessu
sviði nefni ég ólíka afstöðu til hag-
nýtingar á auðlindum hafsins við Is-
land. Löggjafinn hefur kveðið á um
eignarréttinn yfir auðlindunum. Þær
eru sameign þjóðarinnar. Samt telja
sumir eðlilegt, að ákveðnum aðilum
sé fenginn ókeypis einkaréttur til
nota af sameigninni. Þama er hættu-
legt ranglæti á ferðinni. Og auk þess
skerðir það hagsmuni iðnaðar, verzl-
unar og þjónustu og þá um leið þjóð-
arheildarinnar. Sjávarútvegur nýtur
forréttinda á kostnað annarra.
Og þá er komið að hinu atriðinu,
sem ég nefndi: Andstöðunni, sem
orðið getur milli samhags og sér-
hags. Það er - og á að vera - eitt af
grundvallarsjónarmiðum jafnaðar-
manna, að sérhagsmunir víki undan-
tekningarlaust fyrir almannahag.
í þessu sambandi verður að leggja
áherzlu á nauðsyn þess að útrýma at-
vinnuleysi. Það er ekki aðeins böl,
heldur sárgrætileg sóun. En henni
má eyða, ef ekki skortir kjark til end-
urskipulagningar atvinnnuhátta og
innviða vinnumarkaðar.
„Við eigum mikið verk að vinna. Gefst annað
tækifæri betra en stórt afmæli flokksins okk-
ar til þess að heita því að herða baráttuna fyr-
ir frelsi og réttlæti, framförum og menningu
sem hornsteinum íslenzks þjóðfélags?"
Tvennt ber okkur að hafa efst í
huga, er við minnumst 80 ára afmæl-
is Alþýðuflokksins. Annars vegar er
það þakklæti til þess góða og fram-
sýna fólks, sem stofnaði flokkinn
okkar fyrir 80 árum. Hins vegar eig-
um við að reyna að skerpa skilning
okkar á því, hvers vegna við eigum
ekki aðeins að halda áfram að vera
jafnaðarmenn, heldur ekki síður að
reyna að vera æ betri og sannari jafn-
Háborðið______________|
I Gylfi Þ.
skrifar
aðarmenn.
Stofnendur Alþýðuflokksins hafa í
rás tímans haft sterk áhrif til aukins
skilnings á nauðsyn þess að efla
mannhelgi og réttsýni á íslandi.
Mörg af fyrri baráttumálum jafnað-
armanna eru nú sameiginlegt áhuga-
mál allra, sem hugsa um þjóðfélags-
mál.
Attatíu ára saga Alþýðuflokksins
hefur verið stormasöm. Hér á ég
auðvitað við, að flokkurinn hefur
klofnað fímm sinnum á ferli sfnum.
Þegar grannt er skoðað, má ávallt
rekja sundrungina til einnar og sömu
rótarinnar: Ranglátrar kjördæma-
skipunar. Þegar Islendingar fengu
heimastjórn 1904 og urðu sjálfstæð
þjóð í raun og veru, héldu þeir áfram
að kjósa löggjafarsamkomuna sam-
kvæmt þijátíu ára gamalli kjördæma-
skipun, þótt þjóðfélagið hafi gjör-
breytzt á þessum áratugum. Það eru
alvarlegustu mistök í stjómmálasögu
aldarinnar, að Alþingi skuli ekki
hafa fylgt tillögum fyrsta íslenzka
ráðherrans, Hannesar Hafsteins, eins
mesta stjómmálaskörungs þjóðarinn-
ar, og breytt kjördæmaskipaninni í
kjölfar heimastjórnarinnar, en hann
lagði til, að landinu yrði skipt í
nokkur stór kjördæmi með hlutfalls-
kosningu. Hefði það verið gert, hefði
þróun flokkaskipunar orðið gerólík
því, sem hún varð. Þá hefði saga Al-
þýðufíokksins orðið önnur, og einnig
öll saga þjóðarinnar. En Alþingi
sinnti ekki tillögum Hannesar Haf-
steins. Það dróst í önnur þrjátíu ár að
lagfæra kjördæmaskipunina. Henni
hefur verið breytt síðan. En það hef-
ur alltaf verið gert of seint og aldrei
með fullnægjandi hætti. Enn er þörf
á lagfæringum. Og enn dragast þær.
Oft hefur verið sagt, að ágreining-
ur um þjóðfélagsmál sé nú minni en
áður hafi verið. Aukin þekking hafi
aukið samstöðu. Eflaust er talsvert til
í þessu. Samt eru skoðanir enn mjög
skiptar. Skýringin er sú, að ágrein-
ingurinn á ekki rót sína að rekja til
vanþekkingar eingöngu, heldur einn-
ig til ólíkra siðferðissjónarmiða.
Það er aldagömul skoðun, að sér-
hver maður sé fær um að hagnýta
hæfileika sína á hagkvæmastan hátt
og eigi að fá að njóta allra afkasta
sinna. Jafnaðarstefnan er andsvar við
ranglæti, sem leiðir af þessari skoð-
un. Jafnaðarmenn sögðu og segja
En eigi að tryggja aðstöðu og rétt
þeirra, sem minna mega sín, verða
hinir að bera af því kostnaðinn. Það
getur orðið á þann hátt, að þeir greiði
hærri skatta en allur almenningur,
eða að þeir greiði rúmlega kostnað-
arverð þeirra þjónustu, sem þeir
njóta. Kannske mætti sameina þessar
leiðir, því að gæta .verður þess, að
skattar verði ekki svo háir, að fram-
tak sé drepið í dróma. Frá sjónarmiði
jafnaðarmanna ætti ekki að skipta
máli, hvor leiðin væri farin. Höfuð-
markmið þeirra næst: Að tryggja
þeim, sem helzt þurfa á því að halda,
greiðan aðgang að heilsugæzlu og
menntun.
Því er ekki að leyna, að of víða
hefur verið haldið gálauslega á
grundvallarsjónarmiðum fyrstu höf-
unda velferðarkenninganna. En heil-
brigð og hagsýn framkvæmd þeirra
þarf engan veginn að verða byrði á
búskap samfélagsins. Til viðbótar
því aukna réttlæti sem siglir í kjölfar
þeirra, geta þau stuðlað að auknum
heldarhag með því að efla heilbirgði,
þekkingu og vinnugleði. Einmitt það
var hugsjón frumkvöðlanna. Barátta
Og enn eitt: Nútímajafnaðarmenn
verða að vinna gegn því, að Islend-
ingar einangrist í þeim heimshluta,
sem þeir hafa átt mest tengsl við um
aldir. Evrópskir jafnaðarmenn hafa
átt drjúgan þátt í eflingu Evrópusam-
bandsins til að tryggja framfarir og
frið í álfunni. íslenzkir jafnaðarmenn
eiga ekki að láta sitt eftir liggja. Við
eigum að hafa forystu um að varð-
veita með skynsamlegum hætti þau
bönd, sem gerðu okkur kleift að vera
fslendingar í meira en þúsund ár.
Góðir jafnaðarmenn. Við eigum
mikið verk að vinna. Gefst annað
tækifæri betra en stórt afmæli flokks-
ins okkar til þess að heita því að
herða baráttuna fyrir frelsi og rétt-
læti, framförum og menningu sem
homsteinum íslenzks þjóðfélags? Á
þessu áttatíu ára afmæli Alþýðu-
flokksins skulum við þess vegna
stíga á stokk og strengja þess heit að
leggja okkur öll fram um, að ísland
framtíðarinnar mótist í sívaxandi
mæli af hugsjónum jafnaðarstefn-
unnar um hagkvæmni og réttlæti.
Ræöu þessa flutti dr. Gylfi Þ. Gíslason
á afmælisfögnuði Alþýöuflokksins
á Hótel Borg, sunnudaginn 17. mars.
dagatal 19. mars
Atburðir dagsins
1920 Bandaríska þingið fellir
þátttöku Bandaríkjanna í
Þjóðabandalaginu. 1930 Arthur
Balfour forsætisráðherra Breta
(1902-6) andast. 1931 Þynnku-
lyfið Alka-Seltzer kemur á
markað í Bandaríkjunum. 1950
Höfundur bókanna um Tarsan
apabróður andast 75 ára að
aldri. Þá höfðu Tarsan bækum-
ar selst í meira en 100 milljón-
um eintaka og verið þýddar á
56 tungumál.
Afmælisbörn dagsins
Dr. David Livingstone 1813,
skoskur trúboði og landkönn-
uður varð fyrstur hvítra manna
til að finna Viktoríufossa.Wy-
att Earp 1848, bandarískur
lögreglumaður þekktastur fyrir
að hafa komið á lögum og
reglu í Tombstone í Arizona.
Adolf Eichmann 1906, þýskur
SS foringi og stríðsglæpamað-
ur. Ursula Andress 1936,
svissnesk leikkona.
Annálsbrot dagsins
Þá var hengdur á alþingi fyrir
þjófnað Andrés Þórðarson úr
Stafholtstungum. Það ár var
sett að nýju brúin á Jökulsá
austur, var eitt mikið verk. Þar
við voru 100 menn í mánuð. Þá
gáfu þeir í Múlasýslu út vitnis-
burð á Brú um þessa brúar-
gjörð á Jökulsá, að hún bæði
hærri og betri að byggingu og
kostum sé en sú fyrri. Fékk
Vigfús Gíslason að Hofi Helgu
Jónsdóttur biskups til eignark-
vinnu.
Sjávarborgarannáll 1700
Erfiðasta hlutverk leiksins er
hlutverk fíflsins og það þýðir
ekki að láta neinn bjána leika
það.
Cervantes
mm
Málsháttur dagsins
Lötum manni eru allir dagar
jafnhelgir.
Orð dagsins
Stökkvið upp úrfúnufleti,
fyllið hjörtun nýjum móð.
Atumein er cmdans leti.
Upp til nýrrar vinnu, þjóð!
Hannes Hafstein
Skák dagsins
Hvítur hefur stillt liði sínu til
árásar en svarti liðsaflinn býst
til vamar. Gallagher hefur hvítt
og á leik gegn Sher, og knýr
fram sigur með afarsnjöllum
leik. Gefið ykkur dálítinn tíma
til að ftnna sigur leikinn.
Hvítur leikur og vinnur
1. Rg41! Taflið er tapað, sam-
anber: 1. ...Bxg3 2. Rfi>+ KI18
3. Rxe8+ og gamanið er úti.