Alþýðublaðið - 21.03.1996, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 21.03.1996, Blaðsíða 2
2 ALÞÝÐUBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MARS 1996 s k o ð a n i r MMUBIB 21085. tölublað Hverfisgötu 8-10 Reykjavík Sími 562 5566 Útgefandi Alprent Ritstjóri Hrafn Jökulsson Umbrot Gagarín hf. Prentun ísafoldarprentsmiðjan hf. Ritstjórn, auglýsingar og dreifing Sími 562 5566 Fax 562 9244 Símboði auglýsinga 846 3332 Áskriftarverð kr. 1.500 m/vsk á mánuði. Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk Átök á afmælisvori Ríkisstjómin velur sér vorið þegar Alþýðusamband íslands fagnar áttatíu ára afmæli sínu til þess að boða til átaka við öll samtök launafólks í landinu um réttindi þeirra og stöðu. Lagt hef- ur verið íram fmmvarp til laga um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna þar sem ríkisvaldið hyggst með lagasetningu skerða mörg mikilvæg réttindi starfsmanna sinna. Lagt hefur verið fram stjómarfmmvarp um samskipti aðila á vinnumarkaði þar sem megintilgangurinn er að veikja verkalýðshreyfmguna í landinu. Boðað hefur verið framvarp til breytinga á lögum um atvinnu- leysistryggingar, sem sett vom að tilhlutan verkalýðshreyfingar- innar eftir hörð átök á vinnumarkaði, þar sem tilgangurinn er að skerða rétt atvinnulausra, einkum og sér í lagi láglaunafólksins. f farvatninu em breytingar á lögum um lífeyrisréttindi opinberra starfsmanna, sem skerða eiga samningsbundin réttindi þeirra. Allt er þetta gert í andstöðu við vilja launþegahreyfinganna í landinu. Rikisstjómin er að leggja til atlögu við samtök launafólks og vel- ur til þess afmælisvor ASÍ. Samtök opinberra starfsmanna hafa bmgðist við með því að stofna sameiginlega aðgerðanefnd og halda nú fjöldafundi vítt og breitt um landið til þess að búa félagsmenn sína undir komandi átök. Viðbrögð ASÍ hljóta að verða áþekk, enda felast í fyrirætl- unum ríkisstjómarinnar þau viðhorf hennar, að ráðherrar telja, að verkalýðshreyfingin standi nú svo veikum fótum að óhætt sé fyrir þá með þingmeirihluta sinn og Vinnuveitendasamband íslands að baki sér að leggja til atlögu við samtök launafólks um þann rétt samtakanna, sem þau öðluðust með lögum fyrir hálfum sjötta áratug. Forvígismenn Alþýðusambands íslands og aðildarfélaga þess hljóta að skilja að verkalýðshreyfmgin á nú aðeins eitt svar. Hún verður að sýna hvers hún er megnug þegar ríksstjómarflokk- amir ráðast að réttindum hennar, taka saman höndum við opin- bera starfsmenn og vinna sigur. Atökin framundan em ekki um kaup og kjör. Átökin em um hreyfinguna sjálfa, hvort hún á að geta verið launafólki í landinu sá styrkur í vöm og sókn, sem hún hefur verið síðastliðin áttatíu ár. Hemaðaráætlun forsætisráðherrans er skýr og ljós og í fyllsta samræmi við starfshætti hans fram til þessa í samskiptum hans við íslenska verkalýðshreyfmgu. Það sem fyrir honum vakir er að leggjá firam fmmvörp um algerar breytingar á gmndvallarréttind- um launafólks og samtaka þeirra sem komi öllu í uppnám og síð- an er ætlun hans að bjóðast til þess að draga sumt til baka ef fall- ist verði á annað. Þessari aðferð hefur Davíð Oddsson þráfaldlega beitt, ekki síst við fjárlagagerð. Þannig hefur honum tekist að fá verkalýðshreyfmguna, ekki síst ASÍ, til þess að fallast á ýmislegt gegn því að draga annað til baka. Þetta ætlar hann einnig að gera núna. Hann stefnir að áfangasigri en ekki algemm sigri. Svo kemur næsta lota. Þannig vinnur hann. Samtökum launafólks hlýtur að vera þetta ljóst. Mikil samstaða er að skapast meðal launafólks um að hrinda þessari atlögu ríkis- stjómarinnar í eitt skipti fyrir öll. Ef Davíð tekst ætlunarverk sitt að semja við verkalýðshreyfinguna um að hún láti sum réttindi sín af höndum gegn því að fá einhver önnur aftur til baka verður ekki auðvelt að blása fólkinu baráttuanda aftur í brjóst í næstu lotu. Þvert á móti hafa þá verið rofín þau skörð í virkismúrana að vígið hlýtur að falla. Og þetta vígi er verkalýðshreyfingin. Á átta- tíu ára afmælinu þarf ASÍ að berjast fyrir sjálfum tilvemréttinum. í þeirri baráttu duga engar málamiðlanir. ■ Fluttu Ingibjörg Sólrún og Jón Baldvin góðar ræður? Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Jón Baldvin Hannibalsson fluttu ræður í tilefni af 80 ára afmæli Alþýðuflokks- ins. Þar blésu ferskir vindar og fram komu ýmis ný viðhorf. Þessir forystumenn sýndu vel nauðsyn þess að jafnaðarmenn verði að ná betur saman í baráttunni fyrir hugsjónum sínum. Það yrði best gert þannig að myndaður verði vettvangur fólks sem hefði svipaða lífssýn en starfar nú £ mörgum flokkum eða utan flokka. Gestaboð Nú er tækifærið Það er mjög margt í umhverfinu sem gerir það að verkum að nú eru betri skilyrði fyrir því að þessi draum- ur íslenskra jafnaðarmanna rætist. í stefnu núverandi ríkisstjómar íhalds og sérhyggju koma fram harkalegar árásir á velferðarkerfið. Hér eru svipuð átök í uppsiglingu og em nú milli hægri og vinstri flokka í Evrópu. Þetta gerir kröfur til jafnað- armanna meðal annars að endurmeta velferðarkerflð eins og bræðraflokk- amir erlendis em að gera. Jaíhaðarmenn hafa fyrir löngu við- urkennt og styðja markaðskerfið sem heppilegt tæki á samkeppnismarkaði. Samkeppnisöfl markaðskerfisins eiga hins vegar ekkert erindi inn í velferð- arþjónustu hins opinbera, svo sem í heilbrigðismálum og í menntamálum. Á þessum sviðum mega aidrei skapast forréttindi hinna efnaðri. Þessi sameiginlega sýn jafnaðar- manna stendur andspænis fijálshyggju og hagsmunagæslu valdakerfis Sjálf- stæðisflokks og Framsóknarflokks. Skilin eru nú skarpari en oft áður. Vitaskuld mun stór jafnaðarmanna- flokkur framtíðarinnar á Islandi rúma margar skoðanir og áherslur alveg eins og erlendis. 2+2=5 Við verðum að líta fram á við en ekki aftur á bak. Persónulegir hags- munir forystumanna skipta hér engu. Þetta er miklu stærra mál en það. Þetta er vitaskuld ekki tæknilega samein- ingarumræða heldur barátta fyrir lífs- sýn og hugsjónum. Markmiðið er ljóst. Þeir sem nú eru dreifðir í mörgum flokkum og utan flokka verða að sameinast í eitt fram- boð við næstu Alþingiskosningar. Við verðum að skilja að sá tími er hðinn að A-flokkarnir bíði með grasið í skónum eftir að komast I stjóm með Sjálfstæðisflokknum. Við verðum aldrei stór nema við komum með trúverðuga stefnu sem höfði ekki aðeins til kjósenda Alþýðu- flokks, Alþýðubandalags, Þjóðvaka og hluta kjósenda Kvennalista heldur einnig til hinna fjölmörgu kjósenda Sjálfstæðisflokks og Framsóknar- flokks sem em sósíaldemókratar í evr- ópskum skilningi. Við verðum að ná til þessara hópa og það gerist ekki nema með sameig- inlegu framboði. Hér gildir jafnan 2 plús 2 em 5. Það er til fleira en efnahagsmál Jafnaðarstefnan er róttæk og við þurfum að átta okkur á því að nútíma jafnaðarstefna fjallar um fleira en efnahagsmál. Við þurfum að leggja miklu meiri áherslu á til dæmis menntamál, umhverfismál, valddreif- ingu, upplýsingatækni, bama- og ung- lingastefhu, kvennapólitík, menning- armál og þróunaraðstoð. Það er svo margt sem sameinar okkur og við þurfum að blása eld að þeim glóðum sem nú loga til myndun- ar sameiginlegs vettvangs á landsvísu. Ef okkur tekst það ekki þá situr þessi ríkisstjóm ekki aðeins í 4 ár heldur í 8 ár og jafnvel í 12 ár. Það er skylda okkar að koma í veg fyrir þá framtíð- arsýn. Ræður Ingibjargar Sólrúnar og Jóns Baldvins í afmælisvikunni vora mjög góðar og hugur fylgdi máli. Næsta verkefni snýst um að finna far- veg fyrir umræðu og skapa vettvang fyrir sameiginlegt ffamboð til Alþing- is. Höfundur er þingmaöur Þjóðvaka IRæður Ingibjargar Sólrúnar og Jóns Baldvins í afmælisvikunni voru mjög góðar og hugur fylgdi máli. IMæsta verkefni snýst um að finna farveg fyrir umræðu og skapa vettvang fyrir sameiginlegt framboð til Alþingis. m a r s a Atburðir dagsins 1556Fyrsti erkibiskupinn af Kantaraborg, Thomas Cranm- er, brenndur á báli sem trúvill- ingur, en hin kaþólska drottn- ing María I (Blóð María) réð ríkjum í Bretlandi á þessum tfma. 1788 New Orleans eyðist í eldi. 1918 Þýskur her undir stjórn hershöfðingjans Erich Ludendorff brýst í gegnum vamarlínuna við Somme. 1919 Fossafélagið Titan sækir um sérleyfi til virkjunar allrar Þjórsár. 1935 Jón Þorláksson formaður íhaldsflokksins og fyrsti formaður Sjálfstæðis- flokksins andast. Afmælisbörn dagsins Jón Vídalín 1666, biskup. Jo- hann Sebastian Bach 1685, þýskt tónskáld og orgelleikari. Benito Pablo Juarez 1801. Mexíkanskur forseti sem Bret- ar og Frakkar hröktu úr emb- ætti. Peter Brook 1925, bresk- ur leiksviðs og kvikmynda leikstjóri. Annálsbrot dagsins Þá skeði óúlbærileg ungbams meðferð Þorsteins Jónssonar að Höfðadal í Tálknafirði í Barða- strandarsýslu. Átti hann fyrst bamið með bróðurdóttur konu sinnar, hvert hún andvana fæddi. Var þess líkami að lengd, nær af mönnum skoðað var, vart 3 1/2 kvartil. Gróf hann fyrst þetta bam á laun þar í dalnum. Þar eftir gróf hann það aftur upp og færði í holu eina á fjallinu fyrir ofan Höfða- dal, hvaðan hann það síðast upp tók. Þorsteinn á alþingi af- tekinn, um bamsmóðurina sett til kongsins náða, eftir atvik- um. Sjávarborgarannáll 1722 Tilvitnun dagsins Látum oss aldrei gleyma því að allir sem ekki hafa gengið af vitinu hafa ekki þar með sann- að, að þeir haft nokkurt. Soren Kierkegaard Málsháttur dagsins Sá sem eldinn vill hafa, hlýtur reykinn að þola. Orð dagsins Strykum yfir stóru orðin, standa við þau minni reynum. Skjöllum ekki skrílsins vammir. Skiljum sjdlfir livað við mein- um. Hannes Hafstein Skák dagsins I skák dagsins nýtir svartur sér hversu illa staðsettir hvítu mennimir era, einkum drottn- ingin. Búlgarski alþjóðameisl- arinn Danailov hefur hvítt en ungverski stórmeistarinn For- intos stýrir svörtu mönnunum til snoturs sigurs. Hvað gerir hvítur? 1.... Bd4!! 2. h3 Ekkert skárra var: 2. Bxd4 Hxd4! 3. Dxa5 Dg2+!! 4. Hxg2 Hdl+ 5. Hgl Hggl mát! 2.... Dg3 Danailov gafst snarlega upp.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.