Alþýðublaðið - 21.03.1996, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 21. MARS 1996
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
s k o ð a n i r
Bandalag vinstrimanna,
sigurvegari þingkosninga 1999
Það er stundum á stjómmálamönn-
um á vinstrivængnum að heyra að fátt
sé þeim ógeðfelldara en hin ófeiga
umræða um sameiningu vinstrimanna.
Ekki skal því neitað að margt kynlegt
hafi verið látið flakka í þeinri umræðu
en hvemig í ósköpunum er hægt að
Gestaboð
I
réttlæta andúð á henni? Nú má halda
því fram að slík umræða sé óvina-
fagnaður, á henni græði enginn nema
hægrimenn og Sjálfstæðisflokkurinn.
Það segja raunar sjálfstæðismenn
sjálfir en bak við þau hreystiyrði glittir
í hræðslu. Það er fátt meiri ógn við
valdastöðu Sjálfstæðisflokksins en ef
til yrði öflugur vinstriflokkur.
Stjómmálalífið á Islandi sker sig úr
nágrannalöndunum fyrir það að
hægrimenn hafa hér ráðið lögum og
lofum allan lýðveldistímann og að
öllu óbreyttu er fátt sem kemur í veg
fyrir að svo verði áfram, einstaka
vinstristjómir sem sitja í 2-3 ár breyta
þar engu um. I flestöllum löndum Evr-
ópu hafa vinstrimenn verið reglulega í
stjórn og í sumum haft mun meiri
áhrif en hægrisinnar. En það er ekki
lögmál að ísland skeri sig úr. Vinstri-
öfl á íslandi, það er aðrir flokkar en
núverandi stjómarflokkar, hafa síðan
1971 að jafnaði fengið 38-40 prósent
atkvæða, aðeins einu sinni minna fylgi
og árið 1978 fengu þeir nálægt 50 af
hundraði atkvæða eftir fjögurra ára
stjóm núverandi stjómarflokka. Þann-
ig er þessu varið þó að ótrúlegt kunni
að virðast í ljósi áhrifaleysis vinstriafl-
anna nú.
Niðurstaðan er þessi: Ef kjósendur
Alþýðuflokks, Alþýðubandalags,
Kvennalista og Þjóðvaka kysu allir
sama flokk yrði hann að líkindum
stærsti stjórnmálaflokkur á Islandi.
Hann gæti sennilega ráðið lögum og
lofum í íslensku stjómmálalífi. Ef sér-
lega vel tækist gæti hann hlotið meiri-
hluta atkvæða í kosningum. Það er því
enginn vafi á að ef eitthvað á að breyt-
ast í íslenskum stjómmálum næstu 20
árin verða þessir flokkar að bjóða
fram í einu lagi og helst þegar árið
1999. Annars mun Island áffam verða
aðalvígi hægrimanna í Evrópu, ekki
vegna þess að viðhorf þeirra eigi meiri
hljómgrunn en annarstaðar, heldur
vegna sundrungar á vinstrivæng
stjómmálanna.
Þau stjómmálaöfl sem nefnd vom
myndu öll hagnast á að stofna Banda-
lag vinstrimanna, hafa meiri áhrif en
ella. Og í fljótu bragði verður ekki séð
að milli þeirra ríki slíkur ágreiningur
um gmndvallaratriði að stæði í vegi
fyrir því bandalagi. Vinstrimenn em
almennt sammála um að breyta þurfi
þjóðfélaginu, skapa nýtt og réttlátara
þjóðfélag með jafnaðarstefhu að leið-
arljósi. Bandalag vinstrimanna myndi
stefna að því að endurmeta öll gildi.
Fyrsta boðorð þess yrði jafhrétti á öll-
um sviðum. Það myndi stefna að fullu
jafnrétti kynjanna tafarlaust, það
myndi gera landið að einu kjördæmi
og þannig jafna atkvæðisrétt án þess
að draga úr áhrifum landsbyggðarinn-
ar. Það myndi taka réttarkerfið til
rækilegrar skoðunar og vinna að því
að endurskoða þau ákvæði stjómar-
skrár sem geta haft í för með sér mis-
rétti, til dæmis um þjóðkirkju.
Aukið lýðræði yrði annað boðorð
Bandalagsins. Það hefði á stefhuskrá
að hverfa frá miðstýringu og draga úr
spillingu í stjómkerfinu. Vinargreiðar
hins opinbera yrðu liðin tíð. Þriðja
boðorðið yrði umhverfið. Bandalagið
myndi stefna að endurmati lífsstíls ís-
lendinga í ljósi umhverfisvemdar með
það að markmiði að sameina lífsgæði
og umhverfisvemd eins og hægt er, en
lífsþægindi á kostnað umhverfisins
verður að láta fyrir róða, hægt og ör-
ugglega. Atvinnustefna Bandalagsins
yrði sveigjanleg en hefði réttlæti að
leiðarljósi, til dæmis í sjávarútvegs-
og landbúnaðarmálum. Utanríkis-
stefna Bandalagsins þyrfti að hnitast
um friðsamleg samskipti og heilbrigð
viðskipti við önnur ríki, ísland myndi
njóta kosta þess að vera smáríki en
ekki ætla sér um of.
f ýmsum dægurmálum yrðu skiptar
skoðanir innan Bandalags vinstri-
manna. Svo er um alla stóra stjórn-
málaflokka. Ef hvert einasta deilumál
á að verða að ásteytingarsteini er um-
ræða um sameiningu einskis virði. En
í Bandalagi vinstrimanna yrðu skiptar
skoðanir í einstökum málum virtar þar
sem samstaða yrði um grundvöllinn,
jafnaðarstefnuna. Forystumenn
Bandalagsins kynnu betur við sig á
víðavangi en í skotgröfum, þeir
myndu einbeita sér að því að leysa
vandamál framtíðarinnar en leyfa
sagnfræðingum að kljást við fortíðina,
stjómmálamenn eru ekki skárri ama-
törsagnfræðingar en amatörhagfræð-
ingai'.
„Ef kjósendur Alþýðuflokks, Alþýðubandalags,
Kvennalista og Þjóðvaka kysu allir sama flokk
yrði hann að líkindum stærsti stjórnmálaflokkur
á íslandi. Hann gæti sennilega ráðið lögum og
lofum í íslensku stjórnmálalífi."
Erfiðasta vandamál Bandalagsins
yrðu ríkisfjármálin. Það er framtíðar-
verkefni vinstrimanna að sameina
hagvöxt og jöfnuð, standa vörð um fé-
lagslegt réttlæti og auka efnahagslega
velferð í einu. í þessu sem öðru hefði
Bandalagið markmiðið í huga en gerði
ekki leiðir að heilögum kúm, hefði
opna og sveigjanlega stefnu sem tekur
tillit til nýjustu hagfræðikenninga.
Lausn gærdagsins dugar ekki alltaf á
morgun. Vinstrabandalagið tæki tillit
til markaðarins en gerði ekki hann
sjálfan að aðalatriði, markaðurinn er
ekkert markmið, hann bara er, trú á
hann er eins og trú á gxjót. Hverfa þarf
frá þeirri ofuráherslu á hagfræði sem
einkennir stjómmálaumræðu nútíðar
og fortíðar en mun ekki einkenna
stjómmál framtíðarinnar, stjómmála-
menn eiga að marka stefhu samfélags-
ins, ekki að vera amatörhagfræðingar.
Bandalag vinstrimanna er nauðsyn
ef íslensk stjómmá! eiga að breytast.
Nú er lag og fátt þarf að standa í vegi
fyrir sameiningu nema skiljanleg en
að minni hyggju ónauðsynleg tor-
tryggni og hugsanlega einkahagsmun-
ir örfárra manna. Þetta hefur tekist
annarstaðar, íslensk fordæmi eru
Röskva og Reykjavíkurlistinn. Ef
Bandalag vinstrimanna verður ekki til
á næstunni mun vinstriöflunum á ís-
landi enn hnigna og áhrif þeirra verða
hverfandi. Ungt vinstrisinnað hæfi-
leikafólk mun leggja annað fyrir sig
en stjórnmál, á Islandi eða erlendis
eftir atvikum. íslandi verður stjómað á
sama hátt og nú af hægriflokkunum
árið 2045 nema það verður miklu fá-
tækara og í því munu búa tvær þjóðir.
Höfundur er sagnfræðinemi
Miklar hræringar eru
nú innan Alþýðu-
bandalagsins í kjölfar
þess að Margrét Frí-
mannsdóttir formaður
og Svavar Gestsson
þingflokksformaður hafa
gert með sér einhvers
konar bandalag á „miðju"
flokksins. í nýútkomnu
Þjóðvakabtaði segir að
ekki einasta hafi uppsögn
Einars Karls Haralds-
sonar bent til þess að
verið sé að þjarma að
frjálslyndari armi flokks-
ins, heldur hafi líka vakið
athygli á Alþingi að Bryn-
dís Hlöðversdóttir, sem
verið hefur málsvari
flokksins varðandi fjár-
magnstekjuskattsmál, hafi
verið tregin til baka úr
þeim mála flokki. Þeir
Svavar og Ragnar Arn-
alds séu nú komnir í mál-
ið í hennar stað. Bryndís
var meðal helstu stuðn-
ingsmanna Margrétar í
formannskjörinu í haust
og er leiðtogi Alþýðu-
bandalagsfélagsins Birt-
ingar-Framsýnar í Reykja-
vík...
Ekkert lát virðist vera á
vextinum í því grósku-
mikla fyrirtæki Máli og
menningu. Nú fregnar Al-
þýðublaðið að fyrirtækið
stefni að því að opna
bókakaffi í tengslum við
bókabúðina á Laugavegi.
Slík bókakaffi eru mjög
vinsæl erlendis og þykja
ákjósanlegir staðir fyrir
bókhneigt fólk að stinga
saman nefjum. Er jafnvel
sagt að þau séu firn
heppileg til rómantískra
kynna. Hugmyndir for-
ráðamanna Máls og
menningar munu raunar
vera þær að opna bóka-
kaffið handan við götuna,
í húsi andspænis bóka-
búðinni. Yrði þá gerð ein-
hvers konar göngubrú
milli húsa, ekki ósvipað
og blasir við vegfarendum
í Hafnarstræti. Enn mun
þó vera óvíst um tilskilin
leyfi til framkvæmda...
Embætti sýslumanns á
Hólmavík virðist ekki
vera jafn eftirsótt og emb-
ætti sýslumannsins á Ak-
ureyri, en umsóknarfrest-
ur um bæði embættin
rann út í þessari viku. Um-
sækjendur um stöðuna á
Hólmavík eru öllu færri en
á Akureyri og koma held-
ur ekki úr jafn tignum
embættum í dómskerfinu
og sumir umsækjendurnir
í höfuðstað Norðurlands.
Umsækjendurá Hólmavík
eru sýslumannsfulltrúarn-
ir Guðjón Bragason á
Hvolsvelli, Júlíus Krist-
inn Magnússon á Eski-
firði, Ólafur Þór Hauks-
son í Hafnarfirði, Runólf-
ur Ágústsson í Borgar-
nesi og héraðsdómslög-
mennirnir Jón Sigfús
Sigurjónsson, Óskar
Thorarensen og Þor-
steinn Pétursson, allir
úr Reykjavík...
„Ahhh! Þá erum við loksins komnir á áfangastað. Nú er
eins gott fyrir okkur að fara að þeim með ítrustu varfærni.
Hiykklínufólkið er nefnilega frá barnæsku innrætt
tortryggni gagnvart öllum beinlínumönnum."
I
Myndir þú kjósa Ólaf Ragnar Grímsson til embættis forseta íslands?
Bergþóra Gunnbjörns-
dóttir húsmóðir: Já, ég er
mjög hlynnt honum.
Stefán ingi Stefánsson
nemi: Líklega ekki, en það fer
þó eftir því hverjir aðrir eru í
ífamboði.
Flóki Guðmundsson nemi:
Það kemur í Ijós með tíð og
tíma.
Kristbjörg Magnúsdóttir
hjúkrunarfræðingur: Nei,
alls ekki.
Sigrún Jónsdóttir hús-
móðir: Það fer eftir því hveijir
verða í framboði.
JÓN ÓSKAR
v i t i m e n n
Ekki þarf lengi að skoða
valdabaráttuna innan
einstakra flokka til að sjá,
hvernig staðan væri, éf sér-
fræðingar í valdabrölti innan
flokka ætluðu að fara að sam-
einast milli flokka.
Jónas Kristjánsson í leiðara
DV í gær.
Ég met að sjálfsögðu það
traust sem mér er sýnt með
því að orða mig við þetta
virðulega embætti.
Ólafur Ragnarsson bókaútgefandi.
DV í gær.
Þetta finnst mér alveg
óheyrt og ósæmandi hvernig
að þessu máli hefur verið
staðið af hálfu sjávarútvegs-
ráðherra.
Kristján Ragnarsson formaður LÍÚ.
Tíminn í gær.
Kratarnir ætla
að sækja sinn „útlending“
til Kvennalistans.
Birgir Guðmundsson á víöavangi í
Tímanum í gær.
Ég mun að sjálfsögðu
taka þessa ályktun til
athugunar, eins og aðrar
frá Búnaðarþingi, og reyna
hið fyrsta að hrinda í fram-
kvæmd þeirri stefnu sem hér
hefur verið lögð til.
Guðmundur Bjarnason landbúnaðarráð-
herra. Tíminn í gær.
Ég legg ekki kapp
á að þvo óhreina tauið
opinberlega.
Nelson Mandela forseti Suður-Afríku um
skilnaðarmál sín. Moggin í gær.
Ég hef haft miklar
áhyggjur af þróun LR
og leikhúsrekstri þess
undanfarin ár.
Jón Hjartarson leikari.
Morgunblaðið í gær.
fréttaskot úr fortfð
Giftur 52
sinnum
Þó að ótrúlegt megi virðast er það
ekki kvikmyndaleikari, sem á met í
giftingum, það er Kínveiji. Kínveiji
þessi er ekki fjölkvænismaður í orðs-
ins venjulega skilningi, því hann hefir
skilið lögum samkvæmt við allar
konumar sínar. Þessi merkilegi mað-
ur heitir Mamhu og hefir gifst 52
sinnum.
Alþýðublaðið
sunnudaginn 28. apríl 1935