Alþýðublaðið - 02.04.1996, Page 1
■ Samherjar Davíðs Oddssonar í stjórnarliðinu telja að hann sé búinn að ákveða að
hann ætli ekki að bjóða sig fram í forsetakosningunum, enda ætli hann að fara í
utanlandsferð í miðri kosningabaráttunni
Davíð orðinn afhuga
framboði
- forystumenn í Sjálfstæðisflokknum telja að óljós af-
staða Davíðs hafi spillt möguleikum annarra fram-
bjóðenda sem flokkurinn gæti sætt sig við
Samkvæmt heimildum Alþýðu-
blaðsins þykir nú flest benda til þess
að Davíð Oddsson forsætisráðherra
hafi afráðið að bjóða sig ekki ffam til
forseta í kosningunum í vor. Miklar
vangaveltur hafa verið um hugsan-
legt framboð Davíðs, ekki síst meðal
stjómarliða sem hafa verið uggandi
um hvaða áhrif framboð Davíðs
kynni að hafa á ríkisstjórnarsam-
starfið.
Davíð hefur hingað til ekki viljað
segja af eða á um fyrirætlanir sínar
og hefur það valdið talsverðum óróa
innan stjórnarliðsins, ekki síður í
Framsóknarflokki en Sjálfstæðis-
flokki.
Heimildir Alþýðublaðsins herma
að Framsóknarmenn telji nú að Dav-
íð hafi afskrifað framboð. Til marks
um það hafa þeir að Davíð hafi þegið
boð um að fara til Tyrklands í maí
og hyggist dvelja þar nokkra hríð.
Mun Finnur Ingólfsson, iðnaðar- og
viðskiptaráðherra, hafa gert þetta að
umtalsefni á fundi með framsóknar-
mönnum í síðustu viku. Þótti honum
einsýnt að Davíð myndi ekki ætla í
framboð, enda ráðgerði hann að vera
utanlands á tíma þegar kosningabar-
áttan er að komast í hámark.
Margir sjálfstæðismenn
eru gramir út í Davíð fyrir
að hafa í raun útilokað að
forsetaefni sem þeim hugnast
gæti haft einhvern
skynsamlegan aðdreganda
að framboði sínu.
Innan Sjálfstæðisflokksins hefur
gætt mikillar gremju með hversu
lengi Davíð hefur dregið flokksmenn
og þjóðina á skýrum svörum um
hvort hann hyggi á forsetaframboð.
Telja margir forystumenn flokksins
að á meðan afstaða Davíðs hafi verið
svo óljós hafi enginn frambjóðandi
sem Sjálfstæðisflokknum hugnaðist
getað ráðið ráðum sínum um fram-
boð að neinu marki. Þannig hafi
Davíð í raun útilokað að aðrir slíkir
frambjóðendur gætu komið fram og
haft einhvem skynsamlegan aðdrag-
anda að ffamboði sínu.
■ Guðrún Pétursdóttir
um lesfælna unglinga
Það þarf
að taka á
málunum
„Að lesa er í rauninni það skemmti-
legasta sem ég geri og mér fínnst sár-
grætilegt ef stórir hópar unglinga fara
á mis við þessa upplifun. Þama þarf
greinilega að taka á málunum," segir
Guðrún Pétursdóttir forsetaframbjóð-
andi í fjörlegu viðtali við síðasta tölu-
blað Víkurblaðiðsins á Húsavík. Guð-
rún er spurð hvort hún hafi ekki
áhyggjur af framhaldsskólanemum
sem upp til hópa séu haldnir lesfælni,
og svarar frambjóðandinn: „Ég held
að við ættum að taka unglinga sem
hafa þetta viðhorf gagnvart bókum, og
fara með þá í búðir í vikutíma þar sem
hvorki er sjónvarp né útvarp, aðeins
bækur, og láta þau lesa og lesa. Þetta
gæti verið liður í skólastarfinu, eins-
konar „kyrrðarvika", þar sem ungling-
amir verðu deginum í bóklestur, læsu
til dæmis margir sömu bókina og
ræddu hana svo á kvöldin út ífá ýms-
um hliðum.“
Guðrún Pétursdóttir vill láta fara
með unglinga sem ekki vilja lesa
bækur í búðir og hafa þá þar í viku-
tíma.
Sjúbídú Anna Mjöll Ólafsdóttir, söngkonan broshýra, hefur undanfarna daga verið við upptökur á
myndbandi sem er gert til að kynna framlag hennar og íslendinga til söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva
þetta árið. Lag Önnu Mjallar, sem hún semur ásamt föður sínum Ólafi Gauki, heitir Sjúbídú og er i aðra röndina
eins konar lofsöngur til helstu meistara djasstónlistarinnar. Við sjáum heldur ekki betur en að í bakgrunni giitti í
svipinn á ekki ómerkari söngkonu en Billy Holliday - og er sannarlega ekki leiðum að líkjast. A.-mynd: E.ÓI.
■ Hjalti Hugason, prófessor í guðfræði
Kirkjan þarf að gera
- Hjalti telur einfaldast að biskup segi af sér
„Sú staða sem kirkjan hefur ratað í
á síðustu vikum verður að leysast á
mjög skömmum tíma. Astandið er
orðið óþolandi fyrir þjóðina og
óbærilegt fyrir alla sem hafa einhver
afskipti af kirkjulegum málefnum og
ég á mjög erfitt með að sjá að til
slíkrar skjótrar lausnar geti komið án
þess að spurningin um stöðu biskups
fái viðhlítandi svar á allra næstu
dögum. Ég sagði það raunar mjög
snemma að einfaldasta og skjótasta
lausnin fælist í því að biskup segði af
sér. Sú afstaða mín hefur síður en
svo breyst síðustu daga.“
Þetta segir Hjalti Hugason, pró-
fessor í guðfræði við Háskóla ís-
lands, í viðtali við Stúdentablaðið.
Hjalti segist ennfremur álíta að kirkj-
an geti ekki endurvakið trúnaðar-
traust eða tilfinningalegt samband
eftir réttarfarslegum leiðum. Hjalti
segir: „Það verður að endurvekja
með öðrum hætti og sá háttur er
miklu torsóttari en réttarfarslega
leiðin. Sjálfur er ég þeirrar skoðunar
að kirkjan eða kirkjunnar menn geti
ekki farið leið meiðyrðamálsins. Ég
upplifi meiðyrðalöggjöfina fyrst og
fremst sem vöm um heiður embætt-
ismannsins og út frá sjónarmiði guð-
fræðinnar og mannréttinda myndi ég
kjósa að þeirri leið væri ekki beitt í
þessu efni.“
I viðtalinu, sem hefur fyrirsögnina
Kirkjan er í ekta kreppu, segist Hjalti
ekki efast um að kirkjan sé að glata
trausti. Um þann vanda segir hann:
■ Nýr listdansstjóri ís-
lenska dansflokksins
Meiri áhersla
á nútímadans
- og breyttar áherslur til að
leysa flárhagsvanda
Katrín Hall hefur verið ráðinn nýr
listdansstjóri við Islenska dansflokk-
inn og tekur við stöðunni af Maríu
Gísladóttur frá og með t. ágúst næst-
komandi. Að sögn Aslaugar Magnús-
dóttur formanns stjórnar Islenska
dansflokksins skipaði menntamálaráð-
herra nýja stjóm 1. febrúar, en í stjóm-
inni em auk Áslaugar, Lovísa Áma-
dóttir og Viðar Eggertsson.
Mun stjóminni hafa verið falið að
taka á fjárhagsvanda dansflokksins og
em uppsagnir meðlima flokksins liður
í því. „Listdansstjóri er ráðinn til þrig-
gja ára og ráðningartíma Maríu lýkur
1. september. Staðan var auglýst og
um sextíu sóttu um. Katrín var ráðin
og munum við hér með stefna að
breyttum áherslum til að leysa fjár-
hagsvandann. Starf okkar verður ekki
eins víðtækt og verið hefur, áherslan
verður á nútímadans," segir Áslaug.
Afmæliskveðja
til Trygginga-
stofnunar
Tryggingastofnun ríkisins fagnaði
sextíu ára afmæli sínu síðastliðinn
föstudag, en sjálfur afmælisdagurinn
var í gær. f tilefni afmælisins sendi
Jón Baldvin Hannibalsson formaður
Alþýðuflokks Karli Steinari Guðna-
syni forstjóra Tryggingarstofhunar eft-
irfarandi skeyti:
, j tilefni sextíu ára afmælis Trygg-
ingastofnunar ríkisins, og þar með
þeirrar mannréttindaskrár velferðarrík-
isins sem almannatryggingarlöggjöfm
er, vil ég fyrir hönd Alþýðuflokksins -
Jafnaðarmannaflokks Islands, sem
upphaflega bar málið fram til sigurs á
Alþingi, færa þér, stjóm og starfsfólki
Tryggingastofnunar og öllum þeim
sem njóta þjónustu hennar, innilegar
afmæhskveðjur og óskir um farsæld í
störfum næstu sextíu árin.
Fyrir hönd Alþýðuflokksins - Jafn-
aðarmannaflokks íslands.
Jón Baldvin Hannibalsson. “
iðru n
„Ég sé ekki aðrar leið fyrir kirkjuna
en þá að gera iðrun en það er þáttur í
kristilegu trúarlífi sem alltaf hefur
verið til staðar og er boðaður af
kirkjunni sjálfriOg ennfremur:
„Kirkjan verður að fara í gegnum
sjálfsskoðun, meta hvað hefur gerst
og af hverju traust almennings hefur
rofnað. Hún þarf að gera sér grein
fyrir því að sökin liggur ekki hjá
fjölmiðlum eða almenningi heldur að
verulegu leyti hjá kirkjunni sjálfri,
viðbrögðum hennar við ásökunum
og gagnrýni."
Hjalti Hugason prófessor
telur að kirkjunar menn
eigi ekki að höfða
meiðyrðamál.