Alþýðublaðið - 19.04.1996, Síða 1
■ Einar Oddur Kristjánsson staðfestir að hann hafi leitað til Þorsteins Pálssonar
þegar varðskip stóð bát hans að ólögmætum veiðum
Ég hafði strax samband
við Þorstein Pálsson
Einar Oddur: Það var ekkert verið að brjóta neitt, okkur
hafði bara yfirsést að leyfið var runnið út. Kallar Hösk-
uld Skarphéðinsson skipherra „ofvirkan bókstafstrúar-
mann" fyrir að hafa fært skipið til hafnar.
„Ráðuneytið hafði alveg óvart sett
einhveija dagsetningu inn á þetta leyfi
sem þurfti. Það var ekkert verið að
brjóta neitt, okkur hafði bara yfirsést
að leyfið var runnið út fyrir nokkrum
dögum. Þegar varðskipið tók Æsu
hafði ég strax samband við yfirmann
Landhelgisgæslunnar og við sjávarút-
vegsráðherra,“ sagði Einar Oddur
Kristjánsson alþingismaður og útgerð-
armaður í samtali við Alþýðublaðið.
Einsog upplýst var í blaðinu í gær
beitti Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra valdi sínu til að gefa út aftur-
virkt leyfi fyrir kúfiskbátinn Æsu, sem
staðinn var að veiðum án tilskilinna
leyfa. Æsa var færð til hafnar að
kvöldlagi en klukkan 10 sama kvöld
var búið að gefa út veiðileyfi fyrir
skipið og það hélt samstundis aftur til
veiða.
Einar Oddur taldi ekki tiltökumál
þótt embættismenn hefðu verið
kvaddir til að kvöldlagi til að veita
skipi hans veiðileyfi við þessar kring-
umstæður. ,,Er það bara ekki fagnað-
arefni að embættismenn vinni sína
Einar Oddur: Vilt þú að lögregluþjónar séu að skipta sér af öllum smámál-
um, sma hversu ómerkileg þau eru?
vinnu, og aukaatriði hvenær það er
gert?“
Einar Oddur sagði að þetta hefði
gengið hratt fyrir sig, enda málið
„della“. Aðspurður hvort honum bæri
ekki einsog öðrum að fara eftir reglum
svaraði Einar Oddur: „Reglur? Regl-
ur? Ráðuneytið leit svo á að það hefði
gert mistök með því að vera eitthvað
að dagsetja þetta leyfi á sínum tíma.“
Þegar Einar Oddur var spurður
hvort hann teldi ekki að Landhelgis-
gæslan hefði verið að sinna þeim
störfum sem henni bar sagði þingmað-
urinn: „Vilt þú að lögregluþjónar séu
að skipta sér af öllum smámálum,
sama hversu ómerkileg þau eru? Þessi
ofvirki bókstafstrúarmaður, skipherr-
ann á varðskipinu, fékk eitthvað reiði-
kast og er þessvegna að rifja þetta upp
núna.“
■ íslenskar bíómyndir
Aðsóknin
hrynur
Engin íslensku bíómyndanna sem
frumsýndar voru á síðasta ári, og þær
voru hvorki meira né minna en sjö tals-
ins, náðu tuttugu þúsund áhorfendum
og flestar eru þær raunar langt undir
þeirri tölu, sumar vel innan við tíu þús-
und. Aðsókn að Draumadísum, fyrstu
íslensku myndinni sem írumsýnd er á
þessu ári er afar dræm. Kvikmynda-
gerðarmenn og kvikmyndahús kjósa
reyndar að fara með aðsóknartölur eins
og mannsmorð, en þó er dagljóst að hér
er um mikil ótíðindi fýrir íslenska kvik-
myndagerð að ræða, enda heíúr í raun
verið aðsóknarkreppa allar götur síðan
1993. Kvikmyndagerðarmenn og kvik-
myndagagnrýnendur leita svara við
þessu áhugaleysi almennings í Alþýðu-
blaðinu í dag. Sjá bls. 6-7.
Steingrímur í IMönnukoti í Hafnar-
firði. Listmálarinn litríki, Steingrím-
ur St. Th. Sigurðsson, heldur því
fram að hann sé orðinn sjötugur.
Því trúir varla nokkur maður, en
hitt er staðreynd að um þessar
mundir stendur yfir 80. myndlistar-
sýning hans í Nönnukoti í Hafnar-
firði. Steingrímur er einmitt ný-
fluttur í þetta höfuðvígi jafnaðar-
manna en þvertekur fyrir að hann
sé að ganga af trúnni á íhaldið. Eft-
ir helgi birtum við hressilegt viðtal
við Steingrím.
I ’ ^ %
JB ^ -4» *
Veggspjöld
Á strætóskýli í bænum hafa verið festar auglýsingar
eins og sú sem gefur að líta á myndinni hér að ofan,
Bessastaðir, með friðardúfur sem sveima í kring og
áletruninni „Virkjum Bessastaði“. Þessi veggspjöld
hafa cðlilcga vakið athygli vegfarenda scm spyrja hver
forsetaframbjóðendanna standi að baki. Alþýðublaðið
reyndi í gær að grennslast fyrir um það. Talsmenn for-
setaframbjóðendanna fimm, Guðmundar Rafns Geir-
dal, Guðrúnar Agnarsdóttur, Guðrúnar Pétursdóttur,
vekja spurn
Ólafs Ragnars Grímssonar og Péturs Kr. Hafstein
komu af fjöllum og sögðu allir sem einn að þeirra fram-
bjóðandi ætti hér engan hlut að máli. Aiþýðublaðið
fékk þó nytsamlegar ábendingar sem ollu því að bönd-
in tóku að berast að Ástþóri Magnússyni, forsprakka
samtakanna Friður 2000. í samtali við Alþýðublaðið
vildi Ástþór hvorki segja af né á um hvort hann stæði
fyrir auglýsingaherferðinni og gaf lítið út á að þetta
kynni að tengjast hugsanlegu forsetaframboði sínu.
Handritin
heima í 25 ár
„Velkomnari gesti getur ekki,“
sagði dr. Gylfi Þ. Gíslason, þáverandi
menntamálaráðherra og sá maður sem
átti hvað mestan þátt í lausn handrita-
málsins, 21. apríl 1971, daginn sem
danskt herskip kom siglandi til
Reykjavikur með dýrgripina Kon-
ungsbók Eddukvæða og Flateyjarbók.
Á sunnudaginn eru liðin tuttugu og
fimm ár frá þessum bjarta degi og
verður þess minnst með hátíðarsam-
komu sem menntamálaráðuneytið og
Stofnun Áma Magnússonar efna til í
Háskólabíói. Einn gesta á samkom-
unni verður menntamálaráðherra
Dana, Ole Vig Jensen. Athöfnin hefst
klukkan 14 á sunnudag og verður út-
varpað, en síðar uni daginn opnar í
Ámastofnun sýningu 'á handritunum
tveimur, þeim sem bámst fyrst aftur
eftir langa útivist.
Gylfi Þ. Gíslason og Helge Larsen,
menntamálaráðherra Danmerkur,
skoða handritin 21. apríl 1971.
■ ÖssurSkarphéðinsson með fyrirspurnirá þingi um afturvirk veiðileyfi sem Þorsteinn Pálsson hefur veitt
Þorstein svara
Lúðvík
Lúðvík Bergvinsson bú-
inn að fara fram á utan-
dagskrárumræðu um
málefni Landhelgisgæsl-
unnar.
„Ég tel að þetta kerfi sem bersýni-
lega er við lýði bjóði uppá pólitíska
spillingu einsog Álþýðublaðið hefur
krefu r
ljóslega sannað. Þingið þarf að fá
svör við því, í hve miklum mæli ráð-
herrann hefur farið á skjön við reglur
með því að gefa út þessi afturvirku
leyfi,“ sagði Össur Skarphéðinsson
alþingismaður í samtali við Alþýðu-
blaðið. í framhaldi af fréttum um að
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- og
dómsmálaráðherra hafi gefið út aft-
urvirk veiðleyfi til skips í eigu Ein-
ars Odds Kristjánssonar, sem varð-
skip stóð að ólögmætum veiðum,
hyggst Össur í dag leggja fram fyrir-
spurn til Þorsteins Pálssonar. Ráð-
herrann verður látinn upplýsa hversu
oft hafi verið gefin út afturvirk veiði-
leyfi, hve oft það hafi verið gert
vegna skipa sem staðin voru að ólög-
legum veiðum og hvaða útgerðir hafi
fengið þessi leyfi.
Lúðvík Bergvinsson þingmaður
Alþýðuflokksins á Suðurlandi hefur
fyrir hönd flokksins beðið um utan-
dagskrárumræðu til að ræða málefni
Landhelgisgæslunnar. Lúðvík lagði
beiðni sína fram fyrr í vikunni en
Þorsteinn Pálsson, æðsti yfirmaður
Landhelgisgæslunnar, hefur undan-
farið verið í útlöndum. Þorsteinn
kemur heim í dag, föstudag, en óljóst
er hvort umræðan um Landhelgis-
gæsluna fer fram í dag eða í næstu
viku.