Alþýðublaðið - 19.04.1996, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 19.04.1996, Qupperneq 3
FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 1996 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3 s k o ð a n i r Skynsamlegt herbragð alþýðuflokkanna \á Forysta Alþýðusambandsins, meðal annars Benedikt Davíðsson fyrrverandi stjórnarfor- maður Sambands almennra lífeyrissjóða, skuldar félagsmönnum sínum skýringar á afstöðu sinni í þessu máli. Það var fróðlegt að fylgjast með tveggja daga umræðum um fjár- magnstekjuskatt á þingi fyrr í vikunni. Fyrir ýmissa hluta sakir. Það herbragð alþýðuflokkanna virðist hafa heppnast að leggja slíka áherslu á málið að einn þeirra lagði undir dýrmætan rétt til sjónvarpsumr- æðna. Munurinn á stjómarfrumvarp- inu og frumvarpi formannanna þriggja komst til skila. Þótt málið sé auðvitgð flókið og ræðusnilldin misjöfn er mál- ið nú í dómi samfélagsumræðunnar, en ekki sýnt að það hefði í þá stöðu komist ella. Pallborðið Mörður Árnason I 'M. skrifar Landsmenn vöknuðu upp við það í þessum umræðum að skrattinn fór að skapa mann þegar Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur lögðu fram frumvarp um fjármagnstekjuskatt: skinnlaus köttur úr því varð. Frum- varpið á sér tvo meginkjama, annars- vegar að hirða skatt af spamaði lág- launafólks og hinsvegar að stórlétta skatti af ýmsum öðrum tegundum fjármagnstekna en vaxtahagnaði. Við upptöku fjármagnstekjuskatts var ekki nema eðlilegt að létta skatt- heimtu sem áður hefur verið notuð sem frumstætt og klaufalegt ígildi fjármagnstekjuskatts, að minnka eign- arskatta og breyta þeim í skatt á tekjur af eignum. Ríkisstjómin gengur miklu lengra og býr í rauninni til nýtt tekju- skattskerfi þarsem annarsvegar eru launatekjur með 35-40 prósenta skatt og hinsvegar típrósent-kerfið á tekjur af fjármagnseign. ASI átti víst fulltrúa í nefndinni sem undirbjó þetta frumvarp, og hún var reyndar höfð undir forystu Asmundar Stefánssonar sem nú hefur í fjögur ár verið í vinnu fyrir lífeyrissjóðakerfið í Islandsbanka. Forysta Alþýðusam- bandsins, meðal annars Benedikt Dav- íðsson fyrrverandi stjórnarformaður Sambands almennra lífeyrissjóða, skuldar félagsmönnum sínum skýring- ar á afstöðu sinni í þessu máli. Og það ætd að verða fulltrúum á komandi ASÍ-þingi hvatning til að ræða hina eiginlegu hagsmunastöðu verkalýðs- hreyfingarinnar útfrá því krampataki sem verkalýðsforingjarnir halda um stóla sína í sjóðsstjómunum. Það var líka merkilegt að sjá í þessu máli hvað Alþýðubandalagið einsog leið útaf þegar á leið. Mér skilst að Al- þýðubandalagið hafi átt frumkvæði að hinu sérstaka fmmvarpi formannanna, sem samkvæmt frumhugmyndinni átti að spegla nýju 1978-línuna Svavars Gestssonar um tæknilega samfylgd við Alþýðuflokkinn. Þegar Þjóðvaki kom að málinu - einsog auðvitað var eftir samstöðu flokkanna þriggja í undirbúningsnefndinni - þá léttist ört áhersla Allaballa á fmmvarpsstarfið, og í aðdraganda sjónvarpsumræðna var gamli flokkurinn hans Einars Ol- geirssonar skyndilega orðinn einsog feimin skólastúlka. Þeir voru orðnir hræddir við tákngildi málsins sem sameiginlegs fána jafnaðaraflanna, - og það hafði uppgötvast líka að verka- lýðsforingjamir vom ekki með. Lexía fýrir fólk í baksveitum Alþýðubanda- lagsþingmanna. Hvernig var þetta annars, - var það í draumi að mér þótti sem kominn væri nýr formaður í þennan flokk? Svo var aumingja Kvennó og Krist- ín Ástgeirsdóttir og hefur hennar lukka ekki komist mikið lægra en þeg- ar hún gekk í lið með Friðriki Sophus- syni afþví hún var ekki memm í kompaníi formannanna. Ég veit satt að segja ekkert af hverju Kvennalist- inn skrifaði ekki uppá formannafmm- varpið. Mér fannst það ástand mála hinsvegar alveg eðlilegt. Meirihluti Kvennalistans telur sig reka einhveija femínistapólitík sem komi ekki við átökum jafnaðarmanna og sérhyggju- sinna. Meirihluti Kvennalistans hefur lagt blessun sína yfir þá skoðun Krist- ínar Ástgeirsdóttur að Reykjavíkurlist- inn hafi verið eitthvað frá staðbund- inni undantekningu uppí alvarleg mis- tök. Meirihluti Kvennalistans hefur samþykkt að taka ekki þátt í umræð- um vinstramegin við miðju um stefnu- mál og vinnuskipulag. Litla gula hæn- an fann fræ. Meirihluti Kvennalistans sagði Ekki ég. Og litla gula hænan borðar brauðið. Mörður Árnason er meðal annars vara- þingmaður Þjóðvaka í Reykjavík. Nokkur upplausn ríkir i her- búðum Guðrúnar Agn- arsdóttur og Guðrúnar Pét- ursdóttur eftir síðustu skoð- anakönnun DV. Fylgi beggja fer minnkandi, og er fall Guð- rúnar Pétursdóttur enn meira en nöfnu hennar, í Ijósi þess að hún hrapaði úr 34 prósent fylgi niður í tæp 15. Við heyr- um að það fólk sem vill að kona verði áfram húsráðandi á Bessastöðum vilji freista þess að fá annan kvenframbjóðand- ann til að draga sig til baka. Það kann að verða þrautin þyngri: Guðrún Agnarsdóttir reiddist mjög þegar Guðrún Pétursdóttir stal senunni með því að lýsa fyrst yfir framboði, en stuðningsmenn þeirrar síð- arnefndu telja að Guðrún Agn- arsdóttir eigi ekki minnstu möguleika, og ætti því að rýma til á sviðinu. Fáir spá því nú að önnur hvor bakki, og niðurstaðan verður því að lík- indum systrabylta... að er til marks um að ekk- ert fararsnið er á Guðrúnu Agnarsdóttur úr bardagan- um um Bessastaði, að í gær birtj hún heilsíðuauglýsingu með nöfnum stuðnings- manna. Þar voru engin stórtíð- indi, en ýmsum fannst athygl- isvert að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir skrifaði ekki uppá hjá flokkssystur sinni. Það gerði hinsvegar aðstoðarkona borgarstjórans, Kristín Á. Árnadóttir. Ingibjörg Sólrún er sögð ætla að halda sig til hlés, en til skamms tíma að minnsta kosti töldu stuðnings- menn Guðrúnar Pétursdótt- ur hana í sínum hópi... f Urforsetapælingum í bæk- ur. Við hlerum að Jóhann Páll Valdimarsson í Forlag- inu sé bjartsýnn á gott ár hjá sínu kompaníi enda ýmislegt forvitnilegt í farvatninu. Skáld- sögur eftir Ólaf Gunnarsson og Pórarin Eldjárn koma út í haust, og aukþess nokkrar litl- ar Ijóðabækur sem kenndar eru við gullregn. Forlagið stendur í stórræðum í vor þeg- ar út kemur mikill og litríkur doðrantur ætlaður þeim sem vilja rækta og prýða garðinn sinn. Ohemju vinna liggur að baki verkinu og hafa margir lagt hönd á plóg. Sömu sögu er að segja um bók sem For- lagið gefur út í haust, og mun líklega bera heitið Efri árin. Rit- stjórar eru Jakob Smári og Hörður Þorgilsson en þeir rit- stýrðu einmitt Sálfrædibókinni sem út kom fyrir nokkru og seldist í stóru upplagi. Nýja bókin er, einsog nafnið gefur til kynna, einkum ætluð þeim sem eru teknir að reskjast, og þar mun fjallað ítarlega um flest sem snertir líf eldra fólks í mannfélagi nútímans. Síðast en ekki síst geta aðdáendur Guðbergs Bergssonar hlakk- að til bókar þarsem saman eru dregin gullkorn úr verkum þessa sérstæða höfundar... Tímarnir breytast. I Helgar- póstinum í gær var eftir Robert Marshall formanni Verðandi, ungs fólks í Alþýðu- bandalaginu, að hann styðji aðild íslands að NATÓ. Það er hinsvegar ekki lengra síðan en í haust að sauðþráir allaballar samþykktu á landsfundi hið gamla trúaratriði sitt um ísland úr NATÓ og herinn á brott... 'FarSide" eftir Gary Larson „Jæja, mér skilst að þú gefir þig út fyrir að vera túbuleikari." fimm á förnum vegí Gætir þú hugsað þér að gefa í kosningasjóð einhvers forsetaframbjóðendanna? Kristín Jónsdóttir hús- móðir: Nei, það hef ég ekki hugsað mér að gera. Guðlaugur Hilmarsson trésmiður: Nei, alls ekki. Leifur ísleifsson kaupmað- ur: Nei. Hulda Kristín Magnús- dóttir búningahönnuður: Nei, það ætla ég alls ekki að gera. Bryndís Valgeirsdóttir skrifstofumaður: Nei, ég hef ekki hugleitt það. JÓN ÓSKAR m e n n Það er æskilegt fyrir stéttarfélög að menn verði ekki ellidauðir í starfi og heppilegt, bæði fyrir mig og félagið að inn komi nýtt fólk. Hrafnkell A. Jónsson formaöur Verka- mannafélagsins Árvakurs á Eskifirði. Mogginn í gær. Leiksýning Péturs þegar hann tilkynnti framboð sitt var góð og greinilegt að hann hefur vana og snjalla ímyndarsmiði með sér í slagnum. Garri í Tímanum í gær. Þess vegna eru líkur á að Davíð muni þurfa að upplifa martröð lífs síns, að hrópa ferfalt húrra fyrir Ólafi Ragnari við þingsetning- una í haust! Sami Garri. Það er grobb í okkur íslend- ingum að selja útlendingum ósnortna íslenska náttúru, það er því miður svo fjarri því að náttúran okkar sé ósnortin. Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri. Tíminn í gær. Það verður að segjast eins og er að menn hafa strax orðið fyrir talsverðum vonbrigðum með Ólaf Ragnar Grímsson sem forsetaframbjóðanda. Magnús Sigurðsson í lesendabréfi í DV í gær. Islendingar eru yfirleitt þýlyndir og láta flest yfir sig ganga möglunarlítið. Þeir endurkjósa stjórnmálamenn og - flokka, sem hafa ítrekað valtað yfir fólkið í landinu og valdið því stórtjóni, til dæmis með ríkisrekstri landbúnaðar. En þrælaþjóðin tekur sér frí í forsetakosningum. Jónas Kristjánsson í Leiðara DV í gær. fréttaskot úr fortíð Örlátur fram- bjóðandi Innan skamms á að kjósa nýjan forseta í lýðveldinu Panama. Einn frambjóðendanna, dr. Belisario Poras, hefir lofað því, ef hann nær kosningu, að stofna til veislu, sem á að standa í 8 daga. Mat og vínföng á að bera fram á kostnað ríkisins. Það er allt útht fyrir, að herra Poras vinni kosningamar. ■4-1 AIÞX0.^1* . WMD, sunnudagmn 16. agúst 1936

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.